Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 ✝ Óðinn Skúlifæddist 28. maí 2002 í Neskaupstað en ólst upp á Egils- stöðum. Hann lést 24. maí 2018. Óðinn ólst upp með systkinum sín- um og foreldrum á Egilsstöðum, hans heimabæ. For- eldrar hans eru; Árni Jóhann Óðins- son, f. 3. apríl 1961, og Erla Jónsdóttir, f. 25. apríl 1963. Systkini Óðins Skúla eru Jónína Brá, f. 13. maí 1986, maki Kári Lefever, f. 28. nóvember 1986, Brynjar, f. 30. mars 1990, maki Hekla Hrönn Hjarðar Þorvalds- dóttir, f. 1. ágúst 1991, og Sigur- björg Lovísa, f. 21. október 1997. Óðinn Skúli gekk í Egilsstaðskóla, þar sem honum leið vel og átti þar marga góða vini. Fótbolti og tónlist voru hans helstu áhugamál auk þess sem hann naut þess að vera úti í náttúrunni. Óðinn Skúli var mikill gleði- gjafi og einstaklega hjartahlýr strákur. Óðinn Skúli verður jarðsung- inn frá Egilsstaðakirkju í dag, 8. júní 2018, klukkan 14. Það er þyngra en tárum taki að setjast og skrifa minning- arorð um þig, elsku hjartans fallegi Óðinn Skúli okkar. Spurningarnar eru margar en svörin fást engin, af hverju varst þú, í blóma lífsins með framtíðina fyrir þér, tekinn frá okkur svo snemma og óvænt. Kynnin hófust á leikskólan- um Tjarnarskógi þegar við fluttum austur í Egilsstaði árið 2006 og þið urðuð fljótt vinir, þú og Gunnþór Elís. Þið bröll- uðuð margt saman í gegnum árin, voruð í sama bekk í Egils- staðaskóla og æfðuð saman fót- bolta og fimleika með Hetti. Þegar þið bjugguð í Norður- túninu var svo stutt á milli og þið genguð saman í skólann. Og líka eftir að þið fluttuð í Bjarkarselið, þá lékuð þið mik- ið saman þegar ekki sköruðust tómstundir hjá ykkur. Það sló sjaldnast í brýnu á milli ykkar og það var unun að fylgjast með ykkur leika, svo samstillt- ir, rólegir og yndislegir í alla staði. Þið fenguð út úr því að hnoðast, kúra og þegja saman, sparka bolta, fara í vatnsleikja- kastríð, hoppa á trampólíninu, sulla í heita pottinum, spila körfubolta, fara í feluleiki. Þið sýnduð áhugamálum hvors ann- ars virðingu og ykkur varð ekki oft sundurorða. Þú varst hvers manns hugljúfi, elskaður og dáður af okkar fjölskyldu og varst einstaklega kurteis og hógvær, með hlýtt hjarta, stutt í kímnigáfuna, brosið var alltaf til staðar og fallegu augun þín bræddu alla. Það urðu breytingar í lífi ykkar sumarið 2017 þegar við fluttum suður og var ansi erfitt að kveðja þig þá, elsku vinur. Þið vinirnir kvödduð hvor ann- an með ykkar fallega faðmlagi og þú stappaðir stálinu í Gunn- þór Elís, hvetjandi eins og þér einum var lagið. Þú varst smekkmaður mikill í taui og voru sokkar í sérstöku uppáhaldi og ófá pörin sem þið vinirnir hafið gefið hvor öðrum og vinsælasta tegundin happy socks. Það var í mars að við vorum stödd í Liverpool og vorum að versla og þá hafði Gunnþór Elís orð á því hvort væri ekki snið- ugt að kaupa afmælisgjöf handa þér og fyrir valinu varð sokkaaskjan sem þú, elsku eng- ilinn okkar, fékkst afhenta í síðustu heimsókn þinni í Kópa- vogstúnið til okkar í apríl. Síðasta samverustundin var dýrmæt