Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
28
G-riðill BELGÍA
G-riðill ENGLAND
Krisstof Terreur
Het Laaste Nieuws
twitter.com/HLNinEngeland
Kevin De Bruyne kemur yfirleitt til
dyranna eins og hann er klæddur.
Eftir 3:3-jafntefli við Mexíkó í mögn-
uðum leik gagnrýndi hann Roberto
Martínez þjálfara vegna þess að
Belgar höfðu ekki jafnmikla yfirburði
og þeir voru vanir að hafa.
„Mexíkóar voru taktískt betri en
við,“ sagði hann. „Þeir þrýstu væng-
bakvörðunum okkar aftar á völlinn
og við vorum í vandræðum á miðj-
unni, við vorum alltaf fimm á móti
sjö.“
Þetta voru orð sigurvegara, en
einnig áhyggjufulls leikmanns, sem
var hræddur um að svipaðir hlutir
myndu gerast á HM ef þeir mættu
liðum með þrjá miðjumenn á mið-
svæðinu. Þetta er akkilesarhæll liðs-
ins, ásamt varnarvinnu væng-
bakvarðanna.
Þetta á sérstaklega við um Yann-
ick Carrasco, vinstri bakvörðinn í 3-
4-3-kerfinu, sem er veikur hlekkur og
á það til að gleyma varnarskyldum
sínum. Það fellur því oft á þrjá öft-
ustu varnarmennina, Toby Alderwei-
reld, Vincent Kompany og Verton-
ghen – með Thomas Vermaelen til
vara – að fylla upp í stöðuna hans.
Fyrir utan Vertonghen hafa þeir allir
átt í vandræðum með meiðsli í vöðv-
um og mun heilsa þeirra og form vera
lykilatriði fyrir Belga ef þeir ætla sér
langt á HM.
Liðið hans Martínez flaug í gegn-
um undanriðlana og setti met, skor-
aði 43 mörk í níu sigurleikjum. Samt
vita þeir varla hvar þeir standa þar
sem þeir hafa tæplega fengið neina
alvöruprófraun í tvö ár.
Á síðasta tímabili spilaði De
Bruyne stórkostlega með Manchest-
er City þar sem hann lék aftar á vell-
inum en oft áður. Martínez hefur
einnig ýtt honum aftar á völlinn með
landsliðinu. Í staðinn fyrir að leika á
kanti eða sem sóknartengiliður spilar
hann aftar á miðjunni með hinum ag-
aða Axel Witsel, sem hefur þrátt fyrir
að hafa farið til Kína haldið sæti sínu
á undan Mousa Dembélé og Radja
Nainggolan, sem komst ekki einu
sinni í lokahópinn.
„Við höfum séð mikla þróun,“ út-
skýrði Martínez. „Þegar þú hefur Ke-
vin þar sem hann getur náð löngu
sendingunni gerir það þér kleift að
setja fimm leikmenn framarlega á
völlinn sem hann getur fundið. Hann
er nútímaleikstjórnandi og við högn-
umst á því að hafa hann með boltann.
Kerfið hefur virkað vel fyrir okkur í
undankeppninni.“
Nýtt hlutverk De Bruynes hefur
veitt fyrirliðanum Eden Hazard auk-
ið frelsi. Hazard spilaði afar vel í und-
ankeppninni og skoraði sex mörk og
lagði upp fimm. Romelu Lukaku var
einnig í stuði og skoraði 11 mörk.
Hann er langfyrsti kostur Martínez í
framlínunni, með Michy Batshuayi,
sem á við meiðsli að stríða, til vara.
Dries Mertens, sem spilar sem „fölsk
nía“ með Napoli, leikur hægra megin
í framlínunni. Þessi staða hentar hon-
um ekki eins vel og því tekst honum
ekki að hafa eins mikil áhrif á leikina
og hann gerir með félagsliði sínu.
Landslið Belgíu hefur ekki verið
almennilega prófað síðan það mætti
Spáni í vináttuleik sem var fyrsta
verkefni Martínez. Í þeim leik tókst
Belgum varla að snerta boltann og
vissu ekki hvernig þeir áttu að bregð-
ast við. Rauðu djöflarnir gætu skorað
mikið af mörkum í Rússlandi, vanda-
málið er að þeir gætu fengið mörg
mörk á sig líka.
