Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 8
iðnaðarmaður sem þyrfti að komast inn.“ Ragnar ýtir á annan valmöguleika og sýnir blaðamanni myndavélaupptöku úr stofunni heima hjá sér. „Ég get skoðað myndavélar úr stofunni og séð ef það kemur einhver hreyfing sem setur kerfið í gang. Þá get ég skoðað hvort það sé vegna opins glugga eða hvort einhver raunveruleg hætta sé á ferðum. Þetta er auðvit- að algjör bylting, en þetta er dýrt að innleiða og í þessu felst mikil fjárfesting. Við innleiddum þetta í október á síðasta ári og höfum selt alveg óhemjumikið af þessu síðan þá og þannig marg- faldað sölu öryggiskerfa til heimila. Viðtökur markaðarins hafa farið langt fram úr okkar björtustu vonum.“ Aðspurður hvort Öryggismiðstöðin sé í ein- hverri þróunarvinnu eða hvort vörurnar sem fyrirtækið býður upp á séu tilkomnar vegna samstarfssamninga við erlend félög, segir Ragn- ar að Öryggismiðstöðin sjálf sé ekki í neinni hug- búnaðarþróun. „Í staðinn leitum við vandlega að samstarfs- aðilum erlendis. Eins og í tilviki snjallöryggisins vorum við búin að leita í þrjú til fjögur ár að rétta samstarfsaðilanum. Við reyndum prufur frá mörgum risum á markaðnum en fundum aldrei lausn sem uppfyllti okkar kröfur fullkomlega. Síðan fundum við þessa aðila, en lausnin þeirra varð fyrst tilbúin á síðasta ári. Þetta er ísraelskt fyrirtæki sem heitir Essence og er byggt upp af manni sem er með tvær, ef ekki þrjár doktors- gráður. Þegar hann var um fimmtugt ákvað hann að ríða á vaðið og stofna sitt eigið fyrirtæki. Það hafði alltaf verið draumur hans en hann hafði aldrei þorað að láta vaða. Núna er þetta orðið risafyrirtæki. Á fáeinum árum hefur þessi samstarfsaðili okkar orðið stærstur í öryggis- kerfum til heimila í Evrópu. Þetta er risastórt og magnað fyrirtæki.“ Stjórnendur og eigendur Öryggismiðstöðv- arinnar eyddu mikilli orku og fjármunum í þetta verkefni á síðasta ári, segir Ragnar, en lausnin sem fyrirtækið var með áður var orðin gamal- dags og kominn tími til að endurnýja. „Við viss- um að okkar lausn var orðin gömul, en við ákváðum samt sem áður að gefa engan afslátt af okkar kröfum. Við vorum næstum því búin að taka inn lausn sem við vorum ekki alveg nógu sátt með. Við ákváðum hins vegar, sem betur fer, að ekki gefa neinn afslátt. Við biðum því bara róleg eftir því að finna lausnina sem myndi leiða okkur inn í framtíðina eins og við sáum hana fyr- ir okkur.“ Frá 20 til 110 starfsmanna á einu ári Í fyrra hóf Öryggismiðstöðin að veita þjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Eftir langan og ítarlegan undirbúning fyrirtækisins fór það að sinna mjög sérhæfðum verkefnum í flugstöðinni undir nafni AVIÖR. Það er nú sérstakt svið inn- an fyrirtækisins sem sérhæfir sig í sértækri þjónustu við flugrekstraraðila og flugvelli. „Við erum núna með 110 starfsmenn á flug- vellinum, þrátt fyrir að hafa aðeins farið af stað um mitt síðasta ár. Við erum þar að vinna fyrir Icelandair, Wow air, Delta, American Airlines og Air Canada í alls kyns sérhæfðum verkefnum, meðal annars í sérhæfðri öryggisgæslu á flug- vellinum. Við vorum búin að vinna að þessu verk- efni í mörg ár. Við byrjuðum á því að vera með í kringum 20 til 30 manns en þetta hefur vaxið æv- intýralega og er, eins og ég sagði, 110 manns í dag. Með þessu verkefni hefur Öryggismiðstöðin búið sér til gríðarlega mikla þekkingu í þessum Að loknu verkfræðinámi í Boston réð Ragnar Þór Jónsson sig til starfa hjá Eimskip og vann sig upp í starf framkvæmdastjóra. „Ég var þar til ársins 2006 þegar ég mér bauðst það tækifæri að færa mig yfir til Öryggismiðstöðvarinnar, sem var mjög sérstakt og krefjandi verkefni. Í lok árs 2006 var fyrirtækið í miklum erfiðleikum, það gekk illa fjárhagslega og var einnig búið að missa margt af góðu fólki. Hins vegar var eig- endahópur fyrirtækisins mjög sterkur á þessum tíma, en í honum voru Exista, Saxhóll og Bygg.