Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 36
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Þetta hefði ekki þurft að gerast
2. Lilja og Baltasar ástfangin í bíó
3. Veit greinilega ekkert um málið
4. Bryndís hefur flutt allavega ...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dansverkið The Great Gathering
verður flutt á Eiðistorgi í dag kl. 17 og
er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.
Verkið er flutt af dönsurum Íslenska
dansflokksins og hópi barna á aldr-
inum 9-16 ára, við tónlist eftir Sigur
Rós, Gus Gus, Hot Chip, Jarvis
Cocker, Peaches og fleiri. Danshöf-
undar eru Ásrún Magnúsdóttir og Al-
exander Roberts, í samvinnu við
dansara Íd, og er aðgangur að við-
burðinum ókeypis.
Dansað á Eiðistorgi
Kári Stefáns-
son, forstjóri Ís-
lenskrar erfða-
greiningar, heldur
fyrirlestur í dag
kl. 15 í Veröld –
húsi Vigdísar, um
hugsun, heila og
bókmenntir. Fyrir-
lesturinn er
undanfari málþings um rapp og al-
þýðleg listform sem fer fram í sama
húsi 16. júní. Þann dag verður einnig
efnt til Rapp- og (h)ljóðlistahátíðar á
Vigdísartorgi þar sem íslenskir og
danskir listamenn koma fram.
Fjallar um hugsun,
heila og bókmenntir
Tónlistarkonan María Magnús-
dóttir, sem starfar undir listamanns-
nafninu MIMRA, heldur í tónleika-
ferðalag um landið frá og með
morgundeginum til 21. júní
ásamt tveimur sam-
starfskonum sínum.
Munu þær halda 11 tón-
leika á 13 dögum og
flytja poppskotna al-
þýðutónlist. Sjá má tón-
leikastaði og dag-
setningar á tix.is.
MIMRA fer um landið
Á laugardag Sunnan 5-10 og rigning eða súld um landið vestan-
vert, en þurrt að mestu suðaustantil og hiti 8 til 14 stig. Skýjað
með köflum um landið norðaustanvert og hiti að 20 stigum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil væta suðvestan- og vestanlands, en
bjart með köflum um landið austanvert. Hiti 8 til 20 stig að deg-
inum, hlýjast í innsveitum norðaustanlands.
VEÐUR
„Það er búið að vera skrítið
umhverfi í kringum okkur
núna. Það er búið að vera
mikið af hlutum sem venju-
lega eru ekki, meðal annars
athygli annars staðar frá.
Það verður þægilegt og ró-
legra að koma til Rússlands.
Við höfum notið þess að vera
á Íslandi en við hlökkum til
að fara út,“ sagði Heimir
Hallgrímsson, landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu, eftir jafn-
tefli við Gana. »2 og 3
Hlökkum til að
komast út
„Ég hlakka til að takast á við þetta
ásamt strákunum. Við höfum undir-
búið okkur eins vel og kostur var á og
þar finnst mér ekkert vanta upp á. En
svo verður að koma í ljós hvernig
okkur reiðir af í þessu. Liðið er á
tímamótum vegna þess að kynslóða-
skiptin eru hafin,“
segir Guðmundur Þ.
Guðmundsson, en Ís-
land mætir Litháen í
Vilnius í dag í fyrri
leiknum um sæti á
HM karla í hand-
bolta. »1
Fyrri úrslitaleikurinn
gegn Litháum er í dag
„Ég lít fyrst og fremst á það sem
spennandi skref að fara til Vest-
mannaeyja og taka þátt í því starfi
sem þar fer fram. Menn eru greini-
lega að gera það gott í kringum
handboltann í Eyjum,“ segir Fannar
Þór Friðgeirsson, sem kemur heim
eftir átta ár í atvinnumennsku og
gengur til liðs við Íslands- og bikar-
meistara ÍBV. »4
Spennandi skref að
fara til Vestmannaeyja
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Kjólar með karakter blása lífi í sýn-
ingarsal Kirsuberjatrésins frá 9.-19.
júní. Þar heldur Erna Hlöðvers-
dóttir sína fyrstu einkasýningu,
,,Hún er að fara á ball“. Sýningin
samanstendur af skúlptúrverkum
Ernu sem eru kjólar af ýmsum gerð-
um. Kjólarnir eru mótaðir í hænsna-
net og búnir til úr dagblöðum og
pappa.
Erna hefur nýlega lokið störfum
sem hjúkrunarfræðingur en hún
hefur einnig lengi fengist við list-
sköpun. ,,Ég byrjaði í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur fyrir tæpum þrjá-
tíu árum og sæki enn öll námskeið
þar. Eins og maðurinn minn segir þá
útskrifast ég aldrei. Fyrir ári fór ég
svo á námskeið hjá Söru Vilhjálms-
dóttur í pappamassagerð og kolféll
alveg fyrir því.“
Hefur skapað níutíu kjóla
Heimili Ernu fer brátt að fyllast
af kjólum, eða dúkkum eins og hún
kýs einnig að kalla þá. ,,Ég verð sjö-
tug í ágúst og ákvað þarna fyrir ári
að gera alla vega eina dúkku á viku
svo að ég ætti sjötíu kjóla á sjötugs-
afmælinu. Kjólarnir eru þó orðnir
miklu fleiri og ég held að þeir nálgist
níutíu, ég er hætt að telja.“
Kjólarnir eru jafn misjafnir og
þeir eru margir. Erna segir þá alla
eiga sinn eigin karakter. ,,Ég stend
mig alveg að því að fara niður þar
sem ég er með helling af þeim og
heilsa upp á þær. Maðurinn minn
spurði mig hvers vegna ég byggi
ekki bara til skapalón fyrir dúkk-
urnar en ég sagði honum að það
gengi ekki. Þær ættu að vera
ólíkar.“
Maddömurnar dansa líka
Titill sýningarinnar er tilvísun í
lagið ,,Týnda kynslóðin“ eftir Bjart-
mar Guðlaugsson en titillinn tengist
kjólunum beinlínis. ,,Þær eru allar
að fara á ball. Meira að segja mad-
dömurnar sem eru svolítið góðar
með sig, þeim finnst líka voða gaman
að dansa. Þeim finnst það öllum,
dúkkunum mínum. Þess vegna á
helst að hengja þær upp því þá
dansa þær.“
Erna á sérstaka tengingu við
Kirsuberjatréð, verslunina sem sýn-
ingin verður sett upp í. Í húsnæðinu
var áður vefnaðarvöruverslunin
VBK en nú fer þar fram sala á ýmiss
konar hönnunarvöru. ,,Móðir mín
vann í VBK þegar hún var kornung.
Hún talar mikið um þessa verslun,
hvað það hafi verið gaman að vinna
þarna og hvað efnin hafi verið fal-
leg svo það er mjög gaman að fá
að sýna þarna.“
,,Þær eru allar að fara á ball“
Sýning á skúlp-
túrum Ernu Hlöð-
versdóttur
Fjölbreyttir Kjólarnir eru af ýmsum toga og eiga hver og einn sinn persónuleika. Best fer á því að hengja þá upp því
þá fara þeir að dansa. Erna hefur skapað um það bil níutíu kjóla en einhverjir þeirra hafa eignast ný heimili.
Listakonan Erna stendur sig stundum að því að heilsa upp á dúkkurnar.
Morgunblaðið/Hari