Morgunblaðið - 20.07.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
æli- & frystiklefar
í öllum stærðum
K
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Það er oft mikill reykur hér og við
finnum lykt af honum. Það hefur
einnig verið þannig að við sjáum
ekki í fjöllin,“ segir Lena Monica
Fernlund, sem búsett er ásamt
manninum sínum, Guðna Kristjáni
Ágústssyni, í bænum Oviken í Sví-
þjóð. Þar í landi hafa geisað miklir
skógareldar undanfarið og búa hjón-
in í grennd við þá.
„Þetta er svo skrýtið ástand, mað-
ur hefur aldrei lent í svona nátt-
úruhamförum hér. Fólk er bara
óttaslegið. Þetta er alveg ótrúlega
óhugnanlegt og maður veit ekki
hversu nálægt eldarnir eru og
hvernig maður getur hjálpað til.“
Mikill þurrkur er meðal ástæðna
fyrir eldunum, en þurrkurinn setur
svip sinn á daglegt líf Lenu og
Guðna. „Það er helst þurrkurinn
sem hefur áhrif á okkur. Við erum
með íslenska hesta sem við viljum
helst vera með á beit út september
en það er ólíklegt að það sé hægt úr
þessu.“ Þau hjónin fylgjast vel með
fréttum um eldana. „Við fylgjumst
vel með þróun eldanna og þurfum
alltaf að athuga hvort við getum
keyrt tiltekna vegi á svæðinu áður
en við förum eitthvert vegna eld-
anna.“
Eldrautt sólarlag
Sólarlagið er talsvert rauðara en
venjulega að sögn hjónanna. „Við
fórum í fyrradag og tókum myndir
þegar sólin var að setjast og þá var
sólin eins og þegar verður eldgos á
Íslandi, hún var mjög rauð.“
Lena kveðst afar ósátt við hegðun
Svía í þessu brothætta ástandi. „Það
sem mér finnst mjög leiðinlegt í
þessu öllu og heimskulegt er að fólk
er samt að grilla úti þó að það sé
bannað núna og mjög hættulegt. Svo
er fólk að þvælast fyrir björgunar-
aðgerðum í kringum eldana, það er á
veginum með dróna og er þá fyrir
flugvélum sem eru að sækja vatn til
að slökkva eldana. Fólk ber ein-
hvern veginn enga virðingu fyrir
þessu og skilur ekki að þetta er al-
vörumál. Fólk sem hefur búið á Ís-
landi hugsar kannski aðeins öðruvísi
og veit að náttúran getur stjórnað
lífi manns alveg.“
Margir leggja hönd á plóg
Mikill viðbúnaður hefur verið
vegna eldanna. „Þó nokkrir bændur
hér af svæðinu hafa keyrt með trak-
tora og haugsugur til skógareldanna
til að hjálpa til við flutning á vatni til
slökkvibílanna. Þyrlur eru einnig
notaðar og svo sérhannaðar flug-
vélar sem koma frá Ítalíu,“ segir
Guðni.
Lena bendir á að ýmsir komi að
slökkvistörfunum og að margir sjálf-
boðaliðar leggi til vinnu sína. „Það
virðast vera margir sem vilja hjálpa
til. Það er til dæmis einn mjög
áhugaverður ungur maður sem tók
upp á því að fá lánaðar litlar rútur
hjá bílaleigu og svo keyrir hann
sjálfboðaliða á þau svæði sem þarf
að slökkva elda á.“
Náttúruhamfarir skelfa
Íslendinga í Svíþjóð
Búa í grennd við mikla skógarelda Óhugnanlegt ástand
Morgunblaðið/Guðni Kristján
Skógareldar Mikill reykur er yfir þorpinu Oviken sem Lena og Guðni Krist-
ján búa í og er reykjarlykt orðin að daglegu brauði í lífi þeirra.
Morgunblaðið/Guðni Kristján
Hestur Hjónin eru með íslenska hesta hjá sér í Svíþjóð en vegna þurrka
hafa þau áhyggjur af því að þeir muni ekki geta verið á beit mikið lengur.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ákvörðun FISK Seafood ehf. um að
loka rækjuvinnslu fyrirtækisins í
Grundarfirði kemur illa við bæinn og
er mikil blóðtaka að mati Jósefs Ó.
Kjartanssonar, forseta bæjarstjórnar
Grundarfjarðar. Hann gagnrýnir
harðlega samráðsleysi forsvars-
manna FISK Seafood gagnvart
bæjaryfirvöldum.
Starfsfólki verksmiðjunnar var til-
kynnt um ákvörðunina á fundi í gær
og taka uppsagnir nítján starfsmanna
gildi um næstu mánaðamót. Tveimur
verður boðið að starfa við frágang og
undirbúning sölu tækja og búnaðar á
næstu mánuðum.
Langvarandi taprekstur
Ákvörðunin var tekin vegna lang-
varandi tapreksturs vinnslunnar, sem
ekki virðist gerlegt að vinda ofan af
við núverandi aðstæður, að því er
fram kemur í tilkynningu frá FISK
Seafood. Rekstrarumhverfi veiða og
vinnslu á rækju á Íslandi er sagt hafa
breyst verulega á undanförnum árum
með óhjákvæmilegum samdráttar-
áhrifum.
