Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Side 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Side 31
komið beint úr röðum stjórnmálamanna á þingi síð- an ESB hrakti Berlusconi frá völdum og skipaði kommissar frá sér sem forsætisráðherra, en sá komst lítið áfram. Og þar sem 5-stjörnu hreyfingin og Bandalagið gátu hvorugt unnt hinum að fara með forsætið var ákveðið að setja lagaprófessor með enga stjórn- málareynslu í forsætisráðherrastólinn. Forseti setur upp revíu Eftir að Mattarella forseti áttaði sig á að forsætis- ráðherraefnið hefði efasemdir um ágæti ESB þvældist hann fyrir því vali en eftir langt þref við ráðherraefnið féllst hann loks á að skipa hann. En þegar hann heyrði að Paolo Savona, 81 árs prófessor í hagfræði, ætti að verða fjármálaráðherra setti for- setinn fótinn fyrir stjórnarmyndunina, sem hlýtur þó að vera á ystu mörkum valdheimilda hans. Savona fjármálaráðherra hafði sagt að stöðug- leikastefna ESB miðaðist við þann stöðugleika sem ríkti í gömlum kirkjugarði. Það þótti forsetanum jaðra við guðlast. Flokkarnir hurfu þá frá stjórn- armyndun og stefndu í kosningar í júlí nk. og sýndu spár að þeir myndu væntanlega vinna mun stærri sigra nú en síðast og jafnvel geta fengið allt að 90% atkvæða á þinginu með því að nýta sér bandalagabó- nusa stjórnarskrárinnar. Forsetinn tilkynnti að hann myndi skipa sem forsætisráðherra embættis- mann frá Alþjóðagjaldeyrisissjóðnum og helsta talsmann niðurskurðar og þrenginga. Sá hefur við- urnefnið „skærin“ á Ítalíu. Til að forða frá því til- kynntu flokksleiðtogarnir að þeir féllu frá því að Sa- vona yrði fjármálaráðherra en hann yrði í staðinn skipaður ráðherra evrópumála! Féllst forsetinn á það, jafnvel þótt að fram kæmi að nýi Evrópumála- ráðherrann teldi brýnast alls að ýta Þýskalandi út úr ESB ef ætti að vera hægt að bjarga því sam- bandi. Árangur ESB-samstarfs og evrusamstarfs, eftir að það kom til, er auðvitað það sem ýtt hefur undir andóf gegn því um alla álfuna. Það er ekki stjórnleysið í innflytjendamálum, sem ráðið hefur úrslitum, þó að það hafi ekki bætt úr. Hér á Íslandi tala margir stjórnmálamenn og „verkalýðsleiðtogar“ um þróun kaupmáttar eins og þeir hafi ekki komið til Íslands í mörg ár. Kaup- máttaraukningin hefur verið ótrúleg síðustu árin hér á landi. Í Þýskalandi hefur engin kaupmáttar- aukning orðið í 20 ár og á Ítalíu engin í 30 ár. Góð áform geta breyst í hörkuleg átök Hinir nýju leiðtogar Ítalíu segjast ekki hafa nein áform um að segja Ítalíu úr ESB og jafnvel ekki heldur úr evrunni. En þeir séu á hinn bóginn harð- ákveðnir í því að krefjast róttækra breytinga á ESB. Þeir sem búa í norðurhluta ESB sjá hins vegar ekki annað en að verði slíkum kröfum fylgt fram þýði þær sjálfkrafa endalok evrusvæðisins. Ambrose Evans-Pritchard, sem reyndist glögg- skyggnari en flestir fréttaskýrendur í aðdraganda kreppunnar í okkar heimshluta upp úr 2007, fjallar um Ítalíumálið í athyglisverðri grein í Daily Tele- graph sl. fimmtudag. Þá leit enn út fyrir að Matt- arella myndi þvinga fram kosningar, sem Pritchard taldi ljóst að flokkarnir sem ekki fengu að mynda stjórn myndu vinna með miklum yfirburðum. Þótt forsetinn hafi guggnað á því andófi sínu verð- ur ekki annað séð en að ályktanir greinarhöfundar séu enn í góðu gildi. Hann segir: „Hvað sem annars gerist þá mun svo ákveðin ítölsk andstaða við reglur ESB um takmörk á aukningu útgjalda og um Sátt- mála um ríkisfjármál örugglega gera út af við vonir Macron forseta Frakklands um að Merkel kanslari muni fallast á hugmyndir hans um Ríkisfjármála- bandalag ESB. Evran mun því fara á mis við allar umbætur á umgjörð hennar og hún mun allsófær (unworkable) standa frammi fyrir næsta afturkipp á heimsvísu. Hljómurinn í dómsdagslúðrunum mun hrella Evr- ópu á ný. Það er þegar orðið sársaukafullt að horfa upp á hin nýju óveðursský hrannast upp á himni.“ Jafnvel Soros Meira að segja milljarða-mógúllinn Soros sagði í vikunni að Evrópusambandið stæði frammi „fyrir tilvistarkreppu“ og að „allt sem hefði hugsanlega getað farið úrskeiðis í sambandinu hefði farið úr- skeiðis“. En þetta breytti því þó ekki að Soros ákvað í vikunni að leggja fram mikla fjármuni til að berjast fyrir því að vilji bresku þjóðarinnar yrði brotinn á bak aftur. Ein af ástæðum þess að Soros er svo fjáður sem hann er að hann náði árið 1992 að brjóta John Major forsætisráðherra Breta og breska seðlabankann á bak aftur. Það veðmálabrall (og eins gegn Carl Bildt og Svíum, þó minna hefðist upp úr því krafsi) gerði Soros að yfirgengilegum auðmanni. Soros er því ekki endilega efstur á lista þeirra sem breska þjóðin hefur helst dálæti á. Morgunblaðið/RAX 3.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.