Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk „Það er bara búið að vera stórkostlega skemmtilegt,“ segir Felix Bergsson, leikari og söngvari, í samtali við Morg- unblaðið. Felix sá um skemmtiatriði og að halda uppi stemningu í Hljómskála- garði fyrir leiki Íslands en hann söng meðal annars fyrir fólk í hálfleik í leikj- unum gegn Argentínu og Nígeríu. „ Í rauninni er mætingin alveg ótrúleg miðað við þetta veður sem við höfum haft. Þúsundir manna sem hafa mætt og bara gríðarleg stemning,“ segir Felix og bætir við: „Þetta er bara búið að vera mjög gaman.“ Felix segir að þrátt fyrir góða stemningu yfir leiknum í gær hafi fólk komið seinna í garðinn. „Fólk kom seint og það var skiljanlegt. Við leyfðum bara sjónvarpsútsending- unni að lifa og það var það sem fólk vildi. Það vildi koma saman og horfa á sjónvarpsútsendinguna, hlusta á það sem sérfræðingarnir höfðu að segja og bara njóta þess að vera saman þarna niðri í bæ.“ Skemmti fólki í garðinum Morgunblaðið/Valli Sungið Stuðningsfólk tekur undir í þjóðsöngnum.  Stórkostlegt að skemmta stuðningsfólki landsliðsins Felix Bergsson Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Ísland! klapp, klapp, klapp, Ísland! klapp, klapp,k lapp!“ Þetta og fleiri álíka baráttusöngva mátti heyra þeg- ar farið var um nágrenni Hljómskála- garðsins laust fyrir klukkan 18.00 í gær. Tilefnið var að sjálfsögðu leikur Íslands og Króatíu en allir leikir Ís- lands á HM voru sýndir á risaskjá í Hljómskálagarði. Engan bilbug var að finna á íslenska stuðningsfólkinu í garðinum þrátt fyrir sárt tap gegn Nígeríumönnum síðastliðinn föstu- dag en þó voru örlítið færri stuðn- ingsmenn mættir í garðinn en síðast. „Ég er nýbúinn að sjá byrjunar- liðið og mér líst mjög vel á hópinn. Ég held að þetta sé sterkasta liðið sem við erum með,“ sagði Brynjar Stein- þórsson, einn af stuðningsmönnum Íslands í Hljómskálagarði, fyrir leik- inn í gær. Hann var bæði vongóður og spenntur fyrir leiknum og sagðist hafa horft á síðasta leik Íslands heima í stofu en hefði mætt niður í Hljómskálagarð til að upplifa stemn- inguna þegar Ísland kæmist upp úr riðlinum. Því miður varð Brynjari og öðrum Íslendingum ekki að ósk sinni því eins og flestir vita töpuðu Íslendingar leiknum fyrir Króötum. Þorði ekki að spá í spilin „Þú færð ekki spá frá mér eins og síðast!,“ sagði Sveinn Ásgeirsson, varaformaður Tólfunnar, þegar blaða- maður náði tali af honum í hálfleik í gær. Sveinn hafði í samtali við Morg- unblaðið spáð Íslandi tvö-núll sigri í hálfleik gegn Nígeríu á föstudag en var, eins og í ljós kom, ekki sannspár þann daginn. „Við skulum vona það besta. Númer 1, 2 og 3 er að vinna þennan leik,“ sagði hann þó og hélt áfram að berja á trommur Tólfunnar. „Ég veit það ekki. Eitt-núll, tvö-núll. Við förum yfir,“ sagði annar íslenskur stuðningsmaður, aðspurður hvernig leikurinn myndi fara en fæstir vildu spá um nákvæma útkomu leiksins. „Síðasta markið braut mig niður“ Það var ekki fyrr en á síðustu mín- útum leiksins sem ljóst var að HM- ævintýri Íslendinga í þetta skipti yrði ekki lengra. Milan Badelj hafði þá gert mark fyrir Króata á 53. mínútu leiksins en Íslendingar höfðu átt mörg góð færi og héldu flestir að þeir myndu gera fyrsta markið. Bros breyttust í skeifur á gestum garðsins og mátti sjá einn stuðningsmann staulast heim á leið strax þá. Flestir héldu þó í vonina örlítið lengur og ætl- aði allt um koll að keyra þegar Gylfi Sigurðsson þrumaði knettinum í þak- netið á 76. mínútu. „Ísland! klapp, klapp, klapp,“ hófst þá á ný í bland við „húh!“ og önnur baráttuöskur. Mark Gylfa reyndist þó skamm- góður vermir því fjórtán mínútum síð- ar gerði Ivan Perisic mark fyrir Kró- ata og þar með út af við að Íslending- ar kæmust upp úr riðlinum. „Maður er gríðarlega vonsvikinn. Þetta síð- asta mark í lokin braut mig svolítið niður,“ sagði Númi Steinn Baldurs- son, einn af stuðningsmönnum Ís- lands, á leið úr Hljómskálagarði. Morgunblaðið/Valli Fimmtugur Guðni Th. Jóhannesson horfði á leikinn á Barnaspítala Hringsins áður en hann kom við í Hljómskálagarði. Hér má sjá hann fagna þegar Gylfi Sigurðsson setur boltann í netið. Döpur andlit í Hljómskálagarði  Mikil stemning var í Hljómskálagarði fyrir leik  Döpur andlit yfirgáfu garðinn  Flestir voru jákvæðir og vongóðir í hálfleik  „Sterkasta liðið sem við erum með“  „Gríðarlega vonsvikinn“ Stuðningsfólk Flestir óskuðu eftir íslenskum sigri í gær. Æiii! Dauf andlit mátti sjá um allan Hljómskálagarð í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.