Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 22

Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 ✝ Guðrún Garð-arsdóttir fædd- ist á Búðum í Fá- skrúðsfirði, S-Múl., 22. október 1941. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Skóg- arbæ í Reykjavík 4. júní 2018. Guðrún var dótt- ir hjónanna Garð- ars Kristjánssonar, f. 27. september 1909, d. 6. febrúar 1964, og Guðbjargar Guðmundsdóttur, f. 15. júlí 1911, d. 24. mars 2003. Systkini Guðrúnar eru Ásta, f. 1931, Guðrún Birna, f. 1933, d. 1934, Esther, f. 1935, d. 2017, Kristján, f. 1937, Halldór, f. 1939, Guðmundur, f. 1946, d. 2009, Garðar, f. 1947, og Stefán, f. 1954. Gunnarsson, f. 1969. Börn þeirra eru 1) Sara, f. 1997, 2) Alma, f. 2003. Fyrir á Ásta 3) Tómas, f. 1991, með Haraldi Úlfarssyni, f. 1963. Maki Tóm- asar er Selma Smáradóttir, f. 1992. c) Kristinn, f. 1970, maki Anna Sigríður Blöndal, f. 1970. Börn þeirra eru: 1) Helena, f. 1998, og 2) Dagur, f. 2002. d) Bjarney, f. 1975, maki Bjarki Sigurðsson, f. 1974. Bjarney var áður í sambúð með Jóhannesi Arasyni, f. 1970, og börn þeirra eru 1) Telma, f. 1998, og 2) Ari, f. 2002. Guðrún ólst upp á Búðum í Fáskrúðsfirði og gekk í Barna- skólann á Fáskrúðsfirði. Guð- rún fluttist til Reykjavíkur 1959 og kynntist þá eiginmanni sín- um, Bjarna Kristinssyni, árið 1962. Guðrún sinnti ýmsum störfum á starfsævinni en lengstum vann hún í verslun þeirra Bjarna, Hjartarbúð eða í um 17 ár. Útför Guðrúnar fer fram í Bústaðakirkju í dag, 27. júní 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Guðrún gekk í hjónaband árið 1963 með Bjarna Kristinssyni, f. á Húsavík 29. desem- ber 1939. Börn þeirra eru: a) Erlín, f. 1963, maki Guð- mundur Torfason, f. 1962. Börn þeirra eru: 1) Elfar, f. 1983, maki Ásdís Jónsdóttir, f. 1982, börn þeirra eru Hrafntinna, f. 2007, og Bríet, f. 2017, d. 2017. Fyrir á Elfar Jóhann, f. 2005, með Elínu Jóhannsdóttur, f. 1986. 2) Lára, f. 1988, maki Stef- án Blöndal, f. 1976, barn þeirra er Leó, f. 2016. Fyrir á Lára Ólí- ver, f. 2009, með Davíð Hjalta- syni, f. 1983. 3) Hilmar, f. 1997. b) Ásta, f. 1965, maki Brynjólfur Í dag kveðjum við elsku mömmu okkar. Minningar um mömmu hrann- ast upp, dugnaðurinn, jákvæðnin og hvað hún var alltaf til staðar þegar eitthvað bjátaði á. Þegar við lítum um öxl og rifjum upp æsk- una og liðna tíð stendur hún ljós- lifandi fyrir okkur þessi dugnaðar- forkur alltaf að sýsla eitthvað, byggði ásamt pabba frá grunni Langagerði sem var okkar heimili og athvarf fjölskyldunnar, þar var hún að skafa timbur, naglhreinsa, snyrta garðinn, gjarnan kölluð moldvarpan í hverfinu vegna áhuga og elju í garðinum, sem hún nostraði við af alúð og krafti. Mamma var alltaf boðin og búin að passa börnin fyrir okkur systk- inin og síðar meir reyndist hún þeim vel því þau vöndu komur sín- ar til hennar, t.d. á leið heim úr skóla, til að spila eða spjalla og jafnvel fá marmaraköku eða mola sem alltaf var hægt að ganga að vísum. Einnig var gott að leita til hennar til að fá ráð við hinu og þessu, húsráð eða góð ráð varð- andi börnin, uppeldið, veikindi eða annað sem þurfti að ræða. Fyrstu áratugina var mamma húsmóðir sem sinnti af alúð stóru heimili og okkur systkinunum sem var ómetanlegt fyrir okkur, alltaf til staðar þegar við komum heim úr skóla eða frístundum. Þegar fór að hægjast um á heimilinu tók hún fullan þátt í rekstri verslunar þeirra hjóna, Hjartarbúðar, stóð þar vaktina langtímum saman, var vel liðin og eignaðist þar marga góða kunningja og vini. Þegar þau síðar seldu Hjartar- búð lá beinast við að helga sig golf- inu sem mamma hafði ástríðu fyr- ir og eins og allt sem mamma gerði tók hún það með trompi, var meðlimur hvort tveggja í Oddi og GR, fór holu í höggi oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og