Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 14 C-riðill FRAKKLAND C-riðill PERÚ Patrick Urbini France Football twitter.com/purbini Frakkar léku til úrslita á Evr- ópumótinu í Frakklandi árið 2016 en framganga liðsins eftir úrslitaleik- inn, hefur ekki staðist væntingar í heimalandinu. Sóknarmöguleikar liðsins eru hins vegar meiri í dag. Kylian Mbappé, Thomas Lemar og Ousmane Dembélé eru allt ungir leikmenn sem hafa spilað á stóra sviðinu. Þá hafa möguleikar liðsins á miðsvæðinu einnig aukist. Liðið skortir hins vegar stöð- ugleika og persónuleika og þá hafa leikmenn Frakka verið í vandræðum með að stjórna leikjum. Það er erfitt að átta sig á helstu áhersluatriðum liðsins og þess vegna eru Frakkar ekki líklegastir til þess að vinna HM í Rússlandi. Verða bakverðirnir tilbúnir? Leikir liðsins á þessu tímabili hafa sent misvísandi skilaboð, sér- staklega 3:2 tapið gegn Kólumbíu í vináttuleik í mars. Liðið spilaði frá- bæran sóknarbolta í þrjátíu mínútur en átti svo í miklum vandræðum með varnarleikinn síðasta klukkutímann. Eftir leikinn vöknuðu stórar spurning um bakvarðastöðurnar. Geta Frakkar varist og haldið bolt- anum án sinna bestu bakvarða, þeirra Djibril Sidibé og Benjamin Mendy sem hafa báðir verið meiddir stærstan hluta tímabilsins? Þeir eru báðir í 23 manna lokahópi Didier Deschamps en ef þeir eru ekki leik- færir, hvernig mun þeim Benjamin Pavard og Lucas Hernández takast að fylla skörð þeirra? Tvö leikkerfi til taks Deschamps vill spila 4-4-2 eða 4- 3-3, það fer venjulega eftir mótherj- um liðsins hvort kerfið hann notar. Stundum vill hann gott jafnvægi á miðsvæðið eða mikinn sóknarþunga á köntunum. Hvort þjálfarinn sé ennþá meðvitaður um hvert sé hans besta byrjunarlið er ekki vitað. Að undanskildum Zinedine Zid- ane, þá treysti franska liðið, sem fór alla leið í úrslitaleikinn á HM árin 1998 og 2006, aðallega á sterkan varnarleik, líkamlegan styrk og hæfileikann að vinna boltann hratt af mótherjum sínum. Liðið hans Deschamps er allt öðruvísi. Þeir eru með meiri hraða fram á við, þeir leggja meiri áherslu á skyndisóknir og treysta meira á einstaklingana en liðsheildina. Á stórmótunum 2014 og 2016 mætti Deschamps til leiks með 4-3-3 leikkerfið þar sem hann valdi að byrja með þá Paul Pogba, N‘Golo Kanté og Blaise Matuidi á miðsvæð- inu, Corentin Tolisso var svo annar valkostur fyrir þann síðastnefnda. Ef hann ákveður að stilla upp 4-4-2 þá munu þeir Olivier Giroud og An- toine Griezmann mynda sóknarpar franska liðsins og Matuidi myndi taka sér sæti á bekknum. Líklegt byrjunarlið: Lloris – Sidibé, Varane, Umtiti, B.Mendy – Pogba, Kanté, Matuidi – Griezmann, Mbappé, Lemar. Markverðir: 17 Adil Rami Marseille ’85 15 Steven Nzonzi Sevilla (Sp) ’88 1 Hugo Lloris Tottenham (Eng) ’86 19 Djibril Sidibé Mónakó ’92 16 Steve Mandanda Marseille ’85 21 Lucas Hernández Atlético M. (Sp) ’96 Sóknarmenn: 23 Alphonse Areola PSG ’93 22 Benjamin Mendy Man.City (Eng) ’94 7 Antoine Griezmann Atlético (Sp) ’91 8 Thomas Lemar Mónakó ’95 Varnarmenn: Miðjumenn: 9 Olivier Giroud Chelsea (Eng) ’86 2 Benjamin Pavard Stuttgart (Þýs) ’96 6 Paul Pogba Man.Utd (Eng) ’93 10 Kylian Mbappé PSG ’98 3 Presnel Kimpembe PSG ’95 12 Corentin Tolisso Bayern (Þýs) ’94 11 Ousmane Dembélé Barcelona (Sp) ’97 4 Raphaël Varane Real Madrid (Sp) ’93 13 N’Golo Kanté Chelsea (Eng) ’91 18 Nabil Fekir Lyon ’93 5 Samuel Umtiti Barcelona (Sp) ’93 14 Blaise Matuidi Juventus (Ít) ’87 20 Florian Thauvin Marseille ’93 Lið Frakklands Þjálfari: Didier DeschampsMisvísandi skilaboð frá Frökkunum AFP Frakkland Blaise Matuidi, leikmaður ítölsku meistaranna Juventus, er reyndasti miðjumaður Frakka með 67 lands- leiki á bakinu og hefur skorað í þeim níu mörk. Hann var fyrirliði franska liðsins á lokasprettinum fyrir HM.  