“ Ragnar segir þetta hafa verið verkefni sem hann hafi alltaf dreymt um. „Að reka sitt fyrir- tæki, búa til kúltúrinn og taka fyrirtæki sem átti í erfiðleikum og byggja það upp. Það kom fljót- lega í ljós að það var einstaklega góður kjarni af fólki innanborðs. Þegar ég tók við var fyrirtækið að velta í kringum 800 milljónum króna en í ár munum við velta um 5 milljörðum. Þetta er mjög heilsteyptur rekstur með litlar sem engar skuld- ir. Þegar mér bauðst þetta starf, þá var það tæki- færi sem ég gat ekki hafnað.“ Stjórnendateymi Öryggismiðstöðvarinnar hefur starfað lengi saman, en Ragnar segir að margt af því fólki sem er þar í dag hafa verið starfandi innan fyrirtækisins þegar að hann tók við stjórnartaumunum. „Það er búið að vera gríðarlega gaman að ná að breyta fyrirtækinu á þennan hátt sem við höfum gert. Einnig er frá- bært að horfa á samstarfsfélaga blómstra, en mannauðurinn hjá fyrirtækinu er magnaður.“ Rétt viðhorf mikilvægt í erfiðleikum Þegar Ragnar er spurður hvort hann sé maður sem leiti eftir áskorunum og líði best þegar að álagið er mikið, segir hann að sem gamall íþróttamaður finnist honum langskemmtilegast að þurfa að hafa fyrir hlutunum. „Við erum of- boðslega metnaðarfull hérna og höfum gaman að því að vaxa og dafna. Áskoranir fyrirtækisins eru eitthvað sem við tökum alvarlega, en höfum gaman af,“ segir hann. „Haustið 2008 fórum við, eins og margir aðrir, í gegnum erfiðleika. Það var alls ekki auðvelt tímabil. Fólk þurfti bara að taka ákvörðun um hvort að það ætlaði að vorkenna sér eða takast á við þetta. Við vorum með skuldir í félaginu sem nánast þrefölduðust við hrunið. Við tókumst hins vegar á við þetta og fyrir lok október voru að- gerðir komnar í gang sem við stilltum upp, svo hægt væri að halda áfram og finna leiðir fyrir áframhaldandi vöxt. Þetta var mikilvæg og stór ákvörðun hjá starfsfólki fyrirtækisins. Fólk ákveður hvernig það ætlar að takast á við verk- efnin og að gera það á jákvæðan hátt er mjög mikilvægt. Rétt viðhorf fleytir manni mjög langt.“ Fjárfestingar að skila sér Á síðasta ári var mikið fjárfest í vexti Öryggis- miðstöðvarinnar. Mikið var lagt í það að vera með snjöllustu lausnina á markaðnum. „Við fjárfestum verulega í því að taka félagið áfram á síðasta ári. Við vörðum háum fjárhæðum í vöxtinn, sem meðal annars fór í snjallöryggi sem við höfum boðið upp á frá því í október á síð- asta ári.“ Ragnar tekur upp símann og sýnir blaða- manni. „Þetta er algjör snilld,“ segir hann og opnar appið þar sem við blasa ýmsir valmögu- leikar. „Ég get gert allt í símanum. Ég get sett öryggiskerfið í gang heima og séð stöðuna á kerfinu. Ég get einnig opnað útidyrnar ef krakk- arnir skyldu vera læstir úti eða ef það kæmi „aviation security“-geira. Við köllum þetta svið AVIÖR, en Öryggismiðstöðin var fremur óþjált fyrir okkar erlendu viðskiptavini,“ segir Ragnar og brosir. „Með þessu verkefni gátum við nýtt okkur þekkingu og sérhæfingu sem var til hér og byggt ofan á hana. Við erum orðin það virt í þessum bransa, að það hefur verið fjallað um okkur í fag- tímaritum erlendis sem dæmi um hvernig einka- aðili eigi að vaxa í þessum geira og gera það vel. Einnig eru lykilstjórnendur AVIÖR að halda erindi á ráðstefnum erlendis, sem er ánægjulegt. Við erum mjög stolt af þessu verkefni.