Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018 Þ að fer vel á því að Viðreisn tryggi óbreytt ástand í höfuðborginni. Formaður flokksins tilkynnti í að- draganda kosninga að flokkurinn sá myndi selja sig dýrt í Reykjavík. Orðalagið var fremur óheppilegt vegna forsögunnar og tilþrifa formannsins sjálfs í aðdraganda „hruns“ og þar á eftir. Afsökunin er sjálfsagt sú að svona tal tíðkist í heimi íþróttanna. Það minnir á að þegar að Þorgerður Katrín var kos- in varaformaður í flokknum, þeim sama og hún sveik síðar, og þakkaði fyrir sig í ræðustól lauk hún því með þessu hrópi: „Bjarni, klárum dæmið!“ Utan íþróttavalla er slíkt tal næsta merkingarlaust. Framhald sögunnar sýndi að ræðumaðurinn virtist fyrir sinn hatt telja að þetta væri fyrsta skrefið í því að klára þann flokk sem hafði sýnt henni ómældan trúnað. Jafnvel eftir að varaformaðurinn fyrrver- andi hafði sparkað í flokkinn sinn með þeim hætti sem hún gerði, var umburðarlyndi hans svo tak- markalaust að þessum stjórnmálalega mulningi óheilinda var trúað fyrir setu í ríkisstjórn með fyrir- sjánlegum afleiðingum. Áframhaldandi óstjórn. Umferðarteppa og lóðakreppa. Þegar horft er til úrslitanna í borgarstjórn Reykja- víkur eru hinar breiðu línur skýrar. Flokkur borgarstjórans fékk skell. Það fer ekki framhjá neinum nema honum. Það er reyndar ekkert dæmi þess til að flokkur með borgarstjórann í leiðtoga- sæti fari svona illa frá kosningum. Borgarstjóra- embættið dregur að og hefur jafnan verið styrk- leikamerki þess flokks sem fer með það, þótt það hafi ekki alltaf dugað til, eins og í kosningunum 2010 þegar aðstæður voru mjög sérstakar. En það verður ekki hjá því komist að álykta að meginyfirlýsing síðustu kosninga í Reykjavík hafi verið afgerandi vantraust á Dag B. Eggertsson borgarstjóra og þarf naumast að koma á óvart. Í síð- ustu kosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn, helsti stjórnarandstöðuflokkurinn í borginni, 25,7% at- kvæðanna en Samfylkingin 31,9%. En eftir að Sam- fylkingin hafði notið borgarstjóraembættisins í 4 ár þá hrundi fylgi hennar niður í 25,9 prósent á meðan Sjálfstæðisflokkurinn fékk 30,8% atkvæða. Sjálf- stæðisflokkurinn fór úr því að vera 6,2 % minni flokkur en Samfylkingin í borginni í það að verða 4,9% stærri flokkur en hún, sem er sveifla um 11%. Tapa á samstarfinu við Dag Hinn burðarflokkur meirihlutans á síðasta kjör- tímabili, VG, tapar næstum helmingi fylgis síns og hefði ekki komist inn í borgarstjórn með slíkt fylgi ef borgarfulltrúum hefði ekki verið fjölgað. Eina skýra niðurstaða kosninganna í Reykjavík að öðru leyti er sú, að kjósendur þar eru að kalla eft- ir breytingum. Það kom í hlut Viðreisnar að koma í veg fyrir þær breytingar og tryggja þá algjöru kyrr- stöðu í höfuðborginni, sem borgarfulltrúar höfðu hafnað. Það var Viðreisn sem rétti fram hækjuna til að tryggja að borgarstjóri sem borgarbúar vildu kippa fótunum undan gæti haltrað áfram hvað sem vilja kjósenda leið. Það er svo sem vitað fyrir hvað Við- reisn stendur í stjórnmálum. Flokkurinn sér ekkert annað en að færa ESB fullveldi landsins. Þess vegna var skiljanlegt að aldrei glitti í venju- leg stefnumál hennar í nýliðnum sveitarstjórnar- kosningum. Þau eru ekki þar. En Viðreisn bætti um betur