Morgunblaðið - 13.06.2018, Side 27

Morgunblaðið - 13.06.2018, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 27 F-riðill SVÍÞJÓÐ F-riðill SUÐUR-KÓREA Olof Lundh Fotbollskanalen.se twitter.com/oloflundh Það var engin pressa á Svíum að kom- ast á lokamót HM í Rússlandi. Zlatan Ibrahimovic lagði landsliðsskóna á hilluna eftir EM 2016 og liðið lenti í riðli með Frökkum og Hollendingum í undankeppni HM. Svíar enduðu hins vegar í öðru sæti riðilsins og unnu svo Ítalíu í umspili um laust sæti á HM. Spilamennskan var ekki sú falleg- asta í leikjunum gegn Ítalíu en hún var árangursrík og það er óhætt að segja að Svíar hafi unnið hug og hjörtu stuðningsmannanna á nýjan leik. Í mörg ár snérist allt um Zlatan hjá sænska landsliðinu en í dag minn- ir liðið um margt á sænska liðið sem komst á hvert stórmótið á fætur öðru eftir aldamótin. Árangurinn kom á óvart Á þeim tíma voru þrír leikmenn liðsins í sérflokki. Zlatan Ibrahimovic, Fredrik Ljungberg og Henrik Lars- son. Í dag er einungis einn leikmaður í liðinu sem hægt er að setja í þann flokk og það er Emil Forsberg, leik- maður RB Leipzig. Árangur liðsins hefur komið mörgum á óvart og því hefur verið vel fagnað í Svíþjóð. Að sjá miðvörðinn Andres Granqvist (sem náði ekki að slá í gegn hjá Wig- an á sínum tíma) og miðjumanninn Seb Larsson (sem spilaði eitt sinn í ensku úrvalsdeildinni en er í dag hjá Hull City í ensku B-deildinni) stand- ast Ítölunum snúning í umspilsleikj- unum var frábær sjón. Öflug vörn í undankeppninni Í undankeppninni var helsti styrk- leikur liðsins varnarleikurinn með þá Granqvist og Victor Lindelöf, leik- mann Manchester United, í hjarta varnarinnar. Granqvist var leiðtogi liðsins og hann var valinn leikmaður ársins í Svíþjóð 2017, sá fyrsti fyrir utan Zlatan til þess að hreppa verð- launin í ellefu ár en Zlatan hafði verið valinn leikmaður ársins í Svíþjóð frá árinu 2006. Eini veikleikinn í vörninni er vinstri bakvarðarstaðan en Svíar lentu stundum í vandræðum þar í undankeppninni. Forsberg er mjög sóknarsinnaður leikmaður og það var oft tvöfaldað mikið á Ludwig August- insson. Í sóknarleiknum hefur það reynst liðinu mikilvægt að koma boltanum á Ola Toivonen sem er duglegur að koma til baka og fá boltann. Hann er góður í að finna sóknarmenn liðsins í fætur, þá Forsberg og Marcus Berg sem eru duglegir að stinga sér aftur fyrir varnir andstæðinganna. Kant- menn Svía hafa líka verið duglegir að draga sig inn á miðsvæðið og opna þannig kantana fyrir bakvörðum liðs- ins og Janne Andersson þjálfari hefur fullkomnað þá leikaðferð hjá liðinu. Skortir sköpunargáfu Svía skortir hins vegar sköp- unargáfu á miðsvæðið, sérstaklega þegar Albin Ekdal, miðjumaður Hamburger hefur ekki verið með vegna meiðsla en hann var mikið meiddur í undankeppninni. Þótt fram- herjar liðsins, þeir Toivonen og Berg sé ekki með sama sjarma og Zlatan þá þekkja þeir hvor annan vel. Þeir hafa spilað saman með yngri landsliðum Svía frá 14 ára aldri og það sést á leik þeirra saman. „Við vinnum eftir ákveðinni heim- speki og það breytist ekki, sama á móti hverjum við erum að spila. Við þurfum að undirbúa okkur vel, vera skipulagð- ir og vera með einstaklega gott viðhorf í Rússlandi,“ sagði Andersson. Líklegt byrjunarlið: Olsen – Lustig, Lindelöf, Granqvist, Augustinsson – Claesson, Ekdal, Larsson, Forsberg – Toivonen, Berg. Markverðir: 6 Ludwig Augustinsson Bremen (Þýs) ’94 15 Oscar Hiljemark Genoa (Ít) ’92 1 Robin Olsen Köbenhavn (Dan) ’90 14 Filip Helander Bologna (Ít) ’93 17 Victor Claesson Krasnodar (Rús) ’92 12 Karl Johnsson Guingamp (Fra) ’90 16 Emil Krafth Bologna (Ít) ’94 19 Marcus Rohdén Crotone (Ít) ’91 23 Kris Nordfeldt Swansea (Wal) ’89 18 Pontus Jansson Leeds (Eng) ’91 21 Jimmy Durmaz Toulouse (Fra) ’89 Varnarmenn: Miðjumenn: Sóknarmenn: 