Morgunblaðið - 27.06.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.06.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Allar tegundir nashyrninga eru í bráðri útrýmingarhættu og dýra- verndarsinnar reyna sífellt nýjar leiðir til að koma þeim til bjargar. Nashyrningshorn eru eftirsótt af veiðiþjófum í Afríku og ganga kaupum og sölum fyrir mikla fjár- muni, en í tilteknum trúar- brögðum er því haldið fram að í hornunum búi töframáttur. Einkum er það hvíti nashyrning- urinn sem hefur orðið fyrir barðinu á veiðiþjófum. Náttúrulífsstofnun Kenía hefur eftirlit með nashyrningum þar í landi og í gær voru þrjár kýr í Naíróbí-þjóðgarðinum svæfðar í því skyni að bora í horn þeirra og koma þar fyrir staðsetningarbún- aði. Allar voru þær af tegund svarta nashyrningsins. Með stað- setningarbúnaðnum má rekja ferð- ir þeirra í þeim tilgangi að kanna atferli og góma veiðiþjófa. Nashyrningi til hjálpar AFP Talið er að yfir 45 þúsund séu á hrakhólum vegna loftárása og bardaga á jörðu niðri í suðurhluta Sýr- lands und- anfarnar vikur. Þetta kom fram í kynningu Samræmingar- skrifstofu mannúðaraðstoðar Sam- einuðu þjóðanna í gær. Átök Sýrlandshers, með stuðn- ingi Rússa, og uppreisnarmanna hafa harðnað mjög í Suður- Sýrlandi síðustu daga, einkum í Daraa-héraði, og fólksflutningar samhliða orðið mjög umfangs- miklir. Flóttinn er sá umfangsmesti sem orðið hefur í Sýrlandi frá upp- hafi stríðs árið 2011. Stærstur hluti flóttamannanna er nú á leið suður frá austurhluta Daraa og að landa- mærum Jórdaníu, sem eru að þol- mörkum komin. Varað hafði verið við því að með átökum á svæðinu yrði um 750 þús- und óbreyttum borgurum stofnað í hættu. Yfir fimm milljónir manna hafa lagt á flótta vegna stríðsins og talið er að sex milljónir séu á flótta innan landamæra Sýrlands. Fordæmalaus flótti vegna stríðsins Stríð Átök í Daraa hafa harðnað. SÝRLAND Landamæraeft- irlit Bandaríkj- anna er hætt að ákæra foreldra sem hafa börn með í för og koma ólöglega til Bandaríkjanna yfir landamærin að Mexíkó. Með forseta- tilskipun í síðustu viku dró Donald Trump Bandaríkjaforseti það til baka að börn og foreldrar væru að- skilin meðan foreldrarnir væru leiddir fyrir dómara. Trump var harðlega gagnrýndur um heim all- an fyrir að skilja foreldra og börn í sundur með þessum hætti. Kevin McAleenan, yfirmaður landamæraeftirlitsins, sagði í gær að við landamærin væri einfaldlega ekki nóg pláss til að vista foreldra ásamt börnum sínum samkvæmt ákvörðun Trumps. Í máli hans kom fram að stefna Bandaríkjanna um „ekkert umburðarlyndi“ í innflytj- endamálum væri enn í gildi þrátt fyrir þetta og leitað væri leiða til að framfylgja fyrrnefndri tilskipun. Hætta að ákæra for- eldra við landamæri Donald Trump BANDARÍKIN Bænastund var haldin í gær utan við Tham Luang-helli í norðurhluta Taí- lands vegna tólf drengja og fótbolta- þjálfara þeirra sem hafa verið föst þar inni í fjóra daga. Mikið úrhelli vegna monsúnrigninga olli flóði sem lokaði fyrir megininngang inn í hell- inn og reyna taílenskir hermenn nú að bjarga fólkinu og hafa hundruð sjálfboðaliða einnig lagt hönd á plóg. Drengirnir eru á aldrinum 11-16 ára og er hópurinn talinn hafa hörf- að undan flóðunum langt inn í hell- inn. Björgunarsveitir hafa reynt að koma matarbirgðum ofan í hellinn gegnum sprungu sem gengur inn í hann, en einnig eru bundnar vonir við að hægt verði að hífa hópinn með þyrlu upp um sprunguna. Aðstæðunum sem björgunar- sveitir kljást við hefur