Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
æli- & frystiklefar
í öllum stærðum
K
vissulega ekki verið eins mikið, fyrst
Ísland hefði tapað og ekki leikið vel
í seinni hálfleiknum „en þegar upp
er staðið erum við með svo gott lið,
svo góða stjórn og svo góða stuðn-
ingsmenn að mér finnst það æð-
islegt“.
Hörður sagði Rússa almennt
ótrúlega spennta fyrir íslenska lið-
inu. „Við eigum Rússland! Ísland
hefur tekið yfir Rússland; það er
bara þannig. Þessi gleði og þessi
stemning gerir það að verkum að
allir eru með okkur í liði.“
Hörður sagðist einnig hafa fylgst
með leik Argentínu og Nígeríu.
„Hann spilaðist eins vel og hann gat
fyrir okkur, það gaf okkur mikla von
að Argentína skyldi skora í lokin og
vinna, rétt áður en Króatarnir skor-
uðu aftur á móti okkur, rétt eftir að
við fengum frábært færi. En svona
er bara fótboltinn! Mér fannst Rúss-
arnir frábærir, þeir studdu okkur
svo vel og sungu með okkur í mið-
bænum, í lestinni og á gangstétt-
unum á leiðinni hingað að vellinum.
Þetta hefur verið alveg yndislegt.“
Sögðu strákana á heimavelli
Tveir Rússar, sem voru á meðal
íslensku stuðningsmannanna, vöktu
athygli blaðamanns; þeir voru með
fallegan fána þar sem var að finna
skýr skilaboð til landsliðsmannanna
þriggja sem leika með borgarliðinu
hér í Rostov. Ragnar Sigurðsson,
Sverrir Ingi Ingason og Björn
Bergmann Sigurðarson voru allir á
heimavelli.
„Verið rólegir og sigrið – þið eruð
heima,“ sagði á fánanum, þar sem
bakgrunnurinn var fánar Íslands og
Rússlands.
Auður Geirsdóttir var ekki síður
ánægð. „Ég veit varla hvað ég á
segja, þetta er svo mikil upplifun.
Þessir strákar eru algjörar hetjur,
hafa verið alveg frábærir og hafa
satt að segja komið mér á óvart.
Rússar hafa líka komið mér á óvart
en það sem skiptir mestu máli finnst
mér að fólkið sem er hér stendur
svo vel saman, stuðningsmennirnir
hér eru svo frábær heild, hver elsk-
ar ekki þessa stráka, þessa stuðn-
ingsmenn, þessa þjóð?
Auðvitað var svekkjandi að kom-
ast ekki áfram en það skiptir ekki
öllu máli. Þetta er búið að vera svo
æðislegt að mér finnst allir hetjur.“
Sigurður Sigurjónsson sagðist
ótrúlega ánægður þrátt fyrir hvern-
ig fór. „Við vorum í séns allan leik-
inn, það vantaði bara eitt mark en
þeir skoruðu í staðinn, sem var auð-
vitað leiðinlegt en leikurinn var vel
spilaður og mér fannst strákarnir
óheppnir. En stemningin var frábær
í kvöld, Tólfan var frábær, liðið var
frábært. Þetta hefur verið geggjað
ævintýri,“ sagði Sigurður.
Nú búast liðsmenn eins og stuðn-
ingsmenn til heimferðar að loknum
spennandi vikum í Rússlandi. Allir
þeir Íslendingar sem sóttu mótið
eru hins vegar sammála um að þeir
gætu vel hugsað sér að endurtaka
leikinn að fjórum árum liðnum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Innlifun Íslensku stuðningsmennirnir sungu af innlifun þegar „Ég er kominn heim“ hljómaði fyrir leik, héldu sínu fjöruga striki allt til enda og fögnuðu landsliðinu vel og innilega að leikslokum.
Þakklæti efst í huga fólks
Stuðningsmenn lýsa síðustu vikum í Rússlandi sem ævintýri Mikill stuðningur frá Rússum
Leik- og stuðningsmenn búast til heimferðar að lokinni þátttöku á fyrsta heimsmeistaramótinu
Skýr skilaboð Tveir Rostovbúar sýndu Íslendingum sem leika með liði
borgarinnar stuðning; verið rólegir og sigrið, þið eruð heima!
Auður
Geirsdóttir
Sigurður
Sigurjónsson
Hörður
Harðarson
Vígbúin Stuðningsmenn íslenska liðsins voru vígalegir á pöllunum í Rostov.
Í ROSTOV
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Þrátt fyrir að Ísland lyki keppni á
heimsmeistaramótinu í Rússlandi í
gærkvöldi, eftir naumt 2:1 tap fyrir
Króatíu, lá vel á mörgum stuðnings-
mönnum liðsins sem Morgunblaðið
ræddi við strax eftir að flautað var
til leiksloka. Fólk sagðist almennt
gríðarlega stolt af frammistöðunni.
„Stemningin var alveg geggjuð,
strákarnir stóðu sig eins og algjörar
hetjur, baráttan var ótrúleg og við
hefðum getað unnið leikinn; mér
fannst strákarnir ótrúlega óheppnir,
þeir fengu fullt af færum, fleiri en
Króatarnir. En þrátt fyrir tap og að
þeir séu dottnir út fannst mér ís-
lensku strákarnir frábærir,“ sagði
Hörður Harðarson.
Hann sagðist líka hafa séð leikinn
í Volgograd, þar sem stuðið hefði