Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 33

Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is P22 Armstóll Hönnun: Patrick Norguet ICQC 2018-20 Love, Simon Rómantísk gamanmynd sem fjallar um menntaskólanemann Simon, sem virðist ganga allt í haginn og á vel stæða og ástríka foreldra, fjöl- skyldu og vinahóp. En hann lumar á leyndarmáli. Handrit mynd- arinnar er byggt á skáldsögunni Simon vs. the Homo Sapiens Ag- enda eftir Becky Albertalli. Leik- stjóri myndarinnar er Greg Berl- anti og helstu leikarar Nick Robinson, Jennifer Garner og Josh Duhamel. Metacritic: 72/100 Tag Gamanmynd um nokkra miðaldra karlmenn og fyrrverandi bekkjar- félaga sem skipuleggja árlega býsna snúinn „klukk“-leik en hann krefst þess að þátttakendur þurfi sumir hverjir að ferðast um Banda- ríkin þver og endilöng. Eins og við má búast færist fjör í leikinn eftir því sem á líður. Leikstjóri er Jeff Tomsic og aðalleikarar Annabelle Wallis, Isla Fisher, Jon Hamm, Jeremy Renner, Leslie Bibb, Ras- hida Jones, Jake Johnson og Ed Helms. Metacritic: 57/100 Sicario: Day of the Soldado Framhald spennumyndarinnar Sic- ario sem Jóhann Jóhannsson heit- inn samdi tónlist við og hlaut mikið lof og verðlaun fyrir. Í framhalds- myndinni er það Hildur Guðnadótt- ir sem semur tónlistina, en hún var náin samstarfskona Jóhanns. Í framhaldsmyndinni hefur fíkni- efnastríðið á landamærum Banda- ríkjanna og Mexíkó stigmagnast og eiturlyfjahringirnir eru farnir að flytja hryðjuverkamenn yfir landa- mærin til Bandaríkjanna. Alríkis- lögreglumaðurinn Matt Graver þarfnast aðstoðar í baráttu sinni við glæpamennina og kallar til hinn dularfulla og stórhættulega Alej- andro. Leikstjóri er Stefano Sol- lima og með aðalhlutverk fara Benicio Del Toro, Josh Brolin og Catherine Keener. Metacritic: 61/100 Bíófrumsýningar Rómantík, klukk og eiturlyfjastríð Eiturlyfjastríð Úr spennumyndinni Sicario: Day of the Soldado. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Tónlistarkonan Sóley tekur þátt í sumartónleikaröð Norræna húss- ins með tónleikum á í kvöld kl. 21. „Ég spila á flygil, mellotron, harmóníku og sitthvað fleira og fæ með mér trommu- og bassagítar- leikara. Ég hugsa að við verðum eins og nokkurs konar djass- píanótríó sem spilar mjög hægt popp,“ segir Sóley Stefánsdóttir hlæjandi og bætir við að efni af plötu sem hún er að semja verði einnig flutt á tónleikunum. Nýkomin frá Noregi „Ég hef áður komið fram í Nor- ræna húsinu en það var í byrjun ferilsins,“ segir Sóley, sem er ný- komin frá Noregi þar sem hún varði viku í tónsmíðar í samstarfi við norska hljómsveit sem hún hafði aldrei hitt áður. Afrakstur vinnunnar fluttu þau á tónlistar- hátíð í Harstad í Norður-Noregi. „Ég var beðin um að taka þátt í þessu verkefni og sló til. Ég tók þátt í svipuðu verkefni fyrir sjö árum þegar ég var nýbyrjuð í tón- listinni og fann vel muninn. Það er smá áskorun að vinna tónlist með fólki sem ég hef aldrei hitt áður,“ segir Sóley. Þráin að búa til hávaða og gný Í fyrra gaf Sóley út plötuna Endless Summer, þar sem notast var við fjölda hljóðfæra. Hún segir að á nýju plötunni skipi til dæmis harmóníkan stóran sess í tón- smíðaferlinu. „Ég vildi breyta til á næstu plötu og nota harmóníkuna á óhefðbundnari hátt í bland við ný- tilkominn áhuga minn á hljóð- gervlum og svo óstjórnlega þrá til að búa til hávaða og gný sem ég blanda við röddina mína sem er einhvern veginn alltaf við það að bresta. Það má segja að út úr þessu komi einhvers konar drungaleg og hæg tilraunapopp- tónlist,“ segir Sóley. Hark að lifa af tónlist Sóley er búsett á Íslandi. Hún segir hark að lifa á tónlistinni og tekur að sér mörg verkefni er- lendis. „Ég á fjögurra ára gamla stelpu og það rífur alltaf meira og meira í að skilja hana eftir á Íslandi. Eftir því sem hún eldist gerir hún sér betur grein fyrir því þegar ég fer og telur niður dagana þar til ég kem aftur,“ segir Sóley. Hún segir að tekjur vegna vinnu sem sjálfstætt starfandi tónlistarmaður séu rokkandi. Stundum komi inn ágætis tekjur en aðra mánuði lítið og þar sem hún vinni mikið er- lendis og fái greitt í erlendum gjaldmiðli hafi verðgildi launanna lækkað. „Ég finn mikinn mun á því hvað krónan er orðin sterk á síðustu ár- um og evran skilar minna í minn vasa heima á Íslandi,“ segir Sóley, sem auk þess að semja og flytja tónlist kennir í Listaháskóla Ís- lands og tekur að sér ýmis tónlist- artengd verkefni. Djasspíanótríó sem spilar mjög hægt popp  Sumartónleikaröð Norræna hússins hefst í kvöld með tónleikum Sóleyjar Ljósmynd/Iona Cirlig Fyrst Sóley ríður á vaðið með vinum sínum í sumartónleikaröð Norræna hússins. Hinn virti suðurafríski heimilda- ljósmyndari David Goldblatt lést í fyrradag, 87 ára að aldri, og var jarðsettur í Jóhannesarborg í gær. Goldblatt öðlaðist frægð fyrir einstaka skráningu sína á mannlífi í heimalandi sínu á tímum aðskiln- aðarstefnunnar, þar sem hann beindi einkum sjónum að ójafnvæg- inu og spennunni milli hvítra og svartra íbúa landsins. Var hann stundum kallaður „samviska þjóðar sinnar“ og mátti finna reiði hans yf- ir ástandinu krauma undir yfir- borði faglegra svarthvítra ljós- myndanna. Myndir Goldblatts birtust í fjölda bóka og sýninga víða um lönd. Hann beindi sjónum að daglegu lífi fólks en ekki átökum; sagðist í raun vera skræfa og hlaupa á brott ef stefndi í ofbeldi. „Sem ljósmyndari hef ég hins vegar áhuga á því hvað veldur slíkum atburðum,“ sagði hann í viðtali árið 2013, en raunsæi verka hans endurspeglaði afar vel lífið í Suður-Afríku. Goldblatt helgaði líf sitt ljós- myndun frá árinu 1963 og áratug síðar kom út fyrsta rómaða bók hans af mörgum, On the Mines, en meðhöfundur hans, Nadine Gordi- mer, hreppti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1991. AFP Allur Goldblatt á sýningu sinni í Cartier Bresson-stofnuninni í París árið 2011. Kallaður samviska Suður-Afríku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.