Morgunblaðið - 08.06.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.06.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 ✝ Sturla Þórð-arson fædd- ist í Sauðanesi á Ásum í Torfalækj- arhreppi 14. nóv- ember 1946. Hann lést 31. maí 2018. Foreldrar hans voru Sveinbjörg Jóhannesdóttir frá Gaukstöðum í Garði og Þórður Pálsson kennari og bóndi í Sauðanesi. Systkini Sturlu eru Jóhannes Þórð- arson múrari, kvæntur Herdísi Einarsdóttur, Sesselja Þórð- ardóttir aðstoðarskólastjóri, gift Ívari Þorsteinssyni, Páll Þórðarson bóndi, kvæntur Ingibjörgu Guðmundsdóttur, og Helga Þórðardóttir, bóndi og bókari, í sambúð með Mar- geiri Björnssyni. Sturla var kvæntur Hildi Sigurgeirsdóttur, börn þeirra eru Snorri Sturluson tölv- unarfræðingur sem er kvænt- ur Guðrúnu Birnu Finnsdóttur og þau eiga Sif Snorradóttur, Baldur Snorrason og Braga Snorrason og Auður Sturlu- dóttir skrifstofumaður, sam- tannlæknir í Mannheim til 1974, flutti þá heim og gerð- ist tannlæknir á Blönduósi. Árið 2000 hóf Sturla störf á Tannlæknastofu Jóns Björns Sigtryggssonar í Keflavík og fór á eftirlaun haustið 2017. Sturla sat í hreppsnefnd Blönduóss 1978-86 og í bæj- arstjórn Blönduóss 1994- 2000. Sturla var í stjórnum ýmissa félaga s.s. Leikfélagi Blönduóss, Tannlæknafélags Norðurlands, Golfklúbbs Sandgerðis og var formaður Stangveiðifélags A-Hún. Sturla lagði rækt við menntun og íslenskukunn- áttu barna sinna og stjúp- barna enda snillingur í orða- leikjum og annarri orðsins list. Hann tók virkan þátt í áhugamálum og námi þeirra, s.s. tölvumálum, myndlist, ræktun og tækjadellu. Sturla tók fjölskylduna með í lax- og silungsveiði, bátsferðir og stóð fyrir fjölskyldusam- komum. Sturla hafði yndi af kveðskap og ljóðum, átti samfélag með hagyrðingum og var einnig góður ljós- myndari. Útför Sturlu Þórðarsonar verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag, 8. júní 2018, kl. 11. býlismaður Benja- min Bohn, og börn þeirra eru Sunna Benjamíns- dóttir Bohn, Ósk- ar Benjamínsson Bohn og dóttir Bens og stjúpdótt- ir Auðar er Elísa Petra Benjamíns- dóttir Bohn. Seinni kona Sturlu er Unnur G. Kristjánsdóttir grunnskóla- kennari. Eldri dóttir Unnar og er María Birna Arnardóttir sem á dæturnar Ísafold F. Davíðsdóttur og Laufeyju Davíðsdóttur. María býr með Arnari Heimi Jónssyni. Sú yngri, Guðmunda Sirrý Arn- ardóttir, á soninn Christian Örn Funder Nielsen og sam- býlismaður hennar er Kim Back. Eftir barna- og unglinga- nám á Blönduósi lauk Sturla landsprófi og stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri vorið 1965. Sturla nam tannlækningar við háskólann í Heidelberg í Þýskalandi 1967- 1972. Sturla var aðstoðar- Elsku Sturla er farinn, það er nokkuð langt um liðið síðan leiðir okkar lágu saman en sá tími sem ég dvaldi á Blönduósi hefur reynst mér afar dýrmæt- ur og minnisstæður fyrir margra hluta sakir. Það er þó samsafn smárra hluta sem litar minningar mínar af Sturlu fyrir öllum þessum árum síðan. Ilm- ur af búlgarskri kjötsúpu svífur yfir vötnunum, hlátrasköllin yf- ir Trivial Pursuit spilakvöldun- um óma í eyrum og veiðin, lax, lax og aftur lax. Fyrrverandi, verðandi tengdapabbi hljómar kannski furðulega í eyrum margra en þannig er lífið, tekur stökk- breytingum þegar minnst varir og leiðir fólk á mismunandi brautir. Ég var svo lánsöm að tengjast aftur þessum gamla tíma eftir lífsins krókaleiðum og fyrir það verð ég ævarandi þakklát. Elsku Snorri, Guðrún, Auð- ur, Unnur, Hildur og fjölskyld- ur, minningin lifir. Árla morguns Árniður Droparnir dansa á línunni Línan syngur, laxinn stekkur Eltingaleikurinn Yfirvegun og djörfung Rimmunni