Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Side 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Side 40
SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2018 „Svo að, já, þú átt að trítla um í búningsherbergi fullu af nöktu fólki til að fara í sturtu áður en þú ferð í laugarnar. Og já, þú átt að láta eins og það sé nákvæmlega ekkert mál.“ Svo kemst greinarhöfundur bandaríska tímaritsins Insider að orði í grein sem fjallar um muninn á banda- rískri og íslenskri menningu. Þar ber ýmislegt á góma, meðal annars nekt Íslendinga í sturtuklefum landsins, en alls fer greinarhöfundur yfir 12 atriði sem greina menn- ingu og siði þjóðanna að. Þannig er þess getið að Íslend- ingar sinni margir tveimur til þremur störfum, og það sé til að þola vetrarmyrkrið. Ef við hefðum ekki nóg að gera yrðum við þunglynd. „Það er ekki áfall að nekt sé ekkert tiltökumál á Ís- landi, enda landið hluti af Evrópu, sem er afslappaðri en Ameríka þegar nekt er annars vegar. En á Íslandi er nektin mjög auðsæ,“ segir í greininni, þar sem farið er yfir að engin skilrúm séu í sturtuklefunum sem fólk not- ar áður en það fer ofan í sundlaugar og Bláa lónið. Hjónabönd, nekt í sturtuklefum, börn úti í vögnum og vinnusemi Íslendinga er meðal efn- is greinarinnar í Insider. Nekt og mörg störf Íslensk og bandarísk menning er borin saman í grein sem birtist í ferðahluta bandaríska tímaritsins Insider í vikunni. Íslendingar eru meðal annars sagð- ir hrúga á sig störfum til að koma í veg fyrir depurð yfir vetrarmánuðina. Fyrir sléttum tuttugu árum, 3. júní 1998, sagði Morgunblaðið frá því að ísbar hefði verið kom- ið fyrir á Jökulsárlóni. Vegfarendur við lónið hafa sjálfsagt rekið upp stór augu en barinn var þó hvorki opinn al- menningi né kominn til að vera heldur var hann settur upp tíma- bundið fyrir auglýsingu á drykknum „asna“ sem fyrir- tækið Smirnoff framleiddi. Aug- lýsinguna átti að frumsýna á heimsmeistaramótinu í knatt- spyrnu sem hófst í júní 1998. Kvikmyndasmiðjan sá um framkvæmdina hér á landi en auglýsingin var framleidd af grísku fyrirtæki. Í fréttinni kemur fram að hug- myndin hafi verið að taka upp á svæði sem líktist heimskauta- svæði og Jökulsárlónið hafi hent- að mjög vel til þess. Í auglýsingunni var inúíti á veiðum þegar hann heyrði skyndilega hljóð og sá barstóla rísa upp úr sjónum. Þá dreif að mörgæsir sem breyttust síðan í flöskur með fyrrnefndum drykk. Inúítinn stóðst ekki mátið og kallaði til konu sinnar, sem slóst í hópinn. GAMLA FRÉTTIN Mörgæsir breyttust í asna Inúítinn kominn út á hálan ís á leið á barinn. Morgunblaðið/RAX ÞRÍFARAR VIKUNNAR Jackie Guerrido veðurfréttakona og blaðamaður. Meghan Markle hertogaynja af Sussex. Berglind Magnúsdóttir söngkona. Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is Tímalaus hönnun í útskriftar- pakkann CUERO MARIPOSA Leður Verð 149.000,- KARTELL LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 36.900,- stk. LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.890,- ARCHITECTMADE Andarungi Verð frá 8.490,- KAY BOJESEN Söngfugl– fleiri litir Verð 10.750,- KARTELL GHOST BUSTER Náttborð Verð 47.900,- stk. COMPONIBILI hirsla 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 17.900,- RITZENHOFF Bjórglös og krúsir Verð frá 2.150,- IITTALA AALTO Vasi 160mm grænn Verð 18.950,- KARTELL BOURGIE Lampi – fleiri litir Verð frá 34.900,- RITZENHOFF Gin og viskí glös Verð Gin 2.950,- Viskí 2.450,- KAY BOJESEN Api lítill og studentshúfa Verð 19.800,- stk KARTELL TAKE Borðlampi – margir litir Verð 10.900,- MR.WATTSON LED lampi Verð 16.990,- KARTELL CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- KABUKI Standlampi Verð 129.000,- JUST RIGHT STOFF Kertastjaki Verð frá 5.100,- stk. VITA SILVIA Borðlampi Verð frá 19.900,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.