Þróttur - 16.06.1918, Blaðsíða 13

Þróttur - 16.06.1918, Blaðsíða 13
Þróttur 35 ♦♦♦ Sfjar Törar. Fjireytt úrvat. Rykfrakkar. Regnkápur. Alfatnaður. Nærfalnaður. Manchettskyrtur. Hálstau. Brjösthlífar. Sokkar. Sportbelti. Axlabönd. Sporthúfur. Hattar. Göngustaflr. Regnhlífar o. m. 11. Ennfremur: Pils, Morgunkjólar og Nærfatnaður m. m. fyrir kvenfólk. Vandaðar Törur. Lágt yerð. ♦♦♦ Bezt að verzla í Sími 269. Hafnarstræti 16. f Olympiuförin 1912. (Frh.) Þann 4. júlí skýrði Sigurjón okkur frá því, að íslendingar í Danmörku hefðu geíið grip (bikar); (eiginlega and- virði hans) er vera skyldi föst verð- laun við Ólympiuleikana og sá liljóta, er beztur reyndist í íslenzkri glímu. Forgöngumaður þessa, var hr. Svein- björn Sveinbjörnsson, yfirkennari í Ar- ósum og gaf hann sjálfur til þess drýgst- an skerf. Við sáum að það myndi ýta mjög undir og flýta fyrir því, að glíman yrði viðurkend, og telcin í tölu allieimsiþrótta, er kept yrði nú í henni, inn á »Stad- ion« (leikvanginum), og verðlaunin af- hent af nefnd Ólympíu-leikanna. Oss hafði þegar verið ætlaður tími á leikskránni, til glímusýningarinnar (þ. 7. júlí, kl. 7. e. h.) en hann var óhent- ugur vegna þess, hve seint á degi glíma átti; en nú gafst okkur einnig tækifæri til þess að sýna hana í annað sinn, og var því margfaldur gróði. Við fengum því ennfremur framgengt, að ná í mjög lientugan tíma (þ. 15. júlí, kl. 3 e. h.), til þess að keppa um bikarinn, svo okk- ur þótti nú vænl í efni og horfur góðar. Bikarinn fengum við að velja sjálfir, en gefendur hans voru þeir: yfirkennari Sveinbjörn Sveinbjörnsson, dr. Valtýr Guðmundsson, prófessor Finnur Jóns- son, stórkaupnr. Jakob Gunnlaugsson, skrifstofustjóri Jón Ivrabbe, presturinn Magnús Th. Maguússon, cand. mag. Bogi Melsted, ræðismaður Ditlev Thom- sen, stórkaupm. Guðm. Sch. Thorsleins- son og stórkaupm. Þórarinn Tulinius. Sigurjón hafði náð sanrbandi við verndara Ólympu-leikanna frakkann, Baron Pierre de Coubertin, i því skyni, að fá hann til að vera meðmæltan sjálf- stæðri þáttöku vor íslendinga í Ólympíu- leikuuum, og því að vér fengjum að koma manni í alþjóða Ólympíunefnd-

x

Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.