„Það er auðvitað alltaf ömurlegt
þegar fólki er sagt upp. Það er líka
vont fyrir okkur sem bæjarfulltrúa að
lesa fyrst um þetta í blöðunum. Þetta
samráðsleysi er ekki til fyrirmyndar,“
segir Jósef. „Ég skil vel að forsvars-
menn fyrirtækisins vilji ræða sérstak-
lega við starfsfólkið, en mér hefði
fundist eðlilegt að við heyrðum af
þessu áður en fréttatilkynningar voru
sendar út,“ segir hann.
Haft er eftir Friðbirni Ásbjörns-
syni aðstoðarframkvæmdastjóra að
rækjuveiðar við Ísland séu orðnar
innan við 10% af því sem var þegar
best lét og að hráefnið, sem stöðugt
hækki í verði, komi nú orðið að lang-
mestu leyti frá útlöndum.
Mjög munar um störfin tuttugu
Jósef segir að lokunin sé mikið áfall
fyrir bæinn. Miklu muni um störfin
tuttugu. „Í bæ þar sem íbúar eru um
800 og helmingurinn af þeim er börn
og eldri borgarar munar mjög um
tuttugu manns sem vinna. Þetta þýðir
minni útsvarstekjur, þetta er tekju-
tap. Síðan er alltaf talað um að fólk
finni sér aðra vinnu í staðinn, en það
er alls ekki í hendi. Það er ekki búið að
tilkynna mér um neinar hugmyndir
að lausnum eða slíku,“ segir hann.
„Ég geri ekki lítið úr því að þetta geti
verið erfiður rekstur, en ég gagnrýni
aðferðafræðina,“ segir hann enn
fremur.
Málið var tekið fyrir á fundi bæjar-
ráðs í gær. Rósa Guðmundsdóttir,
formaður bæjarráðs, segir fundar-
mönnum hafa brugðið við tíðindin
enda hafi þau borið að rétt í þann
mund er fundurinn var að hefjast.
Bæjarráð átti samtal við áðurnefndan
Friðbjörn um stöðu mála.
„Við bókuðum að við lýstum yfir
miklum áhyggjum af lokun rækju-
vinnslunnar. Þetta er fyrirtæki sem
hefur verið lengi í Grundarfirði og er
einn af stærstu atvinnurekendum og
fasteignaeigendum bæjarins. Þetta
fyrirtæki ber mikla samfélagslega
ábyrgð og við óskuðum eftir mótvæg-
isaðgerðum af hálfu fyrirtækisins til
að lágmarka skaðann fyrir okkur,“
segir hún. Bæjarráð óskaði eftir fundi
með framkvæmdastjórn fyrirtækis-
ins um framhald mála og mótvægis-
aðgerðir.
Blóðtaka fyrir Grundarfjörð
FISK Seafood lokar rækjuvinnslu í Grundarfirði vegna langvarandi tapreksturs Rækjuveiðar við
Ísland eru orðnar innan við 10% af því þegar best lét Forseti bæjarstjórnar gagnrýnir samráðsleysi
FISK 21 starfsmaður missir vinnuna vegna lokunar rækjuvinnslunnar.
Teitur Gissurarson
Arnar Þór Ingólfsson
„Ríkissáttasemjari kom með þessa
hugmynd inn á fundinn og kynnti
hana fyrir báðum aðilum áður og ósk-
aði svo eftir afstöðu okkar, hvors um
sig. Svo var gert stutt hlé. Síðan var
niðurstaðan sú að við vorum tilbúin að
láta á þetta reyna en þær ekki.“
Svona lýsti Gunnar Björnsson, for-
maður samninganefndar ríkisins,
fundinum sem nefnd hans átti við
kjaranefnd ljósmæðra í húsnæði
ríkissáttasemjara í gær. Bar fundur-
inn því engan árangur, en tilboðið
sem fulltrúar ljósmæðra höfnuðu fól
meðal annars í sér að stofnaður yrði
gerðardómur sem myndi meta kröfu
ljósmæðra, þ.e. að aukin ábyrgð, auk-
ið vinnuálag og framhaldsmenntun
þeirra gæfi tilefni til launahækkana.
Spurður hvaða ástæðu ljósmæður
hafi gefið þegar tilboðinu var hafnað
svarar Gunnar: „Þetta var ekki nóg.“
Í samtali við mbl.is í gærkvöldi
sagði Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, for-
maður kjaranefndar ríkisins: „Miðl-
unartillagan felur í sér nákvæmlega
sama samning og ljósmæður felldu
núna í júní, ekkert meira og ekkert
öðruvísi. Það að setja svo málið í
gerðardóm eins og var talað um, það í
rauninni er svolítið ótryggt að okkar
mati, þegar ekkert meira kemur sam-
hliða.“
Þá segir hún að þær missi samn-
ingsumboð sitt um leið og þær sam-
þykki að setja deiluna í gerðardóm og
á það geti þær ekki fallist.
Meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítalans verður lokað í dag og
starfsemi hennar sameinuð kven-
lækningadeild 21A vegna þeirrar
stöðu sem upp er komin í kjölfar upp-
sagna og yfirvinnubanns ljósmæðra.
Þá mun fyrsta reglubundna ómskoð-
un, sem framkvæmd er á 11.-14. viku,
falla niður frá og með næstkomandi
mánudegi.
Enn er engin
lausn sjáanleg
Boði ríkissáttasemjara var hafnað