Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.06.2018, Qupperneq 25
glaðværðar. Hún var líka alltaf svo smart, vel klædd og „vel til- höfð“, eins og mamma mín hefði orðað það. Gurra og mamma voru miklar vinkonur og eftir að þær höfðu báðar misst maka sinn fóru þær saman í nokkrar utanlands- ferðir, m.a. í útskriftarveislur og brúðkaup til Svíþjóðar þar sem Helgi bróðir er búsettur. Á námsárum mínum í höfuð- borginni bjó ég hjá Gurru og Magnúsi manni hennar, það var dásamlegur tími. Þau voru alltaf svo góð við mig og umhyggjusöm og hikuðu ekki við að lána mér húsið sitt ef ég vildi halda bekkj- arsystkinum mínum boð. Gurra og Magnús eða Maddi eins og hann var kallaður voru glæsilegt par, alltaf glöð og kát og var missir Gurru minnar mik- ill þegar Maddi féll frá eftir erfið veikindi. Gurra missti einnig þrjú barna sinna, son nýfæddan og svo þá Guðmund og Reyni. Einn- ig reyndi mikið á frænku mína þegar Sigrún tengdadóttir henn- ar féll frá á besta aldri eftir erfið veikindi. Aldrei brotnaði hún Gurra frænka þrátt fyrir öll þessi áföll, alltaf svo falleg og yndisleg, brosti bara í gegnum tárin. Síðustu árin bjó Gurra á Hrafnistu í Hafnarfirði og tók alltaf vel á móti okkur systrum þegar við heimsóttum hana þang- að. Smám saman dró af henni og í lokin þurftum við að kynna okkur en brosið hennar fallega var allt- af til staðar. Hún var einstök frænka og sagði ég oft við hana að hún væri fallegasta og besta frænkan mín. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð og bros þitt mun fylgja mér alla tíð uns hittumst við aftur heima. (Höf. ók.) Guð blessi minningu elsku frænku minnar. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur sendi ég Boga syni henn- ar og fjölskyldunni allri. Soffía K. Kristjánsdóttir. Ég kveð góða vinkonu og fyrr- verandi tengdamóður eftir ára- langa göngu. Gurra, eins og hún var alltaf kölluð, kenndi mér margt. Báðar áttum við rætur að rekja til Ísa- fjarðar þar sem við sóttum sama skóla með 25 ára millibili. Í öllu sem varðaði húshald skoraði Gurra alltaf hæst. Við gátum allt- af hlegið og gert að gamni okkar sem var svo gott. Sonur okkar Guðmundar heit- ins, Hrólfur Erling, átti alltaf vís- ar yndislegar stundir hjá ömmu Gurru og afa Magnúsi. Á þessum tíma vorum við for- eldrarnir í vinnu alla daga. Gurra og Magnús stóðu ávallt eins og klettar í hafi með faðminn opinn á Fornhaganum eða á okkar heim- ili. Dag hvern kom sonur okkar til afa í hádeginu úr Melaskóla, þar sem tekið var á móti honum með hádegisverði og ást. Eftir það var lært saman í afastofu fyrir næsta dag og áttu þeir ógleymanlegar stundir saman. Snögglega þegar þeir voru tveir saman einn dag- inn veiktist afi Magnús. Það reyndist syni okkar þungbær reynsla. Síðan kom tímabil þar sem hvert áfallið rak annað. Elsku Gurra missti Magnús, tvo syni ásamt elskulegri tengdadóttur með stuttu millibili. Þá kom í ljós sá mikli styrkur og æðruleysi sem henni var gefið. Með tímanum áttum við margt sameiginlegt í gleði og sorg og fundum styrk hvor hjá annarri þegar á bjátaði. Vil ég þakka Gurru fyrir alla þá hlýju sem þau Magnús sýndu mér og okkar litlu fjölskyldu. Sú hlýja var óendanleg í blíðu og stríðu – öll elskuðum við hvert annað. Takk fyrir allt. Hallfríður Hrólfsdóttir. Nokkur orð til minningar um bróður minn Arnar (hann hét í höfuðið á fjallinu Erni, sem er perla Bolungarvíkur). Arnar fæddist 1931 í Bolungarvík, hann var elstur fimm systkina sem voru börn Guðfinnu Gísla- dóttur og Guðmundar Jakobs- sonar. Hann er sem sagt kominn af sjómönnum og þurrabúðar- fólki. Til dæmis fórst föðurafi hans, Jakob, í Djúpinu ungur að árum og lét eftir sig konu og fimm börn. Arnar byrjaði ungur til sjós á bátum og togurum, vann við akstur og lærði síðar prentiðn. Hann var gæfumaður í einkalíf- inu, átti tvær konur og sex börn, allt sómafólk. Mér fannst alltaf stóri bróðir vera mikill nagli, svo var hann með steinbítssvipinn úr föður- ætt. Ég vil svo að lokum þakka Adda bróður fyrir það sem hann gaf mér af góðum minningum. Eftirlifandi eiginkonu, börn- um, barnabörnum og barna- barnabörnum votta ég samúð mína. Þinn litli bróðir og hans fjöl- skylda, Theodór Guðmundsson. