Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 18 C-riðill DANMÖRK C-riðill ÁSTRALÍA Troels Henriksen Jyllands-Posten twitter.com/troelshenriksen Fyrir okkur Dani er það skrítin til- finning að fara á stórmót án Mor- tens Olsen. Þessi fyrrverandi leik- maður og landsliðsþjálfari er sá einstaklingur sem hefur haft hvað mest áhrif á danska knattspyrnu síðustu fimm áratugi. Á áttunda og níunda áratugnum var hann mikill leiðtogi og fyrirliði danska landsliðs- ins sem heillaði heiminn með sókn- arsinnaðri knattspyrnu, og sér- staklega í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó 1986. Seinna, frá árinu 2000 til 2015 var hann landsliðsþjálfari. En allt tekur enda og eftir að hafa mistekist að komast á tvö stór- mót í röð hætti Olsen og danska knattspyrnusambandið ákvað að ráða Norðmanninn Åge Hareide sem er eini þjálfarinn til þess að verða danskur, sænskur og norskur meistari. Hareide, fyrrverandi leik- maður Manchester City, hefur hald- ið í dönsku hefðina og spilar sókn- arfótbolta en hefur þó gert miklar breytingar á leikaðferð og hug- myndafræði liðsins. Í sínum huga hefur hann eitt verkefni: ná því besta út úr Christian Eriksen. „Þegar ég sé framúrskarandi leikmann gef ég honum allt frelsi í heiminum til þess að láta ljós sitt skína,“ sagði Hareide við Jyllands- Posten nokkrum mánuðum fyrir heimsmeistaramótið. Danmörk spilar ekki lengur knattspyrnu byggða á hug- myndafræði Hollendinga og Spán- verja þar sem lögð er áhersla á að halda boltanum með endalausum – og á köflum tilgangslausum – send- ingum. Leikaðferðin er beinskeytt, árásargjörn og hröð. Þetta skapar pláss fyrir Eriksen og Tottenham miðjumaðurinn var mjög mik- ilvægur í undankeppninni fyrir HM. Í 19 leikjum undir stjórn Hareide hefur Eriksen skorað 15 mörk. Í 57 leikjum með Olsen sem þjálfara tókst honum að skora sex. Danir nýta sér í dag líkamlega yf- irburði sinna leikmanna. Leikmenn eins og Simon Kjær, Andreas Bjell- and, Thomas Delaney, Yussuf Poulsen og Mathias „Zanka“ Jør- gensen eru allir stórir og sterkir og er miðjumaður Werder Bremen, Delaney, sérstaklega mikil ógn í föstum leikatriðum. Varnarmenn andstæðinganna virðast gleyma honum og einbeita sér meira að því að verjast miðvörðunum. Danmörk getur og mun pressa framarlega á vellinum en knatt- spyrnuleg arfleifð Dana hefur ekki gleymst. Að leik loknum hafa Danir oftar en ekki haft boltann lengur heldur en mótherjar þeirra. Mun- urinn er sá að núna þurfa allar sendingarnar að skipta máli. Þær þurfa að hafa tilgang. Fyrir utan Andreas Christensen treystir Hareide í vörninni á reynslu Simon Kjær sem spilar með Sevilla og Henrik Dalsgaard sem leikur með Brentford í ensku B- deildinni. Á miðjunni hefur William Kvist verið harðlega gagnrýndur fyrir að vera of gamall og hægur. Kvist, sem leikur í stöðu afturliggjandi miðju- mans, hefur misst stöðu sína í byrj- unarliðinu hjá FC Kaupmannahöfn og stöðu hans í danska landsliðinu er ógnað. Á móti átti hann frábæran leik þegar Danir tryggðu sér sæti í Rússlandi þegar þeir unnu 5:1 í Du- blin og Hareide gæti haldið tryggð við hann. Líklegt byrjunarlið: Schmeichel – Dalsgaard, Kjær, Christensen, Stryger Larsen – Schöne, Eriksen, Delaney – Poulsen, Jörgensen, Sisto Markverðir: 13 Mathias Jörgensen Huddersf.(Eng) ’90 19 Lasse Schöne Ajax (Hol) ’86 1 Kasper Schmeichel Leicester (Eng) ’86 14 Henrik Dalsgaard Brentford (Eng) ’89 16 Jonas Lössl Huddersfield (Eng) ’89 17 Jens Stryger Larsen Udinese (Ít) ’91 Sóknarmenn: 22 Frederik Rönnow Bröndby ’92 9 Nicolai Jörgensen Feyenoord (Hol) ’91 Miðjumenn: 11 Martin Braithwaite Bordeaux (Fra) ’91 Varnarmenn: 2 Michael Krohn-Dehli La Coruna (Sp) ’83 12 Kasper Dolberg Ajax (Hol) ’97 3 Jannik Vestergaard Gladbach (Þýs) ’92 7 William Kvist FC Köbenhavn ’85 15 Viktor Fischer FC Köbenhavn ’94 4 Simon Kjær Sevilla (Sp) ’89 8 Thomas Delaney Bremen (Þýs) ’91 20 Yussuf Poulsen Leipzig (Þýs) ’94 5 Jonas Knudsen Ipswich (Eng) ’92 10 Christian Eriksen Tottenham (Eng) ’92 21 Andreas Cornelius Atalanta (Ít) ’93 6 Andreas Christensen Chelsea (Eng) ’93 18 Lukas Lerager Bordeaux (Fra) ’93 23 Pione Sisto Celta Vigo (Sp) ’95 Lið Danmerkur Þjálfari: Åge Hareide NoregiBeinskeyttir, hraðir og árásargjarnir AFP Danmörk Christian Eriksen er óumdeilanlega stjarna danska liðsins og hann hefur blómstrað með liðinu eftir að Åge Hareide tók við því.  