Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Páll Vilhjálmsson skrifar:
Lýðræði er á fall-andi fæti, sam-
kvæmt álitsgjöfum
austan hafs og vest-
an. Trump og Pútín
eru dæmi um það,
sem og Erdogan í
Tyrklandi og Orban
í Ungverjalandi.
Ekki er allt upp tal-
ið.
William Hague,fyrrum for-
maður Íhaldsflokks-
ins breska, er einn
af mörgum sem vara við vexti og
viðgangi sterkra leiðtoga. Þeir taka
frá okkur frelsið, segir Hague.
Hague skrifar í Telegraph, sem er
hófsöm hægriútgáfa í Bretlandi.
Mest lesna greinin í Telegraph átalandi stundu er eftir dálka-
höfundinn Zoe Strimpel. Fyrir-
sögnin, í lauslegri þýðingu, er ,,Það
er enginn vafi, við búum við fjöl-
menningaralræði“. Þar er sagt frá
kvenkyns háskólakennara sem neit-
ar að kenna við háskóladeild í Cam-
bridge sökum þess að dyraverðir
ávarpa hana sem konu – madam –
en ekki ,,doktor“ eins og konan
krefst. Þetta kallar kennarinn ras-
isma og yfirgang.
Það er samhengi á milli þess að áVesturlöndum hallast kjós-
endur æ meir að sterkum leiðtogum
og hins að fjölmenningaralræðið
tekur út yfir allan þjófabálk. Væni-
sýkin stafar einkum frá frjáls-
lyndum og vinstrimönnum sem sjá
órétti í hverju horni og eru í akk-
orði að finna tilefni til að móðgast.
Alræði fjölmenningar kæfir bæði
vitsmunaumræðu og í auknum mæli
samskipti fólks. Hvað er þá betra en
að senda eins og einn Trump til
æðstu valda og láta þá vænisjúku
vita hvar Davíð keypti ölið?“
Páll Vilhjálmsson
Ástæða - afleiðing
STAKSTEINAR
William Hague
Veður víða um heim 26.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 9 súld
Akureyri 14 léttskýjað
Nuuk 4 léttskýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 24 heiðskírt
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 23 heiðskírt
Glasgow 20 skýjað
London 26 heiðskírt
París 26 heiðskírt
Amsterdam 18 heiðskírt
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 23 léttskýjað
Vín 18 skúrir
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 24 heiðskírt
Madríd 34 léttskýjað
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 21 þrumuveður
Winnipeg 24 léttskýjað
Montreal 20 léttskýjað
New York 22 skýjað
Chicago 22 þoka
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:00 24:03
ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:15 23:46
Fyrirhuguð ráðstefna um #metoo-
bylgjuna var tekin fyrir á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær. „Það liggur fyr-
ir að hluti af okkar formennskuáætl-
un í Norrænu ráðherranefndinni er
að halda alþjóðlega ráðstefnu,“ segir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra, sem vill þó helst nefna bylgj-
una #églíka. „Við viljum nýta þá sér-
stöðu sem Ísland hefur í jafnréttis-
málum, það er hlustað á rödd Íslands
í því samhengi og okkur finnst mikil-
vægt að halda áfram að nota þá rödd
Íslands til að keyra umræðuna
áfram á alþjóðavettvangi,“ segir
Katrín. „Þrátt fyrir að Ísland sé í
efsta sæti á World Economic forum
þegar kemur að kynjajafnrétti þá er
til að mynda ekki verið að mæla kyn-
bundið ofbeldi þar. Forgangsverk-
efni ríkisstjórnarinnar er að taka á
þessum málum.“ Katrín segir jafn-
framt að jafnréttismál séu hluti af
utanríkisstefnu Íslands. „Við ætlum
að reyna að gera þetta vel og nýta
okkur það að jafnréttismál eru ekki
bara mikilvæg á Íslandi heldur eru
þau líka orðin hluti af okkar utanrík-
isstefnu.“ Stefnt er á að ráðstefnan
verði haldin í september 2019 og nú
þegar er hafin leit að fyrirlesurum.
„Við viljum bjóða upp á stóran, fjöl-
breyttan hóp fyrirlesara,“ segir
Katrín. ragnhildur@mbl.is
Jafnréttismál forgangsverkefni
Ráðstefna á vegum ríkisstjórnarinnar
um #metoo haldin í september 2019
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
#metoo Katrín Jakobsdóttir vill
fremur kalla bylgjuna #églíka.
Samkvæmt nýrri
könnun MMR á
fylgi íslenskra
stjórnmálaflokka
sem gefin var út í
gær mælist Sjálf-
stæðisflokkurinn
stærstur með
stuðning um
21,6% kjósenda.
Þetta er þó
rúmra tveggja
prósenta fylgislækkun miðað við síð-
ustu könnun. Samfylkingin og Pírat-
ar eru annar og þriðji stærsti flokk-
urinn í könnuninni, með 15,1% og
14,3% fylgi. Fylgi Samfylking-
arinnar eykst örlítið miðað við fyrri
könnun en fylgi Pírata stendur í
stað. Vinstri grænir og Miðflokk-
urinn eru númer fjögur og fimm í
röðinni. Fylgi þeirra mælist 12,7%
og 10,6% en báðir flokkarnir bæta
þar við sig um hálfs prósents fylgi
frá síðustu könnun. Framsóknar-
flokkurinn fylgir á eftir með 9,5%
fylgi. Flokkur fólksins bætir hlut-
fallslega við sig mestu fylgi og
mælist með 8,2%, tæpum þremur
prósentum meira en síðast. Viðreisn
tapar hins vegar fylgi og mælist með
5,8%. Aðrir flokkar hafa 2,2% fylgi.
Alþingi Sjálfstæð-
ismenn í forystu.
Fylgi á
flakki
Sjálfstæðismenn
stærstir en tapa fylgi