Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 2
Kennitölur úr rekstri
fl ugfélaganna 2017
Tölurnar eru í milljónum dala (USD) Wow Air* Icelandair Group**
Tekjur 486 1.420
EBITDA 4 170
EBITDA hlutfall 0,8% 12,0%
EBIT -14 50
EBIT hlutfall -2,8% 3,5%
Hagnaður / Tap eftir skatta -22 38
Eiginfjárhlutfall 10,9% 41,8%
*Byggt á fréttatilkynningu frá félaginu. **Ársreikningur félagsins.
Nýverið sendi flugfélagið WOW air
frá sér fréttatilkynningu þar sem
fram kom að tekjur félagsins hefðu
aukist um 58% á nýliðnu ári, saman-
borið við árið 2016. Í tilkynningunni
segir Skúli Mogensen, eigandi félags-
ins og forstjóri, að rekstrarniðurstaða
ársins hafi hins vegar valdið von-
brigðum en félagið tapaði 22 millj-
ónum dollara, jafnvirði 2,5 milljarða
króna, miðað við núverandi gengi
dollars gagnvart íslensku krónunni
(105 kr.).
„[…] afkoman fyrir árið 2017 var
vonbrigði þar sem þessi mikli vöxtur
og fjárfesting reyndist dýrari en við
ætluðum okkur. Ytri aðstæður hafa
reynst félaginu krefjandi svo sem
hækkandi olíuverð, styrking krón-
unnar, dýrt rekstrarumhverfi á Ís-
landi og mikil samkeppni á lykil-
mörkuðum félagsins,“ sagði Skúli í
fyrrnefndri tilkynningu. Á síðasta ári
skilaði Icelandair Group hins vegar 38
milljóna dollara hagnaði, jafnvirði
tæplega 4 milljarða króna. Því reynd-
ist mismunurinn á hagnaði félaganna
tveggja ríflega 6,5 milljarðar á árinu
2017.
ViðskiptaMogginn hefur tekið sam-
an helstu kennitölur úr rekstri WOW
air og Icelandair Group á síðasta ári.
Þar sem ársreikningur fyrrnefnda
félagsins hefur ekki verið birtur opin-
berlega er hins vegar ekki mögulegt
að gera fullburða samanburð á félög-
unum, einkum þeim þáttum sem lúta
að efnahagsreikningi þeirra. Í þess-
um samanburði kemur fram að tekjur
Icelandair Group námu 1.420 millj-
ónum dollara í fyrra, jafnvirði 149
milljarða króna.Tekjur WOW yfir
sama tímabil námu 486 milljónum
dollara, jafnvirði 51 milljarðs króna. Í
þeim samanburði verður að taka tillit
til þess að rekstur Icelandair Group
er mun fjölþættari en WOW air og
felur m.a. í sér rekstur fjölda hótela
um land allt, flutningastarfsemi, inn-
anlandsflug og margt fleira.
Gríðarlegur vöxtur hjá WOW
Á síðasta ári flutti Icelandair 4
milljónir farþega og fjölgaði þeim um
10% milli ára. WOW air flutti yfir
sama tímabil 2,8 milljónir farþega og
fjölgaði þeim um 69% frá fyrra ári.
Rekstrarniðurstaða félaganna
tveggja fyrir fjármagnskostnað og
skatta (EBIT) var einnig með ólíku
sniði á síðasta ári. Þannig reyndist
hann neikvæður sem nam 14 millj-
ónum dollara hjá WOW air, jafnvirði
tæplega 1,5 milljarða króna.
Rekstrarhagnaðurinn reyndist 50
milljónir dollara hjá Icelandair, jafn-
virði ríflega 5,2 milljarða króna.
EBIT-hlutfallið var neikvætt sem
nam 2,8% hjá WOW air en jákvætt
um 3,5% hjá Icelandair.
EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og
skatta, nam 4 milljónum dollara hjá
WOW air, jafnvirði 420 milljóna
króna. EBITDA hjá Icelandair
reyndist ríflega 170 milljónir dollara,
jafnvirði 17,8 milljarða króna. Það
skilaði Icelandair EBITDA-hlutfalli
upp á 12% en samsvarandi hlutfall hjá
WOW air nam 0,8%.
