Morgunblaðið - 27.06.2018, Side 23

Morgunblaðið - 27.06.2018, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 ✝ Sigþór Há-konarson fæddist í Reykjavík 23. desember 1951. Hann lést af slys- förum 13. júní 2018. Foreldrar hans voru Hákon Þor- steinsson, f. 25. maí 1924, d. 26. mars 2009, og Benedikta Lilja Karlsdóttir, f. 19. apríl 1924, d. 23. febrúar 2003. Alsystkini Sigþórs eru Hákon og Margrét, en fyrir átti Bene- dikta þau Karl og Guðrúnu. Sigþór kvæntist Lilju Braga- dóttur, f. 24. febrúar 1952. For- Hrund, f. 1996, b) Bjartur Hart- mann, f. 2006. 3) Hákon, f. 1977, maki Kristín Gunnars- dóttir, f. 1969, hans sonur Sig- þór, f. 2002. Sigþór og Lilja hófu búskap í Nökkvavogi og síðar í Breið- holti, en hafa búið í Garðabæ sl. 22 ár. Sigþór ólst upp í Reykja- vík fyrstu 17 ár ævi sinnar, en fluttist þaðan með fjölskyldu sinni í Kópavog. Hann stundaði nám í rafvélavirkjun hjá Segli og lauk þaðan sveinsprófi 1974. Hann vann síðar hjá Björgvini Kristóferssyni rafvirkjameist- ara, en starfaði svo sjálfstætt sem rafverktaki eftir það. Í seinni tíð, eða allt frá árinu 2000, starfaði Sigþór sem lög- giltur vátryggingamiðlari en síðastliðin tvö ár hafði hann snúið sér aftur að rafvirkjun. Útför Sigþórs fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 27. júní 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. eldrar hennar voru Bragi Jónsson, f. 9. október 1925, d. 12. september 2009, og Ásta M. Hartmannsdóttir, f. 23. apríl 1933, d. 24. desember 2007. Börn Sigþórs og Lilju eru: 1) Bragi, f. 1969, maki Guð- rún Svava Hlöð- versdóttir, f. 1964. Þeirra börn eru a) Hjörvar Hans, f. 1991, maki Guðbjörg K. Gunnarsdóttir, f. 1987, þeirra barn Mía Sóllilja, f. 2018, en fyrir á Guðbjörg Björn Atla, f. 2008. b) Lilja, f. 1999. 2) Hörð- ur, f. 1974, börn hans a) Harpa Mig dreymdi þig nokkrum dögum fyrir slysið. Þegar ég vaknaði ætlaði ég að hringja í þig, ég hringdi ekki og núna er ég að skrifa um þig minning- argrein. Ég vildi að ég hefði tekið upp tólið og sagt: „Hæ, hvað er að frétta?“ Skyndilegt fráfall þitt minnir okkur hin á að við eigum að taka utan um þá sem okkur þykir vænt um. Mér þótti vænt um þig, kæri bróðir. Við vorum að mörgu leyti ólíkir en áttum líka margt sameiginlegt. Það voru ellefu mánuðir á milli okkar. Í æsku gátum við borðað af sama disk- inum; þú kjötið og ég kartöfl- urnar. Þú stærri, sterkari og tókst þrjóskuna úr báðum ætt- um. Við slógumst oft í æsku, deildum oft í lífinu, en vorum samt alltaf vinir. Við unnum saman í 30 ár og fórum ófáar söluferðirnar saman. Ferðir sem munu aldrei gleymast. Lentum í mörgum skemmtilegum uppá- komum og frá þessum ferðum eru margar af mínum bestu minningum. Sigþór var sölumaður af guðs náð með góða nærveru, góðan húmor og átti einstaklega auð- velt með að laða fólk að sér. Fjölskyldur okkar voru mjög nánar og saman ferðuðumst við víða um heim. Sigþór var svara- maður minn, ekki bara í einu, heldur í tveimur brúðkaupum. Hann var mjög vel lesinn og stálminnugur. Mikill Bítlaaðdá- andi og kunni sögu þeirra og texta, hafði góða söngrödd og var mjög músíkalskur. Sigþór var drengur góður. Samferð okkar er lokið í bili, en ég trúi því að leiðir okkar eigi