Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.07.2018, Blaðsíða 6
Umhverfisverndarsamtök úti í heimi gefa út leiðarvísa sem verslanir og neytendur geta stuðst við til að haga innkaupum sínum á ábyrgan hátt og leggja sitt af mörkum til að vernda við- kvæma stofna og vistkerfi. Vand- inn er sá, að sögn Sigrid Merino Sardà, að þessir leiðarvísar eru ekki alltaf nægilega nákvæmir og allt of algengt að íslenskur fiskur sé þar ranglega tilgreindur sem vara til að varast, eða að ekki er gerður nægilega góður grein- armunur á tegundum eftir því hvernig veiðum þeirra er háttað. Íslandsstofa og Ábyrgar fisk- veiðar, sem eiga og reka vott- unarverkefnið Iceland Respon- sible Fisheries (IRF), hafa ráðist í það verkefni að kortleggja betur hvernig upplýsingagjöf í gegnum umhverfisverndarsamtök er hátt- að í helstu markaðslöndum ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Um leið á að efla upplýsingagjöf um IRF-vottunina gagnvart þess- um aðilum. Sigrid er verkefnissstjóri hjá Íslandsstofu og segir hún það mikilvægan þátt í að skapa traust á markaði að kaupendur hafi gott aðgengi að upplýsingum um sjálf- bærni og vottun íslenskra fiski- stofna. Óheppilegt sé að leið- arvísar umhverfisverndarsamtaka skuli stundum ekki gefa rétta mynd af íslenskum sjávaraf- urðum: „Gott dæmi er þorskur úr Atl- antshafinu sem er stofn sem á nokkrum svæðum hefur verið of- veiddur að því marki að nauðsyn- legt hefur verið að stöðva veiðar til að forða útrýmingu. En þorsk- ur sem veiddur er í íslenskri efnahagslögsögu á ekki heima í flokki með öðrum atlantshafs- þorski enda er þess vandlega gætt að veiðarnar fari fram með ábyrgum hætti og fiskveiðikvóti ákvarðaður ár hvert á grundvelli vandaðra vísindalegra rannsókna. Því miður gera leiðarvísar um- hverfisverndarsamtakanna ekki þennan greinarmun og skaða því möguleika íslensks þorsks á ákveðnum markaðssvæðum.“ Svipaða sögu er að segja um tegundir á borð við ýsu, ufsa og gullkarfa. „Bæði er íslenskur fiskur settur undir sama hatt og fiskur annars staðar frá, þó að stundaðar séu ábyrgar og sjálf- bærar veiðar, og oft að leiðarvís- arnir minnast þess hvergi að í gegnum IRF er búið að láta óháðan þriðja aðila votta sjálf- bærni veiðanna.“ Opna samskiptaleiðir Verkefni Sigrid snýr m.a. að því að kortleggja hvar í heiminum leiðarvísar umhverfissamtaka hafa mest áhrif og síðan leita leiða til að leiðrétta ónákvæmnina í leiðarvísunum á þessum svæðum og almennt að auka upplýsinga- gjöf til umhverfisverndarsamtaka. „Við höfum núna afmarkað okkur við Bandaríkin, Bretland, Spán, Frakkland, Belgíu, Holland og Þýskaland. Við erum byrjuð að kortleggja hvernig umhverf- isverndarsamtök á hverjum stað hátta sinni ráðgjöf með tilliti til íslensks fisks og þá með sérstaka áherslu á íslenskan þorsk. Við skoðum hvort íslenskur afli er rétt flokkaður í leiðarvísum fyrir kaupendur, hvaða upplýsingar koma þar fram og að hvaða leyti gloppur eru í þessum upplýs- ingum eða þær rangar.“ Því næst tekur við að efla sam- skipti við þau umhverfisvernd- arsamtök sem um ræðir, í hverju landi fyrir sig. „Við skoðum um leið hversu vel hefur tekist að koma Iceland Responsible Fis- heries á framfæri í þessum lönd- um, og hvort það væri vænlegt til árangurs að beita nýjum leiðum við að kynna vottunarkerfið.“ Stór samtök með mikil áhrif En er hægt að reikna með því að umhverfisverndarsamtökin séu móttækileg fyrir því að laga hjá sér leiðarvísana? „Það er al- veg rétt að í sumum tilvikum hafa þessi samtök mjög róttæka stefnu og kunna að vera lítt hrif- in af því að þurfa að endurskoða þær upplýsingar sem haldið hef- ur verið að neytendum. En ég er engu að síður bjartsýn,“ segir Sigrid. „Það eru nokkur stór samtök sem greinilega hafa mikið vægi þegar kemur að neytenda- hegðun og ekki ósennilegt að þau hafi hreinlega ekki vitað betur þegar kemur að íslenska fisk- veiðistjórnunarkerfinu og hvernig vottun sjálfbærra veiða er háttað á Íslandi. Kannski verður ekki auðvelt að telja þeim hughvarf en við getum lagt fram vönduð gögn og vísindarannsóknir.“ Sigrid nefnir að mikilvægt sé að allir leggist á eitt við að koma boðskapnum um sjálfbærni og vottun fiskistofna á framfæri. „Að mínu mati væri til mikils að vinna ef IRF myndi njóta enn meiri stuðnings íslenskra stjórn- valda og fyrirtækja sem tengjast íslenskum sjávarútvegi bæði inn- anlands og erlendis. Þar með fengi IRF betri kynningu sem vönduð íslensk vottun sjálfbærra fiskveiða sem neytendur geta stólað á.“ Neytendur fá villandi upplýsingar AFP Fisksalar að störfum í Frakklandi. Finna má tilfelli úti í heimi þar sem samtök vara neytendur við að kaupa íslenskan þorsk vegna þess að þorskstofnar á ákveðnum svæðum í Atlantshafinu eru ofveiddir. Gildir einu þó að veiðarnar við Ísland séu sjálfbærar og byggi á vísindalegum rannsóknum. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Náttúruverndarsamtök erlendis gefa út leiðbein- ingar til að hjálpa kaup- endum að forðast fisk- tegundir sem veiddar eru með óábyrgum hætti. Þar vill það gerast að íslenskur fiskur er flokkaður með tegundum sem neytendur ættu að sniðganga. Sigrid Merino Sardà kveðst bjartsýn um að það megi leiðrétta og bæta þær upplýsingar sem umhverfis- verndarsamtök beina til neytenda. 6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018SJÁVARÚTVEGUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.