Undir væntingum eftir EM en með öfluga menn á miðju og í framlínunni Pedro Canelo El Comercio twitter.com/pedrocaneloec Ricardo Gareca, þjálfari Perú, sem er í miklu uppáhaldi hjá lands- mönnum, er kallaður Tígrisdýrið sem á vel við baráttuandann sem einkenndi liðið þegar það komst í fyrsta skipti í lokakeppni heims- meistaramótsins í 36 ár. Liðið, með fyrirliðann og markahæsta lands- liðsmann Perú frá upphafi, Paolo Guerrero, í fararbroddi hefur sál stríðsmanns og mun gefa allt til þess að næsti kafli þessarar merki- legu sögu verður ánægjulegur. Fyrst stíllinn; svo útlínurnar. Ga- reca notar reynsluna til þess að velja réttu leikmennina fyrir þann fótbolta sem stendur honum nærri, þar sem mikil áhersla er lögð á að farið sé vel með boltann. Perú hafði ekki haft nein knattspyrnuleg ein- kenni í meira en 20 ár áður en hann tók við árið 2015. Hann kom aftur með glæsileikann sem hafði tapast ásamt nútímalegri líkams- þjálfun og auknum aga. Allt þetta small saman þegar þeir unnu Nýja- Sjáland í umspilsleikjunum um sæti á HM í Rússlandi. Undirbúningur Perú var í upp- námi eftir að Guerrero var dæmdur í bann af FIFA vegna ólöglegrar lyfjanotkunar. En eftir að málinu var áfrýjað fær hann að taka út dóminn eftir HM og því mætir Perú með sitt sterkasta lið. Gareca byrjar líklega með Pedro Gallese í marki, Luis Advíncula í hægri bakverði, Alberto Rodríguez og Christian Ramos í miðvörðunum og Miguel Trauco í vinstri bak- verði. Renato Tapia og Yoshimar Yotún, sem vega hvor annan vel upp með staðsetningum sínum og sendingargetu munu spila á miðj- unni. Tríóið sem vinnur fyrir aftan Guerrero verður sett saman af André Carrillo, Christian Cueva og Jefferson Farfán. Ef Perú lendir í vandræðum með að skora er möguleiki á því að breyta í 4-4-2 og færa Farfán í framlínuna með sínum gamla vini Guerrero. Gareca hefur verið að vinna í þessu á æfingasvæðinu og þetta heppnaðist vel í vináttuleikj- unum í mars, í sigurleikjum gegn Króatíu og Íslandi. FIFA gefur þátttökuþjóðunum möguleika á því að tilkynna 35 manna landsliðshóp, en Gareca valdi bara 24. Hann vildi ekki vinna með of stóran hóp og því missti að- eins einn leikmaður sæti sitt. Fók- us hans er á kjarna hópsins sem hann bjó til fyrir tveimur árum síð- an í Suður-Ameríkukeppninni. Þar duttu Perúbúar út í vítaspyrnu- keppni í átta liða úrslitum; þeir munu þurfa á grimmd tígrisdýrsins að halda ef þeir ætla sér að ná jafn- langt í Rússlandi. Líklegt byrjunarlið: Gallese – Advíncula, Rodríguez, Ramos Trauco – Tapia, Yotún – Farfán Cueva, Flores – Guerrero. Markverðir: 6 Miguel Trauco Flamengo (Bra) ’92 16 Wilder Cartagena Veracruz (Mex) ’94 1 Pedro Gallese Veracruz (Mex) ’90 15 Christian Ramos Veracruz (Mex) ’88 19 Yoshimar Yotún Orlando (Ban) ’90 12 Carlos Cáceda Dep. Municipal ’91 17 Luis Advíncula Lobos (Mex) ’90 23 Pedro Aquino Lobos (Mex) ’95 21 José Carvcallo Cajamarca ’86 22 Nilson Loyola Melgar ’94 Sóknarmenn: Varnarmenn: Miðjumenn: 9 Paolo Guerrero Flamengo (Bra) ’84 2 Alberto Rodríguez Atl.Junior (Kól) ’84 7 Paolo Hurtado Guimaraes (Por) ’90 10 Jefferson Farfán Lok. Moskva (Rús) ’84 3 Aldo Corzo Universitario Lima ’89 8 Christian Cueva Sao Paulo (Bra) ’91 11 Raúl Ruidíaz Morelia (Mex) ’90 4 Anderson Santamaría Puebla (Mex) ’92 13 Renato Tapia Feyenoord (Hol) ’95 18 André Carrillo Watford (Eng) ’91 5 Miguel Araujo Alianza Lima ’94 14 Andy Polo Portland Timbers (Ban) ’94 20 Edison Flores AaB (Dan) ’94 Lið Perú Þjálfari: Ricardo Gareca ArgentínuFyrirliðinn fékk að fresta banninu AFP Perú Paolo Guerrero fær að spila með á HM eftir allt saman og hér skorar hann í vináttuleik gegn Sádi-Arabíu í byrjun júní. Guerrero er fyrirliði liðsins, 34 ára gamall, og hefur skorað 34 mörk í 88 landsleikjum.  Perú mætir með Guerrero á HM og „Tígrísdýrið“ hefur breytt gengi liðsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.