Fréttablaðið - 17.10.2018, Side 16
GAMMA með um 270
milljónir í útboði WOW
Tveir sjóðir GAMMA fjárfestu fyrir 2 milljónir evra í skuldabréfaútboði félagsins.
Samkvæmt yfirliti frá Pareto keyptu íslenskir aðilar um 37 prósent af útgáfunni.
Gagnaherbergi opnað í London og unnið að því að fá inn fjárfesta sem hluthafa.
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5800
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Greinendur ráðgjafarfyrir-tækisins Capacent telja að „ekkert annað en kraftaverk“
þurfi til þess að afkoma Sýnar í ár
verði í samræmi við áætlanir stjórn-
enda þess. Þeir hafa lækkað verðmat
sitt á fjölmiðla- og fjarskiptafélaginu
um 10,5 prósent og meta nú gengi
hlutabréfa félagsins á 68,3 krónur
á hlut.
Stjórnendur Sýnar gera ráð fyrir
að EBITDA félagsins – afkoma fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta
– verði á bilinu 4 til 4,4 milljarðar
króna í ár. Til samanburðar var
EBITDA Sýnar 1.436 milljónir króna
á fyrri hluta ársins en 1.518 milljón-
ir króna sé leiðrétt fyrir einskiptis-
kostnaði sem féll einkum til vegna
kaupa félagsins á helstu eignum 365
miðla.
Í verðmati Capacent, sem Mark-
aðurinn hefur undir höndum,
segjast sérfræðingar ráðgjafar-
fyrirtækisins ekki ætla að bíða eftir
kraftaverki, heldur hafi þeir lækkað
rekstrarspá sína fyrir félagið. Gera
þeir ráð fyrir að EBITDA Sýnar verði
3.372 milljónir króna í ár eða um 3,6
milljarðar króna sé litið fram hjá
einskiptiskostnaði.
Þeir benda þó á að einskiptis-
kostnaður vegna kaupanna hafi
farið stigminnkandi með hverjum
ársfjórðungi og útlit sé fyrir að hann
verði brátt óverulegur.
Stjórnendur Sýnar hafa sagst
reikna með að samlegð af kaupum
félagsins á eignum 365 miðla verði
um 1,0 til 1,1 milljarður króna og
að henni verði náð á næsta ári.
Capacent spáir því hins vegar að
markmiðið náist ekki fyrr en árið
2020. Þá gerir ráðgjafarfyrirtækið
ráð fyrir að takmarki Sýnar um 5
milljarða króna EBITDA verði náð
árið 2021 í stað 2020. – kij
Þarf kraftaverk til að spá Sýnar rætist
6,1%
er gengislækkun hlutabréfa í
Sýn síðustu þrjá mánuði.
Stefán
Sigurðsson,
forstjóri Sýnar.
Breski vogunarsjóðurinn Att-estor Capital seldi um 0,3 prósenta eignarhlut í Arion
banka í síðasta mánuði og fór í lok
mánaðarins með 8,58 prósenta hlut
í bankanum. Sjóðurinn hefur selt
hátt í 0,9 prósent af hlutafé bankans
eftir að bankinn var skráður á hluta-
bréfamarkað í júní. Attestor Cap ital
hefur haldið áfram að minnka hlut
sinn það sem af er þessum mánuði,
samkvæmt heimildum Markaðar-
ins.
Sjóðir á vegum bandaríska eigna-
stýringarfyrirtækisins Eaton Vance
Management juku lítillega við hlut
sinn í Arion banka í september og
áttu í lok mánaðarins samanlagt
1,78 prósenta hlut, samkvæmt lista
yfir stærstu hluthafa bankans. Til
samanburðar nam samanlagður
hlutur sjóðanna 1,64 prósentum
í lok ágúst og um 1,2 prósentum í
kjölfar skráningar bankans.
Attestor Capital hefur unnið
markvisst að því að minnka hlut
sinn í bankanum á undanförnum
mánuðum en vogunarsjóðurinn
hefur selt hátt í 3,9 prósent af
hlutafé bankans frá því í vor.
Hlutabréfaverð Arion banka nam
81,2 krónum á hlut við lokun mark-
aða í gær og var um 8,3 prósentum
hærra en í útboði bankans þegar
Kaupþing og Attestor seldu um 29
prósenta hlut á genginu 75 fyrir
samtals um 39 milljarða króna. – kij
Attestor selur og Eaton
Vance kaupir í Arion
Attestor hefur selt hátt í 4 prósenta hlut frá því í vor. FréttAblAðið/Eyþór
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
8%
er hækkun á verði hlutabréfa
í arion banka frá því í útboði
bankans í júní síðastliðnum.
Tveir f járfestingar-s j ó ð i r í st ý r i n g u G A M M A C a p i t a l Management voru á meðal þeirra sem tóku þátt í skuldabréfa-
útboði WOW air sem lauk um
miðjan síðasta mánuð. Sjóðirnir
GAMMA: Credit Fund og GAMMA:
Total Return Fund fjárfestu þann-
ig fyrir samanlagt tvær milljónir
evra, jafnvirði rúmlega 270 millj-
óna króna, í útboðinu. Þetta kemur
fram í gögnum frá Bloomberg-upp-
lýsingaveitunni sem Markaðurinn
hefur undir höndum.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýs-
ingar um aðra þátttakendur í útboð-
inu, sem norska verðbréfafyrirtækið
Pareto Securities hafði yfirumsjón
með, en WOW air tryggði sér fjár-
mögnun upp á samtals 60 milljónir
evra, jafnvirði 8 milljarða króna.
