Morgunblaðið - 08.06.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
tefldu Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir
Barnaspítala Hringsins, og Hrafn
Jökulsson sína árlegu einvígisskák
en henni lauk með jafntefli eftir
mikla baráttu.
Ásgeir flutti fallega ræðu áður en
taflið hófst og vakti athygli á því að
tími væri líklega það dýrmætasta
sem hægt væri að gefa börnum og
sérstaklega veikum börnum. Hrafn
samsinnir þessu: „Þetta er nokkuð
sem við höfum öll gott af því að
hugsa aðeins um – að tíminn er það
dýrmætasta sem við getum gefið
öðru fólki. Þess vegna slær hjarta
Hróksins í Hringnum.“
Hrókurinn hefur unnið markvisst
að útbreiðslu skáklistarinnar í 20 ár
en félagið fagnar stórafmælinu í
haust. Á þeim tíma hefur skák-
félagið heimsótt alla skóla á Íslandi
ásamt því að hafa farið til Græn-
lands um 70 sinnum og staðið þar að
skákmótum og skákkennslu. Hrafn
segir að Hrókurinn muni auðvitað
halda í þessa hefð og tefla við börnin
á Barnaspítala Hringsins alla
fimmtudaga.
ir að læra sem mest og öðrum finnst
gaman að spjalla um lífið og til-
veruna.“
Boðið var upp á tertu í tilefni
dagsins og áttu börnin, starfsmenn
spítalans, fjölskyldur og aðrir góðir
gestir notalega stund saman. Þá
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Haldið var upp á 15 ára heimsókn-
arafmæli Hróksins á Barnaspítala
Hringsins í gær. Skapast hefur sú
hefð hjá skákfélaginu Hróknum að
heimsækja börnin alla fimmtudaga.
Liðsmenn Hróksins, Hrafn Jök-
ulsson og Róbert Lagerman, hafa nú
haldið þessari hefð í 15 ár. „Við kom-
um þarna fyrst á fallegum júnídegi
2003. Síðan höfum við komið alla lífs-
ins fimmtudaga og átt óteljandi
gæðastundir með þessum ungu
hetjum sem við höfum kynnst á
þessum langa tíma,“ segir Hrafn
Jökulsson. „Það hefur auðgað líf
okkar ekki síður en starfsfólkið í
Hringnum sem er meira og minna
það sama og þegar við byrjuðum,
þannig að við eigum þar miklum vin-
um að fagna.“
Í heimsóknunum tefla þeir við
börnin og spjalla við þau um lífið og
tilveruna. ,,Það eru engar tvær
heimsóknir eins. Við teflum og
spjöllum, sumir krakkarnir eru ólm-
Morgunblaðið/Arnþór
Veisla Boðið var upp á dýrindis tertu á 15 ára heimsóknarafmæli Hróksins á Barnaspítala Hringsins í gær.
Hjarta Hróksins slær
á Barnaspítalanum
15 ára heimsóknarafmæli Hróksins á Barnaspítala Hringsins
Handaband Ásgeir Haraldsson yfir-
læknir og Hrafn Jökulsson.
„Þetta er aðeins farið að hækka.
Þetta er að gerast hægt en örugg-
lega.“ Þetta sagði Sigríður Magnea
Óskarsdóttir, náttúruvársérfræð-
ingur hjá Veðurstofu Íslands, um
mögulegt jökulhlaup í Grímsvötnum
þegar Morgunblaðið náði tali af
henni í gærkvöldi.
Jarðvísindastofnun Háskólans til-
kynnti um leka úr Grímsvötnum í
gærmorgun en ekki er búist við
stærra hlaupi en á síðustu árum.
„Þetta er leki sem við höfum séð
áður,“ bætti Sigríður við og vísar þá
til hlaupsins sem átti sér stað í ágúst
2016.
Hún telur að líklega muni vatns-
magn halda áfram að aukast yfir
helgina, þó hægt og bítandi. Ferða-
menn eru hvattir til að halda sig
fjarri Gígjukvísl sökum brenni-
steinsmengunar. teitur@mbl.is
Búist við að vatnsmagn
aukist úr Grímsvötnum
Morgunblaðið/Rax
Hlaup Mögulega hefst jökulhlaup í
Grímsvötnum á næstu dögum.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al-
þingis, sagði þinglok vera í augsýn
um kvöldmatarleytið í gær en þó
væru fjölmörg mál eftir sem þyrfti
að klára áður en hægt væri að slíta
þingi. „Þetta er allt að þokast í rétta
átt og það er verið að vinna hörðum
höndum úti um allt, bæði í nefndum í
vissum málum og svo eru þingnefnd-
ir að funda í leiðinni og menn eru að
tala saman,“ segir Steingrímur.
