Fréttablaðið - 17.10.2018, Qupperneq 30
Við erum í djúpum skít ef við grípum ekki til róttækra og víðtækra aðgerða strax og
endurhugsum hvernig við neytum,
hönnum, mælum, framleiðum,
göngum um jörðina, skipuleggjum
borgir og byggingar, færum okkur
milli staða og knýjum fram orku.
Þetta er mat IPCC, Vísindanefnd
ar Sameinuðu þjóðanna um lofts
lagsmál og jafnframt virtustu radd
arinnar í heiminum um þennan
málaflokk, og birtist í nýrri skýrslu
um stöðu mála í loftslagsmálum
fyrr í mánuðinum. Markmiðið er að
halda hnattrænni hlýnun innan við
1,5 gráður fyrir árið 2100, miðað við
hitastig fyrir tíma iðnbyltingarinn
ar. Ef við náum ekki þessu markmiði
verða meiriháttar raskanir á helstu
lífkerfum jarðar með ófyrirséðum
afleiðingum.
„Að halda hlýnun jarðar innan
við 1,5 gráður er gerlegt ef horft er
til lögmála í efnafræði og eðlisfræði,
en að láta þetta verða að veruleika
krefst breytinga sem eiga sér ekki
fordæmi í sögunni,“ segir Jim Skea,
formaður IPCC vinnuhóps III. Lykil
orðin til að þessar breytingar geti
átt sér stað eru breitt samstarf þvert
á sérgreinar, geira og stofnanir,
nýsköpun, pólitískur vilji, hugar
farsbreyting og langtímasýn. Það er
rétt að undirstrika að í þessu ákalli
felast gríðarlega spennandi tækifæri
til að virkja hugvit og skapa atvinnu.
Finnum svörin hjá Finnum
Heimurinn er að færast frá því að
vera línulegt hagkerfi yfir í hring
rásarhagkerfi. Þetta er róttækt skref
og rétt að líta til þess hverjar fyrir
myndirnar eru í þeim efnum. Eins
og svo oft áður, beinist athyglin að
Finnum. Þeim hefur tekist að sam
ræma aðgerðir með breiðu sam
starfi, sem við Íslendingar getum
lært af.
Finnar tóku stöðumat og sögðu
sem svo: Við erum lítil þjóð, um það
bil fimm og hálf milljón, og höfum
alla burði til að umbreyta okkar
samfélagi yfir í hringrásarhagkerfi.
Og við ætlum ekki bara að breyta
finnsku samfélagi, heldur að setja
fordæmi fyrir því að þetta sé hægt
fyrir allan heiminn.
Finnski nýsköpunarsjóðurinn
Sitra er sjálfstæð, opinber stofnun.
Eins konar hugveita; straumbreytir
fyrir stefnumótun og hvati á vegferð
Finna til að færast yfir í hringrásar
hagkerfi. Fyrr á árinu fékk Sitra Circ
ular Economy verðlaunin í flokki
opinbera geirans, á vettvangi World
Economic Forum og Accenture í
Davos í Sviss.
Taka áhættur og ögra ástandinu
„Sitra er í stöðu til að taka áhættur
og ögra óbreyttu ástandi. Við tökum
áhættu fyrir hönd opinbera og
einkageirans með því að keyra til
raunaverkefni og spyrja krefjandi
spurninga. Þegar vel gengur, tekur
opinber og einkageiri við boltanum
og framkvæmir á stærri skala. Þann
ig erum við leiðarljós til að skapa
nýjar aðstæður,“ segir Mikko Kos
onen, forseti Sitra.
Með því að fjárfesta í rannsókn
um, ráðgjöf og breiðu samstarfi,
leiddi Sitra Aðgerðaáætlun um
hringrásarhagkerfi Finnlands 2016
2025. Að auki bjó Sitra til hugtakið
og skipulagði fyrstu Hringrásarráð
stefnuna árið 2017 (e. World Circ
ular Economy Forum), í samstarfi
við Norrænu ráðherranefndina,
þrjú ráðuneyti í Finnlandi, Ellen
MacArthurstofnunina, Fram
kvæmdastjórn Evrópusambands
ins, Umhverfisstofnun Sameinuðu
þjóðanna og aðra lykilaðila.
Yfir 1.600 sérfræðingar og frum
kvöðlar komu saman á ráðstefn
unni, frá 92 löndum. Næsta ráð
stefna verður haldin í Japan 22.24.
október. Í nánu samstarfi við skóla,
stuðlar Sitra að því að menntun efli
færni í hringrásarhagkerfinu og nú
þegar stunda 60.000 nemendur í
Finnlandi menntun í þeim anda.
Sitra gefur líka út handbækur með
nýjum viðskiptamódelum fyrir lítil
og meðalstór fyrirtæki í framleiðslu
greinum, svo fátt eitt sé nefnt.