eftir að liggja saman síðar. Lilja og Sigþór voru mjög samrýnd og góðir vinir, búin að ganga saman í gegnum lífið í rúm 50 ár. Sigþór var mikill fjölskyldumaður og góður pabbi og enn betri afi. Missir fjöl- skyldunnar er mikill. Elsku Lilja, Bragi, Hörður, Hákon og fjölskyldur, megi guð vera með ykkur og hjálpa ykkur í sorg- inni. Hákon bróðir. Ef lífið er ferðalag þá er vart hægt að hugsa sér betri ferða- félaga en hann Sigþór móður- bróður minn. Ferðalög með Sig- þóri voru ævintýri, alltaf skemmtileg og viðburðarík. Við Anna urðum eitt sinn samferða Sigþóri frænda og Há- koni afa austur á Egilsstaði. Við lögðum af stað á björtum og fal- legum sumardegi, fórum suður fyrir og nutum þess að hlusta á sögur alla leiðina. Hver einasti bær eða bensínstöð kallaði á nýja sögu og landslagið lifnaði við þar sem þeir feðgarnir kepptust við að segja okkur sög- ur, af fjalli á vitlausum stað eða sérkennilegum presti sem kvæntist hestinum sínum; þarna komu líka við sögu ansi brattur þjónn með tómt eldhús, draugur sem drakk bara vodka og önnur skringileg atvik. Við hlógum alla leiðina, sungum, hlustuðum á Bítlana, ferðin leið hratt áfram, og ég heyri ennþá Sigþór hlæja, sprella og blístra. Það var tón- list í augum hans, sól og gleði. Á svona ferðalögum týnist tíminn, eftir sitja dýrmætar minningar um mann sem stækkaði til- veruna. Svo lýkur allt í einu þessu ferðalagi. Hann gat brugðist við öllum mögulegum aðstæðum með hinu íslenska æðruleysi og jákvæðni: þetta reddast. Og vanalega reddast það – einhvern veginn; ef samúð og hjálpsemi er til staðar er allt hægt og Sigþór dó aldrei ráðalaus. Eitt sinn vorum við pabbi ræstir út seint um kvöld til þess að bjarga ein- hverjum félaga hans sem var að byggja, það átti að steypa plötu um morguninn og ekkert klárt. Þetta var daginn fyrir Þorláks- messu, afmælið hans. Við lögð- um rafmagnsrörin, bundum steypustyrktarjárn í hríð og byl langt fram undir morgun. Ég gleymi aldrei svipnum á frost- börðu andlitinu á Sigþóri þegar við náðum að klára verkið rétt áður en steypubíllinn renndi í hlað, þá kveikti hann sér í sígar- ettu með blóðugum ísköldum fingrum og sagði: „Þær bíta okkur ekki flugurnar og pödd- urnar í þessu veðri, við getum þakkað fyrir það“ – og þarna stóðum við, blautir og kaldir, og skellihlógum. Við hin höldum ferðalaginu áfram, en söknum hans, því hann var alltaf til staðar, hlýr, hjálpsamur og úrræðagóður. Nú, þegar við minnumst Sig- þórs með söknuði, er ekki hægt annað en brosa í gegnum tárin – hann var svo skemmtilegur. Heimili þeirra Lilju hefur í ára- tugi verið samfellt og rausnar- legt gestaboð, bjargfesta fyrir öll börnin, barnabörnin og okk- ur frændsystkinin. Fegurðin og lífsgleðin er ekki bara eitthvert skraut, hún er kjarni lífsins. Takk fyrir samfylgdina, minn kæri vinur og frændi. Við Anna vottum Lilju og allri fjölskyld- unni samúð okkar. Hljómsveitin spilar tónlist sem er bara til nú og nú og aftur nú Og meðan tónlistin lifir hverf ég ekki Meðan tónlistin lifir óttast ég ekki Ber enga virðingu fyrir svonefndum buska (Sigurður Pálsson) Freyr Eyjólfsson. „Sæll frændi!