Þróttur - 16.06.1918, Blaðsíða 3

Þróttur - 16.06.1918, Blaðsíða 3
Lengi treynist vona vor vasldeik einum bundið. íþrótt prýðir vöxt og vit, vekur lýðum gleði, ævitíðum lífsins lit, ljóshjúp sníður geði. Oþreytandi bölva-bönd brautryðjandi slítur, styrkleikshandar, elds í önd óslökkvanda nýtur. Strengjum Braga Ianga leið láti slagur knúinn. heilladagur himinskeið hald þú fagurbúinn. Bjarni Jónsson frá Vogi. Iþróttaslagur. ÞRÓTTUR — blað íþróttamanna — kemur út 5 blöð á þessu ári. Kostar 1 kr. árg., en 25 aur. eint. í lausasölu. Blaðið vill fá útsölumenn í hverri sveit. Sölulaun 20 %• Um afgreiðslu blaðsins sér stjórn íþróttafélags Reykjavíkur. feir, sem gerast vilja áskrifendur, sendi afgr. blaðsins i kr. póstávísun. Utanáskrift blaðsins er: fRÓTTUR, Pósthólf nr. 546, Reykjavík. Líður ótta, roði rís, rennur nótt að straumi. Ljóssins gnótt er vegar vís, vekur þrótt af draumi, Geislinn hrærir geð og mál, glaður blærinn lundu, röðull skær úr austur-ál ungur hlær við grundu. Ekki er hljótt í morgun-mund, margan þróttur hvetur, Sveina gnótt á sigurfund sækir skjótt sem gelur. Nú skal reyna þol og þor, þá er meinum hrundið. Kraftamenn. íslenzk alþýða hefir lengi haft mæt- ur á kraftamönnum, og ein af kær- ustu skemtunum hennar hefir verið að segja sögur af þeim og heyra þær sagðar. 1 fornsögunum uir og grúir af sögum um sterka menn. En þær sög- ur þrjóta ekki með fornsögunum. Þær haldast við gegnum ailar aldir alt til okkar daga. Nokkuð er af þeim í þjóðsögusöfnunum, en lang-ílestum slíkum sögum er þó enn þá ósafnað. I3að væri nú vel til fallið, ef íþrótta- fjelögin vildu safna slíkum sögum.

x

Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.