Morgunblaðið - 13.06.2018, Page 20

Morgunblaðið - 13.06.2018, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 20 D-riðill ARGENTÍNA D-riðill KRÓATÍA Javier Saúl La Nacion twitter.com/dr_javi Það er fátt sem bendir til þess að Arg- entínumenn verði heimsmeistarar í Rússlandi. Þeir eru ekki eins vel þjálf- aðir og Spánn, þeir eru ekki jafn skipulagðir og Þýskaland og þeir búa ekki yfir sömu blöndu af hæfileikum og samheldni eins og erkifjendur þeirra í Brasilíu. En þeir hafa Lionel Messi, og það eitt og sér er ástæða til þess að trúa því að allt sé mögulegt. „Ef Lionel Messi er heill er liðið frekar undir hans stjórn heldur en minni,“ játaði þjálfari liðsins Jorge Sampaoli. Raunsætt markmið væri að komast í átta liða úrslit; að detta úr keppni fyrr væru vonbrigði, allt lengra en átta liða úrslit ætti að vera álitið sem góð frammistaða. En það hefur enginn í Argentínu gleymt því að liðið hefur tapað þremur úrslita- leikjunum í röð – í heimsmeist- arakeppninni 2014 og í Suður- Ameríkubikarnum árin 2015 og 2016 – og lið sem á það til að brotna niður á lykilstundu verður undir mikilli pressu. Einn helsti veikleiki Argentínu liggur í markmannsstöðunni sem verður mikið spurningarmerki eftir að það kom í ljós að Sergio Romero verður ekki með á mótinu vegna hné- meiðsla. Willy Caballero hefur spilað lítið með Chelsea og hina markmenn- ina í hópnum skortir reynslu á stóra sviðinu. Vandræði í vörninni Það eru líka vandræði í vörninni. Nicolás Otamendi er eini varnarmað- urinn sem er í alþjóðlegum klassa og Sampaoli mun vonast eftir betri frammistöðu hjá varnarlínunni held- ur en hún hefur sýnt til þessa. Þjálf- arinn skipti líka oft og títt um menn og kerfi þar til liðið fór að spila hefð- bundna fjögurra manna vörn. Gabriel Mercado, hægra megin, líður ekki vel í þeirri stöðu og gæti reynst annar akkillesarhæll. Það eru líka mörgum spurningum á miðjunni ósvarað, og meiðsli Lucas Biglia – sem tvíbrotnaði í mjóhryggn- um og mun vera í miklu kapphlaupi við tímann til að komast í form fyrir mótið – bætir bara við þá óvissu. Skortur á leiðtogum og frumkvæði til að ná valdi á boltanum og stjórn á miðsvæðinu hefur varpað upp spurn- ingum sem leikmennirnir hafa verið hikandi við að svara. Andinn í kringum Argentínu og þessa heimsmeistarakeppni kristall- ast í tveimur leikmönnum. Annars vegar er það Javier Mascherano, sem varð 34 ára 8. júní og spilar í veikri kínverskri deild, þar sem ferillinn er klárlega á niðurleið og endurspeglar ástandið á landsliðinu. Hinsvegar er það Giovani Lo Celso, 22 ára, sem verður að hafa meiri áhrif ef lið Sam- paoli á að ganga vel. Hann er leik- maður sem heldur jafnvægi á sínum liðum, getur búið til sóknir, og sannaði virði sitt á síðustu leiktíð með París SG. Hann tekur meiri þátt í því sem er að gerast alls staðar á vellinum heldur en aðrir liðsfélagar hans; hann getur komið af stað sóknum og spilað milli línanna til framherjanna. Og þar liggur annað vandamál. Messi getur ekki einn og sér borið ábyrgð á sóknarleik Argentínu. Hinar stjörnurnar í liðinu – leikmenn eins og Sergio Agüero og Gonzalo Higuaín – verða að hjálpa til við að draga vagn- inn ef þeir ætla að láta sig dreyma um að vinna titilinn. Argentína