Morgunblaðið - 20.07.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 20.07.2018, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það var kominn tími til að gera upp Sjóminjasafnið og það var ákveðið að gera það á metnaðarfullan hátt,“ segir Sigrún Kristjánsdóttir, sýn- ingarstjóri Sjóminjasafnsins í Reykjavík, og bætir við að það hafi tekið þrjú og hálft ár að koma grunnsýningunni upp með það leið- arljós að sýna hin gamla atvinnuveg sjávarútveginn í nýju og fersku ljósi. Hún segir að frá því að safnið var opnað hafi aðsókn verið mikil og al- veg troðfullt upphafshelgina 9. og 10. júní. „Við ákváðum að hressa upp á Sjóminjasafnið við sameiningu nokkurra safna árið 2014 og afrakst- urinn er grunnsýningin Fiskur & fólk – sjósókn í 150 ár. Sýningin Mjaltastúlkan var einnig opnuð í nýuppgerðum sérsýningar- sal, Vélasalnum. Sýningin byggir á doktorsrannsóknum á flaki holl- ensks skips sem strandaði við Flat- ey á 17. öld. Að sögn Sigrúnar var vandað til verka við hönnun sýningarinnar og leitað til rýnihópa utan frá til þess að fá sem breiðasta sýn á sögu sjávarútvegsins. Kostnaður í mannslífum „Það var munur á áhuga eftir því hvaðan fólk kom. Þeir sem unnið hafa í sjávarútveginum höfðu eðli- lega mikinn áhuga á þróun veið- anna, skipakosti og tækniþróun. Aðilar utan sjávarútvegsins voru mjög áhugasamir um menningu, sögur og persónulegar frásagnir þeirra sem unnið hafa við sjávar- útveginn. Hollensku hönnuðirnir sem við fengum til þess að hanna sýninguna voru áhugasamir um hvað sjávarútvegurinn hefði kostað íslensku þjóðina í mannslífum. Nokkuð sem við höfum ekki notað sem mælikvarða,“ segir Sigrún. Hún segir að strax hafi verið ákveð- ið að gestsaugað yrði fyrirferð- armikið á sýningunni og því hafi verið gengið til samninga við hönn- uði hjá Kossman.dejong sem eru margverðlaunaðir sýningahönnuðir. Sjóminjasafnið er á Grandagarði 8, í svokölluðu Búr-húsi. „Það á vel við að hafa sýninguna í gömlu fiskvinnsluhúsi og halda þannig í heiðri sögu sjávarútvegs í útgerðarbænum Reykjavík,“ segir Sigrún og bendir á að lagt hafi verið upp úr því að nýta fjölbreytt form miðlunar við hönnun sýningarinnar. „Texti er notaður, kvikmyndir sýndar, upptökur af viðtölum við fólk hefur notið mikilla vinsælda og hægt er að hlusta á sögur af sjávar- háska og sjóveiki. Grafík er notuð og teikningar þegar erfitt er að út- skýra flókna hluti með orðum, eins og til dæmis veiðiaðferðir,“ segir Sigrún og heldur áfram. „Við notum leiki til þess að koma upplýsingum á framfæri og öll umgjörð sýningar- innar eða hönnun er í anda nútíma frystihúss. Okkur langaði til að gera tilraun til þess að víkka aðeins út sjónarhornið á ímynd sjávarútvegs- ins með því að gera landvinnslunni hátt undir höfði og fleiri þáttum sjávarútvegsins en sjálfum veið- unum. Þær fá að sjálfsögðu góða umfjöllun. Þannig vildum við mynda rými fyrir bæði kynin og sýna hversu margir koma að sjávarútveg- inum með einum eða öðrum hætti. „Gagnagrunnur þar sem hægt er að fletta upp nöfnum allra sem farist hafa á sjó á 100 ára tímabili og frá- sagnir sjómanna af skipssköðum hefur vakið upp minningar og haft áhrif á marga sýningargesti,“ segir Sigrún. Hún segir að safnið sé í samstarfi við ýmsar stofnanir, svo sem Hafrannsóknastofnun, Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Tekið verður á móti skólahópum á safninu, en fræðslustarf er mik- ilvægur hluti alls safnastarfs. „Við hugsuðum sýninguna út frá öllum hugsanlegum flötum en þurft- um að bremsa hönnuðina aðeins af þegar kom að hvalveiðum, sem okk- ur fannst þeir ætla að gera full hátt undir höfði,“ segir Sigrún. Í safninu er búð sem selur ýmsa gripi tengda sjó og sjósókn og veit- ingastaður er á jarðhæð safnsins. Sjóminjasafnið gaf út tvær bækur í tengslum við sýninguna, Hafið og Á sjó, bæði á íslensku og ensku, og áform eru um áframhaldandi út- gáfu. „Það er ýmislegt hægt að taka með sér heim úr safninu og hægt að senda sjálfum sér í tölvupósti mynd- ir af sér í búningi með veiði dagsins eða uppskrift að góðum fiskrétti,“ segir Sigrún og bendir á að Sjó- minjasafnið sé opið alla daga vik- unnar frá 10 til 17. Hún segir margt á safninu sem gleðji börnin og upp- lagt sé fyrir fjölskyldur að dvelja þar hluta dags. Útgerðarbærinn Reykjavík  Sjávarútvegurinn í nýju og fersku ljósi  Safn fyrir alla fjölskylduna Nútímatækni Til þess að öðlast meiri þekkingu á öllu sem viðkemur sjávarútvegi geta stórir sem smáir nýtt sér tölvutæknina. Hægt er á sýningunni að spila tölvuleik um fæðukeðjuna. Upplýsingar Árabáturinn Farsæll er eitt form sem notað er til þess að segja sögu sjávarútvegs- ins. Fjölbreytt tækni og miðlun eru notuð til þess að koma sögunni á framfæri. Ljósmyndir/Valli Sjómenn Börn klæðast nútíma sjóklæðum og fara í myndatöku þar sem bakgrunnurinn er eins og á alvöru skipi. Myndin er send til barnanna í tölvupósti, á henni kemur aflinn í ljós sem getur verið hvað sem er, jafnvel stígvél. Safnvörður Sigrún Kristjánsdóttir fyrir framan kvikmyndasýningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.