2 Mikael Lustig Celtic (Skot) ’96 7 Sebatian Larsson Hull (Eng) ’85 9 Marcus Berg Al Ain (S.Fur) ’86 3 Victor Lindelöf Man.Utd (Eng) ’94 8 Albin Ekdal Hamburger (Þýs) ’89 11 John Guidetti Alavés (Sp) ’92 4 Andreas Granqvist Krasnodar (Rús) ’85 10 Emil Forsberg Leipzig (Þýs) ’91 20 Ola Toivonen Toulouse (Fra) ’86 5 Martin Olsson Swansea (Wal) ’88 13 Gustav Svensson Seattle (Ban) ’87 22 Isaac Thelin Waas-Beveren (Bel) ’92 Lið Svíþjóðar Þjálfari: Janne AnderssonSvíarnir eru öðruvísi án Zlatans AFP Svíþjóð Albin Ekdal er miðjumaður með mikla reynslu en hann hefur spilað á þriðja hundrað leiki í efstu deildum Þýskalands og Ítalíu.  Emil Forsberg er sá eini sem kemst nálægt gömlu sænsku stjörnunum Seo Hyung-wook Footballist twitter.com/minariboy Vegna framherjaleysis og leik- mannahóps sem á í vandræðum með að passa inn í kerfi Shin Tae- young, mun Suður-Kórea treysta á góða frammistöðu frá Son Hueng- min og Ki Sung-yueng til þess að komast upp úr riðlinum. Suður-Kóreubúar spiluðu 4-2-3-1 lengst af í undankeppninni. En eft- ir að þeir komust áfram reyndi Shin Tae-Yong að búa til sitt eigið kerfi fyrir úrslitakeppnina. Hann vill helst að þrír öftustu séu hreyf- anlegir og tveir framherjar en þetta kerfi virðist ekki virka því Suður-Kórea hefur verið í vand- ræðum með að finna leikmenn í kerfið. Son væntanlega frammi Kóreubúar treysta á stutt sam- spil á sóknarþriðjungnum. Þrátt fyrir að þeir hafi ekki góða fram- herja hafa þeir framliggjandi miðjumenn og kantmenn sem hafa verið að spila vel á borð við Son Heung-min, Lee jae-sung og Hwan Hee-chan. Shin þjálfari hefur fyrirætlanir um að gera Son að framherja, sem er staða sem hann hefur sýnt fram á að geta leyst hjá Tottenham þeg- ar Harry Kane hefur verið meidd- ur. Ki stjórnar liðinu Son og Ki Sung-yueng, sem spila í ensku úrvalsdeildinni, eru mik- ilvægustu leikmenn liðsins. Fyr- irliðinn, Ki, er vélin í liðinu og býr yfir klókindum og reynslu sem litlu liðin þurfa á að halda. Það má vera að hann sé hávaxinn og hægur, en hann hefur góða yfirsýn og ná- kvæmar sendingar. Hvort sem hann spilar sem varnarsinnaður miðjumaður eða framar á miðjunni gefur hann liðinu líf. Án hans væri Suður-Kórea lélegasta liðið í Rúss- landi. Eins og sást í undankeppninni er Ki miðpunkturinn í liðinu. En Son er stærsta fótboltastjarnan. Hann sýndi fram á getu sína með Totten- ham á þessari leiktíð og hefur skorað mikilvæg mörk fyrir lands- liðið. Vegna skorts á framherjum mun Suður-Kórea treysta á að Son muni blómstra í lokakeppninni í Rússlandi. Líklegt byrjunarlið: Kim Seung-gyu – Go Yo-han, Jang Hyun-soo, Kim Yeung-gwon, Kim Min-woo – Lee Jae-sung, Ki Sung-yueng, Park Joo-ho, Lee Seung-woo – Son Heung-min, Hwang Hee-chan. Markverðir: 6 Park Joo-ho Ulsan ’87 13 Koo Ja-cheol Augsburg (Þýs) ’89 1 Kim Seung-gyu Vissel (Jap) ’90 12 Kim Min-woo Sangju ’90 15 Jung Woo-young Vissel (Jap) ’89 21 Kim Jin-hyeon Cerezo (Jap) ’87 14 Hong Chul Sangju ’90 16 Ki Sung-yueng Swansea (Wal) ’89 23 Cho Hyeon-woo Daegu ’91 19 Kim Young-gwon Guangzhou E. (Kína) ’90 17 Lee Jae-sung Jeonbuk ’92 20 Jang Hyun-soo Tokyo (Jap) ’91 18 Moon Seon-min Incheon ’92 Varnarmenn: 22 Go Yo-han Seoul ’88 2 Lee Yong Jeonbuk ’86 Sóknarmenn: 3 Jung Seung-hyun Sagan (Jap) ’94 Miðjumenn: 7 Son Heung-min Tottenham (Eng) ’92 4 Oh Ban-suk Jeju United ’88 8 Ju Se-jong Asan Mugunghwa ’90 9 Kim Shin-wook Jeonbuk ’88 5 Yun Young-sun Seongnam ’88 10 Lee Seung-woo Verona (Ít) ’98 11 Hwang Hee-chan Salzburg (Aust) ’96 Lið Suður-Kóreu Þjálfari: Shin Tae-yongSon og Ki eru burðarásar í Suður-Kóreu AFP Suður-Kórea Son Heung-min fyrirliði Suður-Kóreu og leikmaður Tottenham fagnar marki gegn Hondúras.  Ki frá Swansea er vélin í liðinu og Son frá Tottenham er stjarnan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.