getur tap- að með Messi, en tilfinningin er sú að þeir geta aldrei unnið án hans. Líklegt byrjunarlið: Caballero eða Armani – Mercado, Fazio, Otamendi, Tagliafico – Biglia, Lo Celso – Higuaín, Messi, Di María – Agüero. Markverðir: 8 Marcos Acuna Sporting (Por) ’91 13 Max Meza Independiente ’92 1 Nahuel Guzmán UANL Tigres (Mex) ’86 14 Javier Mascherano Hebei (Kín) ’84 15 Manuel Lanzini West Ham (Eng) ’93 12 Franco Armani River Plate ’86 16 Marcos Rojo Man.Utd (Eng) ’90 20 Giovani Lo Celso PSG (Fra) ’96 23 Willy Caballero Chelsea (Eng) ’81 17 Nicolás Otamendi Man. City (Eng) ’88 22 Cristian Pavón Boca Juniors ’96 18 Eduardo Salvio Benfica (Por) ’90 Varnarmenn: Sóknarmenn: 2 Gabriel Mercado Sevilla (Spá) ’87 Miðjumenn: 9 Gonzalo Higuaín Juventus (Ít) ’87 3 Nicolás Tagliafico Ajax (Hol) ’92 5 Lucas Biglia AC Milan (Ít) ’86 10 Lionel Messi Barcelona (Sp) ’87 4 Cristian Ansaldi Torino (Ít) ’86 7 Éver Banega Sevilla (Sp) ’88 19 Sergio Agüero Man.City (Eng) ’88 6 Federico Fazio Roma (Ít) ’87 11 Ángel Di María PSG (Fra) ’88 21 Paulo Dybala Juventus (Ít) ’93 Lið Argentínu Þjálfari: Jorge SampaoliTrúa að allt sé mögulegt með Messi í liðinu AFP Argentína Hinn efnilegi Giovani Lo Celso er kominn í stórt hlutverk hjá Argentínumönnum en sem fyrr er Lionel Messi aðalstjarna liðsins.  Argentína tapaði þremur úrslita- leikjum í röð og spurningum ósvarað Aleksandar Holiga Telesport twitter.com/AlexHoliga Þó að færa megi góð rök fyrir því að 4-3-3 henti leikmannahópi króatíska landsliðsins betur, hefur Króatía haldið sig við 4-2-3-1 leikkerfið – sem getur breyst snögglega í 4-4-2 með tígulmiðju. Þjálfari liðsins, Zlatko Dalic, gerði miklar breyt- ingar strax eftir að hann tók við lið- inu (tveimur dögum fyrir leikinn mikilvæga gegn Úkraníu í und- ankeppninni) með því að færa Luka Modric í sóknartengiliðinn, stöðu sem hann hefur ekki spilað í langan tíma. Modric-Rakitic-vandamálið varð fyrirrennara Dalic að falli. Honum tókst ekki að ná því besta út úr leikstjórnunarhæfileikum þeirra saman á miðjunni. Þessi lausn nýja þjálfarans borgaði sig í Kiev og í umspilsleikjunum við Grikki. Króatía hefur að undanförnu treyst of mikið á hæfileika Modric. Áður skipulagði hann spilið aft- arlega á vellinum og bar auk þess mikla ábyrgð í varnarleik. Sá sem spilaði fyrir framan hann – yfirleitt Rakitic, Marcelo Brozovic eða Ma- teo Kovacic – gaf sjaldan úr- slitasendingar á sóknarþriðj- ungnum. Króatar sóttu þess í stað aðallega upp kantana sem er skrítið í ljósi þess að liðið er stútfullt af hæfileikaríkum miðjumönnum. Þegar Modric spilar framar á vellinum hefur hann mun minni tíma og pláss á boltann og send- ingatölfræði hans er ekki nærri því eins góð og áður. En kostirnir eru sennilega fleiri en gallarnir. Dalic vonar að klókindi hans og hreyf- ingar muni gera liðið beinskeyttara fyrir framan markið. Rakitic verður núna að spila aftar og taka meiri þátt í varnarleiknum og vonandi koma boltanum fram völlinn. Áhrif- in eru einnig þau að það er ekkert pláss fyrir Brozovic eða Kovacic. Þar sem Dalic hefur engan eig- inlegan varnarsinnaðan miðjumann þarf hann í staðinn einhvern sem getur gefið liðinu meira jafnvægi. Milan Badelj passar betur í það hlutverk en nokkur