en það var hvítasunnu- helgin sem við mæðgin komum austur og þið vinirnir náðuð að eyða helginni saman og ræða framtíðarplönin. Þið kvöddust glaðir og kátir með bros á vör og þéttu og fal- legu faðmlagi sem mun aldrei gleymast. Þær minningar sem við eig- um af þér höfum við lagt inn í minningabankann okkar frá öll- um samverustundunum með þér og fjölskyldu þinni, þær munum við ávallt geyma í hjörtum okkar og þær tekur enginn frá okkur. Við þökkum fyrir að hafa verið svo lánsöm og rík að kynnast þér og þinni kærleiks- ríku fjölskyldu. Biðjum í bænum okkar Guð og góðar vættir að vernda ykk- ur, elsku vinir Erla, Árni, Sig- urbjörg Lovísa Brynjar og Hekla, Jónína og fjölskylda og aðrir ástvinir á þessum erfiðu tímum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Kærleikskveðja Hjördís, Georg, Ingvi Þór, Páll Halldór og Gunnþór Elís. Elsku Óðinn Skúli. Mikið er erfitt að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Þú varst einstakur. Þú varst alltaf svo hress og glaður. Þú varst góður vinur allra og komst allt- af svo vel fram við alla sem ná- lægt þér voru. Þú virtist alltaf í góðu skapi og þegar maður hugsar til baka á maður enga einustu vondu minningu um þig. Bara gleði og hlátur. Þú varst einstaklega hugmynda- ríkur og alltaf til í að fíflast og hafa gaman. Sem dæmi má taka fjölmörg skemmtileg söngatriði sem þú tókst við hin ýmsu tækifæri. Ofarlega í huga er lagið sem þú samdir á leið- inni heim eftir Samfés og flutt- ir af innlifun. Margir muna þig úr fótboltanum sem einstaklega góðan liðsfélaga og einnig þjálf- ara. Þú varst góður karakter innan vallar sem utan og hafðir allt sem góður fyrirliði þurfti að bera, varst hvetjandi, bar- áttugjarn og talaðir mikið til félaga þinna. Þú ert frábær fyrirmynd vegna alls sem þú gafst af þér á meðan við feng- um að hafa þig. Við minnumst þín öll sem góðs og trausts vin- ar og frábærrar manneskju í alla staði. Þín verður sárt saknað af öll- um sem þú snertir á meðan þú lifðir og þú lifir áfram í hjört- um okkar um ókomna tíð. Hver minning dýrmæt perla, að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki er gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við sendum fjölskyldu Óðins Skúla og öllum ástvinum hans okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi minningin um yndislegan dreng lifa. Fyrir hönd vina þinna úr 9. bekk í Egilsstaðaskóla, Birna og Sandra. Óðinn Skúli Árnason ✝ Sigmunda(Sísí) Hákonar- dóttir fæddist í Reykjavík 7. desember 1934. Hún lést 27. apríl 2018. Hún var dóttir hjónanna Ingi- bjargar Bjarna- dóttur, f. 16.9. 1901 á Skálará í Þing- eyrarhreppi, d. 17.6. 1969, og Hákonar Jóns Jónssonar, f. 25.3. 1892, frá Felli í Mýrarhreppi, d. 14.12. 1961. Bróðir Sigmundu var Gunnar Bjarni, f. 28.9. 1932, d. 12.5. 2012. Sigmunda giftist árið 1961 Valtý Guðmundssyni bílstjóra, f. 25.6. 1928, d. 29.11. 2015. For- eldrar hans voru Guðrún Gísla- dóttir, f. 13.12. 1889, d. 6.9. 1935, frá Árbæjarhelli í Holtum og Guðmundur Ólafsson, f. 21.12. 1888, d. 2.5. 