Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 27

Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 27
fólk með skerta hreyfigetu. „Þegar ég varð þingmaður vildi ég byrja með hreint borð og veita þing- mennskunni alla mína krafta. Þess vegna ákvað ég að segja skilið við fyrirtækið í höndum samstarfs- manna minna, þeirra Óskar Sig- urðardóttur iðjuþjálfa og Hannesar Péturssonar tölvunarfræðings. Evrópumál og aðild Íslands að Evrópusambandinu hafa alltaf verið mér hugleikin. Stóð ég meðal annars fyrir stofnun félagsins Já Ísland í þeim tilgangi og var þar formaður um margra ára skeið. Þá stóð ég ásamt fleirum fyrir einni stærstu undirskriftasöfnun sögunnar þegar rúm 20% kosningabærra Íslendinga kröfðust þess að fá að greiða at- kvæði um framhald aðildarviðræðna við ESB vorið 2014. Í kjölfar þessara atburða varð hugmyndin að stofnun nýs frjáls- lynds alþjóðasinnaðs stjórnmála- flokks til undir forystu Benedikts Jóhannessonar. Ég tók virkan þátt í því starfi frá upphafi og síðan æxl- uðust mál þannig að ég fór í framboð fyrir flokkinn og komst á þing árið 2016 og steig þar með fyrstu skref mín á vettvangi stjórnmálanna, náði síðan endurkjöri 2017. Mér finnst þingmennskan spennandi og er sér- lega ánægður með að hafa getað sett mark mitt á síðasta þingvetur sem þingmaður í stjórnarandstöðu. Tvö mál sem ég stóð fyrir náðu fram að ganga og nutu víðtæks stuðnings. Annars vegar var breytt skilgrein- ing nauðgunar í almennum hegningarlögum og hitt málið varð- ar breytingar til að tryggja betur arðsemi og gæði opinberra fram- kvæmda. Femínismi og raunveruleg jafnstaða karla og kvenna eru mér afar hugleikin viðfangsefni.“ Gönguferðir um fjöll og firnindi eru eitt af áhugamálum Jóns Stein- dórs. „Ég er í tveimur gönguhópum sem fara ferðir árlega. Annar er með konu minni og gengur hópurinn á sumrin í nokkra daga og er skipaður úrvalsfólki. Hinn hópurinn er ein- göngu skipaður körlum og hefur yfir sér hetjulegra yfirbragð enda er helst gengið á jökla og hærri fjöll snemma vors. Ég er stúdent frá MA og kemst ekki hjá því að nefna hversu skemmtileg tengsl og hefðir fylgja þeirri skólavist. Vináttubönd og kunningsskapur styrkjast í hvert sinn sem við hittumst. Ég er nýkom- inn úr 40 ára fagnaði sem var þriggja daga vináttuhátíð. Reyndar söguleg, einn félaginn fótbrotnaði í gönguferð að skólavörðunni á Vaðla- heiði og ég horfði á tengdasoninn verja víti frá Messi í góðra vina hópi í Gilinu á Akureyri. Ég er strax far- inn að hlakka til að fara norður á 45 ára stúdentsafmælinu!“ Fjölskylda Eiginkona Jóns Steindórs er Gerður Bjarnadóttir, f. 3.5. 1958, framhaldsskólakennari við MK. Foreldrar: Hjónin Bjarni Guðnason, f. 3.9. 1928, prófessor emerítus og fv. alþingismaður í Reykjavík, og Anna Guðrún Tryggvadóttir, 14. júní 1927, kennari í Reykjavík. Börn Jóns Steindórs og Gerðar eru 1) Gunnur Jónsdóttir, f. 2.10. 1982, efnafræðingur og „supply chain manager“ hjá Össuri hf., bús. í Reykjavík. Maki: Andri Guðmunds- son, framhaldsskólakennari við MR. Barnabörn: Úlfhildur, f. 7.12. 2010, og Alda, f. 5.6. 2015; 2) Halla Jóns- dóttir, f. 5.3. 1986, BS í sálfræði og heimavinnandi, bús. í Randers í Danmörku. Maki: Hannes Þór Hall- dórsson, markvörður hjá Randers og kvikmyndaleikstjóri. Barnabörn: Katrín Una, f. 13.3. 2013, og Bergur Ari, f. 31.1. 2016; 3) Hildur Jóns- dóttir, f. 19.8. 1988, læknir í fram- haldsnámi í Bandaríkjunum. Systir Jóns Steindórs er Sigrún Stefanía Valdimarsdóttir, f. 7.6. 