Morgunblaðið - 13.06.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
25
E-riðill KOSTARÍKA
E-riðill SERBÍA
Marco Marín
La Nación
www.nacion.com/puro-deporte
Eftir að hafa komið skemmtilega á
óvart á HM í Brasilíu mun Kostaríka
leitast við að endurtaka leikinn með
sömu formúlu. Kostaríka hefur leik-
ið varnarsinnaða knattspyrnu síðan
Jorge Luis Pinto tók við liðinu og
leiddi það í átta liða úrslit í Brasilíu.
Pinto er ekki lengur við stjórnvölinn.
Nú er það Óscar Ramírez, fyrrver-
andi landsliðsmaður sem var hluti af
sögufrægu Kostaríkaliði sem komst
í útsláttarkeppnina á HM á Ítalíu
1990.
Ramírez hefur rifið síðu úr
kennslubók Pinto og haldið sig við
hið hefðbundna 5-4-1 kerfi sem virk-
aði svo vel fyrir Kostaríka fyrir fjór-
um árum, jafnvel þótt hann segi að
liðið breyti yfir í 3-4-3 þegar það er
með boltann. Möguleikarnir á því að
Kostaríka spili með sama leik-
skipulag og „Draumalið Barcelona“
hjá Johan Cruyff eru jafn miklir og
að Marokkó endi sem heimsmeist-
ari. Þetta þýðir það að Kostaríka
verður í fámennum hópi liða sem
kemur til með að stilla upp fimm
manna varnarlínu fyrir framan
markið sitt sem er varið af stærstu
stjörnu liðsins, Keylor Navas.
Frá fremsta manni til þess aftasta
mun Kostaríka sennilega byrja með
leikmann Los Angeles, Marco
Urena einan frammi. Í því kerfi sem
Ramírez notast við er Urena ekki
beðinn um að pressa á varnarmenn-
ina. Hans helsta verkefni verður að
nota hraða sinn og skapa tækifæri
fyrir Christian Bolanos og Bryan
Ruiz til þess að senda skásendingar
inn fyrir varnarlínuna á hann. Vara-
maður hans er Joel Campbell, sem
nú spilar með Real Betis, en hann er
að koma til baka eftir að hafa verið
meiddur í nokkra mánuði. Stuðn-
ingsmenn Arsenal vita vel hvað hann
getur gert í toppstandi.
Á miðjunni hafa miðjumennirnir
David Guzmán og Celso Borges það
hlutverk að sinna varnarvinnunni.
Hlutverk Borges felst í því að tengja
spilið milli varnar og sóknar, ásamt
Ruiz and Bolanos, en verður að skila
sér til baka og verjast ef þess þarf.
Þó að Guzmán sé mun betri að koma
af stað sóknum heldur en Yeltsin
Tejeda var fyrir fjórum árum þá er
hans helsta hlutverk að vinna bolt-
ann. Þessum tveim er ætlað að kom-
ast inn í langar sendingar og setja
nógu mikla pressu á andstæðingana
til þess að hægja á þeim. Ruiz og
Bolanos munu sjá um sóknarleikinn.
Ruiz er hæfileikaríkari og getur
haldið boltanum á meðan vængbak-
verðirnir færa sig fram völlinn og
taka framhjáhlaup sem skapa fleiri
sóknarmöguleika. Bolanos vill koma
inn á völlinn og skjóta. Það er samt
stórt spurningarmerki með lík-
amlegt ástand hans, sérstaklega þar
sem hann ökklabrotnaði í mars. Ef
hann verður ekki heill er líklegast að
Daniel Colindres verði í liðinu í hans
stað. Colindres, sem spilar yfirleitt
framar á vellinum, ætti ekki að lenda
í vandræðum með að leysa Bolanos
af hólmi. Fjarvera hans mun þó þýða
minni gæði og reynslu í liðinu.
Í vörninni hefur Kostaríka viljað
spila Cristian Gamboa og Bryan
Oviedo í hægri og vinstri bak-
varðastöðunum. Oviedo mun taka
þátt í sinni fyrstu heimsmeist-
arakeppni eftir að hafa misst af síð-
ustu keppni vegna fótbrots. Hraði
þeirra nýtist vel í skyndisóknum, en
þessir tveir verða að spila sem
vængbakverðir frá vítateig til víta-
teigs ef Kostaríka ætlar að eiga
möguleika að komast upp úr riðla-
keppninni. Miðvarðastöðurnar þrjár
verða skipaðar þeim Giancarlo
González með Óscar Duarte vinstra
megin og Johnny Acosta hægra
megin. González og Duarte eru hefð-
bundnir miðverðir og síðan HM í
Brasilíu 2014 hafa þeir bætt sig gríð-
arlega. Það er erfiðara að skilja
hvers vegna Acosta sem er lágvax-
inn og gamall kemst í byrjunarliðið á
HM. En Ramírez treystir honum til
að koma skilaboðum sínum til skila á
vellinum, sem er ástæðan fyrir því
hvers vegna hann var valinn í síðasta
skipti á alþjóðlegt knattspyrnumót.
