Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 26.07.2018, Qupperneq 9
bjóða upp á myndavélakerfi og aðrir sem bjóða upp á eitthvað annað. En það eru bara tveir aðilar á Íslandi sem reka stjórnstöð allan sólar- hringinn. Það er enginn með jafn viðamikið búðarborð og við, en keppinautar okkar geta komið úr öllum áttum og verið margir. Í velferð- artækni eru margir og það sama á við öryggis- málin. Þú gætir þess vegna keypt myndavéla- kerfi frá Kína. Samkeppnin er víða en auðvitað er Securitas okkar helsti keppinautur.“ Ragnar segir að á Íslandi þrífist tvíkeppni og hana sé að finna víða, á mörgum mörkuðum. „Þetta er víða hérlendis, svo sem í flugbrans- anum, flutningabransanum og víðar. Við eyðum ekki miklum tíma í að velta samkeppnisaðilanum fyrir okkur. Við einbeitum okkur að því að vera með framúrskarandi lausnir og veita góða þjón- ustu, og leggjum okkur fram við að standa okkur vel. Við viljum alltaf eiga frábært viðskipta- samband við okkar viðskiptavini. Þetta er það sem við erum að einbeita okkur að. Ég er þeirrar skoðunar að það eina rétta í stöðunni sé að ein- beita sér að sjálfum sér og standa sig vel.“ Þegar Ragnar er spurður út í það hvort öfl- ugur keppinautur sé ekki nauðsynlegur, segir hann að það sé algjörlega rétt. „Að sjálfsögðu, maður þarf þá alltaf að leita leiða til að gera betur og hvernig við tryggjum að viðskiptavinir okkar séu ánægðari. Það þarf stöðugt að vinna í því að veita frábæra þjónustu,“ segir hann. „Eitt af okkar gildum er „forysta“ og það þarf sjálfstraust til þess að vera með slíkt gildi. Við leggjum mjög mikið upp úr þessu, nánast allar nýjungar sem kynntar hafa verið á öryggis- markaðnum hafa komið frá okkur í Öryggis- miðstöðinni á síðustu sex til átta árum. Við erum með ráðstefnur þar sem við kynnum lausnir okk- ar fyrir viðskiptavinum. Við ætlum að vera betri og það er okkar leið til þess að aðgreina okkur á markaðnum. Maður þarf að vera með sjálfstraust og sýna það,“ segir hann. „Árið 2007 var markaðshlutdeild okkar 29% á móti 71% hjá Securitas,“ heldur Ragnar áfram. „Núna erum við komin upp í kringum 40% hlut- deild á móti 60% hjá Securitas. Við höfum vaxið mjög hratt á síðustu árum og þetta sýnir það.“ Aðspurður hvort það sé markmið að verða stærsta öryggisfyrirtæki landsins, segir Ragnar að svo sé ekki. „Það er ekkert markmið í sjálfu sér að fara framúr Securitas í markaðshlutdeild. Markmiðið er alltaf að vera framúrskarandi góð. Það er það eina sem skiptir okkur máli. Við vilj- um vera betri, með vinnuumhverfi sem fólki líður vel í og eiga ánægða viðskiptavini. Þá verður það alltaf góð niðurstaða að lokum.“ Einstaklingsmarkaðurinn vaxandi Fyrirtækjamarkaður er núna í kringum 85% af tekjum Öryggismiðstöðvarinnar að sögn Ragnars. Þegar hann er spurður út í það hvort fyrirtækið ætli að einbeita sér að því að stækka á einstaklingsmarkaðnum segir hann að nýju lausnirnar sem komu með snjallörygginu hafi ýtt undir vöxt á þeim vettvangi. „Með snjallörygginu höfum við stækkað hressilega á einstaklingsmarkaðnum. Sá mark- aður á sér sérstaka sögu, hann er mikilvægur vegna þess að þarna er mikið og jafnt sjóð- streymi. Þessi markaður byrjaði að vaxa þegar fyrirtæki