Stjarnan - 01.12.1919, Blaðsíða 13

Stjarnan - 01.12.1919, Blaðsíða 13
STJARNAN. 109 ingar feíast í afsökun hennar. pannig varpaði hún ábyrgðinni á syndafaliinu á Guð. pessi tilhneiging til þess að rétt læta sjálfan sig, er sprottin frá lý.ginn- ar föður, og hefir lýst sér hjá öllum sonum og dætrum Adams og Evu. pess- konar játning stafar ekki frá Guðs anda og Guð mun ekki taka hana gilda. Sönn iðrun ieiðir manninn til þess að bera sjálfur sekt sína og játa hana yfirdreps- skapar- og hræsnislaust. Hann mun þá hrópa eins og' tollheimtumaðurinn, sem ekki þorði einu sinni að lyfta augum sínum til ihimins: “Guð! vertu mér syndugum líknsamur!” Lúk. 18:13. peir sem játa syndir sínar, munu réttlættir verða; því að Jesus ber fram blóð sitt til friðþægingar fyrir hina iðrandi sál. pau dæmi sannrar iðrunar og auð- mýktar, sem talin eru í Guðs orði, sýna anda, sem ekki reynir að afsaka syndir sínar hið minsta í játningu shini eða réttlæta sjálfan sig. Páll leitaði ekki við að afsaka sig. Iíann lýsir synd sinni með mjög' dökkum litum og reynir eigi að gera lílið úr sök sinni. “Eg hneppti í myrkrastofur marga kristna, með því að eg hafði fengið fullmakt til þess frá prestahöfðingjunum, og' gaf mitt já- kvæði til til, þegar þeir voru líflátnir, og í öllum samkunduhúsum lét eg þeim þrásinnis refsa og neyddi þá til að tal.a illa um Jesú. Já, svo frekt æddi eg gegn þeim, að eg elti þá til framandi borga.” Postulas. 26. :10,11. Hann hik- ar eigi við að koma. fram með þessa yfirlýsingu: “Jesús Ivristur er í heim- inn kominn til þcss að frelsa synduga menn, og er eg' hinn lielzti þeirra. ” 1. Tim. 1:15. pað hjarta, sem auðmjúkt er og sund- urkramið og bugað af sannri iðrun, mun kunna að meta rétt kærleika Guðs og kvöl Jesú á krossinum; eins og son- urinn játaði ávirðingar sínar fyrir elsk- andi föður, þannig mun hin iðrandi, ein- læga sál koma með allar sínar syndir fram fyrir Guð. Og skrifað er: “Ef vér viðurkennum voi'ar syndir, þá er hann trúfastur og réttvís, svo hann lyrirgef- ur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.” 1. Jóh. 1:9. Ellen G. White.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.