Fréttablaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI DODGE Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
7 MANNA (SJÖ FULLORÐNIR) LÚXUS JEPPI HLAÐINN BÚNAÐI. ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU
Hentar vel fyrir ferðaþjónustuaðila (hægt að fá niðurfellingu vörugjalda). 32” dekk passa beint undir bílinn. 33” breyting kostar kr. 380.000.
DODGE DURANGO GT PREMIUM
dodge.is
STAÐALBÚNAÐUR GT PREMIUM M.A.: 7 manna og fer vel um fullorðna í þriðju sætaröðinni, fjarstart, leðursæti, lykillaust aðgengi, upphitað stýrishjól, 20” álfelgur, hiti í fram- og aftursætum,
8,4” snerti- upplýsingaskjár/aksturstölva , minni í bílstjórasæti, útvarpi og speglum, rafdrifin framsæti, blindhornsvörn, þakbogar með innbyggðum þverbogum, rafmagns afturhleri, Beats
hljómkerfi með 9 hátalara og bassaboxi, rafdrifin sóllúga o.m.fl. AUKABÚNAÐUR: Bluray DVD kerfi og málmlitur.
Heilbrigðismál Lyfjastofnun sem
hefur eftirlit með lyfjum sem koma
til eyðingar í gegnum apótek, veit
ekki hversu miklu magni er fargað
og veit ekki hvort öllum lyfjum sem
koma til förgunar sé í raun fargað.
Landlæknisembættið segir eftirlitið
geta verið betra.
Lyfjastofnun fór í mikla herferð á
síðasta ári til að tryggja að lyf færu
í eyðingu í stað þess að þau færu
út í náttúruna með skólpi eða þá
í hendur einstaklinga á svörtum
markaði. Þegar einstaklingur kemur
með lyf í apótek er það hins vegar
hvergi skráð og því utan ratsjár eftir
litsstofnana. Sá sem vill að lyfinu sé
eytt fær ekki staðfestingu um að svo
hafi verið gert.
Fréttablaðið prufaði að fara með
sterkt ávanabindandi lyf í eyðingu.
Lyfið hefur róandi, kvíðastillandi,
krampastillandi og vöðvaslakandi
verkun. Þegar lyfið var afhent starfs
manni setti hann lyfjaglasið í vasa
sinn án þess að skrá það á nokkurn
hátt. Lyf sem þetta selst á svörtum
markaði og er mikið notað sem
læknadóp.
Fréttablaðið óskaði svara við því
hversu miklu magni væri fargað
árlega og hvernig ferlarnir væru í
þessu sambandi. „Við erum ekki
með tölur um hversu miklu hefur
verið skilað inn af lyfjum. Til þess
að fá upplýsingar um það þarftu
að hafa samband við apótekin og
athuga hvort þau eru tilbúin að gefa
þessar upplýsingar upp ef þau eiga
þær til,“ segir í skriflegu svari Lyfja
stofnunar. „Varðandi ferlið frá því
að lyfi er skilað þarftu sömuleiðis
að hafa samband við apótekin.“
Samkvæmt svörum frá Embætti
landlæknis telur það að eftirlit
með þessum lyfjaskilum
mætti vera meira. Hins
vegar er eftirlitið ekki
í höndum Land
l æ k n i s h e l d u r
Lyfjastofnunar.
B r y n h i l d u r
Briem, deildar
stjóri á eftirlits
sviði Lyfjastofnun
ar, segir að ábyrgð
á lyfjaskilum sé
í höndum starfs
manna apótekanna
og ábyrgð þeirra sé mikil.
„Starfsmönnum er ráðlagt að
taka á móti lyfjum í glærum poka og
setja þau strax í svokallaðan skila
kassa sem er í öllum apótekum en
ekki stinga lyfjum í vas
ann,“ segir Brynhildur.
Í s l e n d i n g a r
h e n d a m i k l u
magni lyfja ár
hvert. Lyfjastofn
un kannaði í
nóvember árið
2016 hvernig
l y f j a e y ð i n g u
væri háttað hér
á landi. Rúmlega
þriðjungur Íslend
inga henti lyfjum þá
í ruslið, í vaskinn eða
sturtaði niður í klósettið.
Þannig geta lyf haft skaðleg áhrif á
umhverfi sitt.
sveinn@frettabladid.is
Lítið eftirlit með lyfjaskilum
Ábyrgð á lyfjaskilum er í höndum starfsmanna apóteka. Yfirvöld hafa ekki yfirsýn yfir magn lyfja sem er skilað.