Skýr framtíðarsýn er lykilatriði
Í dag er Sitra byggt á opinberum
hlutabréfum í Nokia og hefur 3040
milljónir evra til umráða árlega,
sem eru fjármagnstekjur af inneign.
Áður fyrr var Sitra undir ráðuneyti
en að sögn Kosonen var það „lykil
atriði að færa Sitra undir finnska
þingið. Við erum ekki háð skamm
tímahugsun þeirrar ríkisstjórnar
sem er við völd hverju sinni og
við erum heldur ekki háð ríkisfjár
lögum sem geta sveiflast ár frá ári.
Þetta þýðir líka að við getum hugsað
til lengri tíma og höfum pólitískan
vilja á bak við okkur.“
Hnattrænar og landamæralausar
áskoranir eins og loftslagsbreyting
ar kalla á langtíma hugsun og skýra
framtíðarsýn, nýsköpun og öflugt
og oft endurhugsað samstarf milli
stofnana, fyrirtækja og geira. Fyrir
ríki eins og Ísland sem eru að þróa
leiðir til að takast á við örar breyt
ingar á öllum sviðum samfélagsins,
og brúa bil á milli geira, eru Finnar
enn og aftur innblástur.
Hringrásarhagkerfið og nýsköpun
Hrund
Gunnsteinsdóttir
þróunar-
fræðingur og
stjórnar formaður
Tækniþróunar-
sjóðs
Finnar tóku stöðu-
mat og sögðu sem
svo: Við erum lítil þjóð, um
það bil fimm og hálf milljón,
og höfum alla burði til að
umbreyta okkar samfélagi
yfir í hringrásarhagkerfi.
Pétur Ívarsson hefur starfað sem verslunarstjóri Boss búðarinnar í Kringlunni í 19 ár. Hann segir að sölumennskan í herrafatageiranum snú
ist um að mynda einstakt viðskipta
samband sem nær jafnvel frá einni
kynslóð til annarrar.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Hlaup er aðaláhugamál mitt. Ég
reyni að hlaupa að minnsta kosti
tvö maraþon á hverju ári. Þetta árið
hef ég tekið þrjú; Boston, Reykjavík
og núna síðast Chicago þar sem ég
náði öðru sinni að fara undir þrjá
tíma. Svo hef ég náð að tengja þetta
áhugamál mitt við vinnuna. Ég hef
til að mynda verið með þrjár fjáröfl
unaruppákomur í Reykjavíkurmara
þoni þar sem ég einn eða fleiri hafa
hlaupið heilt maraþon uppáklædd
í jakkaföt eða kjóla til styrktar mál
efnum tengdum börnum. Ég hef
með góðri hjálp náð að safna tæpum
fimm milljónum í þessi þrjú skipti.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Ég vakna alltaf klukkan 7, geri
hafragraut og egg fyrir Pop [Pétur
Orra Pétursson] og geri hann kláran í
skólann. Una byrjar fyrr en ég þann
ig að ég reyni að henda í eins og eina
vél þegar grauturinn er til, fæ mér
nokkra espresso og geri sjálfan mig
kláran. Ég reyni yfirleitt að klára
hlaupaæfingar fyrir vinnu. Þá er
hádegið laust fyrir ræktina eða aðra
tilfallandi hluti.
Hvaða ráðstefnu eða fyrirlestur
sóttirðu síðast?
Síðasti fyrirlestur sem ég fór á var
á expóinu fyrir Bostonmaraþonið
þar sem ég hlustaði á einhvern elítu
hlaupara. Hann fór yfir hlaupa
leiðina í þessu elsta árlega mara
þonhlaupi heims sem hefur verið
hlaupið í 122 skipti.
Hver er bókin sem þú ert að lesa
eða last síðast?
Ég og yngsti sonurinn erum heims
styrjaldarnördar og skiptumst á að
lesa upphátt hvor fyrir annan. Nú
erum við að lesa saman um orustuna
um Bretland en þar áður lásum við
um innrásina í Normandí. Fyrir ári
fórum við til Normandí og skoðuð
um stríðsminjar frá Ddegi. Síðan þá
hefur það bara verið allur pakkinn.
Lestur bóka um stríðið og gerð flug
vélamódela frá seinna stríði.
Hvað er það skemmtilegasta við
starfið þitt?
Starfið er mjög skemmtilegt og satt
best að segja hefur mér alltaf þótt og
þykir enn 20 árum seinna skemmti
legt. Það er svo margt sem hægt er
að telja upp eins og innkaup, þegar
maður pantar fatnaðinn fyrir næsta
season. Það að geta talað nánast
allan daginn hentar mér vel. Ég er
ekki þekktur fyrir að vera hljóðlátur.
