Morgunblaðið - 27.06.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.06.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þinn helsti kostur er hversu gott þú átt með að trúa á getu þína og horfa með bjartsýni fram á veginn. Nú máttu verðlauna sjálfan þig svolítið. 20. apríl - 20. maí  Naut Vertu ákveðinn í því sem þú tekur þér fyrir hendur og láttu ekki slá vopnin úr höndum þínum. Margt smátt gerir eitt stórt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er freistandi að gefa loforð núna, en reyndu að standast það og ekki segja neitt sem gerir þig vandræðalegan seinna meir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Viðræður við vin um vonir þínar og drauma fyrir framtíðina gætu borið óvæntan ávöxt. Vinnan verður léttari ef fleiri leggja hönd á plóginn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft ekki að vera svona óvæginn við sjálfan þig. Hvað sem gerist þá munt þú beita þér af meiri tilfinningu en gengur og gerist. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Forðastu valdabaráttu við foreldra og yfirboðara í dag. Takirðu áhættu þarftu líka að vera maður til að taka afleiðing- unum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að halda öllu í sem bestu jafnvægi svo þú eigir auðveldara með að ráða fram úr þeim vandamálum sem banka upp á. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú er rétti tíminn til þess að segja þínum nánustu hvað þér býr í brjósti. Mundu því að í upphafi skyldi end- inn skoða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt vini á mörgum stöðum og mátt hafa þig allan við að sinna vinátt- unni sem skyldi. Þú ert vel upplagður og allt virðist ganga upp hjá þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Stefndu ótrauður að þínu tak- marki hvað sem hver segir því þú ætlar að ná því fyrir sjálfan þig en ekki aðra. Vertu fær um og til í að skilja það sem aðrir ótt- ast. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Líttu til þeirra sem leita eftir aðstoð þinni. Mundu að seinna kann þig að vanta svör við einhverju svo taktu spyrjendunum vel. 19. feb. - 20. mars Fiskar Dagurinn í dag er kjörinn til að fara í gegnum eigur sínar, tímarit, bækur og hluti sem þú hefur haldið í heima hjá þér. Sigurlín Hermannsdóttir yrkirþetta skemmtilega og fallega ljóð, „Fuglarnir hans afa“, og birtir á Boðnarmiði: Ég átti svo frábæran afa og einatt ég hjá honum sat á kvöldin í skúrnum er skar hann út fugla því skapað hann afi minn gat. Og afi þá sagði mér sögur er sýslar með útskurðarhníf um knýjandi þrá eftir frelsi, því flugið er fuglanna yndi og líf. Í fuglum sem fæddust hjá afa, oft fágætan heyrði ég klið er tók þá í lófann og lagði að vanga; þeir lifnuðu örlítið við. Ég vissi þeir vildu sig hreyfa þótt virtust svo spakir að sjá í miðnæturhúmi er mennirnir svæfu þá mundu þeir fara á stjá. En kvöld eitt hann afi minn kvaddi og komið ei aftur hann gat því guð þurfti eitthvað á aðstoð að halda og afi nú hjá honum sat. Er horfi á himinsins fugla sem hringsóla um upploftin blá þá handbragðið þekki og augljóst má öllum að afi minn skapaði þá. Ólafur Stefánsson skrifar í Leir- inn: „Ég villtist inn á þennan Boðn- armjöð, sem ég hafði heyrt um, en ekki séð. Þar sá ég helst gamla Leir- verja og mátti segja að þeir héldu uppi fjörinu. O,jæja. Andrúmsloftið ekkert fegra, ort þó geti þeir. Og mannlíf naumast merkilegra en mætir þér á Leir. Og á Boðnarmiði yrkir Ármann Þorgrímsson um „beggja skauta byr“: Þó við njótum þekkingar og þar sé fullt af svörum, eins og risaeðlurnar eina leið við förum. Þetta er ekki ósennilegri „veður- spá“ hjá Magnúsi Halldórssyni en hjá Veðurstofunni! Á það benda úrvals gögn, sem enginn þó vill heyra, að hann rigni agnarögn, ógn og síðan meira. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fuglarnir hans afa tóku flugið „ÞETTA ER MJÖG NOTALEGT HJÁ ÞÉR.“ „TÓLF MJÓLKURGLÖS OG HELLING AF SMÁKÖKUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að þola einhæfnina með ánægju! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann RÓMVERSKA HEIMSVELDIÐ REIS OG FÉLL Á NÝ LANGUR LÚR HRÓLFUR ER FARINN AÐ STUNDA TEYGJUÆFINGAR REGLULEGA TIL AÐ BÚA SIG UNDIR HÁTÍÐARNAR! HANN ER AÐ TEYGJA Á MAGARÝMINU! Sumarið er tími reyfaranna ogþeir hafa nokkrir legið á nátt- borði Víkverja í vor og sumar. Hann hefur verið ginnkeyptur fyrir Dan Brown fyrir það hvað hann fléttar táknfræðina skemmtilega inn í reyf- ara sína. Það átti ekkert síður við um nýjustu bók hans, Uppruna, en Da Vinci-lykilinn. Bækur Browns geta verið fyrirsjáanlegar, til dæmis ræð- ur „tilviljunin“ því að alltaf endar söguhetjan, Robert Langdon pró- fessor, í slagtogi með ungum, fögr- um konum og saman lenda þau í bráðum háska. Krítarmaðurinn eftir C.J. Tudor og Flúraða konan eftir Mads Peder Nordbo voru ágæt af- þreying og Blóðengill eftir Óskar Guðmundsson sá um að veita ís- lenska spennu. x x x Víkverji ákvað að láta ekki nægjaað fylgjast með heimsmeistara- mótinu í Rússlandi, heldur lesa sér aðeins til um gestgjafann í leiðinni. Hann rifjaði upp bráðfjöruga úttekt, sem Masha Gessen skrifaði fyrir nokkrum árum um uppgang Vladim- írs Pútíns, The Man Without a Face. Hún lýsir hvernig óligarkarnir, sem komu Pútín til valda, héldu að þeir gætu stjórnað honum, en komust að því, sumir með heldur óþægilegum hætti, að Pútín vill stjórna, fremur en að láta stjórnast. x x x Einnig hefur Víkverji gripið niður íThe Road To Unfreedom eftir sagnfræðinginn Timothy Snyder, sem lýsir með forvitnilegum hætti hugmyndafræðinni að baki stjórn- arháttum Pútíns og hvernig hún hef- ur tekið breytingum í stjórnartíð hans. Í upphafi hafi hann verið hlynntur Evrópusambandinu og tal- að um samstarf, en nú sé vestrið orð- ið rót alls þess, sem forðast ber eigi Rússland að halda í hreinleika sinn. Þá liggur á borði Víkverja doðr- anturinn Líf og örlög eftir Vassilí Grossman. Skáldsögu hans hefur verið líkt við stórvirki Tolstojs og Dostojevskís. Þungamiðjan er orr- ustan um Stalíngrad, en bókin er uppgjör við fasisma og kommúnisma og niðurstaðan í raun sú að þessir ismar séu tvær hliðar á sömu mynt- inni. vikverji@mbl.is Víkverji Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. (Sálm: 143.10) Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is FYRIR HUNDA 80% kjöt 20% jurtir grænmeti ávextir O% kornmet – fyrir dýrin þín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.