Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Side 37
James Michael
Tyler er hætt-
ur að aflita á
sér hárið einu
sinni í viku eins
og hann gerði á
meðan hann
lék í Friends.
Friends-þættirnir nutu gríðar-legra vinsælda um allan heimfyrir um 20 árum. Þótt
framleiðslu þáttanna hafi verið
hætt árið 2004 virðast þeir ekki
hafa dalað í vinsældum og
Chandler, Joey, Monica,
Phoebe, Rachel og Ross mynda
ennþá einn vinsælasta vinahóp
sem birst hefur á sjónvarps-
skjánum.
Vinirnir hittust oft á kaffihús-
inu Central Perk þar sem hinn
feimni og sérstaki Gunther með
aflitaða hárið stóð iðulega bak við
afgreiðsluborðið. Hlutverk Gunthers
var ekki eitt af stóru hlutverkunum í
þáttunum, en hann var afar eftirminnileg
persóna. Hann var yfir sig ástfanginn af
Rachel en sú ást var ekki endurgoldin, og
hann hataði Ross sem var svo heppinn að
vera kærastinn hennar.
Gunther var leikinn af James Michael
Tyler sem bauðst hlutverkið eftir að hafa
verið einn aukaleikara á kaffihúsinu Cent-
ral Perk. Tyler hafði sjálfur unnið sem
kaffibarþjónn og bauðst hlutverk Gunthers
aðallega vegna þeirrar reynslu sinnar og
af því að hann var sá eini á tökustaðnum
sem kunni almennilega á cappuccino-
vélina. Hins vegar hellti hann aldrei í al-
vörunni upp á kaffi, heldur var þetta
meira hugsað til þess að allt liti eðlilega út
bak við afgreiðsluborðið.
Aðalsmerki Gunthers var aflitaða hárið
hans en það var tilkomið fyrir hálfgerða
tilviljun. Daginn áður en Tyler átti að
mæta í áheyrnarprufuna fyrir Friends,
fékk vinur hans, sem var að læra hár-
greiðslu, að æfa sig á honum og aflitaði á
honum hárið. Þegar Tyler mætti í prufuna
næsta dag leist framleiðandanum svo vel á
að ákveðið var að halda hárlitnum. Tyler
þurfti að aflita á sér hárið einu sinni í viku
í tíu ár.
Tyler starfar í dag sem leikari og hefur
t.d. leikið í nokkrum sjónvarpsþáttum eftir
að framleiðslu á Friends-þáttunum lauk.
Hann lék m.a. í þáttunum Episodes, þar
sem meðleikari hans úr Friends, Matt Le-
Blanc, fór með aðalhlutverkið. Einnig fór
Tyler með hlutverk í þáttunum Scrubs, Sa-
brina The Teenage Witch og Just Shoot
Me! Hann hefur líka leikið í nokkrum kvik-
myndum, þar á meðal The Disturbance at
Dinner frá árinu 1998 og Jason’s Big Pro-
blem frá árinu 2010.
Tyler er fráskilinn, býr í Hollywood og
aflitar ekki lengur á sér hárið. Í frítím-
anum nýtur hann þess að spila á hljómborð
og semja tónlist. Hann hreyfir sig líka
mikið og stundar tennis, golf og hlaup.
HVAÐ VARÐ UM?
’Tyler hafði sjálfur unnið sem kaffibarþjónn og bauðst hlutverk Gunthersaðallega vegna þeirrar reynslu sinnar og af því að hann var sá eini átökustaðnum sem kunni almennilega á cappuccino-vélina.
Vinirnir sátu ósjaldan með kaffibolla á þessum sófa á Central Perk-kaffihúsinu, en Gunther sá um að hella upp á.
Ósk hans um að vinna ást Rachelar varð ekki að veruleika.
Gunther
úr Friends
AFP
3.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Lífrænar mjólkurvörur
í fimmtán ár
Í fimmtán ár hefur Biobú framleitt lífrænar mjólkurvörur sem notið hafa mikilla vinsælda. Vöruflokkum hefur fjölgað ár frá ári
og sífellt bætast við spennandi og girnilegar nýjungar. Öll mjólk í okkar afurðir kemur frá tveimur búum, þ.e. Búlandi í Austur
Landeyjum og Neðra Hálsi í Kjós. Framleiðsla Biobú fer fram samkvæmt ströngustu reglum um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Kynnið ykkur vöruúrvalið á heimasíðu okkar, www.biobu.is.
Lífrænar
mjólkurvörur
www.biobu.is298.1
23
/0
5.
18