Morgunblaðið - 27.06.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.06.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hressandi morgunganga Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Þetta er alltaf svolítið langt ferli hjá okkur. Hver plata með Árstíðum er alltaf svolítil breyting frá þeirri fyrri,“ segir Ragnar Ólafsson, einn af þremur meðlimum hljómsveitar- innar Árstíða. Árstíðir gáfu fimmtu hljóðversplötu sína, Nivalis, út 22. júní síðastliðinn en ýmsar nýj- ungar má heyra á plötunni sem ekki hafa heyrst áður á plötu frá Árs- tíðum. Ragnar segir að platan hafi verið tæpt ár í mótun, en raf- gervlar og önnur nýmóðins hljóð- færi voru notuð í ríkari mæli á plöt- unni en á fyrri upptökum sveitar- innar. Syngjandi og spilandi í tíu ár „Plöturnar eru allar mjög ólíkar innbyrðis,“ segir Ragnar, en hljóm- sveitin fagnar um þessar mundir tíu ára starfsafmæli. „Við höfum gengið í gegnum mikl- ar mannabreytingar á þessum tíma. Við byrjuðum þrír, ég, Daníel og Gunnar, og svo óx bandið og var orð- ið sextett þegar við vorum flestir,“ segir hann, en það var einmitt á þeim tíma sem hljómsveitin varð á einni nóttu sannkallað internet- undur, þegar myndband af henni að syngja Heyr himna smiður á braut- arstöð í Þýskalandi fór eins og eldur í sinu um netheima. Síðan hefur aftur fækkað í hópn- um og í dag eru einungis stofn- meðlimirnir Ragnar, Daníel og Gunnar innanborðs. „Sömu þrír gaurarnir sem byrjuðu þetta fyrir tíu árum,“ eins og Ragnar orðar það. Breyttar áherslur „Með svona mannabreytingum breytast líka áherslur. Hljóðfærum hefur náttúrulega fækkað en það hefur þó líka opnað á möguleika á að prófa nýja hluti,“ segir Ragnar um nýju plötuna. „Við erum svolítið að fara aftur í grunnatriðin. Það er að segja, við erum sami kjarninn og byrjaði,“ segir hann. „En á sama tíma erum við að nýta alls konar hljóðfæri og tækni sem við höfum ekki notað áður,“ bætir hann síðan við og nefnir í því samhengi áður- nefnda rafgervla. „Við tókum upp í Orgelsmiðjunni hjá Magnúsi Øder. Það er bara eins og leikfangabúð fyrir tónlistarfólk. Allt vegg- og gólfpláss er nýtt fyrir gamla hljóðgervla og önnur spenn- andi hljóðfæri,“ segir Ragnar. Samvinna er lykillinn Ragnar og félagar höfðu úr mörg- um lögum að velja þegar þeir ákváðu hvaða lög myndu komast á plötuna, enda allir frjóir lagasmiðir. Við þá vinnu fengu þeir til liðs við sig Færeyinginn Sakaris Emil Joen- sen, sem pródúseraði plötuna ásamt meðlimum hljómsveitarinnar. „Hann kemur algjörlega úr raf- tónlistaráttinni.“ segir Ragnar um Færeyinginn knáa. „Hann vann hluta af ferlinu með okkur og hjálp- aði okkur að sætta þessa tvo heima, það er að segja órafmagnaða grunn- inn okkar og raftónlistarheiminn.“ Allir forsprakkar og lagasmiðir Eins og áður segir sjá strákarnir í Árstíðum um lagasmíðar í samein- ingu og minnist Ragnar í því efni á gott gengi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, sem er ofarlega í huga flestra Íslendinga um þessar mundir. „Við erum allir „frontmenn“ og allir lagasmiðir. Það reynir auðvitað á samstarfið, það verður að vera mjög lýðræðislegt. Allir semja og allir koma með helling á borðið. Reglan hjá okkur er svo þannig að um leið og eitthvað er komið inn á borð er lagið orðið sameign hljóm- sveitarinnar og allir í bandinu fá að breyta og koma með hugmyndir. Svo fer lagið í ferli þar sem við próf- um hljóðheima og útsetningar,“ seg- ir Ragnar og bætir við hlæjandi: „Þetta er bara eins og Heimir (Hall- grímsson) er alltaf að tala um; liðs- heild. Það er held ég svolítið ís- lenska leiðin þessa dagana.“ Liðsheild eins og Heimir mælir fyrir um  Hljómsveitin Árstíðir gefur út fimmtu hljóðversplötu sína, Nivalis  „Við erum svolítið að fara aftur í grunnatriðin,“ segir Ragnar Ólafsson, einn hljómsveitarmeðlima  Lýðræðislegt samstarf Árstíðamenn Fimmta hljóðversskífa hinna tíu ára gömlu Árstíða kom út fyrir tæpri viku og ber titilinn Nivalis. Norræni menningarsjóðurinn út- hlutaði í fyrradag styrkjum úr Púls- áætluninni og kynnti nýja og svo- nefnda Púls-skipuleggjendur tón- leika til sögunnar, en á næstu tveimur árum munu 62 skipuleggj- endur um öll Norðurlönd bjóða al- menningi upp á dagskrá með efni- legu norrænu tónlistarfólki, að því er fram kemur í tilkynningu. Þar segir að auk þess að tilnefna Púls- skipuleggjendur veiti sjóðurinn 4,8 milljónir danskra króna í styrki og að verkefnið hafi vaxið um 600 þús- und danskar krónur og 20 ný tón- listarhús og tónlistarhátíðir hafi bæst í hópinn. Haft er eftir Benny Marcel, fram- kvæmdastjóra Norræna menningar- sjóðsins, að Púls sé dæmi um öflugt, fjölþjóðlegt samstarfsnet sem auki gæði menningarlífsins. Søren Staun, aðalráðgjafi hjá Norræna menn- ingarsjóðnum, segir að í ár hafi tek- ist að ná til allra norrænu landanna og að Ísland sé sérstaklega áberandi með sterka umsækjendur og fyrir tilstilli Púls verði nú komið á öflugu samstarfsneti íslenskra tónleika- staða um norræna tónlist. Tíu Púls-skipuleggjendur af 62 eru hér á landi, en þeir eru Eistna- flug, Myrkir músíkdagar, Húrra, Græni hatturinn og Havarí, Iceland Airwaves, Iðnó, Mengi, Norræna húsið og Salurinn. Frekari upplýs- ingar um Púls má finna á puls.nor- diskkulturfond.org/en/. Morgunblaðið/Einar Falur Tónleikastaður Mengi heldur úti öflugri tónleikadagskrá. Hér sjást fé- lagarnir Megas og Kristinn H. Árnason á tónleikum í húsinu í fyrra. 62 hljóta Púls-styrki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.