Morgunblaðið - 27.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
1988 - 2018 Afmælis-
tilboð
Í tilefni 30 ára
afmælisársins verður
30%afsláttur
frá miðvikudeginum 27. júní til
miðvikudagsins 4. júlí af öllum
blússum, vestum og
jökkum
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
Misty
Skyrta 9.990 kr.
Buxur 9.990 kr.
Bolur 6.950 kr.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
„Það viðrar vel fyrir sniglana núna,
blautt og gott. Menn halda alltaf að
svona veður sé vont fyrir allt lífríkið
en það er ekki þannig,“ segir Erling
Ólafsson skordýrafræðingur.
Síðan árið 2003 hefur borið á svo-
kölluðum spánarsnigli víðsvegar um
landið og segir Erling ástandið vera
stöðugt. Snigillinn er ekki öllum til
geðs en hann er þekktur fyrir að
vinna skemmdir á plöntum og
blómabeðum. „Von var á að það yrði
sprengifjölgun þegar hann fannst
fyrst en svo hefur það ekki reynst
þannig,“ segir Erling sem segir
skemmdavarginn ekki ennþá vera
vandræðagrip en hann hafi alla
burði til þess að verða það.
Hann útilokar ekki að hinn svo-
kallaði pardussnigill geti hindrað út-
breiðslu spánarsnigilsins en hann
girnist smærri spánarsnigla og egg
þeirra. Pardussnigillinn, sem fannst
fyrst hér á landi í Grafarvogi árið
1997, er mun algengari en spánar-
snigillinn. Hann lifir fyrst og fremst
á rotnandi plöntum og sveppum og
er því ekki sami skaðvaldur og
spánarsnigillinn. Pardussnigillinn
hefur fundist á Suðausturlandi og í
efri byggðum höfuðborgarsvæð-
isins; Mosfellsbæ, Breiðholti og
Hafnarfirði. Spánarsnigillinn hefur
hins vegar fundist á höfuðborgar-
svæðinu, Vestur-, Norður- og Suður-
landi. Skaðvaldur Spánarsnigillinn getur étið hálfa þyngd sína af ferskum gróðri.
Vel viðrar fyrir spánarsnigla
Pardussnigillinn gæti hamlað útbreiðslu þess spænska
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorsteinn R. Hermannsson, sam-
göngustjóri Reykjavíkur, segir inn-
kaupadeild borgarinnar vinna að frá-
gangi samninga um ný biðskýli fyrir
strætisvagna.
Samningar borgarinnar við félagið
AFA JCDecaux áttu að renna út um
mánaðamótin en voru framlengdir til
áramóta. Félagið hefur rekið grænu
biðskýlin í borginni og jafnframt úti-
salerni og auglýsingastanda, til dæmis
við Hlemm. Borgin efndi til útboðs um
rekstur skýlanna í vor á Evrópska
efnahagssvæðinu. Engin tilboð bárust.
Eru að fara yfir gögn
Þorsteinn segir aðspurður að fjögur
félög hafi sýnt áhuga. Félagið Dengsi
ehf. hafi eitt viljað leggja fram tilboð
sem samrýmdist ákvæðum útboðs-
gagna. Tilboð Dengsa sé nú í vinnslu.
„Það er ekki búið að endanlega af-
greiða samninginn. Það er verið að
klára að vinna gögn. Innkaupadeild
borgarinnar er að vinna að samningi,“
segir Þorsteinn.
Hann segir samninginn ná til að lág-
marki 210 biðskýla. Af þeim verði 50
með snjallskjái með rauntímaupplýs-
ingum um komu- og brottfarartíma
strætisvagna. Slík miðlun upplýsinga
er liður í þeirri stefnu borgarinnar að
efla almenningssamgöngur.
Eitt skilti í einu
Til samanburðar hafi AFA JCDe-
caux verið með 140 biðskýli. Rætt var
um að hámarki 400 skýli í útboðs-
gögnum. Stefnt er að því að setja ný
skýli upp um leið og þau gömlu eru
fjarlægð, eitt í einu.
Borgin og Vegagerðin hafa unnið að
breytingum á Miklubraut milli Snorra-
brautar og Lönguhlíðar. Meðal annars
hefur verið hlaðinn grjótveggur
Klambratúnsmegin. Við þær fram-
kvæmdir voru biðskýli tekin niður.
Samskonar framkvæmdir standa nú
yfir austar á Miklubraut við strætó-
stöðina Gerði. Þorsteinn kveðst að-
spurður „síður gera ráð fyrir“ að
gömlu biðskýlin verði sett upp á ný.
„AFA-skýlin verða uppi fram að
áramótum. Það er búið að ákveða það
með fulltrúum félagsins. Við ætlum
hins vegar í bili ekki að setja upp skýli
á Miklubraut fyrr en það koma skýli
frá Dengsa. Við sjáum það ekki fyrir
okkur á þessu stigi. Dengsi mun lík-
lega setja upp fyrstu skýlin á slíkum
stöðum þar sem skýli vantar.“
Vinna að samningi
um ný strætóskýli
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Á Miklubraut Ný strætóskýli verða sett upp við Klambratún á næsta ári.
Sumar stöðvar áfram án biðskýla