var vel liðin í golfklúbbunum þrátt fyrir að vera alltaf frekar hlédræg. Í Skipholtinu, þar sem við bjuggum fyrstu árin, og í Langa- gerðinu voru allir velkomnir. Mamma kemur úr stórum systk- inahópi þannig að oft var margt um manninn, vinsælt að koma og gista og þiggja veitingar eða kaffi- bolla og spjall hjá mömmu. Fyrir um fimm árum fór að bera á veikindum mömmu, þannig að hún varð áhugalausari um áhugamál sín og utan við sig en þrátt fyrir það var hún alltaf bros- andi og jákvæð. Tók þessu af ákveðnu æðruleysi og sagðist vera orðin svo gleymin með bros á vör. Við systkinin erum ákaflega þakk- lát fyrir það hvað við fengum góða aðstoð á þessum tíma, bæði í Múlabæ og síðar Maríuhúsi þar sem mamma dvaldi í dagvist, auk þess sem við fengum ómetanlegan stuðning frá góðri vinkonu okkar Ágústu sem var hjá henni tímun- um saman til að aðstoða hana og hafa ofan af fyrir henni sem gerði það að verkum að hún gat dvalist mun lengur en ella á heimili sínu, sem henni þótti svo vænt um. Fyrir ári fékk mamma pláss á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þar sem hún dvaldi í góðu yfirlæti þar til hún lést. Þar var yndislegt starfsfólk sem hugsaði vel um hana og hjálpaði henni að líða vel. Það er sárt að kveðja en við ylj- um okkur við yndislegar minning- ar um liðna tíð og þessa yndislegu konu sem var okkur svo mikill inn- blástur. Hvíl þú í friði, elsku mamma. Ásta, Bjarney, Erlín, Kristinn. Guðrún tengdamóðir mín var yndisleg kona. Hún hafði einstak- lega gott hjartalag, talaði vel um alla og mátti ekkert aumt sjá. Hún hafði yndislega nærveru, var róleg og andrúmsloftið í kring- um hana afslappað og góður andi á heimili hennar í Langagerðinu. Hún hafði skemmtilegan frásagn- arstíl og kunni margar ævintýra- legar sögur af fjölskyldunni sem eru alveg ógleymanlegar. Það var líka greinilegt að barnabörnunum fannst gaman hjá ömmu sinni og leið vel hjá henni, enda sinnti hún þeim vel og var t.d. mjög dugleg við að spila við þau. Auk þess að vinna mikið var henni margt til lista lagt á heim- ilinu. Hún bakaði ómótstæðilega góðar tertur og var mjög flink og vandvirk saumakona. Þegar hún byrjaði í golfi gekk henni vel í því líka og vann til fjölda verðlauna. Hún var einstaklega bóngóð og hjálpleg og var alltaf tilbúin til þess að hjálpa öðrum. Það er mikill missir að Guðrúnu en ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessari fallegu og góðu konu. Blessuð sé minning hennar. Megi hún hvíla í friði. Anna Sigríður Blöndal. Elsku amma. Það er óraun- verulegt að horfast í augu við það að þú sért farin frá okkur. Minn- ingarnar sem við sköpuðum sam- an eru ómetanlegar og verður þeim aldrei gleymt. Það er gaman að geta hugsað út í þá tíma sem maður eyddi með þér, þeir voru alltaf skemmtilegir og ákveðnir hlutir sem breyttust aldrei; að spila saman, borða góm- sæta marmaraköku sem þú hafðir bakað og þegar hún var ekki til var oftast eitthvað annað að finna. Svo þegar maður var sóttur til þín tókst þú oft upp veskið og vildir fá að losa mig út með smá „aur“ sem þú vissir að myndi setja aukagleði í litla hjartað. Golfvöllurinn er staðurinn sem ég á sem mestar minningar frá í gegnum árin, það er gaman að geta sagt frá því að aðalsportið var að fá að vera með þér og afa á golf- bílnum; afi að leyfa mér að keyra og þú að segja eitthvað skemmti- legt. Ég kveð þig, elsku amma mín, með miklum söknuði og góðum minningum. Takk fyrir allt. Þinn Hilmar Leó. Elsku besta amma mín, amma Dedda eins og við Elfar kölluðum þig. Orð fá því ekki lýst hvað ég sakna þín mikið, og ég fæ mig ekki til að halda aftur af tárunum um leið og ég byrja að skrifa, en ég get huggað mig við allar góðu minningarnar sem ég á um þig. Þú tókst alltaf svo vel á móti manni þó svo að ég kæmi bara upp úr þurru, hvort sem það var bara til að koma og spjalla eða sníkja af þér hádeg- ismat þegar ég var að vinna í Skeifunni, þú varst alltaf með súpu og brauð í boði í hádeginu og ég var alltaf velkomin. Rödd þín hljómar í hausnum á mér þegar ég hugsa til baka. „Nei, Lára mín!