Morgunblaðið - 26.07.2018, Síða 6
Umhverfisverndarsamtök úti í
heimi gefa út leiðarvísa sem
verslanir og neytendur geta
stuðst við til að haga innkaupum
sínum á ábyrgan hátt og leggja
sitt af mörkum til að vernda við-
kvæma stofna og vistkerfi. Vand-
inn er sá, að sögn Sigrid Merino
Sardà, að þessir leiðarvísar eru
ekki alltaf nægilega nákvæmir og
allt of algengt að íslenskur fiskur
sé þar ranglega tilgreindur sem
vara til að varast, eða að ekki er
gerður nægilega góður grein-
armunur á tegundum eftir því
hvernig veiðum þeirra er háttað.
Íslandsstofa og Ábyrgar fisk-
veiðar, sem eiga og reka vott-
unarverkefnið Iceland Respon-
sible Fisheries (IRF), hafa ráðist
í það verkefni að kortleggja betur
hvernig upplýsingagjöf í gegnum
umhverfisverndarsamtök er hátt-
að í helstu markaðslöndum ís-
lenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
Um leið á að efla upplýsingagjöf
um IRF-vottunina gagnvart þess-
um aðilum.
Sigrid er verkefnissstjóri hjá
Íslandsstofu og segir hún það
mikilvægan þátt í að skapa traust
á markaði að kaupendur hafi gott
aðgengi að upplýsingum um sjálf-
bærni og vottun íslenskra fiski-
stofna. Óheppilegt sé að leið-
arvísar umhverfisverndarsamtaka
skuli stundum ekki gefa rétta
mynd af íslenskum sjávaraf-
urðum:
„Gott dæmi er þorskur úr Atl-
antshafinu sem er stofn sem á
nokkrum svæðum hefur verið of-
veiddur að því marki að nauðsyn-
legt hefur verið að stöðva veiðar
til að forða útrýmingu. En þorsk-
ur sem veiddur er í íslenskri
efnahagslögsögu á ekki heima í
flokki með öðrum atlantshafs-
þorski enda er þess vandlega
gætt að veiðarnar fari fram með
ábyrgum hætti og fiskveiðikvóti
ákvarðaður ár hvert á grundvelli
vandaðra vísindalegra rannsókna.
Því miður gera leiðarvísar um-
hverfisverndarsamtakanna ekki
þennan greinarmun og skaða því
möguleika íslensks þorsks á
ákveðnum markaðssvæðum.“
Svipaða sögu er að segja um
tegundir á borð við ýsu, ufsa og
gullkarfa. „Bæði er íslenskur
fiskur settur undir sama hatt og
fiskur annars staðar frá, þó að
stundaðar séu ábyrgar og sjálf-
bærar veiðar, og oft að leiðarvís-
arnir minnast þess hvergi að í
gegnum IRF er búið að láta
óháðan þriðja aðila votta sjálf-
bærni veiðanna.“
Opna samskiptaleiðir
Verkefni Sigrid snýr m.a. að
því að kortleggja hvar í heiminum
leiðarvísar umhverfissamtaka
hafa mest áhrif og síðan leita
leiða til að leiðrétta ónákvæmnina
í leiðarvísunum á þessum svæðum
og almennt að auka upplýsinga-
gjöf til umhverfisverndarsamtaka.
„Við höfum núna afmarkað okkur
við Bandaríkin, Bretland, Spán,
Frakkland, Belgíu, Holland og
Þýskaland. Við erum byrjuð að
kortleggja hvernig umhverf-
isverndarsamtök á hverjum stað
hátta sinni ráðgjöf með tilliti til
íslensks fisks og þá með sérstaka
áherslu á íslenskan þorsk. Við
skoðum hvort íslenskur afli er
rétt flokkaður í leiðarvísum fyrir
kaupendur, hvaða upplýsingar
koma þar fram og að hvaða leyti
gloppur eru í þessum upplýs-
ingum eða þær rangar.“
Því næst tekur við að efla sam-
skipti við þau umhverfisvernd-
arsamtök sem um ræðir, í hverju
landi fyrir sig. „Við skoðum um
leið hversu vel hefur tekist að
koma Iceland Responsible Fis-
heries á framfæri í þessum lönd-
um, og hvort það væri vænlegt til
árangurs að beita nýjum leiðum
við að kynna vottunarkerfið.“
Stór samtök með mikil áhrif
En er hægt að reikna með því
að umhverfisverndarsamtökin
séu móttækileg fyrir því að laga
hjá sér leiðarvísana? „Það er al-
veg rétt að í sumum tilvikum
hafa þessi samtök mjög róttæka
stefnu og kunna að vera lítt hrif-
in af því að þurfa að endurskoða
þær upplýsingar sem haldið hef-
ur verið að neytendum. En ég er
engu að síður bjartsýn,“ segir
Sigrid. „Það eru nokkur stór
samtök sem greinilega hafa mikið
vægi þegar kemur að neytenda-
hegðun og ekki ósennilegt að þau
hafi hreinlega ekki vitað betur
þegar kemur að íslenska fisk-
veiðistjórnunarkerfinu og hvernig
vottun sjálfbærra veiða er háttað
á Íslandi. Kannski verður ekki
auðvelt að telja þeim hughvarf en
við getum lagt fram vönduð gögn
og vísindarannsóknir.“
Sigrid nefnir að mikilvægt sé
að allir leggist á eitt við að koma
boðskapnum um sjálfbærni og
vottun fiskistofna á framfæri.
„Að mínu mati væri til mikils að
vinna ef IRF myndi njóta enn
meiri stuðnings íslenskra stjórn-
valda og fyrirtækja sem tengjast
íslenskum sjávarútvegi bæði inn-
anlands og erlendis. Þar með
fengi IRF betri kynningu sem
vönduð íslensk vottun sjálfbærra
fiskveiða sem neytendur geta
stólað á.“
Neytendur fá villandi upplýsingar
AFP
Fisksalar að störfum í Frakklandi. Finna má tilfelli úti í heimi þar sem samtök vara neytendur við að kaupa íslenskan þorsk vegna þess að þorskstofnar á
ákveðnum svæðum í Atlantshafinu eru ofveiddir. Gildir einu þó að veiðarnar við Ísland séu sjálfbærar og byggi á vísindalegum rannsóknum.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Náttúruverndarsamtök
erlendis gefa út leiðbein-
ingar til að hjálpa kaup-
endum að forðast fisk-
tegundir sem veiddar eru
með óábyrgum hætti. Þar
vill það gerast að íslenskur
fiskur er flokkaður með
tegundum sem neytendur
ættu að sniðganga.
Sigrid Merino Sardà kveðst bjartsýn
um að það megi leiðrétta og bæta
þær upplýsingar sem umhverfis-
verndarsamtök beina til neytenda.
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018SJÁVARÚTVEGUR