Það þarf ekki að eyða mörgum
orðum í markmannsstöðuna. Keylor
Navas, sem var vanmetinn fyrir fjór-
um árum með Levante, er nú fastur
maður í byrjunarliði Real Madrid.
Líklegt byrjunarlið: Navas – Oviedo,
Duarte, González, Acosta, Gamboa –
Guzmán, Borges, Bolanos, Ruiz –
Urena.
Markverðir: 8 Bryan Oviedo Sunderland (Eng) ’90 10 Bryan Ruiz Sporting (Port) ’85
1 Keylor Navas Real Madrid (Sp) ’86 15 Francisco Calvo Minnesota (Ban) ’92 13 Rodney Wallace New York (Ban) ’88
18 Patrick Pemberton Alajuelense ’82 16 Cristian Gamboa Celtic (Skot) ’89 14 Randall Azofeifa Herediano ’84
23 Leonel Moreira Herediano ’90 19 Kendall Waston Vancouver (Kan) ’88 17 Yeltsin Tejeda Lausanne (Svi) ’92
22 Rónald Matarrita New York (Ban) ’94 20 David Guzmán Portland (Ban) ’90
Varnarmenn:
2 Johnny Acosta Rionegro (Kól) ’83 Miðjumenn: Sóknarmenn:
3 Giancarlo González Bologna (Ít) ’88 5 Celso Borges La Coruna (Sp) ’88 11 Johan Venegas Dep.Saprissa ’88
4 Ian Smith Norrköping (Sví) ’98 7 Christian Bolanos Dep. Saprissa ’84 12 Joel Campbell Real Betis (Sp) ’92
6 Óscar Duarte Espanyol (Sp) ’89 9 Daniel Colindres Dep.Saprissa ’85 21 Marcos Urena Los Angeles (Ban) ’90
Lið Kostaríka Þjálfari: Óscar RamírezFreista þess
að endurtaka
ævintýrið
AFP
Kostaríka Keylor Navas er aðalmarkvörður Real Madrid en félagið keypti
hann eftir að Navas sló í gegn með Kostaríka á HM í Brasilíu árið 2014.
Kostaríka komst í 8-liða úrslit í
Brasilíu á varnarleik og Keylor Navas
Milos Markovic
Sportske.net
twitter.com/MiloseMarkovicu
Serbía snýr aftur á heimsmeist-
aramótið eftir nokkurra ára fjarveru.
Augu landsmanna hvíla á stjörnum
prýddu liði Mladen Krstajic. Liðið
hefur sýnt ákveðin veikleikamerki á
undanförnum árum og verið afar brot-
hætt þegar á móti blæs en stuðnings-
menn liðsins vonast nú til þess að það
sé að baki.
Serbar mæta til Rússlands stað-
ráðnir í að gera betur en á HM 2010.
Liðið var frábært í undankeppninni og
vann sinn riðil undir stjórn Radomir
Antic, þrátt fyrir að vera með Frökk-
um í riðli. Gengi liðsins á lokamótinu
var hins vegar afleitt og endaði það í
neðsta sæti D-riðils. Liðsandinn í
hópnum var dapur, menn skorti
ákveðni og festu og þá var frammi-
staðan einfaldlega ekki nægilega góð.
Átta árum síðar vonast Serbar til
þess að gera betur en í Suður-Afríku.
Liðið vann sinn riðil í undankeppninni
og Serbar hafa sýnt að þeir geta keppt
við bestu lið heims þegar þannig ligg-
ur á þeim.
Það er hins vegar fátt sem bendir
til þess að liðið muni gera stóra hluti í
Rússlandi, ef tekið er mið af spila-
mennsku þess í undanförnum leikj-
um. Serbar voru á góðri leið með að
vinna D-riðil undankeppninnar með
yfirburðum en liðið gaf mikið eftir á
lokasprettinum. Liðsval þjálfarans
var harðlega gagnrýnt og þá settu
margir stuðningsmenn spurn-
ingamerki við leikskipulagið. Slavol-
jub Muslin, fyrrverandi þjálfari liðs-
ins, var að lokum rekinn og við tók
Mladen Krstajic, aðstoðarmaður
hans, þrátt fyrir að liðið hefði á end-
anum komist beint í lokakeppnina.
Krstajic, fyrrverandi varnarmaður
Werder Bremen, lét strax til sín taka
og ákvað að breyta um leikkerfi.
