Þróttur - 01.06.1944, Page 14
.!§>MMSM€$M0$ 000^ M&MM-9
Árið 1941 tóku Í.R.-ingar að
æfa sund að nýju, en sundæfingar
höfðu þá legið niðri hjá félaginu
um nokkurra ára skeið. Á þess-
um árum hefir félagið sýnt, að
það hefir efnilegum sundmönnum
á að skipa, þótt ekki séu þeir
margir enn. Á síðasta sundmeist-
aramóti áttu Í.R.-ingar sjö kepp-
endur, þar af f jórar stúlkur, sem
kepptu í 4 X 50 m boðsundi
(bringusundi). Þótt þær hafi ekki
sigrað á þessu móti, geta þær
samt orðið hinum skeinuhættar,
með góðri þjálfun. Enn fremur
átti félagið þar þrjá drengi, sem
íærðu því glæsilega sigra. Fyrst
skal þar frægan telja, Guðmund
Ingólfsson, sem varð íslands-
meistari í 100 m. baksundi karla
á 1 mín. 21,2 sek. og fyrstur í 50
m. frjáls aðf. drengja á 35,8 se'k.
(íslandsmet 35 sek.). Þessir tím-
ar eru glæsilegir, þegar tekið er
tillit til þess, að Guðmundur er
aðeins 14 ára gamall. Auk þess
komu fram tveir aðrir drengir,
sem eru mjög efnilegir, Jón F.
Björnsson og Ólafur Guðmunds-
son, en þeir ásamt Guðmundi
unnu 3 X 50 m þrísund fyrir
drengi.
Mig langar til þess að rekja
hér örlítið sögu sundsins. Fyrsta
sundfélagið, sem stofnað var hér
í bænum, var Sundfél. „Grettir“,
stofnað 1911 eða ’12, en um eng-
ar reglulegar æfingar mun þar
hafa verið að ræða, því að það
leystist upp skömmu síðar. Sund-
fél. „Gáinn“ var stofnað 1919, og
er það fyrsta félagið, sem hélt
uppi reglulegum æfingum og
sendi eitt árið 10 keppendur í
„nýárssundið". En endalok „Gá-
ins“ urðu þau, að beztu menn
félagsins gengu í önnur félög.
Orsök þessa tel ég aðallega hafa
verið áróður, vegna þess að í
„allsherjarmótinu" þessi ár var
einnig keppt í sundi, og gátu hin
ýmsu íþróttafélög bæjarins unn-
ið þetta mót, ef þau áttu 1—2
góða sundmenn. Á þessum árum
höfðu íþróttafélögin sundið á
stefnuskrá sinni, en enga sér-
staka sundflokka. 1. maí 1928
var svo Sundfél. „Ægir“ stofn-
að og nokkru seinna stofnuðu
„Ármann“ og ,,K. R.“ einnig sín
sundfélög. í. R. átti ennfremur
allgóða sundmenn á þessum ár-
um, en áhugi þeirra dvínaði
smátt og smátt, ég held, vegna
þess, að þeim hefir ekki verið
haldið nógu vel saman. Eg tel, að
fyrst og fremst beri að þakka
Sundfél. „Ægi“ það, hve sundið
er komið vel á veg hér á landi.
Að endingu þetta: Í.R.-ingar!
Eflið sundið og safnið fleiri
mönnum undir merki þess. Æfið
kappsamlega, og þá mun árang-
urinn verða glæsilegur.
Jónas Halldórsson.
Sundmennirnir eru: Guðm. Ingólfsson, Ólafur Guðmundsson og Jón
F. Björnsson ásamt kennara í. R., Jónasi Halldórssyni.
Frh. af bls. 4.
Þ. Scheving Thorsteinsson, lyfsali, formaður,
Einar Pétursson, stórkaupmaður,
Gunnar Einarsson, prentsmiðjustjóri,
Sigurliði Kristjánsson, kaupmaður, og
Haraldur Jóhannessen, bankafulltrúi.
Hin nýja stjórn heitir á alla I.R.-inga, unga jafnt
og gamla, að standa nú fast saman um þau verk-
efni, sem bíða úrlausnar á hinum allra næstu tím-
um. Félagsstarfsemina þarf að efla í heild, starf-
semi hinna ýmsu greina þarf að efla og ósleitilega
þarf að vinna að undjrbúningi hinnar nýju bygg-
ingar. Skiptir því miklu máli, að nú leggist allir á
eitt og séu samtaka.
10
ÞRÓTTUR