Morgunblaðið - 20.07.2018, Side 8

Morgunblaðið - 20.07.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 Þegar Pia var spurð taldi hún aðPíratar hefðu ratað í pínu ógöngur. Og hún bendir á að syst- urflokkur íslensku vinstri flokk- anna, Sósíaldemókratar í Dan- mörku, hafi tekið upp harðari stefnu í málefnum innflytjenda.    Og Pia Kjærsga-ard telur að ís- lensku vinstri flokk- arnir þyrftu að átta sig á því sem er að gerast í heiminum. Sjálfsagt er að taka undir það, enda væri það mjög til bóta.    Það væri líka tilbóta ef hinir vönduðu og faglegu Píratar fylgdust með því sem er að gerst í kringum þá hér heima og á fundum sem þeir sitja.    Það hefði getað forðað þeim fráþví að verða sér til skammar þegar þeir vöknuðu skyndilega af værum þriggja mánaða blundi í fyrradag og neituðu að mæta á þing- fund vegna boðsgests sem þar yrði.    Forseti Alþingis hafði sagt frá þvíí apríl að von væri á boðsgest- inum og það mun hafa komið fram ítrekað síðan á undirbúningsfundum þingsins.    Það afsakar ekki framkomu þing-manna Pírata þó að Jón Þór Ólafsson, Þórhildur Sunna Ævars- dóttir eða aðrir forystumenn þeirra sofi á fundum og séu illa áttaðir á milli funda.    Þingmenn sem ekkert gera annaðen tala um vinnubrögð og fag- lega meðferð mála, auk þess að krefjast afsagnar annarra, hljóta að bregðast við eigin mistökum með öðrum hætti en þeim sem komið hef- ur fram. Pia Kjærsgaard Kannski bara Ratar? STAKSTEINAR Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, vék úr sal í mótmæla- skyni þegar Pia Kjærsgaard, forseti danska þjóðþingsins, ávarpaði gesti hátíðarkvöldverðar á Hótel Sögu í fyrradag. Aðspurð segir hún að sér hafi verið ljúft og skylt að mæta til kvöldverðarins enda hafi hann verið hluti af hátíðarhöldum vegna 100 ára afmælis undirritunar sambandslag- anna. Fyrr um daginn hafði Helga Vala leikið sama leik á hátíðarþing- fundi á Þingvöllum. „Þá brá ég mér frá meðan Pia tal- aði, settist síðan í brekkuna hjá þeim fáu gestum sem þar voru og hlustaði á ræðu forseta Íslands,“ segir Helga Vala í samtali við Morgunblaðið. „Ég mætti í kvöldverðinn enda var hann hátíðarviðburður í tilefni af 100 ára afmæli samnings um fullveldi Ís- lands. Mér var ljúft og skylt að mæta. Þegar hún hóf ræðu sína vék ég úr salnum,“ segir hún. Að ræð- unni lokinni hafi hún síðan aftur gengið inn í salinn. Brá sér einnig frá í kvöldverðinum  „Mér var ljúft og skylt að mæta“ Morgunblaðið/Hari Ósátt Helga Vala gekk ein í burtu. Karlmaður var í vikunni dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í Hér- aðsdómi Norð- urlands fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdótt- ur sinni þegar hún var á leik- skólaaldri. Brot- in áttu sér stað á árunum 2010-2014. Lögreglan hafði áður rannsakað málið árið 2014 þegar grunur lék á að maðurinn hefði brotið gegn stúlkunni en ekki fundust næg sönnunargögn til ákæru og var málið fellt niður. Í maí á síðasta ári leitaði maðurinn til lögreglu að eigin frumkvæði og viðurkenndi meðal annars að hafa þuklað og strokið kynfæri stúlkunnar og að hafa í eitt skiptið tekið upp brot sín á myndband þó að því hafi síðar verið eytt. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um mjög alvarlegt brot væri að ræða þar sem manninum var trúað fyrir barninu og hafði við það fjöl- skyldutengsl. Einnig var litið til þess að maðurinn hefði hreinan sakaferil og að hann hefði tilkynnt glæpinn af sjálfsdáðum og iðrast verknaðarins. Manninum verður því gert að sitja inni í þrjá mánuði og er seinni hluti dómsins skilorðsbundinn. Dómur Maðurinn játaði brot sitt. Braut gegn stjúpdóttur  Tveggja ára skil- orðsbundið fangelsi Bætt tannlæknaþjónusta við aldraða og örorkulífeyrisþega Sjúkratryggingar Íslands vekja athygli á fyrirhuguðum rammasamningi um tannlækningar aldraðra og öryrkja. Samningnum er ætlað að taka til almennra tannlækninga (annarra en tannréttinga) fyrir aldraða og öryrkja sem sjúkratryggðir eru á Íslandi. Í því fellst m.a. skoðun, röntgenmyndataka, reglulegt eftirlit, tannviðgerðir, rótfyllingar, tannvegslækningar, úrdráttur tanna og laus tanngervi. Miðað er við að tannplantar og föst tanngervi verði styrkt upp að vissu marki. Fyrirhugað er að rammasamningurinn taki gildi 1. september 2018 og verði til þriggja ára, með möguleika á tveggja ára framlengingu. Drög ramma- samningsins eru á vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands. Áskilinn er réttur til að gera lagfæringar á þeim. Tannlæknar og tannlæknastofur með viðeigandi starfsleyfi og tryggingar geta óskað eftir að gerast aðilar að samningnum til og með 24. ágúst 2018. Veður víða um heim 19.7., kl. 18.00 Reykjavík 14 léttskýjað Bolungarvík 10 léttskýjað Akureyri 11 skýjað Nuuk 9 rigning Þórshöfn 10 rigning Ósló 22 heiðskírt Kaupmannahöfn 23 heiðskírt Stokkhólmur 27 heiðskírt Helsinki 27 heiðskírt Lúxemborg 27 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 21 skýjað Glasgow 20 léttskýjað London 26 skýjað París 29 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 23 heiðskírt Berlín 24 heiðskírt Vín 28 heiðskírt Moskva 20 skúrir Algarve 23 heiðskírt Madríd 32 heiðskírt Barcelona 29 heiðskírt Mallorca 29 heiðskírt Róm 29 heiðskírt Aþena 31 léttskýjað Winnipeg 27 alskýjað Montreal 23 léttskýjað New York 16 heiðskírt Chicago 26 léttskýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:58 23:12 ÍSAFJÖRÐUR 3:30 23:49 SIGLUFJÖRÐUR 3:11 23:34 DJÚPIVOGUR 3:19 22:49

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.