1989, frá f. 1984, maki Vernharður, f. 1971, dætur þeirra Hekla, f. 2012, og Lilja, f. 2015. b) Ingvi Þór, f. 1987, og c) Sif, f. 1995. Fyrir átti Valtýr dótturina Önnu Maríu, f. 2.9. 1960, móðir: Oddný Guðrún Sigurðardóttir, f. 1927, d. 1997, maki Jón Bjarni, f. 1957, þeirra börn: a) Erla, f. 1993, synir hennar og Jóhannesar Jóhannessonar eru Jón Frank, f. 2007, og Óli Steinn, f. 2012. b) Hafdís, f. 1992, sambýlismaður Arnar Páll, f. 1991. Sigmunda ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Eftir almenna skólagöngu hóf hún störf í Raf- lampagerðinni, þar sem hún saumaði lampaskerma og síðar starfaði hún hjá Feldinum við að sauma skó og fleira úr leðri eða þar til hún gekk í hjóna- band. Þau Valtýr hófu búskap á Nýlendugötunni, en lengst af bjuggu þau í Strýtuseli í Breið- holti. Þegar börnin voru komin á legg fór hún að vinna við sím- svörun og afgreiðslu á Sendi- bílastöðinni Þresti. Útför Sigmundu verður gerð frá Seljakirkju í dag, 8. júní 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Króki í Ásahreppi. Dóttir Sigmundu og uppeldisdóttir Valtýs er: 1) Ingi- björg Jónsdóttir, f. 1956, faðir: Jón I. Júlíusson, f. 1925, d. 2005. Dætur Ingibjargar og Snorra Þórðar- sonar eru: a) Þóra, f. 1981, sambýlis- maður, Bjarne Henning, f. 1975 sonur þeirra Brage, f. 2013. b) Sara, f. 1986, maki Garðar Árni, f. 1983, dótt- ir þeirra Alma Dís, f. 2017. Börn Sigmundu og Valtýs eru: 2) Hákon, f. 1963, d. 2005, ekkja hans er Ágústa Rósa, f. 1962. Börn þeirra; a) Valtýr Már, f. 1994, sonur Ágústu Rósu, og uppeldissonur Há- konar, b) Ingvar, f. 1985, maki Guðrún Agnes, f. 1987. 3) Guð- rún, f. 1964, maki, Þórir Karl, f. 1958. Börn þeirra eru a) Fríða, Elsku mamma, ég kveð þig með söknuði og tárum en þakka fyrir allt sem við áttum saman. Minningarnar okkar mun ég geyma í hjarta mínu . þú varst alltaf að hjálpa mér með allt sem ég tók mér fyrir hendur og þegar ég átti börnin mín fengu þau stóran hluta af hjarta þínu. Nú ertu búin að fá hvíldina og hitta strákanna þína. Góða nótt, mamma mín. Guðrún og Þórir Karl. Það er með miklum söknuði og trega sem ég kveð hana Sísí mína, tengdamóður og vinkonu. Þau hjónin Valtýr og Sísí tóku mér opnum örmum þegar ég kynntist Hákoni syni þeirra fyrir 30 árum og ég leit á þau í raun meira sem mína aðra for- eldra frekar en tengdaforeldra, svo góð voru þau mér. Hún Sísí var kannski ekki allra en við sem stóðum henni næst fengum svo sannarlega að njóta umhyggju hennar og hjálpsemi í gegnum árin, alltaf voru þau hjónin boðin og búin að gera allt sem þau gátu fyrir okkur. Barnabörnin voru svo heppin að eiga ömmu og afa sem þau fengu að vera í mikl- um samvistum við og mörg þeirra eiga góðar minningar úr sveitinni þar sem þau fengu að vera allt upp í nokkrar vikur á sumrin, sem bjargaði auðvitað okkur foreldrunum að brúa bil- ið yfir sumarið. Vinir sona minna fengu líka oft að koma með okkur austur og kynnast sveitasælunni. Við Sísí höfðum svipaðan húmor og gátum því oftar en ekki hlegið saman og það er ómetanlegt. Fyrir 13 árum urð- um við fyrir