lýkur með sigri veiðimannsins Stundum Við höldum heim í kvöldsólinni Sturla er farinn, alltof snemma en eftir sitja góðir vin- ir, minning um góðan mann og þakklæti fyrir allar góðu stund- irnar. Birna G. Magnadóttir. Það voru ekki alltaf mörg orð sem hann Sturla mágur minn hafði um hlutina eða bara al- mennt, fannst gott að þegja. Þess heldur voru orðin athygl- isverðari þegar þau voru sögð. Minnist hans með söknuði og þakklæti í þau þrjátíu ár sem við þekktumst. Ef ég man rétt þá voru margar ferðirnar sem voru farnar norður á Blönduós í heimsókn til hans ekki alltaf gleðiferðir þar sem hitta þurfti tannlækninn Sturlu. Ekki má samt gleyma þeim ferðum sem voru skemmtiferðir að hitta veiðimanninn Sturlu og fiskeld- ismanninn. Ófáar að vigta bleikju og ein sérstök að sækja bleikju í gildr- ur upp á heiði. Ekki má heldur gleyma að minnast á veiðiferðir til að veiða á stöng, í Fossálum. Þangað var gaman að fara með honum og að kynnast því hversu góður og nærgætinn veiðimaður og kennari hann var. Hafði trú á því að við gæt- um lært að kasta flugu, stund- um var nú heldur mikið kappið og flugan fór ekki alveg rétta leið, stundum fannst honum heldur mikill krafturinn í kast- inu. En þolinmæði hans voru eng- in takmörk sett við veiðiskapinn og kennsluna. Eftir að Sturla og Unnur fluttu til Sandgerðis og síðar Keflavíkur var farið í heimsókn, og þá þótti við hæfi að kynna okkur fyrir umhverf- inu á Reykjanesinu til að sýna okkur það sem þar er og sagan sögð um leið. Já, söknuður og þakklæti og alveg sérstakt þakklæti til Sturlu fyrir hversu einstaklega góður hann var við tengdamóð- ur sína Maríu Luise meðan hún lifði. Elsku Unnur systir mín, Auður, Snorri og fjölskylda innilegar samúðarkveðjur frá okkur hjónum. Guðrún (Gunna) og Bjarni. Í morgun sastu hér undir meiði sólarinnar og hlustaðir á fuglana minn gamli vinur en veist nú í kvöld hvernig vegirnir enda hvernig orðin nema staðar og stjörnurnar slokkna (Hannes Pétursson) Sturla félagi okkar og vinur hefur kvatt. Leikfélag Blöndu- óss naut krafta hans meðan hann bjó og starfaði meðal Húnvetninga. Hann leysti vel af hendi það sem honum var falið og átti marga góða spretti á fjölum félagsheimilisins á Blönduósi. Félagar í leikfélagi Blöndu- óss þakka honum ánægjulegt samstarf öll árin sem við nutum krafta hans. Hann var góður fé- lagi og gott að eiga hann að. Um leið og við óskum honum góðrar heimkomu til sumar- landsins, vottum við Unni eig- inkonu hans, börnum þeirra og ástvinum öllum samúð. Fyrir hönd Leikfélaga á Blönduósi. Kolbrún. Sturla Þórðarson tannlæknir er látinn. Ég missti félaga, það er vont. Ég missti vin – það er mjög vont – maður finnur til. Hans verður lengi saknað. Nú gefast ekki fleiri tækifæri til að gantast eða ræða fyrirbæri mannlífsins af alvöru. Hvenær kynntist ég honum fyrst. Ég man það ekki, kannski í Alþýðubandalaginu sáluga, en eitt er víst að ein minning er greypt í huga mér. Hún er frá þeim árum sem ég hafði enn gaman af veiðum. Þá bjuggu þau Unnur á Blönduósi en við Jóhanna á Eyrarbakka. Við fór- um í helgarheimsókn, Þorbjörg og Leópold voru bæði með. Ætlunin var að veiða í Laxá sem rennur rétt utan við Blönduós. Þar er laxa von. Sturla var á heimavelli en við Þorbjörg, stjúpdóttir mín, fylgdum í humátt á eftir. Ég bar hana á bakinu, nokkrum sinnum yfir ána. Það voru satt að segja ekki mjög veiðilegir tilburðir, enda fengum við eng- an laxinn, ekki heldur silung. Sturla veiddi aftur á móti a.m.k. tvo laxa. Við vorum í konung- legu yfirlæti hjá þeim yfir helgi, enda voru þau hjón bæði miklir kokkar. „Veiðitúrinn“ varð Þor- björgu minnisstæður, því