annar. Danijel Subasic á fast sæti í liðinu í markinu, með Sime Vrsaljko og líklega Ivan Strinic í bakvarðastöð- unum. Domagoj Vida, Dejan Lovren og Vedran Corluka munu keppa um miðvarðastöðurnar. Corluka hafði áður forskot á þá vegna reynslu sinnar en hann hefur verið meiddur undanfarið. Minni hraði og stökk- kraftur hjálpar heldur ekki til. En þrátt fyrir að Króatar muni líklega ekki spila framarlega á vellinum eru Vida og Lovren öruggara val eins og staðan er í dag. Króatar sækja yfirleitt meira upp hægri vænginn heldur en þann vinstri. Hægri bakvörðurinn Vrsaljko er sókndjarfur og væng- maðurinn – hvort sem það er And- rej Kramaric, Mario Mandzukic eða einhver annar kemur inn á völlinn. Modric mun líka koma inn í þetta svæði þar sem Króatía leitast við að ná góðum tökum á ákveðnum svæð- um á vellinum. Vinstri bakvarð- arstaðan hefur oft verið álitin veikur hlekkur og hafa margir andstæð- ingar reynt að nýta sér það. Þótt það sé satt og rétt að Króatar hafi engan vinstri bakvörð í fremstu röð er þetta líka spurning um að fylla upp í plássið sem Ivan Perisic skilur eftir sig. Inter Mílanó-leikmaðurinn, sem er ýmist fremstur á miðjunni eða hefðbundinn kantmaður, skilar lítilli varnarvinnu og skilur liðs- félaga sína oft eftir berskjaldaða. Þrátt fyrir að hafa staðið sig illa í undanförnum leikjum og samkeppni frá ungum leikmönnum eins og Ante Rebic og Marko Pjaca, mun Perisic að öllum líkindum halda sæti sínu í liðinu. Kramaric og Mandzu- kic eru líklegir til að skipta reglu- lega um stöður í sókninni sem þýðir að framherjastaðan er annaðhvort skipuð sterkbyggðum senter (Mandzukic), eða hreyfanlegri sókn- armanni (Kramaric). Nikola Kalinic er næstur í goggunarröðunni í fram- línunni. Hvernig svo sem Króatar stilla sóknarmönnum sínum upp verður meðalaldur byrjunarliðsins í kring- um þrítugt, sem gerir liðið eitt það elsta í heimsmeistarakeppninni. Líklegt byrjunarlið: Subasic – Vrsaljko, Vida, Lovren, Strinic – Badelj, Rakitic – Kramaric, Modric, Perisic – Mandzukic. Markverðir: 13 Tin Jedvaj Leverkusen (Þýs) ’95 14 Filip Bradaric Rijeka ’92 1 Dominik Livakovic D.Zagreb ’95 15 Duje Caleta-Car Salzburg (Aust) ’96 19 Milan Badelj Fiorentina (Ít) ’89 12 Lovre Kalinic Gent (Bel) ’90 21 Domagoj Vida Besiktas (Tyr) ’89 23 Danijel Subasic Mónakó (Fra) ’84 22 Josip Pivaric D.Kiev (Úkr) ’89 Sóknarmenn: 4 Ivan Perisic Inter (Ít) ’89 Varnarmenn: Miðjumenn: 9 Andrej Kramaric Hoffenheim (Þýs) ’91 2 Sime Vrsaljko Atlético M. (Sp) ’92 7 Ivan Rakitic Barcelona (Sp) ’88 16 Nikola Kalinic Milan (Ít) ’88 3 Ivan Strinic Sampdoria (Ít) ’87 8 Mateo Kovacic Real Madrid (Sp) ’94 17 Mario Mandzukic Juventus (Ít) ’86 5 Vedran Corluka Lok.Moskva (Rús) ’86 10 Luka Modric Real Madrid (Sp) ’85 18 Ante Rebic E.Frankfurt (Þýs) ’93 6 Dejan Lovren Liverpool (Eng) ’89 11 Marcelo Brozovic Inter (Ít) ’92 20 Marko Pjaca Schalke (Þýs) ’95 Lið Króatíu Þjálfari: Zlatko DalicBeinskeyttari með Modric framar AFP Króatía Luka Modric og Aron Einar Gunnarsson þekkjast vel eftir marga leiki liðanna undanfarin ár. Modric er sem fyrr lykilmaður hjá Króötum.  Zlatko Dalic leysti vandamál Króata með því að breyta til á miðjunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.