“ Þannig byrj- uðu öll þau mörgu og skemmti- legu samtöl þegar Sigþór frændi minn hringdi. Hann hringdi oft- ast til að hvetja, til að segja hvað honum fannst um eitt og annað. Eins vildi hann hlusta. Hann skammaðist aldrei. Það var ekki hans háttur. Sigþór var umtalsgóður maður, hnyttinn og skemmtilegur. Hann var hlýr og hafði góða návist. Sigþór fer héðan alltof snemma. Ég sakna hans. Aðrir hafa misst meira en ég. Lilja, synirnir og aðrir afkomendur Sigþórs hafa misst mikið úr sínu lífi. Sama er með systkini hans og þeirra fjölskyldur. Hugur minn er hjá þeim og ég vona að þau megni að lifa með sorginni. Mamma mín, móðursystir Sigþórs, hringdi til að segja mér af andláti Sigþórs Hákonarson- ar. Hún sagði: „Mér er illt, ég er með verki. Þetta er svo sárt.“ Það var hverju orði sannara. Ég kenni líka til. Sigþór Hákonarson var fyrir- myndarmaður. Viðhorf hans, framkoma, háttsemi og svo margt annað voru dæmi um það. Við öll, sem þekktum Sig- þór Hákonarson, höfum misst mikið. Það vantar mikið þegar hann vantar. Sigurjón M. Egilsson. Haustið 1997 varð kærleiks- hópurinn okkar til. Hópur sem óx, dafnaði og myndaði sterk vináttubönd og hefðir. Í dag kveðjum við góðan vin, dýrmæt- an hlekk í hópnum, hann Sigþór okkar. „Bilið er stutt milli blíðu og éls.“ Einn daginn njótum við okk- ar hefðbundna vordags í Lyng- holti hjá Lilju og Sigþóri, með tilheyrandi skoðunarferð – að þessu sinni til Þorlákshafnar – smávegis útivera með skógar- ferð og gróðursetningu og end- að á dásamlegum kvöldmat með sögum úr lífi okkar allra. Daginn eftir er Sigþór dáinn og ekkert verður aftur eins. Minningar og þakklæti fylla hug og hjarta. Það er ómet- anlegt nú að eiga minningarnar um Rómarferðina sl. haust og Parísarferðina okkar fyrir tíu árum. En dýrmætast er að sjá fyrir sér einlæga tjáningu Sig- þórs, með sinn einstaka húmor, ferðagleði, vinnugleði og stolt yfir fjölskyldunni sinni, sem var honum númer eitt, tvö og þrjú og þó sérstaklega Liljan hans, sem var honum við hlið í gegn- um lífið allt frá unglingsárum. Guð blessi minningu um góð- an dreng. Innileg samúðarkveðja, Guðrún og Jón, Sigrún og Magnús, Helga og Hannes. Ég sit heima og íhuga lífið og tilveruna. Þá kemur upp í huga mér hvernig við kynntumst, kæri vinur. Við bjuggum í grennd hvor við annan í Seljahverfi, áttum börn á svipuðum aldri og tveir af strákunum okkar urðu og eru æskuvinir. Á þessum tíma unn- um við mikið og vorum afar uppteknir um helgar við að dýrka það sem felldi okkur báða. Við endurnýjuðum líf okkar á svipuðum tíma fyrir 30 árum og sóttum von og styrk á fundum í Seljakirkju. Við gengum saman í gegnum þetta ferli. Ég minnist þess hve ég öfundaði þig af því hvað þú varst jákvæður og tókst lífinu létt. Gleði, bjartsýni og von fylgdu þér í hverju skrefi. Þú varst heill og sannur. Ég sagði stundum við konuna mína: „Ég vildi að ég hefði skapgerðina hans Sigþórs.“ Það gerðist eins og af sjálfu sér að við tókum að hittast reglulega, nokkrir félagar þess- arar deildar, í hádeginu á fimmtudögum og snæddum saman. Við ræddum ekkert sér- stakt heldur miklu fremur allt milli himins og jarðar en eftir á að hyggja voru þessar samræð- ur allt í senn; traustur grunnur og vonarvegur, lýstur hugheil- um vilja, bjartsýni, von og trú. Við kölluðum þetta Asíufélag- ið. Þar voru allir einlægir og fölskvalausir vinir. Við treystum hver öðrum. Þú ert horfinn úr jarðnesku lífi okkar og þín er sárlega saknað. Nú er enginn Sigþór til að hringja í mig og minna mig á hádegisfundinn: „Hæ Grímsi, er ekki matur? – Ég mæti.