Hann byrjaði á því að kalla Sergej
Milinkovic-Savic inn í hópinn en
Muslin hafði ekki áhuga á því að velja
hann þar sem honum fannst hann of
villtur. Það truflaði Krstajic hins veg-
ar lítið og ætlar hann honum stórt
hlutverk í liðinu um ókomin ár. „Það
verður alltaf pláss fyrir okkar bestu
leikmenn í hópnum hjá mér. Sergej
Milinkovic-Savic hefur sýnt það og
sannað að það er hægt að treysta á
hann og hann er sá leikmaður sem við
viljum byggja liðið í kringum í fram-
tíðinni,“ sagði þjálfarinn.
Savic er þekktur undir nafninu lið-
þjálfinn á Ítalíu og ákvað Krstiac að
fara með landslið Serba í æfingaferð
til Asíu til þess að sýna fram á að Mil-
inkovic-Savic gæti spilað á miðjunni
með þeim Nemanja Matic, miðju-
manni Manchester United og Luka
Milivojevic, fyrirliða Crystal Palace.
Milinkovic-Savic lagði upp mark
fyrir Adem Ljalic, framherja Serba, í
1:1 jafntefli gegn Suður-Kóreu en
hann sýndi það í æfingaferðinni að
hann mun gegna veigamiklu hlut-
verki hjá liðinu í Rússlandi.
Þá hefur nýr þjálfari liðsins breytt
um leikkerfi og farið úr 3-4-3 kerfinu
sem Muslin notaði nánast alla und-
ankeppnina. Krstajic hefur breytt
vörn liðsins, sem hefur verið burðar-
ásinn í leik liðsins, undanfarin ár. Bú-
ist var við því að þeir Branislav Iv-
anovic og Aleksander Kolorov myndu
leiða þriggja manna vörnina fyrir mót
en Krstajic er sagður ætla að notast
við 4-2-3-1 leikkerfið og spila með
fjögurra manna varnarlínu. Hann
hefur einnig gert Kolarov að fyrirliða
liðsins sem hefur komið mörgum á
óvart en Ivanovic var fyrirliði í und-
ankeppninni.
Krstajic mun ekki hreyfa mikið við
framlínunni en Aleksander Mitrovic
hefur verið frábær með Fulham á
þessu ári. Þessi sóknarmaður New-
castle hefur gengið í endurnýjun líf-
daga hjá Fulham þar sem hann er á
láni og hann gæti orðið stærsta ógn
Serba í Rússlandi. Hann gæti verið
púslið sem bindur allt saman og virki-
lega gert andstæðingum sínum lífið
leitt fram á við, eitthvað sem Serba
hefur vantað undanfarin ár á stærsta
sviðinu.
Líklegt byrjunarlið: Stojkovic –
Rukavina, Ivanovic, Tosic, Kolarov –
Matic, Milivojevic – Tadic,
Milinkovic-Savic, Ljajic – Mitrovic.
Markverðir: 11 Aleksandar Kolarov Roma (Ít) ’85 17 Filip Kostic Hamburger (Þýs) ’92
1 Vladimir Stojkovic Partizan ’83 13 Milos Veljkovic Bremen (Þýs) ’95 20 Sergej Milinkovic-Savic Lazio (Ít) ’95
12 Predrag Rajkovic Mac.Tel-Aviv (Ísr) ’95 14 Milan Rodic Rauða stjarnan ’91 21 Nemanja Matic Man.Utd (Eng) ’88
23 Marko Dmitrovic Eibar (Sp) ’92 15 Nikola Milenkovic Fiorentina (Ít) ’97 22 Adem Ljajic Torino (Ít) ’91
Varnarmenn: Miðjumenn: Sóknarmenn:
2 Antonio Rukavina Villarreal (Sp) ’84 4 Luka Milivojevic Cr.Palace (Eng) ’91 8 Aleksandar Prijovic PAOK (Gri) ’90
3 Dusko Tosic Besiktas (Tyr) ’85 7 Andrija Zivkovic Benfica (Por) ’96 9 Aleksandar Mitrovic Fulham (Eng) ’94
5 Uros Spajic Anderlecht (Bel) ’93 10 Dusan Tadic Southampton (Eng) ’88 18 Nemanja Radonjic Rauða stjarnan ’96
6 Branislav Ivanovic Zenit (Rús) ’84 16 Marko Grujic Cardiff (Wal) ’96 19 Luka Jovic E. Frankfurt (Þýs) ’97
Lið Serbíu Þjálfari: Mladen KrstajicSerbar mæta
með nýjan
þjálfara á HM
AFP
Serbía Aleksandar Mitrovic sló í gegn með Fulham í ensku B-deildinni í
vetur og hann hefur skorað sextán mörk í 37 landsleikjum fyrir Serba.
Krstajic hefur breytt mörgu hjá
Serbum sem þó unnu sinn undanriðil