Stjarnan - 01.06.1922, Síða 5
STJARNAN
85
halda öll Guös boðorö, og einnig hvlld-
ardagsboöoröiö.
iMorgun nokkurn, er hann opnaöi
Biblíu sína, leiddur af Guðs anda, eins
og hann sjálfur trúöi, til þess aö frarn-
kvæma morgunguðsþjónustu sína, varö
athygli hans leitt aö þriðja og fjórða
kapítula Hebreabréfsir.s; hann las þá
og sneri huga sínum þar næst að 22.
kap Opinberunarbókarinnar. Og í þess-
um þremur kapítulum sá hann hvíldar-
daginn boöaöan sem “hvíld” Guðs.’.
Hið innra eyra hans heyrði greim-
lega rödd Guðs anda bjóða honum að
koma til föðursins, leggja sitt þreytta
höfuð að brjósti hans til þess að njóta
hvíldar Guðs, “Sabbats”hvíldar. Hann
svaraði: “já, Drottinn, glaður geng eg
inn til þessarar hvíldar og það strax
nú.” iÞá var sem straumur Guðs und-
ursamlega kærleika flæddi yfir hann í
ibylgjum Shinnar fullkomnu blessunar.
Sætur friður fylti sálu hans. Þetta var
honum >sú bezta sönnun fyrir því, að
'hvrld sú, er talað er um í Hebr. 4. kap.,
er hin sanna hvíldardagshvíld.
Sumar manneskjur veita sannleikan-
um fyrst viðtöku að vegi skilningsins,
í gegn um höfuðið, aðrar aftur að vegi
tilfinninganna, i gegn um hjartað. Þær
sjá hinn milda anda Krists opinberast
hjá Guðs sanna lýð, og það opnar
hjörtu þeirra fyrir boðun sannleikans.
Því næst gera þær sér innbyrðis ljósa
grein fyrir því, sem hjarta þeirra hefir
þegar veitt viðtöku. Þannig var það í
þetta skifti.
Eðlilega varð sannfæringin svo sterk
fyrir því, að þetta væri lýður Guðs í
sannleika, sem hann í svo mörg ár hafði
hjartanlega þráð að ná sambandi við,
að hann hiklaust ákvað að taka hlut
með lýð þessum og verða honum sam-
ferða á veginum til Guðs-ríkis.
Hann er nú kominn af spítalanum,
að mörgu leyti endurbættur á heilsu
sin.ni, með sterka trú á Guði, að hann
rnuni fullkomna lækning hans alger-
lega.
Tvo mánuði seinni part sumars var
hann upp til fjalla og ákallaði Drottin
í sálarangist sinni með mestu kost-
gæfni, um lækningu og leiðbeiningu.
Hann lítur nú svo á, að ráðlegging
prests nokkurs, félagsbróður hans, er
sagði við hann, “Farðu nú til Glendale
heilsuhælisins, þar er gott og guð-
hrætt fólk, getir þú nokkurs staðar
fengið hjálp verður jrað þar”, hafi ver-
ið rödd Drottins til hans í anda og
sannleika. I
“Kom þú og sjá.” Hann hefir nú
komið og séð, og eins og Natanael trúir
hann af öllu sínu hjarta, að Guð hafi
gefið lýð sínum mikið ljós, og nokkur
hluti þess ljóss er sannleikurinn um
hinn sanna hvíldardag Drottins. Vér
viljurn biðja fyrir honum, er hann nú
heldur áfram að rannsaka sannleikann
og leita hans, og búa sig undir nýtt
timabil í þjónustu Krists, með ríkari,
fullkomnari, sælli og ándælli lífs-
reynslu, en hann nokkru sinni áður
hefir þekt.
R. W. Munson,
(V. Sigurðsson þýddi.J