“ sagðirðu alltaf þegar ég kom til þín í heimsókn. Þó svo ég hafi ver- ið ung þegar þið afi áttuð sjoppuna þá man ég alltaf eftir hvað mér fannst gaman að fá að koma og „hjálpa til“ í búðinni, og alltaf þeg- ar við systkinin komum í heim- sókn eða pössun voru alltaf til eins og ég kalla hann afabrjóstsykur og marmarakaka. Svo þegar við vorum að fara heim gafstu okkur alltaf einn hundrað krónu seðil til að taka með okkur. Allar góðu minningarnar komast ekki fyrir hér, en það er líka allt í lagi, þetta eru minningar sem ég mun alltaf eiga og er ótrúlega hamingjusöm fyrir að hafa eignast með þér. Ég elska þig, amma mín, og mun allt- af gera. Lára Guðmundsdóttir. Ég og amma Gunna, eins og ég kallaði hana, vorum miklir vinir. Þegar ég var í grunnskóla fór ég heim til hennar nánast daglega eftir skóla og hún gaf mér ristað brauð með marmelaði og kakó- malt. Þegar jólin fóru að nálgast bakaði hún alltaf bestu kökurnar og var það í miklu uppáhaldi hjá mér að fá mér piparkökur og mjólk hjá henni. Við spjölluðum mikið saman um daginn og veginn og höfðum bæði gaman af því að horfa á golf. Hún kenndi mér ein- mitt að spila golf þegar ég var átta ára og er það nokkuð sem ég bý að enn í dag og er afar þakklátur fyr- ir. Ég fór oft með ömmu og afa í golf og fannst það afar skemmti- legt, sérstaklega þegar ég fékk að stelast til að keyra golfbílinn þeirra. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til ömmu Gunnu og á tímabili var Langagerði nán- ast mitt annað heimili, hvort sem það var að kíkja í ljósabekkinn, horfa á fótboltaleik eða kíkja á ömmu til að fá eitthvað gott að borða og spjalla. Ég sakna þín mikið, amma, og ég veit að þú ert komin á betri stað. Tómas Haraldsson. Í dag kveðjum við ömmu Gunnu. Við gerum það með mikl- um og sárum söknuði en erum þakklát fyrir allar góðu minning- arnar sem við eigum um hana. Við höfðum svo gaman af því að fara í heimsókn í Langagerðið til ömmu og afa. Við systkinin fórum marg- oft í pössun til þeirra og það var alltaf jafn gaman. Að hugsa til stundanna sem við áttum með ömmu fær okkur til að brosa. Hún var viljug að gera allt með okkur, hvort sem það var að spila olsen olsen, lönguvitleysu eða spjalla um allt milli himins og jarðar. All- ar heimsóknir í Langagerðið ein- kenndust af því að amma bauð okkur einhverjar kræsingar. Hún var mjög flink að baka og uppá- haldið okkar var marmarakakan hennar. Amma okkar var svo yndisleg og við erum svo þakklát fyrir hana. Hún sýndi okkur svo mikla væntumþykju og var svo hlý og góð við okkur. Við erum svo þakk- lát fyrir að hafa kynnst þessari frábæru konu og það eru forrétt- indi að fá að kalla hana ömmu okk- ar. Við kveðjum ömmu með sökn- uði en brosi á vör þegar við hugsum um allar þessar góðu minningar sem við eigum. Helena og Dagur. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, – líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson) Nú hefur ástkær amma mín yf- irgefið jarðneskt líf, þó ég sé ennþá að gera mér grein fyrir að svo sé. Ég var svo heppin að fá að búa í kjallaranum hjá ömmu og afa um tíma sem gaf mér tækifæri til að tengjast ömmu sterkari böndum en ella. Frá fyrstu barn- æskuminningum vorum við ótrú- lega nánar, við gátum setið klukkutímum saman og talað um allt á milli himins og jarðar. Hún hafði þann eiginleika að geta látið öllum í kringum sig líða vel, skil- yrðislausa ástin og umhyggjan sem hún veitti mér öll þessi ár munu fylgja mér í