Morgunblaðið - 08.06.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Halldór Jónsson verkfræðingursegir VG skorti „hatur til-
finnanlega á Sjálfstæðisflokknum
að því að málgagnið
Fréttablaðið skrif-
ar. Mikil ólga innan
VG segir það og all-
ir skilja hvað við er
átt.
Ástæðan ermoldviðrið um
veiðigjöldin. Þar
eru þau áform ríkis-
stjórnar Katrínar
Jakobsdóttur um að
hækka veiðigjöld
um 1,3 milljarða
milli ára gerð tor-
tryggilegt gróða-
brall, þrátt fyrir að skýrsla De-
Loitte sýni umtalsverða versnun
afkomu greinarinnar.
Allt í einu eru arðgreiðslur tileigenda útgerðarinnar, sem
alls nema þó aðeins broti af
greiddum veiðigjöldum útgerðar-
innar yfir langt árabil, gerð að
ástæðu fyrir óróanum innan VG.
Spurning er þá hvort VG hafi
nokkurn tímann verið stjórntækur
stjórnmálaflokkur frekar en BF og
Viðreisn?
Hann geti aðeins þrifist í and-rúmslofti öfundar og haturs
eins og sannaðist nú á Flokki
Fólksins eftir ræðu formannsins og
skiltasýningum á Alþingi. Hvernig
á að virkja hatur og öfund til fram-
fara og reksturs daglegs lífs á Ís-
landi í dag væri góð spurning? Og
að hlusta á Þorstein Víglundsson
flytja þá endemisræðu sem hann
flutti á Eldhúsdagsdeginum á Al-
þingi vekur upp sömu spurningar
um þann flokk.
Það virðist vera að vitræn um-ræða eigi sér aðeins stað inn-
an gömlu og grónu flokkanna eins
og Guðni Ágútsson bendir á í
Morgunblaðinu í dag (gær).“
Katrín
Jakobsdóttir
Hatursvöntun bítur
STAKSTEINAR
Halldór
Jónsson
Ný stjórnunar- og verndaráætlun
um friðlandið á Hornströndum leit
dagsins ljós í gær en áætlunin er sú
fyrsta sem gerð hefur verið fyrir
friðlandið. Fulltrúar Umhverfis-
stofnunar, landeigenda og Ísa-
fjarðarbæjar hafa unnið að gerð
áætlunarinnar, en vinna hennar hef-
ur staðið yfir í rúmt ár.
Á vefsíðu Umhverfisstofnunar er
hægt að kynna sér áætlunina en þar
segir m.a.: „Er markmið friðlýs-
ingarinnar á Hornströndum að
vernda lífríki, jarðminjar og menn-
ingarminjar svæðisins. Sérstaða
svæðisins er mikil og með áætluninni
er stefnt að því að standa vörð um og
efla jákvæða ímynd svæðisins.“
Hægt er að skila athugasemdum og
ábendingum til 17. júlí nk. á heima-
síðu síðunnar með tölvupósti á net-
fangið ust@ust.is eða með því að
senda póst beint til stofnunarinnar.
ninag@mbl.is
Verndun Hornstranda
Fyrsta verndaráætlun svæðisins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hesteyri Telst hluti af friðlandinu.
„Við allavega tökum ekki sénsinn,“
segir Gísli Geir Garðarsson, for-
maður Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara, í samtali við
Morgunblaðið, spurður hvort þörf
hafi verið á tveimur fílefldum ör-
yggisvörðum við flutning bréfa og
frímerkja í Garðabænum í gær.
Tilefni flutningsins er sýningin
Nordia 2018 sem stendur nú yfir í
TM-höllinni í Garðabæ þar sem
verðmæt bréf og frímerki verða til
sýnis yfir helgina. „Uppreiknað
verð frá síðasta uppboði sem það
fór á var 200 milljónir,“ segir Gísli
um „Biblíubréfið“ svokallaða, en
það er örk frá 1876 með 23 skild-
ingafrímerkjum frá Íslandi. „Það
eru tvö bréf þarna sem voru seld á
20 milljónir stykkið,“ bætir Gísli
við, en heildarverðmæti innihalds
kassans á myndinni hér að ofan má
áætla að sé um hálfur milljarður
króna.
Lögreglufylgd og
brynvarinn bíll
Morgunblaðið/Valli
Bréfberar Ekki fær allur póstur landsins sömu meðferð og Biblíubréfið.
Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn
föstudaginn 22. júní nk. kl. 12.00
að Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs.
2. Uppgjörssamningur Valsmanna hf., Knattspyrnufélagsins Vals
og Hlíðarenda ses., varðandi skuldauppgjör á milli félaganna,
lagður fram til umfjöllunar og staðfestingar.
3. Ársreikningur félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu lagður
fram til staðfestingar.
4. Ákvörðun um hvernig fara eigi með tap eða hagnað ársins.
5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
6. Kjör stjórnar.
7. Kjör endurskoðanda.
8. Önnur mál
Dagskrá, tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar, skýrsla
endurskoðanda vegna ársreiknings, samningur vegna 2.
dagskrárliðar, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að
Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík til sýnis fyrir hluthafa fram
að fundinum. Hluthafar sem hyggjast skoða gögnin gefi sig fram
við framkvæmdastjóra félagsins, Brynjar Harðarson.
Reykjavík, 8. júní 2018
Stjórn Valsmanna hf.
AÐALFUNDUR VALSMANNA hf.
Veður víða um heim 7.6., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 14 heiðskírt
Nuuk 6 rigning
Þórshöfn 11 heiðskírt
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 24 heiðskírt
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 20 léttskýjað
Brussel 22 rigning
Dublin 21 léttskýjað
Glasgow 20 léttskýjað
London 19 alskýjað
París 24 léttskýjað
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 28 heiðskírt
Berlín 27 heiðskírt
Vín 24 léttskýjað
Moskva 14 heiðskírt
Algarve 19 heiðskírt
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 22 skýjað
Montreal 16 skýjað
New York 17 alskýjað
Chicago 24 heiðskírt
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:07 23:48
ÍSAFJÖRÐUR 2:04 25:01
SIGLUFJÖRÐUR 1:41 24:49
DJÚPIVOGUR 2:24 23:30
Glitni Holdco er gert að greiða
Stundinni og Reykjavík Media 600
þúsund krónur í kærumálskostnað
og er máli þeirra vísað frá. Þetta
kemur fram í úrskurði Hæsta-
réttar frá því á þriðjudag.
Hafði Glitnir Holdco haldið
uppi kröfu þess efnis að Stundin
og Reykjavík Media afhentu gögn
úr gamla Glitni sem þau höfðu
undir höndum um viðskiptavini
Glitnis.
Sýslumaður féllst á kröfu þrota-
bús Glitnis um lögbann á frétta-
flutning Stundarinnar og Reykja-
vik Media í október síðastliðnum
en lögbannið var fellt úr gildi í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Málið
var einnig dómtekið í Landsrétti,
þar sem aftur var komist að
þeirri niðurstöðu að fjölmiðlunum
bæri ekki að afhenda gögnin.
Hæstiréttur taldi ekki heimilt
að kæra niðurstöðu Landsréttar
til Hæstaréttar meðal annars
vegna þess að í úrskurði Lands-
réttar voru staðfest ákvæði í dómi
héraðsdóms um frávísun.
Stundin og Reykjavik Media unnu Glitni