Það sem stendur þó upp úr eftir öll
þessi ár er að sjá sömu viðskipta
vinina aftur og aftur. Það gleður mig
alltaf jafn mikið þegar ungir menn,
komnir með fyrstu alvöru vinnuna
sína og orðnir að fullgildum skatt
greiðendum, koma og kaupa sín föt
sjálfir. Þessa sömu stráka sá ég fyrst
með foreldrum sínum þegar þeir
voru börn. Seinna fengu þeir stúd
entsfötin og síðan fötin þegar þeir
útskrifuðust úr æðra námi. Málið
er að „það getur hver sem er selt
hverjum sem er hvað sem er einu
sinni“ en það er ekki sölumennska.
Að mínu mati snýst þetta um að selja
fólki aftur og aftur. Þetta er einstakt
samband sem þú myndar milli þín
og viðskiptavinarins og í samvinnu
finnum við lausn og allir græða. Þetta
er það skemmtilegasta við vinnuna.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
starfinu og rekstrarumhverfinu?
Helstu áskoranirnar í verslun í
dag felast í því að viðhalda því að
það sé einstök upplifun að koma í
verslunina og fá að snerta vöruna
og fá um hana allar þær upplýsingar
sem þú sækist eftir. Boss búðin er
hluti af fyrirtækinu Fötum og skóm
og í öllum verslunum Fata og skóa
eru starfsmenn með áralanga starfs
reynslu og reynslu af innkaupum.
Starfsmannavelta er mjög lítil og hafa
eigendur gefið okkur starfsmönnum
mjög frjálsar hendur við stjórnun
hverrar deildar. Þetta er lykillinn að
ánægju starfsmanna. Ég tel að ánægð
ur starfsmaður sé lykillinn að góðum
árangri og það að öllum finnist þeir
vera hluti af sama liði.
Hvaða breytingar sérðu fyrir þér í
rekstrarumhverfinu á komandi árum?
Ég tel að þær breytingar sem hafa
orðið á verslun hjá mörgum komi
minna við okkur en marga aðra í
sama geira því eins og ég sagði þá
vill fólk enn snerta og upplifa það að
koma inn í fallegar verslanir. Samt
sem áður höfum við verið mjög
duglegir við að kynna okkar vörur á
samfélagsmiðlum og í okkar bransa
skiptir það máli. Ég er þó á þeirri
skoðun að þú verðir að vera sannur á
þeim vettvangi, sýna hvað þú stendur
fyrir og bjóða á eins heiðarlegan hátt
og mögulegt er. En á samfélagsmiðl
um þarf maður að vera mjög virkur
að svara öllum fyrirspurnum sem
koma á öllum tímum sólarhrings.
Tæknin er síðan algjör bylting þegar
kemur að því að selja fólki sem býr
utan höfuðborgarsvæðisins. Það
hringir og spyr um vöru og kviss bang
fær sendar myndir af henni á næstu
sekúndu. Ég held að í framtíðinni eigi
fólk eftir að forvinna meira og koma
betur upplýst þegar það verslar. Allir
í öllum geirum upplifa það að fólk er
búið að gúgla sig upp áður en það
mætir í búð, til læknis og svo fram
vegis.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Satt best að segja þá sé ég mig ekki
vinna við annað eftir tíu ár enda
hef ég mjög gaman af þessu og er
frekar góður í þessu. Ég gæti þó séð
mig sem einhvern sem þjálfaði upp
starfsmenn og þrusaði yfir hópi fólks
um reynslu mína af sölumennsku og
liðsuppbyggingu. Ég gæti jafnvel séð
mig vinna við það sem áhugamálið
en ekki sem aðalstarf.
Að geta talað allan daginn hentar vel
Helstu drættir
Starfsferill: Eftir grunnskóla var ég í alls konar „door-to-door“ sölu-
mennsku, ferðaðist um landið og seldi bækur, myndbandsupptökuvélar
og fleira. Ég hef oft komið og gist í flestum þorpum og bæjum landsins.
Á meðan ég var í MH vann ég í Herradeild PÓ 1987 til 1990. Vann svo í
Öndvegi húsgagnaverslun til 1999 en þá byrjaði ég að vinna sem versl-
unarstjóri í Hugo Boss og hef ég verið þar síðan.
Fjölskylduhagir: Giftur Guðrúnu Unu Valsdóttur, sérfræðingi í Lands-
bankanum. Við eigum þrjá syni; Viktor Orra (21) sem er í Shanghai Uni-
versity, Kristófer Orra (20) sem er í fjármálaverkfræði í HR og Pétur Orra
(12) sem er í Valhúsaskóla.
Pétur segir að helsta áskorunin sé að viðhalda þeirri einstöku upplifun að koma í fallega verslunina. Fólk komi í verslanir fyrir upplifunina. FréTTTablaðið/Eyþór
Svipmynd
Pétur Ívarsson
1 7 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M I Ð V I k U D A G U r8 markaðurinn
1
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
8
-6
5
E
4
2
1
1
8
-6
4
A
8
2
1
1
8
-6
3
6
C
2
1
1
8
-6
2
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K