Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 12 B-riðill ÍRAN B-riðill MAROKKÓ Behnam Jafarzadeh Varzesh3.com twitter.com/bjk1029 Í fyrsta skipti í sögunni tekur Íran þátt í tveimur lokakeppnum HM í röð og eftir ásættanlega frammi- stöðu í Brasilíu 2014 fara Íranir, eða Team Melli eins og þeir eru kallaðir í heimalandi sínu, til Rúss- lands með stærri drauma. „Íranir hafa bætt sig mikið“, er nýlega haft eftir þjálfaranum Car- los Queiroz. „Með reynsluna frá Brasilíu 2014 í farteskinu og fé- lagsskiptum nokkurra leikmanna til Evrópu, hefur liðið orðið þétt- ara og samkeppnishæfara. Við vilj- um komast í aðra umferð, en það verður auðvitað mjög erfitt verk- efni.“ Fyrir fjórum árum spilaði liðið hans Queiroz fótbolta sem mót- aðist af því sem andstæðingurinn gerði hverju sinni. Þeir lágu aft- arlega á vellinum og treystu á skyndisóknir í leikkerfinu 4-2-3-1. En til að komast í útsláttarkeppn- ina þarf Íran að spila sóknarsinn- aðri leikstíl og hefur sýnt það í undanförnum vináttuleikjum í kerfinu 4-1-4-1. Framherjar Íran eru í betra formi heldur en þeir voru fyrir fjórum árum og það gæti hjálpað Queiroz við að leggja leikina upp. Fyrir utan Sardar Azmoun, sem kemur til baka eftir frammistöðu sem vakti athygli margra evrópska liða, endaði Alireza Jahanbakhsh sem markakóngur í Hollandi, Ka- rim Ansarifard varð næst marka- hæstur í Grikklandi, Kaveh Rezaei var einn af markahæstu leik- mönnum í Belgíu og Saman Ghod- dos átti frábært tímabil með Ös- tersund. Lykilmaður byrjar í banni Portúgalski þjálfarinn hefur meiri áhyggjur af öðrum stöðum. Saeed Ezatolahi, sem er fyrsti kostur hans í stöðu varnarsinnaðs miðjumanns, verður í banni í fyrsta leiknum gegn Marokkó. Þrátt fyrir mikla leit að varamanni hefur enginn leikmaður sannfært hann hingað til. Annar stór hausverkur fyrir Queiroz er miðvarðastöðurnar. Á undanförnum árum hafa Morteza Pouraliganji og Jalal Hosseini leik- ið í hjarta varnarinnar en þar sem Hosseini var skilinn eftir heima þarf hann að finna annan varn- armann við hlið Pouraliganji á HM. Alireza Beiranvand, sem er að- almarkmaður Írana, hélt markinu hreinu í 12 sinnum í undankeppn- inni. Frammistaða hans á þessu tímabili hefur þó verið kaflaskipt sem er áhyggjuefni. Stærsta áhyggjuefni Queiroz er samt lík- amlegur undirbúningur þeirra leik- manna sem eru í Íran. Þetta hefur hann nefnt í nokkrum viðtölum. Gerir oft miklar breytingar „Leikmennirnir okkar sem eru í Íran eru ekki nálægt því að vera tilbúnir og þurfa 40 daga und- irbúning til þess að geta spilað á HM“. Það er erfitt að spá fyrir um hvernig Queiroz mun spila. Það eru oft miklar breytingar á liðinu vegna þess að hann reynir yfirleitt að spila fram þeim leikmönnum sem eru í besta forminu hverju sinni. Byrjunarliðin hans eru aldr- ei fyrirsjáanleg. Líklegt byrjunarlið: Beiranvand – Rezaeian, Montazeri, Pouraliganji, Mohammadi – Shojaei, Haji Safi, Ezatollahi – Jahanbakhsh, Azmoun, Taremi. Markverðir: 13 Mohammad Khanzadeh Padideh ’91 11 Vahid Amiri Persepolis ’88 1 Ali Beiranvand Persepolis ’92 15 Pejman Montazeri Esteghlal ’83 12 Rashid Mazaheri Isfahan ’89 19 Majid Hosseini Esteghlal ’96 Sóknarmenn: 22 Amir Abedzadeh Maritimo (Por) ’93 23 Ramin Rezaeian Oostende (Bel) ’90 10 Karim Ansarifard Olympiacos (Gri) ’90 14 Saman Ghoddos Östersund (Sví) ’93 Varnarmenn: Miðjumenn: 16 Reza Ghoochannejhad Heerenveen (Hol) ’87 3 Ehsan Haji Safi Olympiacos (Gri) ’90 2 Mehdi Torabi Saipa Alborz ’94 17 Mehdi Taremi Al Gharafa (Kat) ’92 4 Roozbeh Cheshmi Esteghlal ’93 6 Saeid Ezatolahi Amkar (Rús) ’96 18 Alireza Jahanbakhsh AZ (Hol) ’93 5 Milad Mohammadi A.Grozní (Rús) ’93 7 Masoud Shojaei AEK (Gri) ’84 20 Sardar Azmoun Rubin (Rús) ’95 8 Morteza Pouraliganji Al Sadd (Kat) ’92 9 Omid Ebrahimi Esteghlal ’87 21 Ashkan Dejagah Nottingham (Eng) ’86 Lið Íran Þjálfari: Carlos Queiroz PortúgalÍran mætir með reyndara lið en síðast AFP Íran Alireza Jahanbakhsh varð markakóngur hollensku úrvalsdeildarinnar í vetur þar sem hann skoraði 21 mark fyrir AZ Alkmaar og lagði upp 12.  