Samkvæmt yfirliti frá Pareto, sem
Markaðurinn hefur undir höndum,
voru íslenskir aðilar með um 37
prósent af heildareftirspurninni
í skuldabréfaútgáfunni, eða sem
nemur 22 milljónum evra. Banda-
rískir fjárfestar keyptu hins vegar
um fjórðunginn, fjárfestar frá
Norður löndunum voru með saman-
lagt um 19 prósent af útgáfunni á
meðan afgangurinn – um 19 pró-
sent – var seldur til annarra fjárfesta
í Evrópu. Samkvæmt heimildum
Markaðarins tóku engir einkafjár-
festar þátt í skuldabréfaútboðinu.
Fjárfestingarsjóðurinn GAMMA:
Credit Fund, sem er með um 8
milljarða króna í stýringu, keypti
fyrir 1,8 milljónir evra í útboðinu á
meðan GAMMA: Total Return Fund,
sem er með um 2,4 milljarða í stýr-
ingu, fjárfesti hins vegar aðeins fyrir
200 þúsund evrur. Sé litið til stærstu
eigna GAMMA: Credit Fund í lok
september þá kemst fjárfestingin í
skuldabréfaútgáfu WOW air ekki á
lista yfir tíu stærstu eignir sjóðsins.
Gagnaherbergi opnað
Skúli Mogensen, forstjóri og eini
hluthafi WOW air, hefur að undan-
förnu, ásamt alþjóðlegum fjárfest-
ingarbanka, unnið að undirbúningi
þess að fá erlenda fjárfesta inn sem
nýja hluthafa að félaginu í lokuðu
útboði (e. private placement) og í
tengslum við þau áform var opnað
sérstakt gagnaherbergi í London í
liðnum mánuði, samkvæmt heim-
ildum Markaðarins. Á meðal þeirra
sem eru Skúla einnig innan handar
í þeirri vinnu eru Fossar verðbréfa-
markaðir og þá er ráðgert að sér-
fræðingar frá bandaríska fjárfest-
ingarbankanum Citi muni bætist í
þann hóp. Fossar, sem hafa undan-
farin ár verið leiðandi í að hafa
milligöngu um kaup erlendra sjóða
í skráðum verðbréfum á Íslandi,
voru á meðal ráðgjafa WOW air í
nýafstöðnu skuldabréfaútboði.
Þá hefur Skúli sagt að hann stefni
að skráningu hlutabréfa félagsins
á markað innan 12 til 18 mánaða,
bæði hérlendis og erlendis. Hefur
WOW air ráðið Arion banka og
Arct ica Finance til að hefja undir-
búning að skráningunni. Í viðtali
sem birtist við Skúla í Financial
Times í síðasta mánuði sagðist
hann áforma að sækja sér 200 til 300
milljónir Bandaríkjadala með því að
selja allt að helming hlutafjár í félag-
inu í slíku hlutafjárútboði.
Gæti þýtt 3 prósenta samdrátt
Rekstrarumhverfi WOW air, eins
og margra annarra evrópskra flug-
félgaga, hefur versnað til muna
undanfarið, einkum vegna mikillar
samkeppni og hækkandi olíuverðs,
en sem dæmi hefur heimsmarkaðs-
verð á Brent-hráolíu hækkað um 14
prósent frá því að skuldabréfa útboð
flugfélagsins hófst um miðjan ágúst.
Á móti kemur að snörp gengisveik-
ing krónunnar á síðustu mánuðum,
ekki hvað síst gagnvart Bandaríkja-
dal, hefur komið WOW air vel enda
eru tekjur þess að langstærstum
hluta í erlendum gjaldeyri á meðan
launakostnaðurinn er nánast ein-
ungis í íslenskum krónum.
Á meðal helstu niðurstaðna sviðs-
myndargreiningar sem stjórnvöld
unnu í lok sumars vegna mögulegra
áfalla í rekstri WOW air, og Markað-
urinn greindi frá í síðustu viku, var
að gjaldþrot félagsins gæti þýtt að
landsframleiðsla drægist saman um
tvö til þrjú prósent og gengi krón-
unnar veiktist um allt að 13 prósent
á næsta ári. Til samanburðar spá
Hagstofa Íslands og Seðlabankinn
2,7 prósenta hagvexti á næsta ári.
Í grunnsviðsmynd greiningar-
innar var einnig gert ráð fyrir því að
mögulegt fall WOW air gæti leitt til
þess að útflutningur drægist saman
um tíu prósent á næsta ári, verð-
bólga hækkaði um þrjú prósentu-
stig og færi þannig upp í hátt í sex
prósent og um 1.400 manns bætt-
ust á atvinnuleysisskrá. Til saman-
burðar voru ríflega 4.500 manns
atvinnulausir hér á landi í lok ágúst-
mánaðar. hordur@frettabladid.is
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, en veiking krónunnar hefur komið félag-
inu vel á sama tíma og olíuverð hefur hækkað mikið. FréttAblAðið/AntOn
14%
nemur hækkun olíuverðs
frá því að útboð WOW air
hófst um miðjan ágúst.
1 7 . o K t ó b e r 2 0 1 8 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn
1
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
8
-5
2
2
4
2
1
1
8
-5
0
E
8
2
1
1
8
-4
F
A
C
2
1
1
8
-4
E
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K