verið líkt við slys sem varð í Taílandi árið 2007, þegar átta manns festust inni í helli þannig að allir drukknuðu nema einn. Lokaðir inni í helli vegna mikilla flóða TAÍLAND Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Áætlun bandaríska mótorhjólafram- leiðandans Harley-Davidson um að flytja framleiðslu sína fyrir Evrópu- markað til annars lands er eðlileg af- leiðing verndartollastefnu Banda- ríkjamanna, að mati Ceciliu Malmström, viðskiptaráðherra Evr- ópusambandsins. Evrópusambandið kynnti í síðustu viku refsitolla á mótorhjól, viskí og gallabuxur gegn Bandaríkjunum vegna verndartolla Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart sam- bandinu, 25% toll á stál og 10% á ál. Harley-Davidson mun með flutning- unum leitast við að komast undan innflutningstollum Evrópusam- bandsins. „Við viljum ekki refsa Bandaríkj- unum en það er óheppileg afleiðing að bandarísk fyrirtæki muni þrýsta á yfirvöld þar í landi og segja: Bíðið við, þetta er ekki vænlegt fyrir bandarískan efnahag,“ sagði Malm- ström. Harley-Davidson seldi 40 þúsund mótorhjól til Evrópu á síðasta ári, u.þ.b. 16% af heildarsölunni. Í ofaná- lag hafa fyrrnefndir innflutnings- tollar Bandaríkjanna á ál og stál gert fyrirtækinu erfitt fyrir í fram- leiðslu. Mótorhjólin eru framleidd í Bandaríkjunum, Ástralíu, Brasilíu og á Indlandi, en í fyrra var tilkynnt um nýja verksmiðju í Taílandi. Fyrirtækið hefur neitað því að ætla að flytja framleiðslu fyrir Evrópu- markað til Taílands. Greiði himinháa skatta í BNA Trump hefur gagnrýnt ákvörðun fyrirtækisins og í gær sagði hann fyrirtækið nota tolla Bandaríkja- manna sem afsökun fyrir flutning- unum. Ákvörðunin hefði verið tekin fyrr á þessu ári, löngu áður en til- kynnt hefði verið um tollana. Hefur hann gefið til kynna að Harley- Davidson muni þurfa að greiða „himinháa“ skatta hyggist fyrir- tækið selja mótorhjól til Bandaríkj- anna. Trump hótar nú frekari tollum á varning frá Evrópusambandinu, einkum á bifreiðar frá Þýskalandi. „Við erum að ljúka við að kanna núgildandi tolla á bíla frá Evrópu- sambandinu. Á þessu sviði hefur sambandið lengi misnotað Bandarík- in með tollamúrum. Þegar öllu er lokið mun þetta allt jafnast út og þess er ekki lengi að bíða,“ sagði Trump. Trump málar sig út í horn Trump hefur verið stórtækur í tollamálum í upphafi forsetatíðar sinnar og hefur einnig boðað stór- aukna tolla á innfluttan varning frá Kína. Kínverjar lýstu því yfir að þeir myndu grípa til hefndaraðgerða yrðu tollar Trump að veruleika. Við- skiptaráðherra Kínverja lýsti að- gerðum Trumps sem fjárkúgun. Bandaríkjaforseti mun með að- gerðunum stefna að því að reisa við efnahag Bandaríkjanna, en tolla- stríðið er talið spilla samskiptum Trumps og leiðtoga Evrópuríkjanna enn frekar. Hafa þau verið umfjöll- unarefni fjölmiðla allt frá því hann tók við forsetaembættinu. Trump hefur ítrekað snúið við leiðtogunum baki þrátt fyrir áralangt jákvætt samstarf, t.d. í tengslum við kjarn- orkusamkomulag við Íran sem Trump batt enda á fyrr á þessu ári þrátt fyrir gagnstæðan vilja Evr- ópuríkjanna. Eðlileg afleiðing verndartolla  ESB telur flutning Harley-Davidson afleiðingu af stefnu Bandaríkjaforseta  Trump segir fyrirtækið nýta tolla sem afsökun  Boðar nýja tolla á Þýskaland AFP Forseti Donald Trump og Mike Pence varaforseti funduðu með forsvars- mönnum Harley-Davidson í janúar 2017. Nú vill fyrirtækið flytja sig um set.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.