strax eftir kosningar sem er þakkarefni. Fyrirlíta kjósendur ESB, sólin sem heldur lífinu í viðreisnarforkólf- unum er nefnilega hvað frægast fyrir það upp á síð- kastið að hunsa helst allar kosningar sem fara öðru vísi en það vill. Dæmin eru fjölmörg þar sem sam- bandið neitar að taka mark á þjóðaratkvæði sem fer gegn fyrirætlunum þess. Þá er kosið aftur og aftur og hótanirnar látnar dynja á kjósendum þar til rétt niðurstaða fæst. Fræg eru dæmin ömurlegu frá Grikklandi þar sem landið var beitt harðræði og hótunum uns það tókst að beygja stjórnmálamenn- ina niður á hnén. Í Póllandi, Ungverjalandi og Tékk- landi fóru kosningar öðruvísi en þær áttu að fara. Þessi lönd hafa setið undir hótunum. Nú síðast var því opinberlega hótað að fjárframlög til þessara ríkja verði snarlækkuð lúti þau ekki vilja búrókrat- anna í Brussel. Óhugnanleg hefur hún verið fram- koma ESB gagnvart Bretum eftir að þjóðin vogaði sér í þjóðaratkvæði að ákveða að rétt væri og nauð- synlegt að koma sér úr sambandinu og það sem fyrst. Fyrir þá sem hafa sem meinloku að berjast fyrir því að fámenn þjóð eins og sú íslenska álpaðist inn í sambandið ætti sú mynd sem birst hefur svo víða að undanförnu að duga til að opna þau augu sem fastast hafa verið lukt. Og það er ekki aðeins að hótanir dynji á Bretum frá Brussel. Handbendi þeirra heima fyrir hamast og spara sig hvergi. Þeir segja atkvæðagreiðsluna ómarktæka. Hana ætti að ógilda og endurtaka. Enginn þeirra sem þannig tala minntist á slíkt einu orði í aðdraganda atkvæðisins, að hætta væri á að það yrði marklaust. Af hverju ekki? Jú, vegna þess að fram á síðasta dag bentu skoðanakannanir til að aðildarsinnar myndu hafa betur í kosning- unum. Og allir vita að þær kosningar einar eru rétt- mætar sem fara eins og litlu drengirnir í Brussel vilja. Slíkar kosningar eru óvéfengjanlegar í stóru og smáu. Heimóttarlegar fréttir Það er með nokkrum ólíkindum hversu seinir ís- lenskir fjölmiðlar urðu til að skilja mikilvægi hinnar pólitísku þróunar á Ítalíu og ef marka má frétta- flutninginn átta fæstir þeirra sig á málinu enn. Fyrir allmörgum vikum var hér og í ritstjórnar- greinum blaðsins vakin athygli á hvað kraumaði undir á Ítalíu. Í framhaldinu var bent á undarlega framgöngu Sergio Matarella, forseta Ítalíu. Það er fremur fátítt að forsetinn þar skipti sér af stjórn- málum með þeim hætti sem hann hefur gert og hef- ur með því ekki aðeins ýtt undir glundroða í landinu, heldur ýtt því út á ystu brún. Mattarella var kosinn af þingheimi á meðan flokksbræður hans, sósíaldemókratar og bandalags- flokkar þeirra, höfðu þar meirihluta. Kratarnir eru ESB-flokkurinn á Ítalíu og fóru miklar hrakfarir í þingkosningunum í mars sl. Forsetinn hafði krafist þess að sigurvegarar kosninganna drægju ekki að mynda ríkisstjórn og hótaði því að boða ella til nýrra kosninga. Á Ítalíu hefur forsætisráðherra ekki Rómarsáttmálinn var upphafið. Verða endalokin einnig kennd við Róm? ’ Árangur ESB-samstarfs og evrusamstarfs, eftir að það kom til, er auðvitað það sem ýtt hefur undir andóf gegn því um alla álfuna. Það er ekki stjórnleysið í innflytjendamálum, sem ráðið hefur úrslitum, þó að það hafi ekki bætt úr. Reykjavíkurbréf01.06.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.