hún staðhæfði að hún hefði veitt lax – og það gerði hún vissulega því Sturla fór í kistuna og gaf henni myndarlegan lax áður en við fórum. Síðan er liðinn meira en ald- arfjórðungur og margs að minnast sem ekki verður gert hér. Síðustu vikur og mánuðir verða mér þó sérstaklega minn- isstæðir. Sturla hætti tann- lækningum og ég keypti mér íbúð sem þarfnaðist viðgerðar. Við félagarnir hlökkuðum bein- línis til að taka til hendinni, en Sturla var miklu betri til verka en ég. Í miðjum klíðum dó hann og ég er enn verklítill. En lífið heldur áfram. Ég verð að taka mig saman í andlitinu – koma einhverju í verk, án vinar míns. Ég sendi Unni, öllum afkom- endum og venslafólki mínar innilegustu samúðarkveðjur. Helgi Guðmundsson, Akranesi. Það er margt sem hægt er að segja um þig, Sturla minn, mis- gott og missatt eflaust. Enda varstu oft milli tannanna á fólki sem kannski er ekki óeðlilegt þar sem þú varst nú tannlækn- ir. Oft ræddum við Unnur systir um ykkur Teisu eftir heimsókn- ir í höllina á Blönduós. Það var kannski sambland af þeim stað- reyndum að þú bjóst í svartri höll, starfaðir við það sem okk- ur fannst vera að meiða fólk, áttir hauskúpu uppi á hillu og sú raun að hárið á þér var mjallarhvítt og alltaf í sömu greiðslunni, að við systur rædd- um okkar á milli hvort það gæti verið að þú værir Drakúla Ís- lands? Hefðum við viðrað þess- ar vangaveltur við þig hefðir þú líklegast talið okkur trú um þær væru hárréttar. Þannig maður varst þú fyrir okkur systrum, alltaf skemmtilegur og til í að tala við okkur og bulla um hitt og þetta. Þú reyndar átt líklega Íslandsmet í útúr- snúningum og orðarugli en það er eitt af því sem ég á alltaf eft- ir að muna eftir þig. Þó komu sannleikskornin inni á milli og lífsreglurnar, þær eru svo hverju orði sannari. Það varst þú sem sagðir við mig að passa mig að missa ekki af lífinu, það gæti nefnilega verið að á meðan ég væri að hafa áhyggjur af ein- hverju sem væri búið og gert þá gerðist eitthvað mikið skemmti- legra á meðan. Það eru svona augnablik auk kækja eins og að heilsa alltaf með leiftursnöggri handahreyfingu fylgt með „LU- UU!“ sem munu fá mig til að brosa þegar ég hugsa til þín. Ég veit að þú verður áður en langt um líður gerður að dæmi- sögum eins og tíðkast í Húna- vatnssýslunni, það er ef þú, Sturla tannlæknir, ert það ekki nú þegar. En sporin sem þú skildir eft- ir þig hverfa aldrei því þú ert aðalpersóna, ekki aukaleikari. Þú skilar fyrir mig kveðju hvar sem þú lendir, Þorgerður Bjarnadóttir (Della). Sturla Þórðarson HINSTA KVEÐJA Við eigum eftir að sakna þín, afi Sturla, þú varst skemmtilegur og vitur. Þú fékkst okkur oft til að hlæja og heimsóttir okkur til Danmerkur. Eins og sann- ur afi gerðir þú margt gott og spennandi með okkur. Við munum alltaf muna þig. Elsku amma, við hugsum til þín og allra í fjölskyld- unni og sendum samúðar- kveðjur. Ísafold F. Davíðsdóttir og Laufey Davíðsdóttir. ✝ Björg BjarndísSigurðardóttir fæddist 17. sept- ember 1933 í Reka- vík bak Höfn í Norð- ur-Ísafjarðarsýslu. Hún lést á Hrafn- istu, Hafnarfirði, 31. maí 2018. Hún var yngsta barn hjónanna Ingi- bjargar Bárlínu Ás- geirsdóttur og Sig- urðar Hjálmarssonar. Eldri alsystkini hennar voru: Guðrún Hjálmfríður, f. 27. nóv- ember 1927, d. 9. júní 1976, Ás- gerður Sigríður, f. 18. apríl 1929, d. 24. janúar 2017, Sturla Valdi- mar, f. 6. febrúar 1932, d. 16. október 1932. Fyrir átti Ingibjörg með fyrri eiginmanni sínum, Sturlu Þor- steinssyni, börnin Högna, Guð- rúnu og Sturlínu. Þegar Ingibjörg lést frá barna- hópnum 19. október 1935 þurfti Sigurður að láta frá sér yngsta barnið