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Handavinna með leiðb. kl. 9-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Miðvikudagur: Vatnsleikfimi kl. 9.10. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10.30. Boccia kl. 10.40-11.20. Opið kaffihús 14.30. Dalbraut 18-20 Verslunarferð í Bónus kl.14.40. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.30. Félag eldri borgara í Garðabæ 565-6627 skrifstofa opin miðvikudaga 13.30-15.30.Vatnsleikfimi Sjál. Kl. 8. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg kl. 8.30-16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Útskurður leiðb í fríi kl. 11.15-11.45 Leikfimi Helgu Ben kl. 12.30-15. Döff Félag heyrna- lausra kl. 13-16. Útskurður leiðb í fríi kl. 13-16. Félagsvist Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30. útvarpsleikfimi kl. 9.45. hádegismatur kl. 11.30. handavinna og stólaleikfimi kl. 13. og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50. listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, ganga kl.10. síðdegiskaffi kl.14.30. allir velkomnir óháð aldri upplýsingar í síma 411-2790. Korpúlfar Gönguhópar kl. 10. gengið frá Borgum. Opið hús frá kl. 13. til 16. í dag í Borgum og alla miðvikudaga í sumar, félagsvist, han- nyrðir af öllum gerðum, gleðilegt spjall og stundum óvæntar uppákomur. Sjáumst í Borgum á miðvikudögum í sumar. Seltjarnarnes Snjallsíma og spjaldtölvu námskeið kl. 10-12. kaffi- spjall í króknum kl. 10.30. botsía í salnum skólabraut kl. 13.30. ganga frá Skólabraut kl. 14.30. vatnsleikfimi Sundlaug Seltjarnarness kl. 18.30. Minnum á skráningu í sumarferð, farið verður um Reykjanesið þann 11. júlí, skráning stendur til 2. júlí og liggja skráningarblöð niðri í Eiðismýri og á Skólabraut. Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr 10. er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og handavinnuhópurinn kemur sa- man kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30 – 15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Hel- enu í síma 568-2586. Vitatorg Sumarferð til Friðheima þann 4. júlí frá 9:30-15:00. Skoðum gróðurhúsið og fáum Friðheima tómatsúpu í hádegisverð. Rúta með gott aðgengi fyrir fólk sem notast við hjólastóla og göngugrindur. Ve- rið velkomin með. Ferðin er opin öllum óháð aldri og búsetu. Verð 5500 krónur. Skráning og greiðsla á Vitatorgi, sími 411-9450 Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Ræðumaður Daníel Steingrímsson. Allir vel- komnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Veiði HM er tíminn S. 892 8655 • heimavik.is Tilboð á silunganetum Nr. 1 Ísland 1-? -10% afsláttur Nr. 2 Ísland 1-? -15% afsláttur Nr. 3 Ísland 2-? -20% afsláttur Nr. 4 Ísland - Keypt 3 net -20% afsláttur og við borgum flutning. Að auki með öllum tilboðum: Vettlingar í aðgerðina - bólfæri - netpokar fyrir þyngingu og eitthvað meira skemmtilegt. Þekking • Reynsla • Gæði Heimavík ehf Tveir góðir úr nýju netunum Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com   þú það sem    á FINNA.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.