Hann segir ekki hægt að segja til
um þinglok fyrr en búið verði að
hnýta síðustu lausu endana. For-
menn allra flokka á þingi hittust á
fundi kl 22 í gærkvöldi í von um að ná
samkomulagi um þinglok en niður-
staða lá ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun.
Ríkisfjármálaáætlun er meðal
þeirra mála sem á eftir að klára og
fóru umræður um fjármálaáætlunina
fram í gær. Spurður segir Steingrím-
ur umræðurnar hafa gengið vel.
„Þetta er búið að ganga fínt, fram-
sögurnar eru búnar. Lengstu ræð-
urnar eru alltaf frá framsögumönn-
um nefndarálita þannig að þetta
hefur gengið vel í dag [í gær].“
Steingrímur segir stjórnarand-
stöðuna enn ekki hafa tekið tilboði
Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráð-
herra, um að halda veiðigjöldum
óbreyttum fram að áramótum ef
hægt væri að semja um lok annarra
mála. „Það er inni í þessum pakka
sem var boðið upp á af hálfu stjórn-
arinnar. Það er náttúrulega bara
hluti af þessu og verði það niðurstað-
an verður samið um það.“
Persónuverndarlög enn eftir
Allsherjar- og menntamálanefnd
er enn að vinna í nýju persónu-
verndarlöggjöfinni og segir Páll
Magnússon, formaður allsherjar- og
menntamálanefndar, nefndina vinna
hörðum höndum við að ljúka málinu.
Nefndin fundaði fram eftir degi í gær
og segir Páll að unnið sé nú í að fá
umsagnaraðila frumvarpsins ásamt
öðrum fyrir nefndina um þessar
mundir. Nefndinni bárust alls 298
umsagnarbeiðnir um löggjöfina og
voru valdir ákveðnir aðilar sem koma
fyrir nefndina. „Þessu verður haldið
áfram í fyrramálið [í dag] því ef
samningar takast um þinglokin þá
verður þetta stærsta málið sem út af
stendur og það er mest eftir af því.
Þá geri ég ráð fyrir því að það verði
fundur í nefndinni um helgina og
þetta verður klárað um og eftir
helgi,“ segir Páll en ljóst er að mál-
inu þarf að ljúka fyrir þinglok enda
miklir hagsmunir í húfi.
„Þetta er nú þegar orðið viðmið í
sambandi við allskonar meðferð á
persónuverndarupplýsingum og það
mun gerast svoleiðis gagnvart ís-
lenskum fyrirtækjum að ef við erum
ekki í takti við önnur Evrópulönd að
taka þetta upp þá förum við bara á
svartan lista um að það sé ekki óhætt
að skiptast á persónuupplýsingum
við Íslendinga því þeir séu ekki búnir
að taka upp þessi ströngu viðmið og
þá eru alls konar sektir og refsingar
yfirvofandi.“
Ókláruð mál en þokast í rétta átt
Allsherjar- og menntamálanefnd fundar áfram um nýja persónuverndarlöggjöf í dag Formenn
allra flokka á þingi funduðu fram eftir kvöldi í gær Ný persónuverndarlöggjöf enn inni í nefnd
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Þingmenn funda fram eftir kvöldi um þessar mundir. Ríkisfjár-
málaáætlun var meðal þeirra mála sem voru rædd á Alþingi í gær.
Karlmaður hefur verið dæmdur í
Héraðsdómi Vesturlands í 12 mán-
aða fangelsi fyrir alvarlega líkams-
árás gegn sambýliskonu sinni og
barnsmóður.
Brotið átti sér stað á heimili
mannsins og brotaþola, en börn
þeirra urðu vitni að árásinni.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa slegið konuna ítrekuðum
hnefahöggum í andlitið, ýtt
nokkrum sinnum við henni svo hún
lenti á vegg, dregið hana á úlnlið-
unum eftir gólfinu og út úr húsinu
þar sem hann skildi við hana.
Einnig var maðurinn ákærður
fyrir tilraun til manndráps með því
að hafa þvingað konuna niður á
gólfið, sest klofvega yfir hana og
gripið með báðum höndum um háls
hennar og barka og hert fast að svo
hún átti erfitt með andardrátt.
Alvarleg líkamsárás gegn barnsmóður