miklu áfalli þegar Hákon okkar varð bráðkvadd- ur, aðeins rúmlega fertugur. Að það skyldi gerast í sveit- inni gerði allt mun átakanlegra því þar höfðum við öll átt okkar bestu stundir saman árin á undan, sveitin varð aldrei söm í okkar augum. Það var ekki síst fyrir þeirra ást og umhyggju að við náðum að halda sjó á þeim erfiðu tímum sem fóru í hönd. Sísí var búin að eiga við heilsubrest að stríða í mörg ár, en aldrei kvartaði hún og oftar en ekki gerði maður sér ekki grein fyrir hversu slæmt ástandið var, sérstaklega undir það síðasta. Hjartans eldur hefur brunnið, horfið það sem áður var, lífsins starf svo lengi unnið með ljósi margan ávöxt bar. Þú sem barst þinn harm í hljóði hræddist ekki dauðans mátt. Er falla tár, með fögru ljóði ég fæ að kveðja þig í sátt. (Kristján Hreinsson) Hjartans þakkir fyrir allt og allt. Ágústa Rósa Finnlaugsdóttir. Elsku amma mín, amma Sísí er farin frá okkur. Tómarúmið er stórt og það verður skrýtið að koma ekki við í Breiðholtinu hjá þér aftur. Það er margs að minnast, sumrin í Strýtuseli sem voru alltaf sólrík og síðar sumrin við Árbæjarhelli þar sem alltaf var rok og ekki síst Prince Polo á stöðinni. Þú kenndir mér svo margt, að leggja kapal og spila, þvo og strauja gardínur (er þó örugg- lega ástæðan fyrir því að það er ekki mikið um slíkt á mínu heimili). Þú kenndir mér að prjóna en það hentaði mér vel að þú varst alltaf að prjóna þannig að það var einfaldara að fá þig til að prjóna fyrir mig. Allar peysurnar og vettling- arnir minna á þig. En það mik- ilvægasta sem þú kenndir var þegar Valli afi dó, hann sem var stóra ástin þín. Það er hægt að vera ástfanginn til æviloka. Ég vona að þið séuð saman á ný. Ég geymi þig og minning- arnar nærri hjarta mínu og kveð þig með lagi sem minnir mig á þig. Lækur tifar létt um máða steina. Lítil fjóla grær við skriðufót. Bláskel liggur brotin milli hleina. Í bænum hvílir íturvaxin snót. Og ef ég væri orðin lítil fluga Ég inn um gluggann þreytti flugið mitt. Og þó ég ei til annars mætti duga Ég eflaust gæti kitlað nefið þitt. (Sigurður Elíasson) Þóra og fjölskylda í Noregi. Sigmunda Hákonardóttir ✝ ArnfinnurScheving Arn- finnsson fæddist á Vestra-Miðfelli í Hvalfjarðar- strandarhreppi 12. maí 1929. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Höfða 27. maí 2018. Foreldrar hans voru Arnfinnur Scheving Björns- son skipasmiður, f. 1893, d. 1970, og Ragnheiður Jónas- dóttir húsmóðir, f. 1891, d. 1984. Systkini Arnfinns eru: Björn Scheving, f. 1918, d. 1990, Guðrún Lára, f. 1919, d. 2013, Guðrún Aðalheiður, f. 1921, d. 2008, Ásdís, f. 1924, d. 2004, Jónas Scheving, f. 1925, Grétar Scheving, f. 1927, 1986, sambýlismaður hennar er Gunnar Harðarson. Þau eiga tvö börn: Sigríði Júlíönu og Hörð Má, f. 2017. 