Líklegt byrjunarlið: Courtois –
Alderweireld, Kompany, Vertonghen
– Meunier, Witsel, De Bruyne, Car-
rasco – Mertens, Lukaku, E. Hazard.
Markverðir: 15 Thomas Meunier PSG (Fra) ’91 17 Youri Tielemans Mónakó (Fra) ’97
1 Thibaut Courtois Chelsea (Eng) ’92 20 Dedryck Boyata Celtic (Skot) ’90 19 Moussa Dembélé Tottenham (Eng) ’87
12 Simon Mignolet Liverpool (Eng) ’88 23 Leander Dendocker Anderlecht ’95 22 Nacer Chadli WBA (Eng) ’89
13 Koen Casteels Wolfsburg (Þýs) ’92
Miðjumenn: Sóknarmenn:
Varnarmenn: 6 Axel Witsel Tianjin (Kína) ’89 9 Romelu Lukaku Man.Utd (Eng) ’93
2 Toby Alderweireld Tottenham (Eng) ’89 7 Kevin De Bruyne Man.City (Eng) ’91 10 Eden Hazard Chelsea (Eng) ’91
3 Thomas Vermaelen Barcelona (Sp) ’85 8 Marouane Fellaini Man.Utd (Eng) ’87 14 Dries Mertens Napoli (Ít) ’87
4 Vincent Kompany Man.City (Eng) ’86 11 Yannick Carrasco Dalian (Kína) ’93 18 Adnan Januzaj R.Sociedad (Sp) ’95
5 Jan Vertonghen Tottenham (Eng) ’87 16 Thorgan Hazard Gladbach (Þýs) ’93 21 Michy Batshuayi Dortmund (Þýs) ’93
Lið Belgíu Þjálfari: Roberto Martínez SpániBelgar geta
skorað en líka
fengið á sig
AFP
Belgía Kevin De Bruyne átti frábært tímabil með Manchester City og
Belgar binda miklar vonir við að hann sýni sínar bestu hliðar í Rússlandi.
De Bruyne er í nýju hlutverki en hef-
ur áhyggjur af minnkandi yfirburðum
Dominic Fifield
The Guardian
twitter.com/domfifield
Gareth Southgate, þjálfari enska
landsliðsins ,hefur verið að prófa sig
áfram með þriggja manna varnar-
línu frá haustinu 2017. Enska liðið
spilaði 4-2-3-1-kerfið nánast alla
undankeppnina og reyndist það lið-
inu vel enda vann England sinn riðil
nokkuð örugglega. Þjálfarinn er
hins vegar farinn að hallast æ meira
að 3-4-3 en enska liðið er ungt að ár-
um og telur þjálfarinn að það henti
leikmönnum liðsins betur.
Í fyrstu töldu menn að Southagate
væri að taka mikla áhættu enda eiga
enskir ekki marga heimsklassa-
miðverði. Þjálfarinn ákvað að nota
Kyle Walker sem miðvörð úti hægra
megin í þriggja manna varnarlínu og
Kieran Trippier var notaður sem
hægri vængbakvörður og sú blanda
virkaði vel. Walker kemur með mik-
inn hraða í öftustu línu enska lands-
liðsins og þá er hann mjög sóknar-
þenkjandi leikmaður. John Stones
verður að öllum líkindum í hjarta
varnarinnar og þá má reikna með
því að Harry Maguire eða Eric Dier
muni spila vinstra megin í vörninni.
Í 3-4-3-leikkerfinu nýtist hraði
vængbakvarðanna mjög vel en það
er einn helsti styrkur enska liðsins
en það verður að teljast líklegt að
Trippier muni spila hægra megin í
Rússlandi og Danny Rose, bakvörð-
ur Tottenham, verði vinstra megin.
Dier gæti hins vegar líka spilað
sem varnarsinnaður miðjumaður en
hann þekkir það hlutverk vel hjá
Tottenham. Það verður að teljast
líklegt að Southgate muni einnig
spila með tvo varnarsinnaða miðju-
menn, á einhverjum tímapunkti í
mótinu. Þegar England þarf hins
vegar að stýra sínum leikjum, gegn
Panama og Túnis sem dæmi, mun
þjálfarinn að öllum líkindum spila 3-
4-3-kerfið eða 3-5-2 með sóknar-
sinnaða miðjumenn en það eru stöð-
ur sem þeir Dele Alli, Jesse Lingard
og Ruben Loftus-Cheek geta allir
leyst. Dier myndi þá vera á miðjunni
fyrir aftan þá, eða Jordan Hender-
son sem er vænlegasti kosturinn ef
þjálfarinn ákveður að nota einn
varnarsinnaðan miðjumann.