sem var Björg. Hún var sett í fóstur hjá frænda sínum Guðmundi Jóni Guðmundssyni og konu hans Soffíu Vagnsdóttur, þar sem hún ólst upp við gott at- læti og reyndust þau henni sem bestu foreldrar. Hún lauk barna- skóla á Hesteyri og fór síðan í Gagnfræðaskólann í Reykjanesi og það- an lá leið hennar suður þar sem hún fór í Húsmæðra- skóla Reykjavíkur og lagði einnig stund á gítarnám. Árið 1950 kynntist hún tilvonandi eiginmanni sínum Jóni Jónssyni sem nýlokið hafði námi sem múrari. Þau giftu sig 27. október 1951 og eignuðust þau sex börn, þau eru: Soffía Margrét, f. 1951, Guð- mundur Jón, f. 1952, Marín Rún, f. 1954, Gunnar, f. 1956, Steinar Skarphéðinn, f. 1959, og Rósa Ingibjörg, f. 1963. Afkomendur þeirra hjóna eru orðnir 30 talsins. Þau hjónin byrjuðu sinn bú- skap á Bergstaðarstræti í Reykja- vík og fluttu þaðan í Kópavoginn þar sem þau byggðu sér hús á Kársnesbrautinni og síðar byggðu þau hús í Hlégerði 8 þar sem þau bjuggu til ársins 1996 þegar þau keyptu lítið raðhús við Boðahlein í Garðabæ. Jón lést á brúðkaupsdaginn þeirra hjóna þann 27. október 2009. Útförin fer fram frá Garða- kirkju í dag, 8. júní 2018, klukkan 11. Amma, Björg amma. Sæl, sértu sæl, sértu blessuð, sértu sæl og sértu blessuð, sæl og blessuð. Þú, þú, ó, elskulega bara þú getur verið sú sem þú ert í okkar hjarta. Takk, þakka þér, sé þér að ei- lífu þakkað fyrir einstakt sam- band okkar systkina við þig. Þökkum spjallið, kaffið, maltið og ástina. Þökkum snilldina, gullmolana og konfektið sem þú ert. Nú ertu á rómantísku deiti með afa í blómabrekkunni sem þú sagðir okkur frá. Kysst’ ann frá okkur. Þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Þar mun vera gott að búa. Sjáumst, Björg og Alexander Guðmundsbörn. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þetta fallega ljóð vil ég gera að kveðjuorðum mínum til Bjargar tengdamóður minnar. Björg var vel lesin kona og hafði yndi af því að segja sögur af mönnum og mál- efnum og var oft gaman að hlusta á frásagnir hennar. Hún var mikill dýravinur og þau voru ófá dýrin sem hún fóstraði um ævina. Síðustu æviárin hafði hún mik- inn félagsskap af því að fóðra villi- ketti sem hún tók miklu ástfóstri við. Nú er Björg horfin yfir í Sum- arlandið til endurfundar við eig- inmanninn Jón Jónsson sem lést 2009. Takk fyrir allt og allt, kæra Björg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. … (Valdimar Briem) Ég bið góðan Guð að veita fjöl- skyldunni allri styrk í þeirra mikla missi. Hjördís Alexandersdóttir. Björg Bjarndís Sigurðardóttir Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR, áður Víðivangi 5, Hafnarfirði, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn 4. júní. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn 11. júní kl. 13. Alda Hauksdóttir Guðmundur Tr. Ólafsson Gísli Hauksson Jón Óskar Hauksson Kolbrún Hauksdóttir Valgeir Eyjólfsson ömmubörnin Ástkær sonur minn, bróðir okkar og frændi, ÞORVALDUR MAGNÚSSON, Hátúni, Stokkseyri, lést i faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum, gjörgæsludeild, eftir stutt veikindi. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Magnús Gunnar Sigurjónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LÁRUS ÖGMUNDSSON lögfræðingur, Kjalarlandi 3, Reykjavík, lést þriðjudaginn 5. júní á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 21. júní klukkan 13. Hildigunnur Sigurðardóttir Lilja Karítas Lárusdóttir Ólafur Már Sigurðsson Dóra María Lárusdóttir Sigurður Egill Lárusson Birta Elíasdóttir og barnabörn  Fleiri minningargreinar um Sturla Þórðarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.