Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Bryddað verður upp á ýmsu áhuga-
verðu á hátíðinni Kótelettan BBQ &
Music Festival sem er á Selfossi um
helgina og hefst í
kvöld. Fjöldi tón-
listarmanna kem-
ur fram á þessum
viðburði sem öðr-
um þræði er kynn-
ing á framleiðslu
íslenskra bænda
og matvælafyrir-
tækja. Af því
ræðst nafnið
Kótelettan, sem
aðstandendur
kynna sem stærstu grillveislu á Ís-
landi.
Tónlistarmenn í Hvíta húsinu
„Við byrjum á föstudagskvöld með
tónlistarflutningi. Þannig rúllar dag-
skráin áfram og hápunkturinn er grill-
og fjölskylduhátíð í bæjargarðinum
við Sigtún á laugardag milli klukkan
13 og 17,“ segir Einar Björnsson sem
er upphafsmaður og sá sem haft hef-
ur veg og vanda af undirbúningi há-
tíðarinnar, sem nú er haldin í 9. sinn.
Kótelettan er tónlistarveisla þar
sem góðir tónlistamenn stíga á svið.
Á föstudags- og laugardagskvöld
koma fram, Stefán Hilmarsson, Birg-
itta Haukdal, Páll Óskar, Todmobile,
Jóapé og Króli, Í svörtum fötum, Hr.
Hnetusmjör, Friðrik Dór, Albatross,
Stuðlabandið, Daða Frey, Rökkvu og
Love Guru. Þessi hluti hátíðarinnar fer
fram á bæði inni og útisviði í og við
Hvíta húsið við Hrísmýri, skemmti-
stað sem er í bílasöluhverfinu þegar
komið er inn í Selfossbæ, vestan
Ölfusár.
Frábær fjölskyldudagskrá
Stór liður í hátíðinni er svo Stóra
grillsýningin sem er fjölskyldu-
skemmtun á sviði og svo ein stærsta
grillsýning landsins. Sá atburður er í
Sigtúnsgarði og þar gefst fólki kostur
á að kynna sér öll bestu grillin sem
bjóðast í dag og smakka allt það
besta sem íslenskir kjötframleið-
endur bjóða.
Einnig eru markaðir, tívolí og fleira
á svæðinu ásamt frábærri dagskrá
fyrir alla fjölskylduna. Þar koma fram;
Jóipé og Króli, Brúðubíllinn, og Villi
vísindamaður svo eitthvað sé nefnt.
Fjórða árið í röð verða grillaðar og
seldar kótelettur fyrir Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna. Aðgangur
að dagskemmtuninni og grillsýning-
unni er ókeypis.
Selfoss Á Kótelettunni má smakka það besta sem kjötframleiðendur bjóða.
Einar
Björnsson
Kótelettan BBQ & Music Festival á Selfossi
Stærsta grillveisla á Íslandi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þ
essa dagana er verið að
setja inn leiðsögn á
fjórum gönguleiðum á
Melrakkasléttu á síma-
appið Wapp. Þar nú að
finna lýsingu á alls 253 leiðum víða
um land. Fyrstu pistlarnir fóru í
loftið haustið 2015 og var einn
þeirra um Skáldaleiðina svonefndu
sem Halldór Laxnes gekk oft, það
er frá Gljúfrasteini í Mosfellsdal,
upp með Köldukvísl að Helgufossi.
Síðan þá hefur mikið bæst við og
ætla má að efnið á þessum vef, sem
er bæði á íslensku og ensku, dygði
til að fylla tólf 200 blaðsíðna bækur
á hvoru tungumáli.
Staðir á stöðugri hreyfingu
„Wappinu má helst líkja við
stafræna GPS-gönguleiðabók.
Hverri gönguleið er lýst með korti
og meðfylgjandi er fróðleikur um
menningu, sögu og náttúru,“ segir
Einar Skúlason sem er höfundur
efnisins. Hann hefur lagt mikið í
heimildavinnuna og leitað fanga til
dæmis í héraðslýsingum og þjóð-
legum fróðleik.
Wappið er ókeypis en aðgang-
ur að leiðalýsingum kostar oft 100-
200 kónur. Aðgangur að vinsælustu
gönguleiðunum er þó ókeypis; svo
sem leiðir í boði Garðabæjar, Wow
air býður vinsæla leið í miðbæ
Reykjavíkur, Ferðafélag Íslands
kostar tvær leiðir í Esjunni og
Laugaveginn og Ungmennafélag
Íslands nokkrar leiðir og það í öll-
um landsfjórðungum. Þá hafa sveit-
arfélögin verið að koma inn í þetta
brautryðjendastarf. Ekkert þessu
líkt hefur verið gert áður og mark-
miðin snúast um að fjölga leiðum
smátt og smátt í sátt við alla sem
að málum koma. Leiðirnar á Mel-
rakkasléttu sem nú voru að bætast
við eru mjög áhugaverðar og liggja
nærri heimskautsbaugnum sem er
á stöðugri hreyfingu.
