Morgunblaðið - 26.07.2018, Side 10

Morgunblaðið - 26.07.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018FRÉTTIR ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Þegar tölvunni AlphaGo tókst árið 2016 að bera sigurorð af Lee Se-dol í hinum afar flókna borðleik gó, þótti mörgum að þar hefði tekist að sýna hvað snilligáfa mannskepnunnar gæti skapað og hvers gervigreind gæti verið megnug. Einvígið fór svo sannarlega ekki framhjá kínverskum embættis- mönnum, enda í þeirra hópi nokkrir af áköfustu iðkendum þessa 3.000 ára gamla herkænskuleiks. En það að gervigreindarteymi DeepMind hjá Google hefði tekist að sigra 18-faldan heimsmeistara í gó sáu þeir í öðru ljósi. Fyrir þeim var afrekið til marks um hversu berskjaldað Kína er á tæknisviðinu. Sumir hafa lýst þessu sem „Spútník-stund“ Kína. Leiðandi í gervigreind 2030 Það verður seint hægt að segja það um leiðtoga Kína að þeir hafi dregið það að bregðast við þessari nýju áskorun á sviði gervigreindar. Eins og fjallað hefur verið um í greina- flokki Financial Times hefur Kína beint miklu fé í þróun gervigreindar og er leiðandi í notkun tækninnar á mörgum sviðum. Í vissum tilvikum, eins og víðtækri notkun gervigreind- ar til að greina andlit og raddir fólks, er Kína fremst í heimi og þykir sum- um að það stefni friðhelgi einkalífs fólks í hættu. Xi Jinping forseti Kína hefur lýst því umbúðalaust yfir að landið ætli sér að verða leiðandi afl í þróun gervi- greindar ekki seinna en árið 2030. Kínversku tæknirisarnir, svo sem Tencent, Alibaba og Baidu sem allir fléttast saman við hið opinbera á ýmsa vegu, hafa líka fjárfest rausn- arlega í gervigreind. Nokkur héröð í Kína keppast um að verða miðstöðvar fyrir tæknigeirann og í maí upplýsti borgin Tianjin að þar yrði jafnvirði 16 milljarða dala varið í að styðja við gervigreindariðnaðinn. Ekki eins og vopnakapphlaup Í fyrsta skiptið frá lokum kalda stríðsins gætu Bandaríkin staðið frammi fyrir alvöru samkeppni um hver muni leiða tækniheiminn, og enginn getur séð fyrir hverjar afleið- ingarnar verða á hernaðarsviðinu. Hugveitan Center for a New American Security í Washington hef- ur varað við því að í vændum kunni að vera „nýsköpunarslagsíða “ þar sem kínverski herinn mun geta notað gervigreind til að standa betur að vígi komi til átaka. En það væri rangt að líta svo á að ryskingar á milli þjóðanna á tækni- sviðinu muni verða af sama toga og vopna- og geimferðakapphlaup Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Ólíkt kjarnorkusprengjum og geim- skutlum er gervigreind tækni sem hægt er að nota á ýmsa vegu, og þá fyrst og fremst í efnahagslegum til- gangi. Réttara væri að líta á gervigreind- arkapphlaupið sem hluta af víðtækara uppgjöri milli dreifstýrðs lýðræðis og stafræns valdboðskerfis, líkt og út- skýrt var í tímaritinu Foreign Affairs fyrr í mánuðinum. „Rétt eins og sam- keppni frjálslynds lýðræðis, faisma og kommúnisma einkenndu stóran hluta 20. aldar, þá er útlit fyrir að baráttan á milli frjálslynds lýðræðis og staf- ræns einræðis muni einkenna 21. öld- ina,“ skrifar Nicolas Wright. Bandaríkin enn með forskotið Ef við færum orð Carls von Clause- witz inn í 21. öldina, þá er stríð fram- lenging af hagstjórnun, stunduð með öðrum leiðum. Kínverjarnir hafa ein- sett sér að vinna þetta stríð og gervi- greind er eitt mikilvægasta vopnið sem þeir eiga. Að svo stöddu virðast Bandaríkin samt hafa töluvert forskot á sviði gervigreindar. Jeffrey Ding, sem stundar rannsóknir við Oxford- háskóla og er höfundur nýrrar skýrslu um gervigreindarstefnu kín- verskra stjórnvalda, áætlar að sem stendur sé geta Kína á þessu sviði helmingi minni en geta Bandaríkj- anna. Hann heldur því fram að Bandaríkin hafi greinilegt forskot hvað snertir hönnun vélbúnaðar, algrímisrannsóknir og yfirfærslu hugmynda yfir í vörur, þökk sé ein- stöku vistkerfi Kísildals. Eina mikilvæga sviðið þar sem Kína er komið fram úr Bandaríkj- unum er söfnun gagna, en algengt er að einkafyrirtæki og opinberar stofn- anir í Kína deili gögnum sín á milli. Kínverskt ráðgjafarfyrirtæki áætlar að árið 2030 muni Kína eiga um 30% af öllum gögnum heims, en líta má á stór gagnasöfn sem „helsta fram- leiðsluefni“ margra gervigreindar- forrita. Háskólarnir í lykilhlutverki Kannski er bilið stærst þegar kem- ur að rannsóknum en þar skapast for- skot Bandaríkjanna einkum vegna þess að þar má finna marga fremstu háskóla heims. Tölurnar segja ekki alla söguna, en í Bandaríkjunum fást um 78.000 manns við gervigreindar- rannsóknir en 39.000 í Kína. Banda- ríkin breiða líka út faðminn á móti heiminum og laða til sín marga bestu fræðimenn annarra landa, þó svo að Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist vera að reyna að breyta því. En ráðamenn í Peking hafa verið að leggja mun meiri áherslu á að freista kínverskra vísindamanna sem starfa erlendis, „sæskjaldbakanna“ eins og þeir eru kallaðir, til að snúa aftur heim til Kína, og samtímis því að laða að hæfileikafólk frá öðrum löndum. Til lengri tíma litið gæti dreifstýrt kerfi Bandaríkjanna átt auðveldara með að þróa og nota gervigreindar- tækni. En það er líka mögulegt að Kína hafi lært betur af sögu Vestur- landa en Bandaríkin. Fyrstu tölv- urnar voru jú þróaðar fyrir herinn, að ósk ríkisins. Bretarnir smíðuðu Colossus-tölvuna í Bletchley Park til að þýða dulmál óvinarins í seinni heimsstyrjöldinni og bandaríska tölv- an Eniac varð til í tengslum við þróun fyrstu kjarnorkusprengjunnar. Stundum getur það liðkað furðuvel fyrir tækniframförum að beita valdi. Kína ætlar að verða leiðandi í gervigreind Eftir John Thornhill Forseti Kína hefur lýst því yfir að landið ætli sér að verða leiðandi í þróun gervigreindar árið 2030 en forskot Bandaríkjanna á því sviði er þó enn mikið. AFP Þegar tölvunni AlphaGo frá Google tókst að bera sigurorð af Lee Se-dol, 18-földum heimsmeistara í hinum afar flókna borðleik gó, þóttu það tímamót.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.