Fréttablaðið - 17.10.2018, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Bjarna
Karlssonar
BAkþAnkAR
Liðna helgi tók ég þátt í mögnuðu verkefni er hópur ungmenna á aldrinum tíu til
sautján ára kom saman í Vindás-
hlíð í Kjós í því skyni að vinna
með sorg í kjölfar ástvinamissis.
Verkefnið ber heitið Örninn og er
á vegum Vídalínskirkju. Í þverfag-
legu umsjónarteymi voru sálfræð-
ingar og sjúkraþjálfari, prestar og
djákni, matreiðslumenn, listafólk
og hárgreiðslumeistari. Sams konar
helgardvöl var haldin sl. vor og
nú líkt og þá fengum við sem eldri
erum endurnýjaða trú á lífið.
Einhver hefði haldið að svona
dvöl væri hlaðin alvöruþunga
en reyndir vita að óvíða er meira
hlegið en þar sem syrgjendur koma
saman til að ræða um reynslu sína,
styrk og vonir. Mannshjartað
rúmar á sömu stundu dýpstu sorg
og björtustu gleði. Þar er pláss
fyrir trega og tilhlökkun, kvíða og
þakklæti og allt hitt sem fylgir því
að vera manneskja. Við urðum
sammála um að líta á dvölina sem
æfingabúðir í því að bera sorg.
Þau sem syrgja vilja nefnilega
ekki losna við sorgina því þar býr
minningin um þann sem er farinn.
Við sáum líka að ef maður ætlaði
í alvöru að lifa laus við sorg yrði
maður að hafna öllum tengslum,
ástinni og vináttunni.
Ekkert þessara ungmenna
gat hugsað sér að lifa án ástar.
Þau sögðu hvert öðru sögu sína,
spegluðu reynslu sína og viðbrögð
í sögum hinna og eftir því sem
klukkustundirnar liðu óx fegin-
leikinn. Það er undarlegt að segja
svona, en það er satt að það voru
fegnir syrgjendur sem kvöddust á
hlaðinu í Vindáshlíð í lok helgar.
Það fylgir því feginleiki að vita að
aðrir hafi styrk til að vera vitni að
lífi manns í gagnkvæmum skiln-
ingi, og það gefur manni viðspyrnu
til að halda göngunni áfram.
Ungir
syrgjendur HÁTÍÐLEGAR
BORGARFERÐIR
WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. Tilboðið á aðeins við ef bókað er flug fram og til baka.
LONDON
LONDON
FRÁ
4.999 kr.*
Tímabil: nóv.–mars
KAUPMANNAHÖFN
KAUPMANNAHÖFN
FRÁ
5.999 kr.*
Tímabil: nóv.–des.
PARÍS
PARÍS
FRÁ
7.999 kr.*
Tímabil: nóv.–des.
BERLÍN
BERLÍN
FRÁ
6.499 kr.*
Tímabil: nóv.–des.
BOSTON
BOSTON
FRÁ
12.999 kr.*
Tímabil: nóv.–des.
Hafðu það hátíðlegt á aðventunni. Yljaðu þér við
kakóbolla á kaffihúsi í Köben, horfðu á ljósadýrðina
í London eða skoðaðu skreytingarnar í Berlín.
Þú kemst í WOWtíðarskap.
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Stendur undir nafni
1
7
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
8
-2
F
9
4
2
1
1
8
-2
E
5
8
2
1
1
8
-2
D
1
C
2
1
1
8
-2
B
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K