Morgunblaðið - 27.06.2018, Page 36
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Magnea Þorsteinsdóttir hlaut í vik-
unni verðlaunin Silver Presidential
Award fyrir framúrskarandi náms-
árangur. Hún er skipulögð og leggur
hart að sér í náminu en stundar líka
fótbolta og spuna.
Magnea er 12 ára nemandi við
skólann Liberty Elementary School
í Braintree í Boston. Hún lauk 5.
bekk í vikunni og við skólaslitin voru
veittar viðurkenningar. „Allir í 5.
bekk komu saman og horfðu á
myndband um öll 5 skólaárin, því við
erum saman búin að klára 5 ár í skól-
anum. Svo var verðlaunaafhending
og ég fékk „Silver Presidential Aw-
ard“. Það voru ekki margir sem
fengu þau, svona 5 til 7 í hverjum ár-
gangi. Maður þarf að vera með mjög
góðar einkunnir til að vinna þessi
verðlaun.“
Magnea hlaut viðurkenningar-
skjal undirritað af Donald Trump
forseta en verðlaunin eru veitt af
hálfu hans og menntamálaráðu-
neytis Bandaríkjanna. Verðlaunin
eru hvatningarverðlaun ætluð nem-
endum sem eru í grunnskóla og
framhaldsskóla og hafa verið veitt
síðan 1983.
Æfingin skapar meistarann
Uppáhaldsfagið hennar Magneu
er stærðfræði. „Mér finnst rosalega
gaman í stærðfræði og mér gengur
rosalega vel að reikna og finnst það
bara gaman,“ segir Magnea. Staf-
setning liggur líka vel fyrir henni og
eru stafsetningarprófin tíðust. „Ég
er alltaf að æfa mig og reyna að gera
betur. Þegar það er próf þá reyni ég
að undirbúa mig eins vel og ég get
fyrir spurningar sem munu koma á
prófinu. „Flashcards“ hefur hjálpað
mér mikið og mér finnst best að nota
það. Það virkar þannig að ég set
spurningu á blað og svo myndi svar-
ið vera aftan á blaðinu.“
Magnea lærir heima í 15 mínútur
á dag en þegar það er próf þá lærir
hún jafnt og þétt dagana áður.
„Prófin eru oftast á föstudögum og
þá læri ég mest á fimmtudegi en líka
í svona 10 mínútur á miðvikudegi og
þriðjudegi.“
Gaman í fótbolta og spuna
Auk þess að vera góður náms-
maður stundar Magnea fótbolta og
„improv“ eða spuna. Aðspurð hvort
spuni sé tengdur leiklist segir Magn-
ea: „Þetta eru ekki æfð atriði heldur
er spunnið á staðnum. Kennarinn
gæti t.d. sagt okkur að leika systkin
sem eru rosalega glöð yfir að fá ís og
þá eigum við að vinna með það, ann-
aðhvort ein eða með einhverjum.“
Magnea hefur búið í Bandaríkj-
unum síðan hún var eins árs gömul
og er jafnvíg á íslensku og ensku.
„Við fluttum til Maryland þegar ég
var eins árs og svo komum við hing-
að þegar ég var 5 ára,“ segir hún.
Hún býr nú í Boston ásamt for-
eldrum sínum og fjórum yngri
bræðrum en flytur til Íslands í júlí.
Aðspurð hvort hún hafi íhugað
hvaða menntaskóla hún vilji fara í
segist Magnea ekki vera viss. „Ein-
hvern góðan.“
Magnea segir að það besta við að
vera búsett í Boston sé góða veðrið:
„Góða veðrið er mjög notalegt. Það
er oftast heitt og maður getur borð-
að úti og spilað fótbolta úti í garði og
æft sig.“ Magnea æfir tvisvar í viku
með liðinu CFC og keppir einu sinni
í viku.
Fjölskyldan fylgist með HM í fót-
bolta frá Boston og eru þau dyggir
stuðningsmenn Íslands. Bandaríkin
komust ekki á HM en aðspurð hvort
hún myndi frekar halda með Banda-
ríkjunum, ef landið væri með, segir
Magnea: „Nei, ekki séns.“
Magnea Þor-
steinsdóttir vann
til verðlauna
Afrek Magnea var í hópi örfárra nemenda sem hlutu viðurkenninguna.
Viðurkenning Skjalið er undirritað
af sjálfum Donald Trump forseta.