Ekki er með nokkru
móti hægt að sjá hvort
öll þau lyf sem koma til
eyðingar hjá apótekum
fari raunverulega í eyð-
ingu. Yfirvöld hafa enga
vitneskju um magn lyfja
sem skilað er til eyðing-
ar. Starfsmaður apóteks
stakk ávanabindandi lyfi
í vasann.
Árið 2016 henti rúmlega
þriðjungur Íslendinga lyfjum
í ruslið, í vaskinn eða sturt-
aði niður í klósettið.
sAmFÉlAg Stjórn Öryrkjabandalags
Íslands vill að stjórnvöld efli núver
andi kerfi örorkumats í stað þess
að tekið verði upp tilraunakennt
starfsgetumat. Þetta kemur fram í
ályktun frá stjórninni.
Í greinargerð með ályktuninni
segir að núverandi kerfi sé í grund
vallaratriðum vel upp byggt,
sveigjan legt og traust. Bent er á að
starfsgeta öryrkja sé oft sveiflu
kennd og með tilkomu starfsgetu
mats sé hætt við að öryrkjar lendi í
alvarlegri óvissu með afkomu sína.
Hafa þurfi í huga að íslenskt
atvinnulíf bjóði ekki upp á nægi
lega mörg og fjölbreytt störf við hæfi
þeirra öryrkja sem treysti sér til að
vinna. Starfsgetumat sé því óraun
hæfur kostur.
Stjórnvöld hafa undanfarin ár
unnið að undirbúningi þess að
starfsgetumat verði tekið upp í stað
örorkumats. Formaður systursam
taka ÖBÍ í Danmörku hélt nýverið
erindi hérlendis en hann telur að
upptaka starfsgetumats þar í landi
hafi verið misheppnuð. – sar
Stjórn ÖBÍ
ályktar gegn
starfsgetumati
Systursamtök ÖBÍ í
Danmörku telja að innleið-
ing starfsgetumats þar hafi
misheppnast
reYKJAVÍK Borgarstjórn samþykkti
í gærkvöld að vísa frá tillögu Mið
flokksins um óháða rannsókn vegna
framkvæmda við Hlemm Mathöll.
Tólf voru fylgjandi frávísun, tíu mót
fallnir en einn sat hjá.
Upphafleg kostnaðaráætlun vegna
mathallarinnar hljóðaði upp á 99
milljónir en hún var kynnt í febrúar
2016. Samhliða því var greint frá því
að starfsemi mathallarinnar skyldi
hefjast síðar á árinu. Raunin varð
aftur á móti sú að Hlemmur Mathöll
tók til starfa í ágústmánuði ári síðar.
Í júlímánuði á þessu ári kom síðan
í ljós að kostnaður við framkvæmd
irnar nam 308 milljónum króna.
Í greinargerðinni segir að það sé
óviðunandi að leggja málið til Innri
endurskoðunar Reykjavíkurborgar
þar sem biðtími þar sé of langur.
Á borgarstjórnarfundi var einnig
tekin fyrir tillaga Sjálfstæðisflokksins
um heildarúttekt á framkvæmdum
við Nauthólsveg 100. Þar var gamall
braggi gerður upp en heildarkostn
aður framkvæmdanna hljóðar upp
á 415 milljónir króna. Upphafleg
kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir 158
milljónum samkvæmt upplýsingum
frá borginni.
Baldur Borgþórsson, borgarfull
trúi Miðflokksins, var ómyrkur í
máli og sagði að því færi fjarri að
um einstök mál væri að ræða. Hann
boðaði að flokkurinn myndi á næstu
vikum og mánuðum leggja fram fleiri
mál sem sýna fram á framúrkeyrslu í
framkvæmdum hins opinbera.– dfb
Tillögu um óháða rannsókn á Hlemmi mathöll vísað frá
Frá Hlemmi mathöll í miðborg Reykjavíkur. FRéttablaðið/EYþóR
1 7 . o K t ó b e r 2 0 1 8 m i ð V i K U D A g U r4 F r É t t i r ∙ F r É t t A b l A ð i ð
1
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
8
-4
8
4
4
2
1
1
8
-4
7
0
8
2
1
1
8
-4
5
C
C
2
1
1
8
-4
4
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K