buðust til þess að fjármagna búnaðinn fyrir viðskiptavini sína. Það var mánaðargjald en enginn stofnkostnaður. Fjárhagur Öryggis- miðstöðvarinnar á þessum tíma var þannig að þeir gátu ekki verið virkir þátttakendur í því. Securitas náði þannig algjörri yfirburðastöðu innan heimila og hefur haldið því þangað til núna þegar við innleiddum snjallöryggið. Við erum ekki með neinn stofnkostnað á meðan Securitas er með háan stofnkostnað. Við horfum á það sem góða fjárfestingu í markaðsvild að bjóða þetta án stofnkostnaðar.“ Áfall í kjölfar innbrots Þegar nýir starfsmenn koma inn í fyrirtæki eins og Öryggismiðstöðina er bakgrunnur þeirra skoðaður eins langt aftur og hægt er. Spurður um starfsmannamál segir Ragnar: „Við, eins og aðrir stórir vinnustaðir, getum lent í ýmsu. Að vera með gott og vandað fólk er okkur mjög mik- ilvægt. Við erum ekkert nema orðsporið okkar.“ Þegar talið berst að „gagnaversmálinu“ svo- kallaða, þar sem öryggisvörður fyrirtækisins var bendlaður við innbrot í gagnaver á Suðurnesjum, segir Ragnar það vera dapurlegt og leiðinlegt mál. „Þetta mál er eins sorglegt og það verður. Við vorum með framúrskarandi starfsmann, strák sem hefur lagt líf sitt að veði til þess að bjarga fólki úr ýmsum aðstæðum. Virkilega öfl- ugur og góður starfsmaður. Einhvern veginn tek- ur hann mjög slæma ákvörðun sem í rauninni kemur bara niður á honum og fyrirtækinu. Þetta var mannlegur harmleikur, það er hreinlega ekki hægt að koma í veg fyrir svona. Það er hægt að takmarka og minnka líkurnar, en þetta getur allt- af gerst.“ „Það er afar slæmt fyrir fyrirtæki, þegar eitt- hvað svona kemur upp á,“ heldur Ragnar áfram. „Þetta er ekki einungis slæmt út á við heldur líka að horfa á vinnufélaga sem getur tekið svona slæma ákvörðun. Það var sárt að horfa upp á það. Orðsporið er okkur allt í þessum bransa. Við- skiptavinir okkar og samstarfsaðilar hafa sem betur fer sýnt þessu mikinn skilning,“ segir Ragnar. „Það er risastórt atriði í rekstri félags að hafa mannskap sem stendur sig vel. Það er eitt af því sem mér finnst sérstakt við okkar fyrirtæki, að í öllum þessum vexti líkar fólki alltaf vel við að vinna hér. Við höfum þar af leiðandi átt auðvelt með að vaxa. Flest sem hefja störf hjá okkur hafa verið ráðin því þau þekkja einhvern sem mælir með þeim innan fyrirtækisins. Þannig búa menn til fyrirtækjakúltúr sem virkar, fólk tekur þetta ekki of alvarlega en það eru samt gerðar miklar kröfur til fólks. Í heild höfum við fengið fram- úrskarandi fólk í vinnu. Rannsóknir sýna einnig að ef starfsmaður bendir á einhvern og fær hann til að sækja um vinnu í sínu fyrirtæki myndast meira traust á milli fyrirtækisins og starfsmanns- ins, en einnig aukið traust til nýja starfsmanns- ins,“ segir Ragnar Þór Jónsson að lokum. Morgunblaðið/Hari „Það er búið að vera gríð- arlega gaman að ná að breyta fyrirtækinu á þenn- an hátt sem við höfum gert,“ segir Ragnar Þór Jónsson, forstjóri Örygg- ismiðstöðvarinnar. dið öryggisfyrirtæki ” Við erum að veita þjónustu sem er ekki endilega sýni- leg öllum. Þannig hefur fyrirtækið til dæmis skap- að sér sterkan og sívax- andi sess í velferðartækni á síðustu árum.“ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2018 9VIÐTAL „Við erum með lítið dótturfélag á Akureyri, Öryggismiðstöð Norðurlands, með 15 starfsmenn,“ segir Ragnar. Spurður hvort vöxturinn sé mikill á Norðurlandi, segir Ragnar að hann hafi ekki verið eins mikill og hann hefði viljað. „Mér finnst uppbygg- ingin fyrir norðan mun hægari en hér á höfuðborgarsvæðinu. Það kemur svolítið á óvart því að ferðamannastraumurinn þarna í gegn er mikill. Verið er að byggja hótel á Akureyri en mér finnst ferðaþjónustan hafa minni áhrif en hún ætti að gera. Það er uppbygging í Mývatnssveit og á Siglufirði, en í höfuðborg norðursins finnst mér eitt- hvað vanta. Því fátt er skemmtilegra en að vera ferðamaður á Akureyri, hvort sem það er að vetri eða sumri. Það er ótrúlega gaman að vera þarna, en ég hefði viljað sjá meiri uppbyggingu.“ Ragnar segir að svæði sem er í miklum vexti séu Suðurnesin. „Fyrir fjórum til fimm árum var 15% atvinnuleysi þarna og enginn vildi leigja á Ásbrú, á gamla varnarsvæðinu í Keflavík. Nú er hins vegar svo gott sem ekkert atvinnuleysi og það komast ekki fleiri að á Ásbrúarsvæðinu, það er allt komið í leigu. Það þarf á næstunni að flytja inn á annað þúsund manns til að sinna störfum á svæðinu. Uppbyggingin er komin alveg á fullt. Það kæmi mér alls ekki á óvart ef það risu eitt til tvö hótel á ári á þessu svæði,“ segir Ragnar. „Á næsta ári hefst líka fyrsti fasi í stækkun Keflavíkurflugvallar, sem mér líst mjög vel á. Það er í kringum 30.000 fermetra stækkun í þessum áfanga. Þó svo að það sé stórt, þá tel ég að á næstu árum verði þessi stækkun minnihluti uppbyggingar á Keflavíkursvæðinu. Það þarf nauðsynlega að byggja hús í Keflavík. Uppbyggingin þar undanfarið er engri lík,“ segir Ragnar. Hægari uppbygging á Akureyri en hraðari á Suðurnesjum Öryggismiðstöðin var sett í sölu um mitt síðasta ár og sá Arctica Finance um það ferli. Í ágúst sama ár var hætt við ferlið og allt sett aftur í sama far. Þegar að Ragnar var spurður um það af hverju ekkert varð af sölunni, segir hann að ýmislegt sem fyrirtækið hafði unnið að lengi hafi loksins orðið að veruleika og að hluthöfum hafi þótt erfitt að skilja við það á þeim tímapunkti. En helstu eigendur Öryggismiðstöðvarinnar eru Hjörleifur Þór Jakobs- son, fyrrverandi forstjóri Hampiðjunnar og Olíufélagsins Esso, og Guðmundur Ásgeirsson, oft kenndur við Nesskip. Lykilstjórnendur félagsins eiga síðan í kringum 40% hlut í félag- inu. Ragnar segir að það hafi komið tilboð á sínum tíma en að í ljósi þess sem þá var í gangi hjá fyrirtækinu hafi verið ákveðið að stöðva ferlið. Þegar hann er spurður hvort það sé ein- hver vilji innan hluthafahópsins að selja, svarar hann því til að ekkert ferli sé í gangi. „Ef einhverjir mjög áhugaverðir aðilar vilja borga vel fyrir hlut í fyrirtækinu, þá verður það kannski skoðað. Hluthafahópurinn er hins vegar mjög samstilltur og alveg til í að vera áfram í fyrirtækinu í mörg ár til viðbótar. Ég er með frábæra meðeigendur sem gott er að vinna með, þetta er farsælt samstarf. Félagið er í stöðugum vexti og allar tölur í rekstr- inum eru mjög jákvæðar. Við lítum bjartsýn til komandi verkefna.“ Salan sem ekki varð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.