“ Frá bókasöfnum til ölvunaraksturs Þegar að talið berst að vexti og hvernig öryggisfyrirtæki geti vaxið í framtíðinni, segir Ragnar að Öryggismiðstöðin sé ekki einungis hefðbundið öryggisfyrirtæki, heldur bjóði það upp á ýmsa þjónustu sem hinn almenni við- skiptavinur hafi ekki hugmynd um. „Það er tvennt sem gerir okkur öðruvísi en flest önnur fyrirtæki. Það er annars vegar öflugt tæknisvið, en það telur um 75 starfsmenn, og hins vegar erum við með stjórnstöð sem er alltaf á vaktinni og bíla sem keyra um borgina á öllum tímum sólarhringsins.“ Ragnar segir það vera lykilatriði að nýta þessa styrkleika til þess að veita ýmiskonar þjónustu sem ekki er skilgreind sem öryggisþjónusta. „Það er langt síðan við hættum að skilgreina okkur sem hefðbundið öryggisfyrirtæki og hætt- um að vinna innan þeirrar þröngu skilgrein- ingar,“ segir hann. „Þú ert til dæmis með ökuskírteini geri ég ráð fyrir,“ spyr Ragnar og bendir í átt að blaða- manni. „Það er prentað af okkur í samstarfi við ungverska aðila. Við erum með samning við ríkislögreglustjóra um ökuskírteini. Ef maður er tekinn, grunaður um ölvunarakstur eða undir áhrifum eiturlyfja í Reykjavík, Keflavík eða á Selfossi, þá er það hjúkrunarfræðingur frá okk- ur sem kemur og tekur blóðprufu. Þá eru sjálf- virku bókasafnsvélarnar á bókasöfnum höfuðborgarsvæðisins frá okkur. Við erum núna að vinna með Vegagerðinni að uppsetningu meðalhraðamyndavéla. Það er mjög flókið og stórt verkefni sem hefur verið innleitt í mörgum öðrum löndum við góðan orðstír,“ segir Ragnar. „Það er fullt af lausnum sem við höfum verið að vinna að. Við erum að veita þjónustu sem er ekki endilega sýnileg öllum. Þannig hefur fyrir- tækið til dæmis skapað sér sterkan og sívaxandi sess í velferðartækni á síðustu árum. Hjartað í fyrirtækinu er og verður alltaf stjórnstöðin og öryggismarkaðurinn, en við höfum styrkleika og við erum óhrædd við að nýta þá og gera það til fullnustu. Það eru ótal leiðir fyrir okkur til þess að vaxa og dafna. Með þennan fókus á styrkleika okkar þá höfum við náð að vaxa hraðar en flest fyrirtæki landsins. Við höfum vaxið miklu hraðar en okkar helstu samkeppnisaðilar til dæmis.“ Tveggja turna tal Þegar samkeppnisaðilar berast í tal og hvort það sé í raun samkeppni á öryggismarkaði eða hvort að þetta sé einungis tvíkeppni milli Örygg- ismiðstöðvarinnar og Securitas, segir Ragnar að það sé fullt af minni aðilum, en þessi tvö fyr- irtæki eru áberandi stærst á markaðnum. „Það er fullt af minni aðilum sem eru að bjóða upp á einhverjar lausnir. Það eru aðilar sem Ekki einungis hefðbund Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Öryggismiðstöðin hefur vaxið jafnt og þétt á síðustu árum. Forstjóri fyrir- tækisins, Ragnar Þór Jónsson, segir að veltan verði í kringum 5 milljarða í ár, en hún var 800 milljónir árið 2006 þegar hann tók við. Eins hefur bar- áttan um krúnuna „stærsta öryggisfyrirtæki landsins“ harðnað til muna á síðustu árum en Öryggismiðstöðin er nú komin í 40% markaðshlutdeild á móti 60% hlutdeild helsta keppinautarins, að sögn Ragnars. 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.