Christian Eriksen hefur blómstrað í liði Danmerkur hjá Åge Hareide Richard Parkin Guardian Australia twitter.com/rrjparkin Það er ekki langt síðan Ástralir skiptu um þjálfara og því er erfitt að rýna í liðið að svo stöddu. Fyrrver- andi þjálfari liðsins, Ange Post- ecoglou, vissi nákvæmlega hvernig hann vildi að sitt lið spilaði. Ástralir voru óhræddir, spiluðu sóknarbolta, héldu boltanum vel og pressuðu and- stæðinga sína framarlega á vell- inum. Leikmönnum liðsins var hrós- að á HM í Brasilíu fyrir frammistöðu sína gegn bæði Síle og Hollandi. Sluppu með skrekkinn Margir héldu að Ástralir væru að stimpla sig inn sem alvöruknatt- spyrnuþjóð þegar liðið vann As- íubikarinn árið 2015 en það varð ekki raunin. Hjólin hættu að snúast hvert af öðru í undankeppni HM 2018 og jafntefli gegn Sýrlandi og Taílandi á útivöllum sýndu að liðið hafði ekki tekið skrefið fram á við. Liðinu mistókst að tryggja sér strax sæti í lokakeppninni og þurfti að fara í umspil. Ástralir sluppu með skrekkinn gegn Sýrlandi í um- spilinu, unnu í framlengingu, og tókst að lokum að tryggja sér sæti í lokakeppninni í Rússlandi eftir tveggja leikja einvígi gegn Hond- úras. Skipulagðara lið en áður Það má reikna með því að liðið verði skipulagðara undir stjórn Bert van Marwijk. Í vináttuleikjum gegn Noregi og Kólumbíu notaðist hol- lenski þjálfarinn við leikkerfin 3-4- 2-1 og 3-2-4-1 með kantmenn sem voru duglegir að hlaupa á bak við varnarmennina og líkamlega sterka leikmenn í leikstjórnandahlutverk- inu. Bakverðir liðsins voru heldur ekki jafn sókndjarfir og þeir hafa verið og var áherslan lögð á góðan varnarleik. Þegar að Van Marwijk valdi 32 manna æfingahóp sinn lét þjálfarinn þessi ummæli falla. „Ég vil spila hraðan fótbolta og ég vil spila sókn- arsinnaðan fótbolta. Ég vil líka vinna leiki.“ Nýr þjálfari eftir HM Hollendingurinn fékk ekki langan samning. Hann mun stýra liðinu á HM í Rússlandi og eftir það mun Graham Arnold taka við. Það má því gera ráð fyrir því að Van Marwijk muni ekki breyta miklu hjá liðinu á þeim stutta tíma sem hann stýrir Áströlum. Hann mun hins vegar þétta varnarleik liðsins. Gegn sterk- ari andstæðingum, eins og Frakk- landi, mun hann reyna að spila bolt- anum hratt og treysta mikið á þversendingar til þess að ná því besta út úr þeim Matthew Leckie og Robbie Kruse sem eru fljótustu leik- menn liðsins. Líklegt byrjunarlið: Ryan – Risdon, Sainsbury, Jurman, Behich – Rogic, Jedinak, Mooy – Kruse, Juric, Leckie. Markverðir: 16 Aziz Behich Bursaspor (Tyr) ’90 Sóknarmenn: 1 Mathew Ryan Brighton (Eng) ’92 19 Joshua Risdon West Sydney ’92 4 Tim Cahill Millwall (Eng) ’79 12 Brad Jones Feyenoord (Hol) ’82 20 Trent Sainsbury Grasshoppers (Svi) ’92 7 Matthew Leckie Hertha (Þýs) ’91 18 Danny Vukovic Genk (Bel) ’85 9 Tomi Juric Luzern (Sviss) ’91 Miðjumenn: 10 Robbie Kruse Bochum (Þýs) ’88 Varnarmenn: 8 Massimo Luongo QPR (Eng) ’92 11 Andrew Nabbout Urawa (Jap) ’92 2 Milos Degenek Yokohama (Jap) ’94 13 Aaron Mooy Huddersfiekd (Eng) ’90 14 Jamie McLaren Hibernian (Skot) ’93 3 James Meredith Millwall (Eng) ’88 15 Mile Jedinak Aston Villa (Eng) ’84 17 Daniel Arzani Melbourne City ’99 5 Mark Milligan Al Ahli (S.Ar) ’85 22 Jackson Irvine Hull (Eng) ’93 21 Dimitros Petratos Newcastle Jets ’92 6 Matt Jurman Suwon (S.Kór) ’89 23 Tom Rogic Celtic (Skot) ’92 Lið Ástralíu Þjálfari: Bert van Marwijk HollandHjólin hættu að snúast hvert af öðru AFP Ástralía Tim Cahill er reyndastur og þekktastur í liði Ástralíu og hefur skorað 50 mörk í 106 landsleikjum. Hann er hinsvegar á 39. aldursári og ekki fastamaður lengur en kemur mjög líklega við sögu í leikjum liðsins.  Ástralir góðir á HM 2014 en í miklu basli í undankeppninni og umspilinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.