Enska liðið skortir hins vegar af-
gerandi leikstjórnanda sem getur
búið eitthvað til frá miðsvæðinu en
Loftus-Cheek gæti leyst þá stöðu
með krafti sínum og yfirsýn. „3-4-3
gefur okkur ákveðinn stöðugleika og
það einfaldar hlutina mikið fyrir
miðjumenn okkar,“ sagði Southgate.
„Þetta gerir okkur einnig kleift að
breyta til á miðsvæðinu og í sókn-
inni. Við getum sem dæmi, í
ákveðnum leikjum, spilað með tvo
framherja og tvo miðjumenn með
einn leikstjórnanda fyrir framan þá
eða þrjá miðjumenn og tvo fram-
herja.“
Það eru margir möguleikar í boði
fyrir stjórann. Ef Harry Kane leiðir
framlínuna gæti Jamie Vardy spilað
bæði með honum í framlínunni eða
fyrir aftan hann. Hann gæti líka far-
ið þá leið að vera með sóknarsinnaða
miðjumenn fyrir aftan framherjann,
eða snögga kantmenn á vængjunum.
Hvað sem Southgate ákveður að
gera verður að teljast líklegt að Ra-
heem Sterling verði í lykilhlutverki.
Hann hefur átt frábært tímabil með
City og hélt uppteknum hætti með
enska liðinu í vináttuleikjum í mars.
„Það var gott að sjá Sterling í leik-
stjórnandahlutverkinu, við vitum
núna að hann getur leyst þessa
stöðu í 3-4-3-kefinu eins og hann
gerði svo vel gegn Frökkum á síð-
asta ári,“ sagði Southgate. Getur
Sterling hins vegar spilað sem fram-
herji eftir að hafa spilað sem kant-
maður með Manchester City allt
tímabilið?
„Hann er leikmaður sem sækir
mikið inn á miðsvæðið og frammi-
staða hans með landsliðinu minnir
mann stundum á það þegar hann
spilaði með Liverpool fyrir aftan þá
Luis Suárez og Daniel Sturridge þar
sem hann var duglegur að finna sér
pláss fyrir aftan framherjana.“
Sterling hefur hins vegar aldrei náð
að sýna sitt rétta andlit á stórmóti
með enska landsliðinu en það á ekki
bara við um hann heldur flesta leik-
menn enska liðsins. Það veltur því
mikið á því hvort Sterling verður
með sjálfstraustið í hámarki þegar
liðið hefur leik í Volgograd.
Líklegt byrjunarlið: Pickford –
Walker, Stones, Maguire – Trippier,
Lingard, Henderson, Alli, Rose –
Sterling, Kane.
Markverðir: 12 Kieran Trippier Tottenham ’90 8 Jordan Henderson Liverpool ’90
1 Jordan Pickford Everton ’94 15 Gary Cahill Chelsea ’85 20 Dele Alli Tottenham ’96
13 Jack Butland Stoke ’93 16 Phil Jones Man. Utd ’92 21 Ruben Loftus-Cheek Chelsea ’96
23 Nick Potpe Burnley ’92 17 Fabian Delph Man. City ’89
18 Ashley Young Man. Utd ’85 Sóknarmenn:
Varnarmenn: 22 Trent Alexander-Arnold Liverpool ’98 9 Harry Kane Tottenham ’93
2 Kyle Walker Man. City ’90 10 Raheem Sterling Man. City ’94
3 Danny Rose Tottenham ’90 Miðjumenn: 11 Jamie Vardy Leicester ’87
5 John Stones Man. City ’94 4 Eric Dier Tottenham ’94 14 Danny Welbeck Arsenal ’90
6 Harry Maguire Leicester ’93 7 Jesse Lingard Man. Utd ’92 19 Marcus Rashford Man. Utd ’97
Lið Englands Þjálfari: Gareth SouthgateHefur úr
mörgum kost-
um að velja
AFP
England Springur Raheem Sterling loksins út með enska landsliðinu á HM?
England heldur sig við þriggja
manna vörn og treystir á Sterling