“ Þegar hér var komið gengum við í laufguðum lundi sjálfsvit- undar, hreinskilni og sannleika. Við nutum ævintýra lífsins en kynntumst líka skuggahliðum þess. Ferð okkar til Indlands er ógleymanleg – ekki síst að sjá með eigin augum þetta fjöl- menna, fátæka land og þá mengun sem alls staðar var sýnileg. Flórída var annar heimur. Þangað fórum við, spiluðum golf og fórum í siglingu. Þessar stundir eru okkur hjónum afar kærar og hlýjar. Þær lifa í minningunni. Ég minnist þess að við rædd- um oft hversu lánsamir við vær- um með líf okkar í dag. Staðreyndin er sú að við mik- ilvægustu krossgötur lífsins standa sjaldnast vegvísar. Sá sem á sér ekkert innra líf verð- ur þræll ytri aðstæðna. Ég minnist þess að við rædd- um oft hversu lánsamir við vær- um með lífið í dag. Kæri vinur. Þú varst einstak- ur maður. Þú varst traustur vin- ur og ávallt reiðubúinn að hjálpa og styðja aðra í erfiðleik- um. Þú varst óskiljanlega jákvæð- ur og sást spaugilegu hliðarnar á tilverunni. Það er náðargjöf. „Gleðin er í senn birta og yl- ur, sem þenur út æðarnar, og er því eitt besta heilsulyfið.“ – Þór- arinn Björnsson. Raunar er einfaldast að segja að þú varst góð manneskja; drengur góður eins og okkur er tamt að taka til orða. Við hjónin kveðjum þig, kæri vinur, með sorg í hjarta. Elsku Lilja – við vonum að kærleiks- ríkur guð styrki þig á þessum erfiðu tímum og verði þér, Braga, Herði og Hákoni andlegt þrek til að horfa til framtíðar, takast á við sorgir og sigra – að lifa lífinu. Ég trúi því og treysti að Sig- þór vinur minn sé á himnum og sitji við hægri hönd Guðs. Kærleikskveðja, Hallgrímur og Helga. Það er erfitt að meðtaka það að einn besti vinur minn, Sigþór Hákonarson, sé fallinn frá. Sig- þór var einstaklega góður vinur. Við kynntumst fyrir 30 árum og vorum alltaf í mjög góðu sambandi. Við ferðuðumst mikið saman ásamt mökum t.d. til Memphis 2008 þar sem við fór- um til Graceland á heimili Elvis og í Sun-stúdíóið þar sem við sungum hvor inn á sína plötuna. Sigþór tók lagið My Way með Frank Sinatra og rúllaði því upp. Hann var mikill tónlistar- unnandi, alltaf trallandi, hafði góða söngrödd, jákvæður og í góðu skapi. Í vor fórum við sam- an til Havana á Kúbu, sem er mikil tónlistarborg, og skemmt- um okkur vel. Á göngu okkar um Havana kom Sigþór auga á utanáliggjandi rafmagnslagnir sem honum þótti afar frumstæð- ar og eftirtektarverðar. Síðan var tekinn rúntur á Oldsmobile ’58, sem var mikil upplifun. Sig- þór var mjög spenntur fyrir Castro-safninu og skellti sér þangað. Þar fékk hann sér „byltingarhúfu“ og var stoltur að bera hana enda fór hún ekki af honum það sem eftir var ferðarinnar. Ég gæti haldið lengi áfram að segja frá ferðum okkar þar sem við fórum víða gegnum árin, en eftir- minnilegast er hversu skemmti- legt þetta var alltaf hjá okkur. Á ferðalögum okkar vinanna spiluðum við oft kana á kvöldin og vorum stundum orðin svo rugluð að enginn vissi hver átti að gefa og var þá mikið hlegið. Við vorum komin með einka- húmor þar sem Sigþór sagði við ýmis tækifæri þegar heim var komið: „Hver á að gefa?