1950, lyfjafræðingur í Reykjavík. Foreldrar Jón Steindórs voru hjónin Valdimar Pálsson, f. 22.8. 1931, d. 8.10. 1983, húsgagnabólstr- ari á Akureyri. Sigurveig Jónsdóttir. f. 10.1. 1931, d. 3.2. 2008, leikkona á Akureyri og síðar í Reykjavík. Jón Steindór Valdimarsson Sigurveig Oddsdóttir húsfreyja í Ólafsfirði Jón Þorsteinsson vél- og byssusmiður í Ólafsfirði Emma Jónsdóttir húsfreyja í Ólafsfirði Jón Steindór Frímannsson vélsmiður í Ólafsfirði Sigurveig Jónsdóttir leikkona á Akureyri Halldóra Sigurbjörg Friðriksdóttir húsfreyja að Deplum og Lundi Frímann Steinsson bóndi á Deplum og Lundi í Stíflu, Fljótum Sigurlína Pálsdóttir úsfreyja á Akureyri Ísar Logi Arnarsson tónlistarmaður og fv. ritstjóri tónlistarblaðs- ins Undirtóna Jóhanna Geirlaug Pálsdóttir (Gilla), lögreglukona og síðar póstmeistari á Keflavíkurflugvelli Sigrún Valdimars- dóttir lyfja- fræðingur í Rvík Jón Þorsteinsson óperusöngvari Þorsteinn Jónsson vél- smiður og framkvæmda- stjóri í Ólafsfirði og Rvík h Oddur F. Helgason ættfræðingur Margrét Stefánsdóttir húsfreyja í Syðra-Dalsgerði, Syðri- Villingadal og víðar í Eyjafirði Einar Friðfinnsson bóndi í Syðra-Dalsgerði, Syðri-Villingadal, Drafla- stöðum í Sölvadal og víðar Stefanía Einarsdóttir húsfreyja á Vatnsenda og Akureyri Páll Hólm Jónsson bóndi á Vatnsenda í Saurbæjarhr., Eyj., síðan húsgagnabólstrari á Akureyri Sveinbjörg Kristjana Pálsdóttir húsfreyja á Vatnsenda Jón Jónsson bóndi á Vatnsenda í Saurbæjarhr., Eyj. Úr frændgarði Jóns Steindórs Valdimarssonar Valdimar Pálsson húsgagnabólstrari á Akureyri ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 95 ára Magnea Katrín Þórðardóttir 90 ára Gestur Friðjónsson 85 ára Anna S. Guðmundsdóttir Guðbjörg Kristjánsdóttir Steinunn Gunnlaugsdóttir Sveinn Skagfjörð Pálmason 80 ára Ásdís Finnbogadóttir Erling Aðalsteinsson Friðgeir Hr. Guðmundsson Rósa Haraldsdóttir Sigríður Elín Guðmundsd. 75 ára Guðbjörn Ólafsson Kristrún Ólöf Jónsdóttir 70 ára Eiríkur Ragnar Mikkaelsson Eyjólfur Karlsson Guðrún Skarphéðinsdóttir Hjördís Þórarinsdóttir Jón Eiríksson Maríanna Haraldsdóttir Olga Guðnadóttir Sævar Jónsson Þorgerður Jónsdóttir 60 ára Áslaug Guðný Jónsdóttir Gunnar Jónsson Gunnlaugur Bjarnason Hildur Jóhannsdóttir Hjálmar Ólafsson Jóhannes Hjálmarsson Jón Steindór Valdimarsson Kristinn Þór Jónsson Kristín Helga Guðmundsd. Kristín María Valgarðsdóttir Ólína Aðalbjörnsdóttir Sólrún Albertsdóttir Örn Sigfússon 50 ára Andrea Sigrún Harðardóttir Anna Birna Snæbjörnsd. Einar Júlíusson Halldóra Sólbjartsdóttir Halldór R. Baldursson Hrönn Arnardóttir Kristján Ágúst Njarðarson Ólafur Árni Þorbergsson 40 ára Anna Guðlaug Guðnadóttir Anna Kristín Sigurpálsd. Arna Torfadóttir Árni Klemensson Davíð Þór Jónsson Elísa Enea Sigrúnardóttir Elsa Karen Jónasdóttir Ester Björg Valsdóttir Guðrún Bergsdóttir Guðrún Beta Mánadóttir Jonah S. M. Marchadesch Jón Trausti Ingvason Kolbrún Jóhannsdóttir Kristína R. Berman Sigurður Guðjónsson Somsri Yurasit Sólrún Halla Bjarnadóttir Þóra María Jóhannsdóttir 30 ára Brynja Magnúsdóttir Erla Bjarný Jónsdóttir Eva Björg Ægisdóttir Guðmundur B. Óðinsson Hermann Þór Ómarsson Hilmar Freyr Loftsson Ingibjörg Ester Ármannsd. Íris Eva Hauksdóttir Karl Ágúst Bárðarson Katrín Arna Harðardóttir Kristinn Helgason Sæmundur Ingi Johnsen Þórunn Guðbjörnsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Guðrún Beta er frá Höfn í Hornafirði en býr í Reykjavík. Hún er bókasafnsfræðingur og vinnur á skólasafninu í Ártúnsskóla. Systkini: Gunnar Steinn, f. 1980, og Fjalarr Páll, f. 1982. Foreldrar: Máni Fjalars- son, f. 1954, heimilis- læknir, og Gunnþóra Gunnarsdóttir, f. 1948, blaðamaður á Frétta- blaðinu, bús. í Reykjavík. Guðrún Beta Mánadóttir 30 ára Ingibjörg er frá Svínafelli í Öræfum en býr í Kópavogi. Hún er löggilt- ur endurskoðandi hjá KPMG. Maki: Brynjar Örn Ellerts- son, f. 1985, lífefnafræð- ingur og sérfræðingur hjá Actavis. Sonur: Bjarki Þór, f. 2015. Foreldrar: Ármann Karl Guðmundsson, f. 1965, og Hólmfríður Guðlaugs- dóttir, f. 1963, bændur í Svínafelli. Ingibjörg Ester Ármannsdóttir 40 ára Kristína er frá Reykjavík og Toronto en býr á Siglufirði. Hún sér um ljósmyndasafn Síldar- minjasafnsins. Maki: Már Örlygsson, f. 1975, forritari. Börn: Logi Bjartur, f. 2002, Úlfrún, f. 2006, og Örvar, f. 2009. Foreldrar: Robert Ber- man, f. 1949, d. 2016, enskuprófessor, og Ingi- gerður Guðbjartsdóttir, f. 1951, ljósmóðir. Kristína R. Berman  Jens Guðmundur Hjörleifsson hef- ur varið doktorsritgerð sína í lífefna- fræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin heitir Samspil undireininga og áhrif jóna á kuldavirkan alkalískan fosfa- tasa úr sjávarörverunni Vibrio splendidus. Leiðbeinandi Jens var dr. Bjarni Ás- geirsson, prófessor í lífefnafræði við raunvísindadeild Háskóla Íslands. Í doktorsnefnd voru dr. Magnús Már Kristjánsson, prófessor í lífefnafræði við raunvísindadeild Háskóla Íslands, og dr. Elena Papaleo, dósent við Kaup- mannahafnarháskóla og yfirmaður rannsóknarstofu í lífupplýsingafræði við Danish Cancer Society Research Center. Andmælendur voru dr. Tony Collins, lektor við Miðstöð sameinda- og umhverfislíffræði, Háskólanum í Minho, Braga, Portúgal, og dr. Stjepan Orhanovic, dósent við raunvísinda- deild háskólans í Split, Króatíu. Rannsóknarefni ritgerðarinnar snerist um kuldavirkt afbrigði af ensími sem er út- breitt í náttúrunni og er vel þekkt á flestum rannsókn- arstofum (alkal- ískur fosfatasi). Gallar í því valda ýmsum sjúkdóm- um í mönnum, svo sem beinþynningu og þarmabólgum. Í ritgerðinni var svarað grundvallarspurningum um samspil milli undireininga ensímsins og hvaða efna- og eðlisfræðilegu ferl- ar liggja að baki aðlögun þess að lágu hitastigi. Niðurstöður renndu stoðum undir þá tilgátu að samskipti undir- eininga á staðbundnum svæðum ens- ímsins væru nauðsynlegur grundvöll- ur fyrir virkni þess með því að miðla kvikum og markvissum hreyfingum innan ensímsins. Einnig virðist þetta tiltekna sjávarensím hafa náð að há- marka virkni sína í saltríku umhverfi, líkt og finnst í sjó. Jens G. Hjörleifsson Jens Guðmundur Hjörleifsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann llauk BS-gráðu í lífefnafræði 2010 og starfaði svo á rannsóknarstofu Ölgerðar Egils Skallagrímssonar til ársins 2012 áður hann fluttist til Stokkhólms í Svíþjóð til að hefja nám í peptíð- og prótínefnafræði við Stokkhólmsháskóla. Þar rann- sakaði hann m.a. hvötunarvirkar DNA-kjarnsýrur, og lauk MS-gráðu árið 2014. Sama ár byrjaði hann í doktorsnámi við raunvísindadeild verkfræði- og náttúru- vísindasviðs Háskóla Íslands. Jens hefur nýverið hafið störf á Raunvísinda- stofnum sem nýdoktor og mun halda áfram rannsóknum í lífefnafræði ásamt því að kenna í hlutastarfi við Háskóla Íslands. Jens er í sambúð með Írisi Kristins- dóttur (f. 1984) og eiga þau saman þrjár dætur, Snædísi (f. 2013) og tvíbura- systurnar Heiðbjörtu og Söru Dís (f. 2014). Doktor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.