Samkvæmt fréttatilkynningu
WOW air frá því um miðjan júlí kem-
ur fram að eignfjárhlutfall félagsins
hafi numið 10,9% um síðustu áramót.
Eiginfjárhlutfall Icelandair stóð í
41,8% á sama tíma.
Stórar áskoranir áfram
Í fyrrnefndri tilkynningu benti
Skúli á að WOW air hefði vaxið gríð-
arlega hin síðustu ár og að miklar
fjárfestingar væru til þess gerðar að
tryggja framtíðarhorfur félagsins.
Félagið hefur ekki birt opinberlega
rekstrarniðurstöðu sína fyrir fyrri
hluta þessa árs. Það hefur Icelandair
hins vegar gert og vitna þær tölur um
mjög erfitt rekstrarumhverfi. Þannig
hefur félagið fært niður EBITDA-spá
sína fyrir árið 2018 sem nemur 30%
og hefur það haft verulega neikvæð
áhrif á gengi félagsins í Kauphöllinni.
Afkoma flugfélag-
anna afar misjöfn
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stjórnendur flugfélaganna
íslensku standa frammi
fyrir miklum áskorunum
með hækkandi olíuverði og
harðnandi samkeppni.
Afkoma félaganna í fyrra
reyndist mjög misjöfn.
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
GRND
-1,31%
33,8
ORIGO
+10,00%
22
S&P 500 NASDAQ
+0,64%
7.870,376
+0,84%
2.825,39
-0,27%
7.658,26
FTSE 100 NIKKEI 225
26.1.‘18 26.1.‘1825.7.‘18 25.7.‘18
1.900
802.500
2.256,85
2.077,85
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
74,24-0,37%
22.614,25
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
60
70,52
KVIKMYNDAGERÐ
Velta í framleiðsluhluta íslenska kvik-
myndageirans fyrstu fjóra mánuði árs-
ins 2018 var 4,1 milljarður króna og
jókst um 6,6% miðað við sama tíma ár-
ið 2017, en það ár varð verulegur sam-
dráttur frá 2016.
Á síðasta ári dróst heildarveltan í
framleiðslu saman um 43%, úr um 20
milljörðum árið 2016 í 11,4 milljarða ár-
ið 2017. Árið 2016 var óvenjulegt vegna
risastórra erlendra verkefna það ár, að
sögn Hilmars Sigurðssonar forstjóra
Sagafilm og stjórnarmanns í Sambandi
íslenskra kvikmyndaframleiðenda.
Hilmar segir það jákvætt að veltan
sé að aukast á ný. „Stór erlend verk-
efni hafa ekki skilað sér í sama mæli
síðustu misseri og verið hefur. Meg-
inástæðan er óhagstætt gengi krón-
unnar, og hækkun á innlendum kostn-
aði, sem kemur niður á samkeppnis-
hæfni okkar. Þegar við erum 50%
dýrari en nágrannalöndin, þá er ekki
skrýtið að erlendir framleiðendur leiti
annað.“
Sé horft tíu ár aftur í tímann sést að
velta í geiranum er mjög sveiflukennd.
„Það sýnir á móti hve bransinn er
teygjanlegur. Grundvöllurinn fyrir til-
vist hans er að menn geta stækkað og
minnkað hratt eftir þörfum. Það er þó
ljóst að bransinn er miklu stærri en
margir halda.“
Hilmar segir að engin stór erlend
verkefni séu í sjónmáli sem stendur en
oft sé stuttur fyrirvari á að slík verk-
efni komi til landsins. „Árið 2016 var
Fast and Furious 8 tekin hér upp, og
veltan bara af þeirri mynd var fimm
milljarðar króna.“
Hilmar segir að nú í ár og í fyrra hafi
innlend framleiðsla verið talsverð, en
segir að hlutfallslega fáist sífellt minna
fé hér á landi í slíka framleiðslu. „Inn-
lenda framleiðslan þarf að sækja sífellt
meira fé til útlanda, allt að helming af
framleiðslukostnaði, sem út af fyrir sig
er stórmerkilegt. En maður spyr sig
hvenær kemur að þeim tímapunkti að
við gefumst upp, og förum að framleiða
efni erlendis, á útlensku.“
Veltan í kvikmyndageir-
anum er að aukast á ný
Vin Diesel og félagar hans í F&F 8
voru hér á landi við tökur árið 2016.
