Stjarnan - 01.06.1922, Page 11

Stjarnan - 01.06.1922, Page 11
STJARNAN 91 sagt en aS skora á þig og aSra kristna, að bii5ja fyrir mér. Og þaS er orðiS framorSið — eg verS aS fara aS hátta — kæra kveSju, elsku mamma.” ” Næsta morgun, undir eins eftir sól- aruppkomu, voru seglin dregin upp á skipinu “Caravan” og þaS fét i haf. Hinn hái strompur viS hafnarmynniS var merki, sem lengi sást, þvi hann stóð þar dökkur móti hinum hvítu, snævi- þöktu brekkum Ný-Englands. Að lok- um hvarf hann bak viS sjóndeildar- hringinn og ekkert annað var eftir en hiö imikla, bláa reginhaf á alla vegu. fFramh.j Rás viðburðanna í Guðs hendi. Eftir William A. Spicer. V. Hin mikla spámannlega mœlisnúra. Hið lengsta spámannlega timabil, sem gefiS er í biblíunni, er spádómurinn uim hina 2300 daga fDan. 8: 14), sem byrj- uðu snemma í fornöld og enda á hinum síðustu tímum, fyrir miðju 19. aldar. 'Það er dásamlegt aS sjá hve nákvænn- lega atburðirnir koma fram eins og fyr- ir er spáð. Drottinn talar. 1000 ár. jafnvel 2000 ár líða, en svo þegar timinn er kominn, verður það framkvæmt. Það er Guð hinn alvaldi, sem lætur það koma fram. Eyrir honum eru tooo ár eins og dagurinn í gær, þegar hann er liöinn, eða næturvaka. Á þriöja stjórnarári Beltsassars Babels konungs, fékk Daniel sýn um hiö mikla fráfall, sem mundi koma á hinum sið- ustu dögum. Fvrst var honum sýnt, að Medar og Persar mundu taka viö heimsveldinu eftir Babýlon, síðan mundu Grikkir koma fram á sjónarsviðið f"Dan. 8: 20, 21). Þetta stóð uppmálað fyrir honum sem lifandi myndir, þegar ein er dreg- in til hliðar og önnur kemur fram. E'ftir þetta sá spámaðurinn þjóð, hverrar konungur var ósvífjnn og hrekkvís. Hann sló eign sinni á landið helga. Þetta voru Rómverjar, sem komu næst eftir Grikki. Þegar kemur lengra fram i söguna, sér hann hvernig þetta vald upphefur sjálft sig, eyðileggur Guðs fólk, og svo lítur út eins og því muni takast að koll- varpa sannleikanum. Spámanninn fýs- ir að vita, hvort þetta vald muni fá vilja sinum framgengt. Því næst heyr- ir hann einn hinna heilögu spyrja: “Hvað á hún sér langan aldur þessi sýn um hina daglegu fórn, um hina skæðu syndarefsingu, og um það, að bæði helgidómurinn og herinn skuli sel- jast í (hershendur til niðurtroðslu?”— Dan. 8:13. Honum var undir eins svarað: “Það eru 2300 kveld og morgnar, og þá mun helgidómurinn frelsaður verða.” (1 ensku þýðingunni stendur: “Þá mun helgidómurinn verða hreinsaður”. —ÞýðJ. 1 tánkmyndar-spádóm er einn dagur gefinn fyrir eitt ár. /Esek. 4: 5, 6). Þetta 2300 daga tímabil nær fram til hinna siðustu tíma, því engillinn bætir Við: “Þessi sýn viðkemur hinum síð- ustu tímum” (Dan.8: 17). 'Spurningin var: “Hversu lengi?” eða til hvaða tíma. Svarið var: “Það eru 2300 kveld og morgnar. ’ Hvað mun þá ske? Þá mun helgidómurinn frelsaður (hreinsaðurj verða. Sam- kvæmt þessum spádómi megum vér vænta þess, að Guð á hinum síðustu tím- um gjöri skjótan enda á fráfallinu.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.