Landið allt er undir
Notkunin á Wappinu er með
þeim hætti að leiðarlýsingum með
korti er hlaðið fyrirfram á snjall-
síma sem fólk getur síðan nálgast
þegar því hentar. Með korti og
staðsetningarbúnaði í síma sér not-
andi alltaf hvar hann er staddur á
leiðinni. Auk þess að ferðalangur er
með leiðina á GPS hefur verið sam-
ið við 112/Neyðarlínuna um að not-
endur geti sent tilkynningu með
SMS sem hvar þeir eru staddir við
upphaf göngu. Ætti slíkt að auð-
velda allar bjargir ef í harðbakkann
slær.
Wappið er sprottið úr starfi
gönguklúbbsins Vesens og ver-
gangs, sem var stofnaður árið 2011
og um tólf þúsund manns fylgja.
Undir merkjum klúbbsins er efnt
til um 200 gönguferða á ári; lengri
sem skemmri. „Vergangsfólk hefur
farið víða, þó mest hér um suð-
vesturhorn landsins og nágrenni
höfuðborgarinnar. Eðlilega eru því
margar leiðalýsingarnar af þeim
slóðum, þó að landið allt sé undir,“
segir Einar Skúlason, sem sjálfur
hefur farið flestar Wapp-leiðirnar
og er þeim kunnugur.
Margir leiðir á Héraði
Stysta leiðin í Wappinu er 64
m og er leiðin frá bílastæði að
Kattarauga í Vatnsdal og til baka
en sú lengsta er rúmir 38,2 km og
það er gönguleið á milli átta heiðar-
býla á Jökuldalsheiðinni; Vetur-
húsa, Víðirhóla og Hnjúkasels með-
al annarra. Þá eru komnar inn
lýsingar á alls 25 gönguleiðum á
Fljótsdalshéraði. Bandaríkjamenn
virðast vera duglegastir að kaupa
leiðarlýsingar – en alls hafa 22 þús-
und notendur hlaðið Wappinu á
símana.
Wappað víða um landið
Stafræn gönguleiðabók í
símanum. Wappið virkar
vel og þar má nú nálgast
leiðsögn um meira en
250 gönguleiðir bæði upp
til fjalla og í miðborg
Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Göngumaður Einar Skúlason á Þingvöllum með snjallsímann. Á hinu þægi-
lega forriti má finna upplýsingar um ýmsar leiðir á Þingvallasvæðinu.
Ljósmynd/ Úr einkasafni
Útivist Ferðafélagar úr Veseni og vergangi í leiðangri á Henglinum á
Hellisheiði um sl. helgi. Leiðin var greið og upplýsingarnar nærtækar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Melrakkaslétta Heimskautsgerðið
á Raufarhöfn vekur athygli.
Á morgun, laugardaginn 9. júní, milli
kl. 13 og 15 verður fjölskyldustundin
Gerður ferðalangur í Gerðarsafni í
Kópavogi. Þar verður skoðað hvernig
búseta og ferða-
lög Gerðar Helga-
dóttur (1928-
1975) höfðu áhrif
á þróun hennar
sem myndlist-
armanns.
Fjölskyldu-
stundin er haldin
í tilefni nýopnaðrar yfirlitssýningar á
verkum Gerðar. Þar er sjónum beint
að fjölbreyttum listferli og ævi Gerð-
ar, allt frá námsárum hennar til síð-
ustu æviára, en hún lést fyrir aldur
fram aðeins 47 ára gömul. Gerður tók
fyrst íslenskra kvenna forystu í högg-
myndalist og var brautryðjandi í þrí-
víðri abstraktlist og glerlist hér-
lendis.
Stund þessi er óháð tungumáli.
Leiðbeinendur tala íslensku, arab-
ísku, frönsku og ensku og er mark-
miðið að byggja upp samskipti þvert
á tungumál og menningarheima.
Fjölskyldustund
Gerður á ferð
Gerður Helgadóttir
Alls 226 lið frá 36 knattspyrnu-
félögum víða um land taka þátt í
Norðurálsmótinu í knattspyrnu sem
haldið verður á Akranesi um helgina.
Alls taka um 1.500 strákar þátt og
allir koma úr 7. flokki í fótboltanum.
Búast má við að um alls 6.000
manns komi á Skagann um helgina
vegna mótsins sem er einn stærsti
íþróttaviðburður sem haldinn er á Ís-
landi.
Mótið verður sett kl. 11 í dag og
spila liðin fyrst 12 mínútna leiki. Úr-
slit dagsins í dag ráða því svo hvaða
lið lenda saman í riðli á morgun og
sunnudag. Á laugardagskvöld verður
kvöldskemmtun í Akraneshöllinni og
foreldrakaffi í íþróttamiðstöðinni á
Akranesi. Mótinu lýkur svo á sunnu-
dagsmorgun en síðustu leikir verða
spilaðir í hádeginu.
Norðurálsmótið í knattspyrnu á Akranesi um helgina
1.500 strákar keppa í fótbolta
Fótbolti Þrumuskot í 7. flokki.