2) Helena Másdóttir, f. 1991, sambýlis- maður hennar er Ársæll Ottó Björnsson. Þau eiga tvö börn: Lilju Fanneyju, f. 2010, og Arn- finn Sölva, f. 2014. Fyrir átti Arnfinnur tvær dætur; Sigrúnu Magnúsdóttir Holt, f. 1947, og Þórdísi Ás- gerði Arnfinnsdóttur, f. 1955. Arnfinnur vann 20 sumur hjá Hval hf., lærði rafvirkjun við Iðnskólann á Akranesi og lauk sveinsprófi 1959. Arnfinn- ur vann hjá Ármanni Ármanns- syni rafvirkjameistara og fékk hann löggildingu sem raf- virkjameistari 1963. Hann starfaði sjálfstætt í nokkur ár en síðustu 30 ár starfsferilsins starfaði Arnfinnur hjá Rafveitu Akraness, lengst af sem verk- stjóri. Útför Arnfinns fer fram frá Akraneskirkju í dag, 8. júní 2018, og hefst athöfnin klukk- an 13. d.1927, Margrét, f. 1930, d. 2015, Ragnar Scheving, f. 1932, d. 1992. 30. desember 1955 kvæntist Arn- finnur Sigríði Júl- íusdóttur, f. 17. ágúst 1930, d. 3. maí 2016. Arnfinn- ur og Sigríður bjuggu allan sinn búskap á Vestur- götu 157, Akranesi, þar til árið 2014 er þau fluttu á Eyrarflöt 4. Eftir andlát Sigríðar flutti Arnfinnur á Dvalarheimilið Höfða. Hjónin eignuðust eitt barn, Margréti B. Arnfinns- dóttur, f. 1959. Margrét giftist Má V. Vilbergssyni, f. 1956, þau skildu. Dætur þeirra eru: 1) Maren Lind Másdóttir, f. Elsku afi, það er ótrúlega erfitt að þurfa að kveðja í hinsta sinn. Við erum þó svo heppnar að geta hugsað til baka og rifjað upp allar góðu minningarnar sem við áttum saman, endur- minningar sem væru efni í heila bók. Heimili ykkar ömmu var okkur alltaf opið. Þangað fannst okkur svo gott að koma og eiga gæðastundir með ykk- ur, hvort sem við komum sam- an eða hver í sínu lagi. Að koma og spjalla, spila, gista eða einfaldlega bara fá að vera og dunda sér í værðinni sem fylgdi ykkur er ómetanlegt. Gleðin sem skein úr andlit- inu þínu í hvert sinn sem við hittumst er dýrmæt minning og húmorinn eitthvað sem fylgdi þér allt til lokadags. Það var ekki einungis heimili ykkar sem stóð okkur opið. Við fengum að taka virkan þátt í ykkar lífi, hvort sem það var að koma með þér í vinnuna á Raf- veitunni, fara með ykkur í ferðalög um landið, leysa sunnudagskrossgátuna, stúss- ast í skúrnum eða bara að kíkja örlítið á rúntinn. Þú þurftir jú alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og fórst í ófáar bílferð- irnar, göngu- og hjólatúrana og ýmist fengum við að kíkja með eða þú komst í heimsókn til okkar. Eftir að við fórum sjálfar að stofna fjölskyldur jókst bara ríkidæmi þitt. Þú tókst Ársæli og Gunnari opnum örmum með hnyttni að vopni. Svo komu langafabörnin og þau áttu hjarta þitt. Í augum Lilju Fanneyjar og Arnfinns Sölva varstu bara afi, afi-strafi, og nálægðin við þau var svo miklu meiri en langafatitillinn segir til um. Þeim mætti sama hlýja og væntumþykja sem við erum svo heppnar að hafa alist upp við öll þessi ár. Því miður fengu Sigríður Júlíana og Hörður Már aðeins stuttan tíma með langafa sín- um, en þau munu svo sann- arlega fá að alast upp við minn- ingar um afa sinn og hversu yndislegur þú varst. Við erum svo þakklátar fyrir allan þann tíma sem við höfum átt saman og við vonum að nú séu þið amma sameinuð á ný. Þið eigið að minnsta kosti alltaf stað saman í hjarta okkar um ókomna tíð. Maren Lind og Helena. Arnfinnur Schev- ing Arnfinnsson ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.