öllu sem ég geri í framtíðinni. Sagt er að maður mótist af þeim sem ala mann upp, og er ég lítið annað en þakklát fyr- ir að amma mín hafi átt hlut í því. En það eina sem víst er í þessu lífi er dauðinn, hann er óumflýjanleg- ur, og þótt elskuleg amma mín sé fallin frá eru minningarnar ódauð- legar. Þær munu lifa með mér þangað til ég hitti hana hinum megin, þegar mínum tíma er lokið. Takk, amma, fyrir allar minning- arnar og fyrir allt sem þú varst mér. Blessuð sé minning þín. Telma Jóhannesdóttir. Ég sé fyrir mér fyrstu árin okk- ar í Hlíðunum, stór samheldin fjöl- skylda. Gunna konan hans Bjarna frænda var stór hluti af okkar lífi. Þau bjuggu í Skipholtinu og var mikill samgangur á milli heimil- anna. Á þessum árum sáu konurn- ar að mestu leyti um uppeldi barnanna og gerðu það með því- líkum glæsibrag að ef eitthvað kom upp á voru mömmurnar fljót- ar að leysa málin. Gunna var af- skaplega falleg kona svo eftir var tekið. Hún var kraftmikil, bros- mild og okkur krökkunum ákaf- lega góð og umhyggjusöm. Ljúf- mennska hennar er okkur minnisstæð. Í minningunni er það ljóslifandi þegar mamma og Gunna sátu saman í eldhúsinu, drukku kaffi og leystu lífsins vandamál. Þetta voru góðir tímar. Þá voru líka haldin fjölmenn af- mæli þar sem krakkarnir í göt- unni, frændsystkini og börn vin- kvenna komu saman og borðin svignuðu undan kökum og kræs- ingum og við börnin fengum eina flösku af kóki eða appelsíni í gleri. Þá var hátíð í bæ. Það eru ljúfar minningar frá þessum árum og þær eru sveipaðar einhverjum ævintýraljóma. Það var alltaf gaman að umgangast Gunnu, hennar góða skap og geislandi framkoma einkenndu hana alla tíð. Við systkinin vorum líka oft í pössun hjá henni þegar við vorum lítil og hún umvafði okkur kærleik og blíðu. Eftir að við urðum eldri hittum við Gunnu aðallega í fjölskyldu- boðum. Alltaf var jafn gaman að hitta hana, alltaf sama ljúf- mennskan. Blessuð sé minning okkar kæru Gunnu. Við sendum Bjarna, börnunum, barnabörnum og öðrum aðstand- endum okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Kristinn, Inga, Guðjón og Bjarni Gerðu- og Sigurjónsbörn. Guðrún Garðarsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, mágur og afi, GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON múrarameistari, Norðurvör 9, Grindavík, lést föstudaginn 8. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Eva Kolfinna Þórólfsdóttir Alma S. Guðmundsdóttir Kári Guðmundsson Axel R. Guðmundsson Sigríður Tómasdóttir Anton K. Guðmundsson Rebekka Ó. Friðriksdóttir Kristinn B. Þórólfsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR BENEDIKT BENEDIKTSSON, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést föstudaginn 22. júní á Landspítalanum í Reykjavík. Útför hans verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Rannveig Bjarnadóttir Ríkarður Óskarsson Guðrún Óskarsdóttir Helgi Þór Óskarsson Hafþór Óskarsson Óskar Halldór Óskarsson Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, SIGURÐUR ARNÓR HREIÐARSSON, skipstjóri, Dalalandi, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldu sinnar mánudaginn 25. júní. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 3. júlí klukkan 14. Ingvar Sigurðsson Þórdís Jóna Sigurðardóttir Kristján Vigfússon Hreiðar Már Sigurðsson Anna Lísa Sigurjónsdóttir barnabörn, barnabarn og systkini Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, bróðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR ÁGÚSTSSON, verslunarmaður o.fl. frá Vík í Stykkishólmi, lést mánudaginn 25. júni á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð. Ágúst Magni Þórólfsson Ásta Júlía Hreinsdóttir Erla Þórólfsdóttir Valgerður Kristjánsdóttir Hrafnhildur Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.