Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Ráðgert er að kanna mannvistarleif- ar undir jarðvegssverðinum á baklóð Stjórnarráðshússins við Lækjargötu í haustbyrjun vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda á staðnum. Agnes Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Minjastofnun, segir að fornleifa- rannsóknin verði boðin út. Unnið sé að gerð útboðsgagna. Ekki er útilokað að mannvistar- leifar frá fyrstu öldum Íslands- byggðar séu á staðnum. Vitað er að undir Stjórnarráðshúsinu sjálfu eru leifar byggingar frá 13. öld. Ný bygging í bígerð Til stendur að reisa viðbyggingu fyrir aftan Stjórnarráðshúsið sem er eitt elsta hús Reykjavíkur, byggt 1765. Þar eru nú skrifstofur for- sætisráðuneytisins sem hefur þörf fyrir rýmra húsnæði. Stendur nú yfir samkeppni meðal arkitekta um skipulag reitsins og hönnun og útlit nýju byggingarinnar. Greint verður frá niðurstöðu dómnefndar í lok nóvember. Í útboðsgögnum kemur fram að dómnefndin leggur meðal annars áherslu á tilfinningu fyrir ímynd, hlutverki og sögulegu mik- ilvægi staðarins, auk næmi og tillits- semi gagnvart Stjórnarráðshúsinu gamla. Suðurhluti fyrirhugaðs fram- kvæmdasvæðis er grasi vaxinn en nær Hverfisgötunni er bílaplan. Vitað er um nokkrar byggingar sem staðið hafa á lóð stjórnarráðsins í gegnum tíðina. Hefur Borgarsögu- safn Reykjavíkur gefið út skýrslu um svæðið, Eldri byggð á lóð Stjórnarráðsins, sem er greinargott yfirlit yfir hús og önnur mannvirki sem heimildir eru til um að staðið hafi á svæðinu fyrr á tíð. Töluvert rask hefur orðið á staðnum á síðustu áratugum. Lagnir hafa verið grafnar í jörðu, búið til bílaplan og yfirborð lóðarinnar lag- fært. Ekki er fullvíst hversu mikið seinni tíma framkvæmdir kunna að hafa raskað eldri mannvirkjum og mannvistarlögum á lóðinni. Þá er heldur ekki vitað hversu þykk mann- vistarlög eru á svæðinu, þ.e. hversu langt er niður á jökulruðning eða klöpp. Í nóvember í fyrra voru á veg- um Minjastofnunar tekin borkjarna- sýnishorn á 23 stöðum á lóðinni. Vís- bendingar komu fram um að þykkt mannvistarlaga væri minnst á svæð- inu miðju en meiri til norðurs og suðurs. Í tíu holum fundust merki um mannvist. Í öllum tilfellum var um hreyft lag að ræða, blöndu af mold og ummerkjum um mannvist, svo sem kolaagnir, múrsteinsbrot, þakskífubrot, járnbrot og beinflísar. Í nýrri skýrslu Minjastofnunar um Stjórnarráðsreitinn segir að fornleifarannsóknir sem gerðar hafa verið í Aðalstræti, Suðurgötu, á Al- þingisreit og nú síðast í Víkurgarði sýni að á þessu svæði sé að finna um- merki um búsetu manna allt aftur á 9. öld. Nýlegar rannsóknir í Lækjar- götu 10-12 sýni að þar var skömmu eftir landnámið reistur bær. Það kunni því að vera að fljótlega eftir að búseta hófst á einum bæ í Reykjavík hafi fleiri bæir risið í næsta nágrenni fyrsta bæjarins og að í Kvosinni hafi jafnvel myndast vísir að litlu þorpi. Minjar um langa búsetu kunni að leynast víðar á svæðinu en lengst af hafi verið talið. 23 fornleifar skráðar Í skýrslu Borgarsögusafns um eldri byggð á Stjórnarráðsreitnum segir að á núverandi lóð séu 23 skráðar fornleifar. Þegar húsið var byggt var lóð hússins mun stærri eða stór hluti af túni býlisins Arnarhóls. Þar sem bílastæði er nú við Stjórnarráðshúsið stóðu byggingar frá því um aldamótin 1800 til ársins 1976. Fyrir vestan og norðan húsið eru ekki þekktar byggingar en þar voru grjóthlaðnir göngustígar og grjótgarðar, líklega til að varna því að Lækurinn flæddi inn á lóðina. Þar voru auk þess stórir kál- og skraut- garðar í gegnum tíðina. Fornleifarannsókn á Stjórnarráðsreit  Fornar mannvistarleifar gætu verið á fyrirhuguðum byggingarreit fyrir aftan Stjórnarráðshúsið  Vitað að undir húsinu eru leifar byggingar frá 13. öld  Uppgröftur verður boðinn út og hefst í haust Fyrirsögn Reykjavík útlínur húsa byggð fyrir árið 1787 1801 1836 1876 1887 1902 1915 Grjótgarðar byggðir fyrir árið 1786 1801 1836 1876 1887 Skráningarsvæði Arnarhóll fornleifar Bankastræti Stjórnarráð Heimild: Eldri byggð á lóð Stjórnarráðsins (Skýrsla Borgarsö usafns nr. 186, 2017)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.