IÐNAÐUR
Hagnaður Marels á öðrum ársfjórð-
ungi nam 29,5 milljónum evra, jafn-
gildi um 3,6 milljarða króna á núver-
andi gengi. Það er 59% aukning
miðað við sama árshluta í fyrra þegar
hagnaður var 18,6 milljónir evra.
Tekjur námu 296,7 milljónum evra
á öðrum ársfjórðungi, sem samsvarar
tæpum 36,5 milljörðum íslenskra
króna. Til samanburðar voru tekjur
fyrirtækisins á öðrum ársfjórðungi í
fyrra 244 milljónir evra. Tekjuvöxtur
Marels er því tæplega 22% milli tíma-
bila.
Árni Oddur Þórðarson forstjóri
segir í afkomutilkynningu til Kaup-
hallar að Marel haldi góðum takti frá
síðasta uppgjöri og að fyrirtækið sé
að skila mettekjum og stöðugri
rekstrarframlegð á fjórðungnum.
Pantanir á öðrum ársfjórðungi
námu 291,1 milljón evra, sem er um
18,4 milljónum evra meira en á sama
tímabili í fyrra. Pantanabók félagsins
stóð í 523,2 milljónum evra við lok
fjórðungsins, en um síðustu áramót
nam hún 472,3 milljónum evra.
EBIT, hagnaður fyrir fjármagns-
liði og skatta, nam 43,2 milljónum
evra, sem var 14,6% af tekjum
félagsins á fjórðungnum. Til sam-
anburðar var EBIT félagsins á öðr-
um ársfjórðungi í fyrra 35,9 milljónir
evra.
Marel hefur hagnast um samtals
57,8 milljónir evra á fyrstu sex mán-
uðum ársins, eða um 7,1 milljarð ís-
lenskra króna á núverandi gengi. Á
fyrstu sex mánuðum ársins í fyrra var
hagnaður Marels 40 milljónir evra.
Í afkomutilkynningunni kemur
fram að Marel hafi náð samkomulagi
um kaup á MAJA, sem er þýskur
framleiðandi á búnaði fyrir matvæla-
vinnslu. Innan fyrirtækisins starfa
200 starfsmenn og árlegar tekjur
þess eru um 30 milljónir evra. Áætlað
er að kaupin gangi í gegn síðar á
árinu.
Marel með 30 milljóna evra hagnað
Morgunblaðið/RAX
Árni Oddur segir Marel skila met-
tekjum á öðrum ársfjórðungi.
arsætin tvö. Guðmundur Krist-
jánsson, forstjóri HB Granda, sagði
sig úr stjórn fyrirtækisins á dög-
unum. Áður hafði varaformaður
stjórnarinnar, Rannveig Rist, sagt
sig úr stjórninni vegna óánægju með
hvernig staðð var að brottvikningu
fyrrverandi forstjóra félagsins, Vil-
hjálms Vilhjálmssonar.
Fyrir eru í stjórn HB Granda þau
Anna G. Sverrisdóttir, Eggert Bene-
dikt Guðmundsson og Magnús
Gústafsson, sem er stjórnar-
formaður. tobj@mbl.is
ÚTGERÐ
Tveir nýir stjórnarmenn, þær Krist-
rún Heimisdóttir og Danielle
Pamela Neben, taka sæti í stjórn
útgerðarfyrirtækisins HB Granda á
stjórnarfundi á morgun. Í tilkynn-
ingu félagsins til Kauphallar kemur
fram að þar sem frambjóðendur eru
jafnmargir og þeir stjórnarmenn
sem á að kjósa á fundinum og sam-
setning stjórnar fullnægir ákvæðum
laga og samþykkta félagsins um
kynjahlutföll, sé sjálfkjörið í stjórn-
Tvær nýjar taka sæti
í stjórn HB Granda