“ Við spiluðum mikið golf sam- an, Sigþór, ég og vinur okkar Þorleifur, bæði hér heima og í Flórída. Það sem var svo lýs- andi fyrir skapgerð Sigþórs var að hann brást aldrei illa við þeg- ar höggin voru ekki upp á það besta, heldur tók því með bros á vör. Við vorum nokkrir félagar sem hittumst einu sinni í viku í hádegismat undanfarin 25 ár, lengst af á veitingastaðnum As- íu sem var við Laugaveginn, enda hópurinn kallaður Asíu- félagið. Sigþór hélt vel utan um hópinn og hafði frumkvæði að því að hringja í félagana og minna á hittinginn. Hans verður sárt saknað af okkur Asíufélögunum. Sigþór var mikill fjölskyldumaður og þótti mér fallegt hversu náinn hann var Lilju eiginkonu sinni, börnum og barnabörnum enda var fjölskyldan honum mjög kær. Hann var upp með sér þegar hann talaði um nýfædda langafabarnið. Ég kveð góðan vin minn með miklum söknuði og þakklæti. Við fjölskyldan vottum Lilju, Braga, Herði, Há- koni og fjölskyldunni allri inni- lega samúð. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Guð blessi minningu Sigþórs Hákonarsonar. Svavar Helgason. Enginn veit ævi sína fyrr en öll er og allt of margir falla fyrir aldur fram. Sigþór vinur okkar var einn af þeim. Kynni okkar hófust á bernskuslóðum Sigþórs í Voga- hverfinu í Reykjavík á blóma- skeiði ’68-kynslóðarinnar. Með okkur varð til náin vinátta sem auðgað hefur líf okkar allra og haldist æ síðan. Sigþór var mað- ur jafnaðargeðs, húmors og fé- lagslyndis og átti þar af leiðandi marga vini og kunningja sem hann kynntist í gegnum þau fjölmörgu störf sem hann tók sér fyrir hendur á lífsleiðinni. Þeir sem kynntust Sigþóri fundu strax að þar fór maður með metnað og dug í starfi og var þá sama hvert verkefnið var og alltaf var stutt í húmorinn hvernig svo sem áraði. Sigþór var glaðlyndur og hlýr fjölskyldumaður sem naut þess að hafa ástvini sína, börn og barnabörn í návist sinni og var duglegur að styðja þau í leik og starfi. Kæri vinur, þótt dregið hefði úr samskiptum okkar á síðari árum brást þú aldrei þeim gamla vana að hringja í vini og vandamenn á afmælisdegi við- komandi. Þau símtöl gátu orðið löng og skemmtileg og oft flétt- uð spaugilegum hliðum tilver- unnar. Þetta var þín leið til að halda vináttusambandi í heimi áreitis og krafna, þar sem tím- inn er sjaldan nógur. Á þessari stundu er okkur efst í huga söknuður en einnig þakklæti fyrir öll gömlu árin sem við áttum saman í leik og starfi. Elsku Lilja, fjölskyldu þinni, börnum og barnabörnum, vottum við okkar dýpstu samúð og biðjum algóðan guð að styrkja ykkur á erfiðri stundu. Bára og Ingvi. Sigþór Hákonarson Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, EYRÚN RANNVEIG ÞORLÁKSDÓTTIR, Krossi í Ölfusi, lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum, Selfossi laugardaginn 23. júní. Jarðarförin fer fram frá Kotstrandarkirkju laugardaginn 30. júní klukkan 14. Ragnheiður Lúðvíksdóttir Þorsteinn Jóhann Vilmundarson Magnús Arnulf Lúðvíksson Laufey Jónsdóttir ömmubörn, langömmubörn, systkini og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.