Framúrskarandi námsmaður
Bolti Magnea æfir tvisvar í viku.
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 178. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Ísland úr leik á HM
2. Reyndi að kyssa fréttamann
3. Fjölmiðlakonur krefjast öryggis …
4. Níu merki um glútenóþol
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hulda – hver á sér fegra föður-
land? er yfirskrift dagskrár í tali og
tónum um líf skáldkonunnar Huldu
sem flutt verður annað kvöld kl. 20 í
Hljóðbergi í Hannesarholti. Helga
Kvam leikur á píanó og Þórhildur
Örvarsdóttir syngur og hafa þær
starfað saman sem dúett í nokkur ár
og haldið marga þematengda tón-
leika á borð við þessa þar sem efnis-
tökin eru oftar en ekki ákveðin ljóð-
skáld eða tónskáld og þá bæði úr
klassískum grunni og heimi dægur-
tónlistar, eins og segir á vef Hann-
esarholts. Annað kvöld verða flutt lög
íslenskra tónskálda við texta Huldu
ásamt frumflutningi á tónlist eftir
Daníel Þorsteinsson sem hann samdi
sérstaklega fyrir Helgu og Þórhildi
fyrir þessa dagskrá. Saman við tón-
listina verða fléttaðar frásagnir af lífi
Huldu og verkum.
Dagskrá í tali og
tónum helguð Huldu
Þjóðlagahá-
tíðin á Siglu-
firði verður
haldin í 19.
sinn 4.-8. júlí,
samhliða Nor-
rænu strand-
menningarhá-
tíðinni og ber
yfirskriftina
Söngvar við
hafið. Jóhann
Sigurðarson leikari mun gefa tóninn
á upphafsdegi hátíðarinnar með
hljómsveit sinni sem ber hið
skemmtilega nafn Flottasta áhöfnin í
flotanum og flytur sjómannalög. Hátt
í 20 tónleikar verða á dagskrá hátíð-
arinnar og mun fiðluleikarinn Chris-
sie Telma Guðmundsdóttir m.a. frum-
flytja fiðlukonsert eftir Ernest Bloch.
Gunnsteinn Ólafsson er listrænn
stjórnandi hátíðarinnar.
Þjóðlagahátíð á
Siglufirði í 19. sinn
Á fimmtudag Suðlæg átt, 3-8 m/s og bjart norðan- og austan-
lands. Skýjað með köflum og þurrt sunnan- og vestantil í fyrstu, en
gengur í suðaustan 8-13 síðdegis með rigningu. Hiti 10 til 20 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari suðlæg átt og víða bjart með köfl-
um, en stöku skúrir við vesturströndina. Hiti 8 til 17 stig að deg-
inum, hlýjast austanlands.
VEÐUR
Settur hefur verið punktur
fyrir aftan kafla númer tvö í
stórmótasögu karlalands-
liðs Íslands í knattspyrnu.
Leikirnir urðu ekki fimm
eins og í Frakklandi fyrir
tveimur árum. Að þessu
sinni varð íslenska liðið að
láta sér nægja þrjá leiki og
eitt stig og heldur heimleið-
is í dag eftir að hafa lokið
frumraun sinni í lokakeppni
heimsmeistaramótsins í
Rússlandi. »2
Stórmótaleikirnir
eru orðnir átta
„Ég held að það sé bara best að spila
sem best fyrir liðið og svo kemur
bara í ljós hvernig hitt fer. Það mikil-
vægasta er auðvitað að vinna leiki og
safna stigum,“ segir knattspyrnu-
konan Elín Metta Jensen sem er orðin
markahæst í Pepsi-
deild kvenna og
efst í einkunnagjöf
Morgunblaðsins
eftir frábæra
frammistöðu í und-
anförnum leikjum
Valskvenna. »4
Markahæst og með
forystu í M-gjöfinni
Átta íþróttamenn hafa hlotið styrki
frá Ólympíusamhjálpinni vegna
undirbúnings fyrir Ólympíuleikana
sem fram fara í Tókýó eftir tvö ár.
Samningurinn er gerður á milli
samhjálparinnar og ÍSÍ. Meðal þeirra
sem hljóta styrkinn eru Aníta Hin-
riksdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir,
Anton Sveinn McKee og Ásgeir Sigur-
geirsson. »4
Undirbúningsstyrkir
fyrir þátttöku á ÓL
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á