Carlos Queiroz hefur mestar áhyggjur af líkamlegu ástandi liðsins Amine El Amri Le Matin twitter.com/Amine_Elamri Ljónin frá Atlas eru komin aftur á heimsmeistaramótið eftir 20 ára fjar- veru og hin taktíska samvinna og þrautseigja sem þjálfari Marokkó, Hervé Renard, hefur innprentað leik- mönnum liðsins mun gera það að erf- iðum mótherjum. Tveggja áratuga eyðimerk- urganga, 20 ár og fjögur heimsmeist- aramót, hafa nánast eytt Marokkó af skákborði fótboltans. Áralangur pirr- ingur hefur gert það að verkum að aðdáendur hafa nánast afsalað sér réttinum til að sjá landsliðið spila á hæsta stigi alþjóðlegs fótbolta. En með komu Renard, fyrrverandi knattspyrnustjóra Cambridge Unit- ed, árið 2016 breyttist allt. Frakkinn náði fram baráttuanda. Flestir leik- mannanna höfðu verið í liðinu í mörg ár, en Renard náði að setja fingraför sín á liðið. Hann byrjaði á því að færa sóknarmanninn Mbark Boussoufa aftar á völlinn þar sem hann og Ka- rim El Ahmadi mynda reynt tvíeyki á miðjunni. Fyrir aftan þá er Younès Belhanda sem sér um varnarvinnuna þegar liðið missir boltann. Með leikmann Real Madrid Hin stóra breytingin sem Renard gerði var að breyta Romain Saiss, sem áður spilað sem miðjumaður, í mið- vörð. Þessi breyting gerði liðið sterk- ara í loftinu. Eftir meiðsli Hamza Mendyl þurfti Renard að gera enn eina breytinguna þegar hann færði leikmann Real Madrid, Achraf Ha- kimi, í stöðu vinstri bakvarðar sem hann hafði aldrei spilað áður. Achraf er mjög tæknilega góður og tengir vel við Hakim Ziyech sem er hinn raunverulegi leikstjórnandi liðs- ins. Ziyech, sem spilar með Ajax, byrj- ar yfirleitt vinstra megin á vellinum áður en hann tekur yfir miðjuna og skiptir stundum um stöðu við hinn kraftmikla Noureddine Amrabat. Khalid Boutaib er framherji liðsins og þiggur allt sem liðsfélagar hans búa til fyrir hann. Fyrir utan byrj- unarliðið geta leikmenn á borð við Faycal Fajr komin inn af bekknum. „Faycal er ómissandi leikmaður í hópnum,“ sagði Renard í mars. „Hann getur spilað fimm mismunandi stöður á miðjunni og hjálpar mér við að halda góðum þeim sem eru ekki sáttir við að sitja á bekknum.“ Renard mun líklega halda tryggð við 4-2-3-1 kerfið, sem breytist úr 4- 4-2 í vörn í 4-3-3 í sókn. Líklegt byrjunarlið: El Kajoui – Dirar, Benatia, Saiss, Hakimi – Boussoufa, El Ahmadi – N. Amrabat, Belhanda, Ziyech – Boutaib. Markverðir: 6 Romain Saiss Wolves (Eng) ’90 16 Noureddine Amrabat Leganés (Sp) ’87 1 Yassine Bounou Girona (Sp) ’91 17 Nabil Dirar Fenerbahce (Tyr) ’86 18 Amine Harit Schalke (Þýs) ’97 12 Monir El Kajoui Numancia (Sp) ’89 21 Sofyan Amrabat Feyenoord (Hol) ’96 22 Ahmed Tagnaouti Tanger ’96 Miðjumenn: 23 Mehdi Carcela Standard (Bel) ’89 7 Hakim Ziyach Ajax (Hol) ’93 Varnarmenn: 8 Karim El Ahmadi Feyenoord (Hol) ’85 Sóknarmenn: 2 Achraf Hakimi Real Madrid (Sp) ’98 10 Younés Belhanda Galatasaray (Tyr) ’90 9 Ayoub El Kaabi Berkane ’93 3 Hamza Mendyl Lille (Fra) ’97 11 Faycal Fajr Getafe (Sp) ’88 13 Khalid Boutaib Malatyaspor (Tyr) ’87 4 Manuel da Costa Basaksehir (Tyr) ’86 14 Mbark Boussoufa Al Jazira (S.Fur) ’84 19 Youssef En-Nesyri Málaga (Sp) ’97 5 Mehdi Benatia Juventus (Ít) ’87 15 Youssef Ait Bennasser Caen (Fra) ’96 20 Aziz Bouhaddouz St.Pauli (Þýs) ’87 Lið Marokkó Þjálfari: Hervé Renard FrakklandiEyðimerkur- ganga Atlas- ljóna á enda AFP Marokkó Achraf Hakimi er 19 ára varnarmaður sem lék 17 leiki með Real Madrid í vetur, þar á meðal tvo í Meist- aradeildinni. Hann er fæddur í Madríd og hefur verið í röðum spænska stórveldisins frá sjö ára aldri.  Hervé Renard hefur breytt liði Marokkó sem er öllum erfiður mótherji

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.